Vísir - 04.08.1972, Page 7
Visir Köstudagur 4. ágúst 1972
7
gefnar á þessu furðufyrirbæri,
ekki einu sinni, þó langir blaða-
mannafundir hafi verið haldnir.
Það vantar fullnægjandi skýring-
ar á þvi, hvernig þennan örlaga-
rika atburð bar að og þó þurfa
menn að reyna að gera sér grein
fyrir þvi.
Svo virðist sem sendinefndirn-
ar hafi fyrri samningadaginn
haldiö áfram umræðum frá þvi i
London að rökræða ýmsar tillög-
ur og hugmyndir um takmörkun á
afla og skipafjölda og fleira. En
að morgni seinni samningadags-
ins gerist það skyndilega að is-
lenzku fulltrharnir greiddu sátta-
umleitunum rothöggið með
strangformlegri kröfu, sem vita
mátti fyrirfram að Bretar gætu
aldrei gengið að. En svo er sagt
frá þessu opinberlega:
..islendingar töldu tilgangs-
laust að halda viðræðunum á-
fram, nema áður fengjust skýr
svör frá Bretum um tvær grund-
vallarspurningar. sem væru for-
senda fyrir samkomulaginu. t
fyrsta lagi, að Bretar viður-
kenndu, að islenzk skip hefðu
meiri rétt en útlend skip til að
veiða á svæðum milli 12 og 50
milna og i öðru lagi, að Bretar
viðurkenndu að islendingar hefðu
óumdeilanlega á hendi fram-
kvæmdavaldið varðandi fram-
kvæmd þeirra reglna sem sam-
komulag næðist um og þar með
fulla lögsögu yfir þeim sem þær
reglur brytu”.
í sjálfu sér er það sem hér er
farið fram á eðlilegt i augum
okkar islendinga, þetta er eðli og
innihald aðgerða okkar. Þrátt
fyrir það hlýtur það að hafa verið
alveg ljóst fyrirfram, að Bretar
gátu ekki gengið að þessu, það er
fjarstæðukennt eins og málin nú
stóðu, að Bretar myndu fara að
gefa út formlega yfirlýsingu sem
fæl i nú i sér eins konar lagalega
viðurkenningu á 50 milunum. Það
sýnist hafa verið fásinna að i-
mynda sér það og þess vegna var
islenzka sendinefndin með þess-
ari kröfu beinlinis að torpedera
og skjóta i kaf frekari samninga-
umleitanir. Hversvegna hún
gerði það, liggur nú alls ekki ljóst
fyrir. Var það kannsi vegna þess,
að brezka samninganefndin var
svo hörð og ósveigjanleg, að ts-
lendingar höfðu komizt að þeirri
niðurstöðu að algerlega væri til-
gangslaust að ræða þetta meira
og bezt að hætta umræðunum.
Eða var það aðeins af þvi að
sjávarútvegsmálaráðherra lá
þessi ósköp á að selibrera ársaf-
mæli hinnar vanheilögu vinstri
stjórnar með reglugerðinni
akkúrat upp á 14. júli. Var ögrun-
arfull afmælishátið látin ganga
fyrir þjóðarhagsmunum? Þvi
miður, við þessari spurningu er
ekkert svar.
En hitt er alvarlegra, að þessi
formlega viðurkenningarkrafa,
gefur ef til vill nokkra hugmynd
um eöli samningaviðræðnanna.
Hún sýnist benda til þess að við-
ræðurnar hafi aldrei komizt út af
hinu formlega stigi, en fyrirfram
er mjög óliklegt að samkomulag
geti tekizt á þvi. Þrátt fyrir um-
mæli um að reyna ætti að ná
raunhæfu samkomulagi utan við
lagahlið málsins, sýnist það ekki
hafa verið reynt i neinni alvöru.
