Vísir - 05.08.1972, Blaðsíða 9

Vísir - 05.08.1972, Blaðsíða 9
Visir Laugardagur 5. ágúst 1972 9 Staður í Grindavík Mörg eru eyðibýlin, sem blasa við vegfarendum, bæði inn til dala og út við sjó. Þessi sjón er eðlileg afleiðing af þeim miklu búferlaflutningum sem hafa átt sér stað i landinu undanfarna áratugi. Engar horfur eru á að þessu linni enn sem komið er. Jarðirnar, sem i eyöi hafa fariö á þennan hátt eru bæði smákot og stórbýli og allt þar á milli, þará meðal nokkur prestssetur. Eitt af þeim er Staður i Grindavik, sem fór i eyði vorið 1964 og þar með Staðarhverfið allt, því að Grindvikingar fóru að hópast kringum Hópið, þegar þar var komin ein bezta höfn Suðurnesja. Þar er ekkert lát á nýbyggingum vegna sivaxandi ibúafjölda þessa myndarlega þorps á suðurströnd Reykjanes- skagans. En utar á ströndinni hnipir Staðurinn i eyði, prest- setriö, kirkjustaðurinn, bærinn, sem áður var sagður i miðri byggð. Fyrst var kirkjan flutt árið 1910, svo flutti presturinn sig tæpum tveim áratugum sið- ar. Svo liðu árin. En eftir þvi sem þéim fjölgaði, fækkaði ibú- um Staðahverfisins. Seinast var hann oröinn einn, bóndinn á Stað, Gamaliel Jónsson. Hann andaðist 4. marz 1964. Húsið á Stað er reisuleg bygg- ing og er nú sumarbústaöur. Og Grindvikingum þykir vænt um það. Lvons-klúbbur plássins hefur málað það að minnsta kosti tvisvar sinnum. Og einn sunnudag i sumar komu nokkrir félagar úr Staðhverfingafélag- inu þangað suöur eftir á fornar Þetta sýnir ræktarsemi viö enn legstaður Grindvfkinga i slóðir til að dubba upp á gamla þetta yfirgefna pláss. En þótt grænu túni gamla prestsseturs- prestssetrið sitt með málningu. kirkjan og fólkið sé farið, þá er ins. Velferðarríki Valdimars Briem Hve sælt er sérhvert land, þótt sé það bert og kalt, ef öflugt bræðraband þar bindur fólkið allt. Þótt vanti völd og auð, er velliðan þar góð, þar blessast daglegt brauð, þar byggir dæmdar þjóð. Þannig hefst kunnur sálmur eftir hið vinsæla skáld, vigslu- biskupinn á Stóra-Núpi. Hvaða land er sælt að hans dómi? Þar sem almenn velmegun rikir? Þar sem menn búa við nægtir alls og áhyggjuleysi? Þar sem kaupgetan fer vaxandi og ytri kjör batna með hverju ári? Nei: þvi fer fjarri, að þetta sé rétt mynd af velferðarriki Valdimars Briem. Kaupgetu-aukningin og hag- vöxturinn, það eru keppikefli hins veraldlega velferðarrikis, enda má með sanni segja að þar hafi orðið talsvert ágengt. En nú er eins og þeir, sem þar hafa staðið fremstir i flokki vakni upp við vondan draum. Þeir virðast vera að komast að raun um það, að lifsgleði, ánægja, innri friður og fullnægja hafi alls ekki vaxið að sama skapi og kaupgeta og kjarabætur. Þess vegna hefur verið komist svo að orði að ,,hún (lifshamingjan) hefur örugglega ekki aukist i markaðsþjóðfélagi hins stöðuga hagvaxtar.” (Þjóv. 21. 6. 