Vísir - 04.08.1972, Page 3
Visir Föstudagur 4. ágúst 1972
3
10 nýir strœtisvagnar
bœtast í hópinn
Bilarnir eru ai Volvogerð, eins og
þeir sem eru hér fyrir, en þeir eru
57 aö tölu.
Vagnar þeir sem keyptir verða,
eru af nýrri gerð, og hafa veriö i
vinnslu að undanförnu. Þeir eru
að þvi leyti frábrugðnir þeim sem
fyrir eru, að þeir eru nokkuð
lengri,eða um 12 metrar heildar-
lengdin. Vagnarnir eiga að hafa
sterkari vél og þeir hafa sérstök
kynditæki sem kynt eru i köldu
veðri. 40 sæti eru i vögnunum, eða
4 sætum fleiri en i þeim vögnum
sem notaðir eru fyrir. í núverandi
vögnum er lögð áherzla á sem
flest stæði, en i þeim nýju á fleiri
sæti. Inn- og útstig stærisvagn-
anna eru lægri en i núverandi
vögnum, eða um það bil 60 cm.
frá götu.
Þess má svo geta að alsjálf-
Samþykkt hefur verið að kaupa
hingað til lands fimm nýja
strætisvagna, og eru fimm
væntanlegir á þessu ári, en hinir
fimm snemma á næsta ári.
virkur girkassi er i vögnunum,
sem auðveldar vagnstjórum
aksturinn, en þessum vögnum er
ætlað að ganga lengri leiðir, svo
sem i Selás.
Ekki er sérstaklega gert ráð
fyrir barnavögnum eða kerrum i
vagnana, enda ekki miklar kröfur
sem hafa borizt viðvikjandi þvi,
að þvi er blaðinu var tjáð.
—EA
Nýr minnispeningur
vœntanlegur frá
Skáksambandinu
Fyrri peningur „hreinasta forsmán7'
segja myntsafnarar
„Wonderful
Reykjavík?"
Hér á dögunum hitti egJóhann
Sigurðsson forstöðumann F.t. I
London, hann rak inn nefið i
Laugardalshöllina til að kikka á
skáksnillingana og sagði:
„Þctta skákeinvigi er alveg
stórkostlegt og likist engu öðru en
þegar myndin „Wonderful
Copenhagen” var sýnd á árunum
og Danny Kay gerði Danmörk að
einu vinsælasta ferðamannalandi
i Evrópu. Það er skoðun min, að
einvigiö og öll lætin I kring um
Bobby Fischer ætli að verða okk-
ur álika liðsauki við að auka
ferðamannastrauminn hingað og
það svo um munar.” b
Skáksambandið hefur nú i
hyggju að gefa út annan
minnispening i tilefni skák-
einvigisins. -Visir hafði i
morgun samband við Þráin
Guðmundsson hjá Skáksam-
bandinu og spurði hann
frétta varðandi peninginn.
Sagði hann að málið væri að-
eins á umræðustigi. „Það
kemur hins vegar ekki til að
þessi peningur verði eins og
hinn, Það var búið að tak-
marka upplag gullpenings-
ins við töluna 300 og það
stendur.” Siðan ræddum við
málin við Helga Jónsson
varaformann Myntsafnara-
félagsins. „Minnispeningur-
inn er hreinasta forsmán.
Hann er illa sleginn, formið
ljótt og leturgerð fyrir neðan
allar hellur. En samt verð-
um við að taka við honum út
af safngildinu. Við bjugg-
umst við góðum peningi
vegna þess að tilefni var
gott. Fyrir okkur er pening-
urinn ekki bara gripur held-
ur það sem hann minnir á.
Þess vegna urðum við fyrir
miklum vonbrigðum,” sagði
Helgi.
Ef það þarf að endurslá
peninginn þá er verið að rýra
safngildi hans, og eini
peningurinn sem kemur til
greina núna hlýtur að vera
nokkurs konar sigurvegara-
peningur.” Málin hljóta að
skýrast núna mjög bráðlega
og nú spyrja menn: Hvernig
verður næsti peningur?
GF
Stöðugar ferðir á þjóðhátíð í Eyjum
Ferðir á þjóðhátið Vestmanna- dag, og siðan tvær á morgun, um á mánudag. Er einnig að
eyja eru þegar hafnar, jafnt flug- laugardag og sunnudag. Einnig verða fullt i þessar ferðir.
leiðis sem sjóleiðis. Áætlaðar verða farnar tvær ferðir frá Eyj- —EA
ferðir hjá Flugfélagi Islands eru _____________________________________
nokkru fleiri nú en á siðasta ári á
sama tima, og verða farnar 12
ferðir til Eyja i dag, 14 ferðir á
morgun, 4 á laugardag og tvær á
sunnudag. Er að mestu fullt i
þessar ferðir, en allir sem vilja
eiga að geta komizt, þvi farnar
verða aukaferðir eftir þvi hve að-
sókn verður mikil.
