Vísir - 04.08.1972, Síða 5
Visir Föstudagur 4. ágúst 1972
í MORGUN UTLONDI MORGUN UTLÖND I MORGUN UTLOND
UMSJÓN:
HAUKUR HELGASON
Þjóðaratkvœði á N-
írlandi á nœstunni
Brezka stjórnin ætlar sameinast írska lýð- ,,hafa hemil á reiði
að láta fara fram veldinu. sinni.”
þjóðaratkvæðagreiðslu
á Norður-írlandi innan
skamms um afstöðu
fólks tii sameiningar við
írska lýðveldið, eða
áframhaldandi stöðu
innan Stóra-Bretlands.
Mótmælendur á Norður-
írlandi hafa krafizt
slikrar atkvæðagreiðslu,
en flestir þeirra vilja
vera áfram i Stóra-Bret-
landi. Mótmælendur eru
ein milljón, en kaþólskir
um hálf milljón. Flestir
kaþólskir vilja
Whitelaw hefur boðið
helzta flokki kaþólskra
jafnaðarmanna-
flokknum að senda full-
trúa til fundar við sig á
mánudag. Flokkurinn
hafði neitað að eiga
opinberar viðræður við
fulltrúa brezku
stjórnarinnar, en nú
hefur hann gefið i skyn,
að hann sé reiðubúinn að
ræða við Whitelaw i
næstu viku.
Flokkurinn skorar á
kaþólska landsmenn að
„Rólegur dagur”,
aöeins tveir létust.
Tilkynningin um þjóðarat-
kvæðagreiðslu var gefin eftir til-
tölulega rólegan dag á N-trlandi.
Einn brezkur hermaður var
drepinn, þegar sprengja sprakk,
og sjöunda manneskjan lézt af
sárum eftir sprengingu síðasta
mánudags i þorpinu Claudy. Atta
barna móðir, Rose McLoughlin,
51 árs, var siðasta fórnardýrið.
Þrir kaþólskir og fjórir mót-
mælendur hafa nú beðið bana af
völdum þess hermdarverks.
Með þvi er þekkt dánartala i
átökunum orðin 487.
Siðar i gær skiptust brezkir
hermenn á skotum við skæruliða
við landamæri N-Irlands og Irska
lýðveldisins.
1700 sjúkir af kóleru
Kólera hefur komið
upp á flóðasvæðinu á
Fillipseyjum. Fjórir
hafa þegar látizt úr
kóleru, og 1700 eru
sagðir i sjúkrahúsum
með sjúkdóminn, sem
breiðist ört úr.
400 hafa farizt i flóðunum á
Filippseyjum til þessa.
Hungursneyð ógnar tugum
þúsunda.
Ferdinand Marcos forseti hefur
fyrirskipað að matvælum skuli
úthlutað tafarlaust, þar sem
frétzt hefur, að sums staðar hóti
fólk að gera áhlaup á birgða-
stöðvar.
Marcos kveðst ekki vilja senda
flokk til keppni á Olympiu-
leikunum vegna mikils tjóns, sem
landsmenn hafa beðið i flóðunum
Vill forsetinn að það fé verið
notað til aðstoðar við fólk á flóða-
svæðunum, sem mundi verða
varið til þátttöku i Olympiu-
leikunum ella.
Flugræningjarnir, sem beðið var eftir á Keflavikurflugvelli i vikunni,
eru „spennandi" fyrirbæri i meira lagi. Lögreglan i Detroit er nú að
rcyna að komast til botns i þvi, hvernig stendur á þeim munum sem
myndin sýnir. Þeir fundust á heimili svertingjafjölskyldunnar þar og
ininna á galdradýrkun og heiðindóm, „voodoo”. Fremst er diskur um-
kringdur spápeningum og moldarhaugnum er brúða,rekin i gegn með
hnif.
Skoðanakannanir syna:
Almenningur stóð
með Tom
Stjórnmálamenn, s e m
kröfðust þess, að Eagleton viki
sem frambjóðandi fyrir vara-
forsetaembættiö, virðast ekki
liafa mælt fyrir munn meiri
hluta kjósenda samkvæmt
skoðanakönnun sem timaritið
Time lét gera. Samkvænit
henni sögðu 76,7% að fréttirnar
um, að Eagleton hefði hlotið
læknismeðferð vegna geðsjúk-
leika, hefðu engin áhrif á,
hvernig þeir kysu. Þá var
Kagleton enn frambjóðandi.
2,6% sögðust hafa hætt
stuðningi við McGovern og farið
að styðja Nixon vegna málsins,
önnur 2,6% kváðust hafa komið
til fylgis við Nixon, en þeir
hefðu áður verið hlutiausir.
llins vegar sögðust 2,8% nú
mundu fremur styðja
McGovern vegna málsins en
ella, en crfitt er að skýra þá af-
stöðu manna nema ef hún væri
til „að vera á móti” öðrum, sem
kröfðust afsagnar Eagletons.
McGovern mat stöðuna hins
vcgar þannig, aö Eagleton
skvldi vikja úr sætinu vegna
krafa flestra stjórnmálaleið-
toga og blaðamanna um það.
