Vísir - 05.08.1972, Blaðsíða 5
Ópium , morfin og
kódin eru ekki lengur
ómissandi i nútima
lækningum, að sögn
visindamanna, sem
starfa hjá alþjóðlegu
heilbrigðismálastofn-
uninni.
1350 tonn af ópium fara nú ár-
lega til lækninga i heiminum og
nærri jafn mikiö kemst á eitur-
lyfjamarkaðinn.
Sérfræðingar komast að
þeirri niðurstöðu, að ýmis efni
séu til staðar, sem geti komið
algerlega i stað ópiumafurð-
anna. morfins og kódins.
Morfin er notað til að lina
þjáningar.og kódin við hósta, og
minni háttar þjáningum.
Þeir segjajað önnur efni geti
linað þjáningar að sama skapi
og jafnvel verið betri til þess.
Fjölskylda, sem bjó við suður strönd Luzoneyju á Filippseyjum, flýr með föggur sinar.
Hroðalegt ástand á flóðasvœðunum:
Fólk etur ketti,
slöngur og rottur
i
undum skammt frá höfuðborginni
Maila. Matarskorturinn hefur
valdið hörðum átökum og of-
beldisverkum.
Kona, sem átti búð i bænum
Samal, var stungin til dauöa af
fólki, sem sagði, að hún neitaði
þvi um mat á eðlilegu veröi.
Kólera geisar á svæðunum, og
er verið aö bólusetja.Fyrstu frétt-
ir um útbreiðslu veikinnar munu
þó hafa verið ýktar eða misfarizt
en sagt er, að fjórir hafi nú látizt
úr henni og mörg hundruð veikzt.
Olíugeyma-
sprengingin
skemmdarverk
Þrettán slösuðust, þegar
fjórir stórir oliugeymar
sprungu skammt frá
italska hafnarbænum
Trieste i gær. Við einn
fundust leifar sprengju-
þráða, sem bendir til
skemrridarverks.
Slökkvilið barðist ötullega til að
reyna að slökkva mikinn hluta
dag. Fyrst höfðu þrir geymar
sprungið með skömmu millibili,
og i þeim fjórða kviknaði, þegar
geymarnir þrir hrundu og logandi
olian flæddi um.
Margir slökkviliðsmenn fengu
alvarleg brunasár.
FLOKKUR WALLACE BÝÐUR FRAM ÁN HANS
„Ameríski flokkurinn"
svokallaði undirbýr fram-
boð án foringja síns,
George Sallace, sem segist
ekki verða i framboði til
forsetakosningar.
Wallace tók þátt i próf-
kosningum i demókrataflokknum
og gekk allsæmilega. Var þá
talið, að hann hygðist engu siður
bjóða sig fram i forseta-
kosningum fyrir „þriðja flokk.”
Wallace er nú i endurhæfingar-
stöð i Birmingham og i þjálfun
vegna lömunar á báðum fótum
eftir morðtilraunina, er Arthur
Bremer skaut á hann.
Eftir fráhvarf Wallace er John
Smith , sem hefur verið i
repúblikanaflokknum, talinn lik-
legastur frambjóðandi ameriska
flokksins.
Smith er 41 árs og hann beið
ósigur i prófkosningum repúblik-
ana i Kaliforniu.
Mörg þúsund manna á
flóðasvæðunum á Filipps-
eyjum neyðast til að eta
ketti, rottur og slöngur til
að hjara. Þetta segir fólk,
sem hefur komizt frá þeim
svæðum, sem verst urðu
úti.
Þetta eru verstu flóð i sögu eyj-
anna, og hafa að minnsta kosti 397
látið lifið á þremur vikum.
Hungurdauðinn vofir yfir þús-
Hver hreppir?
Þessir hafa verið nefndir seni varaforsetaefni demókrata. Neöst eru
Kdmund Muskie, Lawrence O’Brien og Patrick Lucy, talið frá vinstri.
A efri hiutanum eru frá vinstri Gaylord Nelson, Frank Church og Sar-
gent Shriver.
Visir Laugardagur 5. ágúst 1972
I MORGUN UTLONDI MORGUN UTLÖND í MORGUN UTLÖND
UMSJON:
HAUKUR HELGASON
BREMER I
FANGELSI
í 63 ÁR
Tilræðismaður George
Wallace, Arthur Bremer,
var igærdæmdursekurog í
63ja ára fangelsi fyrir
verknaðinn.
Kviðdómur sex karla og
sex kvenna kvað upp dóm-
inn, og var Bremer dæmd-
ur sekur í öllum liðum
ákærunnar.
George Wallace var skotinn á
kosningafundi i Marylandfylki.
Ákærandi vitnaði til dagbóka,
sem fundust á heimili Bremers,
þar sem hann lýsir þvi, hvernig
hann „vildi myrða Nixon for-
seta.” Ákærandi sagði, að hvötin
til verknaðarins hefði verið sú ósk
Bremers að verða „frægur og
umtalaður maður.”
„En nú er hann bara annars
flokks morðingi, þar sem honum
mistókst," sagði ákærandi.
Verjandinn sagði, að Bremer
væri „hreinn geðklofi” og hefði
ekki stjórn á tilfinningum sinum.
Hann taldi einnig, að ekki væri
sannað, að kúlurnar, sem fundust
i likama Wallace, væru úr byssu
Bremers. Þaö væri heldur ekki
fullsannað, að Bremer hefði
helypt af skotum á staðnum, að
sögn verjandans.
1 vörn málsins var fyrst og
fremst haldið fram, aö Bremer
væri ekki sakhæfur vegna geð-
veiki.
Kviðdómur hafnaði þessum
kenningum.
BYRLAÐ EITUR
Á SJÚKRABEÐI
Stúlka nokkur reynai
að eitra fyrir skæruliða-
loringja i Palestinu.sem
hafði særzt lifshættu-
lega i sprengingu.
Læknar höfðu bannað gesta-
komur að sjúkrabeði Bassam Abu
Sharif, foringja alþýðufylkingar
Palestinu. Sprengja hafði
sprungið framan i hann og hann
missti annað augað og þrjá
fingur.
Stúlkan kom með tárvot
augu og færði blóm og brjóst
sykur. Hún skildi þetta eltir í
næsta herbergi við sjúkrastofuna
og hugðist þvi einnig eitra fyrir
gestina.
Ættingjar skæruliðans fengu
grunsemdir við hegðun
stúlkunnar og kvöddu til lögreglu.
Rannsóknir sýndu að brjóst-
sykurinn var eitraður.
Opíum, morfín og
kódín, nú óþarft