1972). Hér er kveðinn upp sá dómur að ekki nægir efnaleg velmegun ein til að skapa sæluriki á jörðu. Það þarf annað og meira til. Fólkið þarf að nota hinn aukna arð vinnu sinnar á réttan hátt til að láta gott af sér leiða hver og einn i sinu umhverfi. Og það gerir þjóðin þvi aðeins að öflugt bræðraband bindi fólkið allt „eins og sr. Valdimar kemst að orði i sálmi sinum, sem fyrr er vitnað til. Þetta sjónarmið sálma- skáldsins á Stóra-Núpi er vitan- lega i fullu samræmi við þann meginþátt i kenningu kristin- dómsins að það er kærleikurinn, sem á að ráða i öllum samskipt- um mannanna. Með þakklæti i hjarta til skaparans eiga menn *Sér« ViiUliinur Bricm á /iinmtugsuldri. að þiggja gjafir lifsins og með» kærleiksrikum huga eiga menn að skipta þeim milli sin. En þetta er þvi miður ekki hið rikjandi sjónarmið. Það er kröfugerðin en ekki fórnar- lundin, sem fær að setja mót sitt á framkomu bæði hópa og einstaklinga. Og það sannast hér sem oftar, að mikill vill allt- af meira. Aldrei — á meira en 100 ára æviferli þjóðarinnar hef- ur hún haft meira að bita og brenna heldur en nú. Aldrei hafa nægtirnar verið meiri svo að segja á hvaða sviði sem er. Samt hafa kröfurnar um meira og meira af öllu tagi aldrei verið háværari. Aukin kaupgeta, hag- stæðari kjör, meiri eyðslueyrir er krafa dagsins. Merki kröfunnar er hvarvetna við hún. Undir þessum fána eru allir að berjast. Og það er i raun og veru alveg sama, hversu mikla sigra þeir vinna á þessum vettvangi. Alltaf er búist til nýrrar bar- áttu, stærri vinninga. Og þetta er i sjálfu sér alveg eðlilegt. Enginn hagvöxtur get- ur uppfyllt „þarfir” þess kröfu- freka, engin kaupgeta getur fullnægt hugarstefnu þess öfundsama, engar kjarabætur hafa ráð við eyðsluseminni og lifsþægindagræðginni. Heims- hyggjunni finnst kjörin aldrei mannsæmandi, hvað þá meira. Með slikum sjónarmiðum á kristin lifsskoðun enga samleið. Hún leggur að visu áherzlu á réttláta skiptingu heimsgæð- anna, sem aöeins fæst með þvi að kærleikurinn fái að skipta. Og þá leiðir sú skipting lika til þess, að ávextir þroskast i mannlegu samfélagi. Og þeir eru — eins og segir á einum stað i orði Guðs: Kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæzka, góðvild, trúmennska, hógværð, bindindi. Með þvi að raða orðunum i 22. versi 5. kap. Galatabréfsins á þennan hátt er þetta orðið ágætt nútimaljóð. Ekki ætti það að spilla lesningu þeirra. En það er með þennan ritningarstað eins og raunar fleiri. Það er ekki nóg að lesa hann, ekki einu sinni nóg að ihuga efni hans. Það á að lifa hann, letra hann á hjarta sitt og láta hann verða sitt daglega lif — fylla sál sina, gegnsýra huga sinn, mótbreytni sina og fram- komu, svo að við fáum hafist yf- ir lágkúrulegan leik lifsþæg- inda-kapphlaupsins og gengið fram sigurglöð og fagnandi i samfélagi kærleikans þar sem „öflugt bræðraband — bindur fólkið allt”. 1 siðari erindum þessa sálms talar sr. Valdimar um kosta- rýra byggð og þröng hús og smá. Hann vissi sem var, að ekki náðu gull-Hrepparnir hans yfir Island allt og þá voru hús- næðismálin ekki komin á hallar- stig velferðarsamfélagsins. En hér ber allt að sama brunni. Þetta hafði i raun og veru ekki svo mikið að segja. 