13% sögðust ekki vita, hvort
Eagletonmálið hefði einhver
áhrif á afstöðu sina, og 1,3%
Eagleton
sögðust sennilega ekki mundu
kjósa hvort eöa væri.
Þau 5,2%, sem Nixon hefði
þannig fengiö frá demókrötum,
ef Eagleton hefði verið fram-
bjóðandi áfram og sé þessi
könnun rétt, gætu auðvitað
ráðið úrslitum i jafnri baráttu.
Á móti koma þó þau 3,8% sem
kváðust styðja McGovern
fremur el'tir að Eagletonmálið
varð i brennidepli. Stjórnmála-
athugendur eru samt á þvi, að
þau 3,8% tákni ekki raunveru-
lega breytingu, svo að hagurinn
hefði væntanlega verið Nixons,
hefði Eagleton haldið sætinu.
Aðalatriðið hefði auðvitað
orðið, hver áhrifin hefðu orðið á
lengri tima og hvernig þetta
mál hefði komið við sögu i
áróðrinum þegar bardaginn
hitnaði.
Fólk var spurt, hvort það teldi
Eagleton hæfan til varaforseta-
embættisins. 53,7% sögðu já, og
18.5% nei, en 27,8% kváðust ekki
vita það.
Af demókrötum töldu
auðvitað fleiri Eagleton hæfan
60% en aðeins 13,3% þeirra
töldu liann óhæfan i 'embættið.
Af republikönum töldu 46,3%
liann hæfan og 25.4% óhæfan.
Ótrygg lyf reynd á fólki
Abraham Ribicoff
þingmaður segir, að 15
lyf, sem ekki hafi verið
heimiluð, séu notuð við
tilraunir á fólki. Upp
hefur komizt um
viðtækar tilraunir með
sárasýki á svertingjum
i Alabama.
399 sveringjar i Macon hreppi í
Alabama sem voru sjúkir af
sárasýki (sýfilis), voru árið 1932
teknir til rannsóknar og saman-
burður gerður á þeim og 201
öðrum, sem ekki höfðu veikina.
Enginn þeirra hlaut neina
læknismeðferð vegna sjúkdóms-
ins, jafnvel eftir að pensillin var
almennt notað upp úr 1946.
Nokkrir létust.
NADER NEFNDUR, EN
MUSKIE ER
HEITASTUR
McGovern sagðist i
gærkvöldi vera að hugsa
um, að hafa Edmund
Muskie varaforsetaefni
sitt. Ilann hefur leitað
umsagnar ýmissa leið-
toga demókrata, um
nokkra menn sem koma
til greina i framboðið.
„Ég mun ræða við Muskie,
áður en ég ákveð hvað ég geri,”
sagði McGovern.
McGovern gagnrýndi aðferðina
við val varaforsetaefna, þar sem
venjan er, að frambjóðandi til
f orse ta em b æ11isins sem
flokksþing hefur kjörið tilnefnir
varaforsetaefni sitt og fær yfir-
leitt stuðning flokksþingsins
hvern sem hann nefnir. „Aðferðin
er i rauninni heilmikið happ-
drætti,” sagði McGovern. Fram-
bjóðendur til forseta eru yfirleitt
„dauðþreyttir og ýtt á eftir þeim
að velja varaforsetaefni á
nokkrum klukkustundum.”
McGovern sagði, að meðal
annarra, sem hann hefði beðið
aðra leiðtoga demókrata að segja
sitt álit i þessu sambandi, væri
Ralph Nader, neytendabaráttu-
maðurinn kunni, og repúblikana-
þingmaðurinn Jacob Javits.
McGovern kveðst hafa boðið
þremur mönnum framboðið en
þeir hefðu neitað, þeim Edward
Kennedy, Hubert Humphrey og
Abraham Ribicoff þingmanni.
Hann neitaði orðrómi um, að
Sergent Shriver, mági Edward
Kennedy hefði verið boðið fram-
boðið.
Víetnam og verð-
bólgan nœr jöfn
Skoðanakannanir sýna, að
Victnamslriðið og verðbólgan
skipa nær jafn háan sess i hug
bandarfskra kjósenda um aðal-
vandainál liðandi stundar.
Þar á el'tir koma næst glæpir og
eiturlyf. Dr. George Gallup, yfir-
maður Gallupstofnunarinnar
segir, að töluverðar breytingar
hafi orðið á afstöðu almennings I
þessum efnum siðan fyrir
forsetakosningarnar 1968.
„Tvöfalt fleiri telja nú, að
Vietnamstriðið sé aðalvanda-
málið”, segir Gallup. „Glæpir
voru i öðru sæti árið 1968, og
verðbólgan var þá neðarlega á
listanum”.
Neyðarástand
komið í gildi
Elisabet drottning undirritaði í
gær yfirlýsingu brezku stjórnar-
innar um „neyðarástand” vegna
vcrkfallanna. Með því fá
stjórnvöldin heimildir tii að
tryggja með róttækum aðgerð-
um, að skortur verði sem minnst-
ur.
Dönsk olía
Danir hafa fengið fyrstu „eigin
oliu”. Fyrsta hráolian frá dönsku
borpöllunum i Norðursjó kom á
land 1. ágúst og hér er Hinrik
prins að skrúfa frá, rennslinu úr
oliuskipinu.