Var slik leið þó ekki til, ef
reglulega hefði verið reynt að
finna hana, eitthvað i likingu við
þær hugm. sem Geir Hallgrims-
son kom fram með i Lundúnaferð
sinni i vor. Það var fyrirfram
vonlaust eins og nú var gert að fá
brezku stjórnina formlega til að
viðurkenna rétt islendinga ,,til að
handtaka, fara um borð og draga
brezka togaramenn fyrir dóm-
stól”, eins og lafði Tweedsmuir
lýsti þvi með sárum og súrum
svip. En var hin leiðin ekki fær og
er hún ekki enn fær, að Islending-
ar veittu undanþáguheimildir án
formlegra samninga, og
siðan ef til þess kæmi tækju þeir
brezka togara þegjandi og hljóða-
laust án formlegrar viðurkenn-
ingar kannski undir formlegum
mótmælum. Væri ekki enn hægt
að ná þessu með þvi að islending-
ar lýstu yfir undanþáguheimild-
um. sem þeir sjálfir buðu til
dæmis fyrir siðutogarana og væri
þá ekki möguleiki á að við yrðum
herskipalausir og allt færi spak-
lega fram. Væri það ekki nær að
gera raunhæfar ráðstafanir,
heldur en að sitja með allt i sjálf-
heldu uppi á þessu formlega sviði,
þar sem fyrirfram er vitað, að
engar sættir eru mögulegar i bili.
Þorsteinn Thorarensen.
IIMN
Loks skein sól
= Róðleggingar til þeirra sem nota sér sólarstundirnar
= 5IÐAIM =
Umsjón: EA
Þó að ekki margir hér á
Suðurla ndinu geti státað af
dökkbrúnni og hraustlegri húðj
þá eru þeir jú alltaf einhverjir
sem á einhvern hátt hafa getað
orðið sér úti um sólskin og
fengið lit á hörundið.
Sólardagar hafa verið fáir og
menn næstum farnir að verða
úrkula vonar að fá nokkuð að
sjá sólina aftur á þessu sumri.
Skýjaður og þungbúinn himinn
hefur blasað við og rigning öðru
hvoru vætt mannskap og borg.
„En fátt er svo með öllu illt, að
ei boði gott,” einhverra orska
vegna hafa veðurguðir séð aö
sér, og menn vöknuðu einn
inorgun við heiðbláan himinn og
sól.
Hrukkur viö augun.
Oft vilja myndast hrukkur i
augnkrókum, og það er ekki
beint skemmtilegt að sjá þar
hvitar rendur ef húðin hefur náð
þvi að verða brún. í flestum til-
fellum koma þó einhverjar
hrukkur eða hvitar rendur, en
til þess að fyrirbyggja þær má
nota sólgleraugu. En þau eru þó
varla heppileg. Ef maður aftur
á móti vill minnka þessar
hrukkur og reyna að fjarlægja
þær, þá má nota mjúkt krem,
sem klappað er lauslega inn i
húðina, eða þá nota rakarem og
bera siðan gott augnkrem á
húðina á hverju kvoldi.
Ef dylja á hrukkurnar alveg,
er bezt að nota litaða sólaroliu
eða litað andlitskrem. Rakarem
verður þó að bera á húðina áður.
Er húðin þurr. og liflaus?
Ef húðin er þurr, grá og lif-
laus eftir allt of langt og harka-
legt sólbað, er hægt að gefa
henni lif með ýmsu móti. Gott er
að fara i mjög heitt bað og
bursta húðina siðan vel, þannig
viö naglalakkið, verður fyrst að
bera á neglurnar naglabanda-
krem og lakka þannig að rönd
myndist við naglaböndin svo
neglurnar eigi auðveldara með
að vaxa. Það þarf sennilega
varla að minnast á, að góð og
vitaminauðug fæða er það á-
kjósanlegasta til þess að halda
nöglunum góðum og sterkum.
Ávextir og grænmeti er holl og
góð fæða fyrir allanlikamannog
járn er eitt af þvi sem neglurnar
þarfnast mjög. Slæm fæða get-
ur orðið þess valdandi að
neglurnar verða stökkar og er
hætt við að brotna.
Er hárið slitið og klofið?
Á hárgreiðslustofum er hægt
að fá alla hugsanlega hjálp við
slitnu eða klofnu hári. En það
eru einnig til aðferðir við sliku,
sem hver og einn getur reynt
sjálfur. í fyrsta lagi þarf að
klippa burt úr hárinu alla klofna
enda, sem tekur þó sennilega
sinn tima, en hægt er þó að fá
hjálp. Hárið ber siðan að þvo
upp úr mildu barnashampo eða
shampo sem inniheldur vitamin
Siðan skal hárið skolað úr volgu
vatni og köldu, ef maður vill fá
það til þess að glansa vel. Loks
má bera i það hárnæringu. og
hún höfð i jafn lengi og leiðar-
visirinn segir til um, og enn skal
hárið skolað.