A mánudag er siðan búizt við að
farnar verði ferðir á mánudag frá
Vestmannaeyjum á klukkutima
fresti. Mikil aðsókn hefur verið að
þessum ferðum.
Herjólfur fer til Eyja frá Þor-
lákshöfn, og var hafizt handa við
að flytja farþega á þriðjudag á
þjóðhátið. Þá var farin ein ferð,
tvær i gær, tvær eru áætlaðir i
Þau voru
heppin...
Þau voru sannarlega heppin
börnin á barnaheimilinu Sóla i
Vestmannaeyjum, að fá þetta
gamla stýrishús inn i garðinn.
Stýrishúsið er af gömlum bát
m/b Lunda VE, en hann lauk
hlutverki sinu i vetur, þegar
hann strandaöi á syðri hafnar-
garðinum i Eyjum i vetur.
Báturinn var talinn ónýtur
eftir það. Tæki og það sem
reyndist heilt var tekið úr
honum, cn stýrishúsið fengu
börnin.
Sennilega myndu fleiri börn
þiggja það að fá næstum heil-
an bát inn á leikvöllinn hjá
sér, og hver veit nema það
auki sjómennskuáhugann að
mun. Að minnsta kosti hlýtur
svo að vera I Eyjum, þvi sjó-
mennskan er jú þeirra lifi-
brauð, og strákarnir fara
snemma sina fyrstu reisu á
sjóinn. —EA
Óhœfilegar álögur
á almenning
segir miðstjórn Sjálfstœðisflokksins um skattana
„Sérstaklega eru skattaálögur
þe ssar þungbærar elli- og
öror kulifeyrisþegum, sem lítil
úrræði liafa til þess að auka
tekjur sinar”- segir i ályktun
miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins
um skattamál.
Vakin er athygli á þvi, aö hin
nýja skattalöggjöf felur i sér
óhæfilegar álögur á almenning
eins og málsvarar flokksins hafi
varað við, þegar löggjöfin var til
meðferðar á Alþingi. Vandkvæði
eldra fólksins og öryrkja af
þessum sökum séu svo alvarleg
að nú verði nauðsynlega aö gera
ráðstafanir af hálfu rikisstjórnar-
innar til að létta byrðar þessa
fólks, m.a. að lögfesta meö
bráðabirgðalögum að nýju
sérstakan persónufrádrátt elli-
lifeyrisþega.
Bendir miðstjórnin á að
sérstakar ráðstafanir til hagsbóta
fyrir gamalt fólk og öryrkja raski
ekki tekjuöflun rikissjóðs sam-
kvæmt giidandi fjárlögum, þar
sem ástæða sé til að ætla að rikis-
sjóður fái meiri tekjur af tekju-
skatti á þessu ári en fjárlög gera
ráð fyrir. Miðstjórnin leggur
áherzlu á að skattalöggjöfin verði
tekin til raunhæfrar heildar-
endurskoðunar nú þegar og
tillögur til breytinga verði lagðar
fyrir Alþingi, strax og það kemur
saman i haust.
—SG
Árni Björnsson vinnur tónlistarverðlaun
Arni Björnsson, tónskáld og
pianóleikari var annar sigur-
vegaranna i norrænni samkeppni
um verk fyrir blásturshljóöfæri.
Það er danska útvarpið sem efndi
til samkeppninnar, en verðlaunin
eru tvenn, 6.000.- kr. danskar
hvor, eða um 72 þús. islenzkar
krónur.
Verk Árna, sem nefmst „tema
og variæjóneri islandsk folkevise-
stil” er unnið upp úr eldra verki
eftir hann sérstaklega fyrir þessa
keppni. Arni varð fyrir alvarlegu
slysi fyrir mörgum árum, en sið-
an hefur hann unnið tvenn verð-
laun, hin fyrri fyrir nokkrumár-
um hér i Reykjavik um mars fyr-
ir lúðrasveitir.
—ÞS
SAMÚEL & JÓNÍNU MEÐ í FERÐALAGIÐ
Jafn sjálfsagt
og ferðanestið
Lesið i blaðinu viðtal Srnára Valgeirssonar
við Stebba rauða, þar sem hann segir frá
kynnum sinum af hass-lögreglunni. Þá er í
blaðinu hljómplötugagurýni, nýjustu pop-
fréttirnar og risastór mynd af Magga i Trú-
broti.