1 hinni kostarýru sveit gat verið sælt að búa ef ekki skorti dáð og tryggð og guðsótta. Ög hin þröngu hús gátu veriö unaös- reitir þeim sem áttu hið sáttfúsa hjarta. Þannig var velferðarriki Valdimars Briem. Það á vel við að enda huglciðingu um það með þessu fallega erindi eftir Stein skáld Sigurðsson: Þar sem Drottinn ber á borð blessun streymir niður. Þar sem hljómar himneskt orð helgur rikir friður. Fyrir allt sem mettar mann miklum dýra gjafarann: Lof og dýrð sé Drottni. Stefánssteinn Sr. Stefán Þorleifsson i Presthólum (1720 - 1797) var gáfumaður mikill og vel skáldmæltur. Um hann eru margar sagnir. Sr. Stefán var mikill reykingamaður og mátti ekki án tóbaks vera til lengdar. Bar hann jafnan á sér eldfæri og kveikti i pipu sinni þegar hann var á ferð. A Leifhafnarskörðum milli Núpasveitar og Sléttu stendur á einum stað einkennilegur steinn, sem nefndur er Stefánssteinn. A sr. Stefán að hafa kveikt þar i pipu sinni og gefið steininum nafn meö þessari stöku: Hér hefi ég slegið eldinn einn oft þó varakaldur. Þessi gamli Stefánssteinn stendur heims og aldur. Frœkorn Vinaskilnaður Og nú fel ég yður Guði og orði náðar hans, sem máttugt er aö uppbyggja yður og gefa arfleifð með öllum þeim, sem helgaðir eru. Ég hefi eigi girnst silfur eöa gull eða klæði nokkurs manns. Sjálfir vitið þér, að hendur þessar unnu fyrir öllu er ég þurfti að hafa og þeir er með mér voru. 1 öllu sýndi ég yður, að með þvi að vinna svo, verðum vér að taka að oss hina óstyrku, og minnast orða Drottins Jesú, aö hann sjálfur sagði: Sælla er að gefa en þiggja. Og er hann hafði þetta mælt, féll hann á kné ásamt þeim öllum. Og allir tóku sáran að gráta og féllu um háls Páli og kysstu hann og voru allra hryggnastir yfir orði þvi sem hann hafði mælt, að þeir mundu aldrei framar lita auglit hans. Siðan fylgdu þeir honum til skips. POSTULASAGAN 20. kap.) Vœnlegasta leiðin Ég minnist þess að Þórarinn Björnsson skólameistari, hið mikla vit- og göfugmenni sagði eitt sinn við okkur nemendur sina i ræðu á Sal i Menntaskólanum, að ein vænlegasta leiðin til þekkingar og þroska væri sjálfs ögunarleiðin sú að hafa taum- hald á löngunum sinum og eðlis- hvötum. Og i þvi skyni væri sú ágætust æfing að neita sér dag- lega um eitthvað, er við kæmi hinum óæðri áhugamálum. Við það yrði hugurinn frjáls en ekki þræll nautna og heimshyggju. Ég nefni þessi ummæli hins merka skólamanns hér af þvi að þau eiga sérstaklega við áfengið, af þvi að það er eitt áhrifarikasta svæingarlyf hugarorku og lætur svo marga missa marks i lifinu. (Úrræðusr. Guðm. Þor- steinssonar) Sœlla að gefa en þiggja Oll atvinna lands og sjávar hefur heppnast báglega og margir bræður vorir og systur nær og fjær eiga, hvað efnahag snertir.mjög erfiða stöðu og hafa átt undanfarin ár. Sakir þess óvenjulega hnekkis höfum vér orðið aðþiggja gjafir af útlendum þjóðum, sem ef rétt er álitið, er ekki litið neyðarúr- ræði og aðgæzluvert að slikt verði ekki til skaða fyrir þann sjáifstæða hugsunarhátt, sem hverri þjóö liggur lifið á að inn- ræta sér. Verður i þvi tilliti aldrei of gert aö brýna fyrir sjálfum sér og öðrum orð Drottins, er hann sagði: Sælla er aö gefa en þiggja. (Úr prédikun sr. Páis i Gaulverjabæ 1885.) ✓ BÆNARHVÖT Á hljóöri stund oss helgur andi leiðir á Herrans fund Þá játum trú/ er götu vora greiðir og gripum styrka mund. Drottinn, sem oss bezta veginn velur og vizku gefur þá sem í sér lifið eilift, fegurst felur — já finna hver það má, sem biður heitt og vakir verði á. S BOLLI GUSTAVSSON.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.