Þá verður að þurrka það vel
og vandlega með handklæði og
helzt að nota greiðslu, sem ekki
þarf mikið tilstand við, þannig
að hárið fái að vera sem látlaus-
ast og eðlilegast. Greiðslan,
sem sýnd er hér á siðunni er
heppileg.
Ef notaðar eru rúllur, er gott
að setja bréf á milli hársins og
rúllunnar, en hárið er siðan
þurrkað með þurrku sem stillt
er á mjög lágt hitastig, en einna
bezt er þó að lofa þvi að þorna
að sjálfu sér. Þegar búið er að
fjarlægja rúllurnar er gott að
setja hárkrem neðst i hár-
toppana. Hárspray verður að
vera mjög milt. Að nota lit i
hárið þegar það er illa farið af
sól, er mjög varasamt.
Og þar sem framundan er
löng og góö frihelgi, og veður-
fræðingar boða sól, þá gerum
við hér á Innsiðu ráð fyrir að
margir hverjir komi til með að
dotta i grasinu einhvers staðar
fyrir utan borgina og nái sér
jafnvel i brúnan lit á liörundiö.
Og við birtum ýmsar ráð-
leggingar til þeirra sem vilja fá
að halda þeim brúna lit eða
þeirra scm eiga i einhvcrjum
erfiðleikum með húðina eftir að
hún hefur brunnið.
að auðvelt sé að fjarlægja dautt
skinn. Á eftir verður að þurrka
húðina rækilega og bera hana
krem, þegar hún er alveg orðin
þurr. Ekki hægt að strjúka
kremið lauslega á húðina.
Ráðlegast er að byrja á
höndum og fótum, og bera
kremið vel á alls staðar. Eftir
slika aðferð er gott að taka sér
rækilega hvild, en gera þetta
siðan i nokkra daga, rétt á
meðan húðin er að ná sér aftur.
Á olnboga og hné er gott að bera
örlitið feita oliu.
Það er sama saga með
andlitið sjálft. Sólbruninn vill
oft verða mjög ójafn, og er þá
nefi og enni hættast við að
brenna mest. Hreinsa má and-
litið mjög vel, þurrka siðan og
bera á feitt krem. Siðan er gott
að hafa andlitið yfir mjög heitu
vatni i um það bil fimm minútur,
og hreinsa loks kremið af með
köldu vatni. Sólaroliu er gott að
nota undir litaö andllitskrem i
þessu tilfelli, og þegar komið er
að málningu, má setja fölan lit á
kinnar, litiö litaðan gloss varalit
á varir, og gljáandi augn-
skugga.
Nöglunum þarf einnig að
halda góðum
Það er ef til vill rétti timinn til
þess að taka neglur i gegn þegar
hvild er tekin frá ritvélinni eða
hinum daglegu störfum. Þó ættu
neglurnar varla að vera i slæmu
ástandi i sól og góðu útilofti. En
ef svo er, þá er fyrsta skilyrðið
að hætta notkun naglalakks og
efna sem fjarlægja lakk af
nöglum. F’innist manni það
slæmt að burfa að segja skilið
Frá
Náttúruverndarráði
um rusl á
víðavangi
Náttúruverndarnefndir eru hvattar til að vinna að
því, að framfylgt sé þeim ákvæðum 13. greinar
náttúruverndarlaganna, sem kveða svo á að:
„Á víðavangi er bannað að fleygja frá séreða skilja
effir rusl, sem er til hættu eða óprýði, svo og að bera
rusl eða sorp í sjó, í f jörur eða á sjávarbakka, í ár
eða á árbakka, í læki eða á lækjarbakka. Skylt skal
að ganga frá áningarstað og tjaldstæði, er menn
hafa tekið sér úti í náttúrunni, þannig að ekkert sé
þar eftir skilið, sem lýti umhverfið.
Bannað eraðsafna rusli í hauga á almannafæri eða
við alfaraleiðir. Skylt er að ganga svo frá sorp-
haugum, að hvorki fjúki úr þeim né fljóti. Hreinsa
má rusl á kostnað þess, sem sannur er að broti á
fyrirmæli þessu."
Náttúruverndarráð