Vísir - 10.08.1972, Blaðsíða 8
Vísir Fimmtudagur 10. ágúst 1972
í;rJWg'M;i« " 'i’MnMjjÉRlliðM
Visir Fimmtudagur 10. ágúst 1972
-■■r
Arese, hlauparinn
sem ítalir telja
oruggan um sigur
— Evrópumeistarinn
Franco Arese, hár og
grannur hlaupari, er
kunnasti iþróttamaöur
italska olympíuliðsins— og
sérfræðingar á Italiu vilja
aðeins ræða um hver
verður i öðru sæti á eftir
1500 m. hlaupi er helzta von Ítalíu
hinum 28 ára Arese í úr-
slitahlaupinu í 1500
metrum á Olympíuleikun-
um i Múnchen.
Franco Arese hefur fengið
viðurnefnið „mannlega tölvan”.
- Nokkrum minútum eftir að
hann hafði sigrað i 1500 metra
hlaupinu í.=Helsinki i ágúst i fyrra
og var þar með orðinn Evrópu-
meistari i hlaupinu, neitaði hann
alveg að mæta i hófi á eftir, þar
sem hann sagðist strax þurfa að
fara aö áætla æfingar sinar fyrir
Olympiuleikana i Míinchen.
Á heimsafrekaskránni i 1500
metra hlaupi fyrir siðasta ár var
Franco Arese i ööru sæti á eftir
Marty Liquori frá Bandarikjun-
um, en Liquori mun ekki keppa á
leikunum i Munchen vegna
meiðsla.
— í sumar verðum við að ná
okkar bezta einu sinni, segir
Arese, og það er á Olympiu-
leikunum. önnur hlaup skipta
ekki máli — og ég mun engar
áhyggjur hafa af þvi þó ein-
hver sigri mig i hlaupi fyrir
ágúst.. Það mun ekki neitt breyta
áætlunum minum.
Arese, sem aðeins tapaði i einu
hlaupi i fyrra og það fyrir
Liquori, hefur tvivegis verið
sigraður i sumar á sinni beztu
vegalengd, 1500 metrunum. En
enginn á ítaliu hefur áhyggjur af
þvi og þessi mikli italski hlaupa-
garpur hefur ákveðiö að keppa
aðeins i. 1500 metrunum i
Múnchen þó svo hann eigi öll
itölsku hlaupametin, allt frá 800
metrum upp i 10000 metra.
— Ef ég sigra, segir Arese, munu
einhverjir segja, að það hafi
aðeins verið vegna þess að
Liquari gat ekki keppt, og að
Kipchoge Keino ætlar að sleppa
1500 metrunum á þessum leikum
— en hann sigraði á vega-
lengdinni i hæðunum miklu i
Mexikó-borg 1968. En ég mun
sanna, að ég er sigurs verður.
Það.sem kemur okkur hvað
mest á óvart, er stálvilji Franco
Arese til sigurs, segir Bruno
Cacchi, tækniráðunautur italska
ólympiuliðsins. En hann hefur
lika allt til að bera — hann er
greindur, fljótur og hann er
traustari en stál.
Franco Arese, sem er svo
grannur að löngum virðist að
hann sé á mörkunum að falla i
ylirlið, hleypur um 25 kilómetra
daglega.
Einu sinni sagði aðdáandi við
mig, að það sem ég þyrfti helzt til
að sigra væri góð steik,- segir
Arese. Ég tók þátt i 1000 metra
hlaupi skömmu siðar — sigraði og
setti nýtt italskt landsmet —
aðeins til að sýna honum fram á,
að ég þyrfti alls ekki á neinni
steik að halda eftir allt. (AP)
Franco Arese, að ofan,
mesti hlaupari heims í 1500
metrum, segja ítalir, og
hann ætlar sér að sigra í
Múnchen. En það eru
margirá annarri skoðun og
sennilega verðurerfitt fyrir
Evrópumeistarann að sigra
bandarisku hlauparana —
Jim Ryan, heimsmethaf-
ann á vegalengdinni sem
sést til hægri á neðri
myndinni og Dave Wottle,
nýju hlaupastjörnuna (með
húfu) sem auk þessað vera
góður 1500 m hlaupari
hefur jafnað heimsmetið i
800 metra hlaupi.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiíniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiijj|
Þór Hreiðarsson, Breiðabliki var bezti maöur á vellinum i gærkvöldi, =
þegar Breiðablik sigraði Akranes. Hann lék oft vörn Akurnesinga grátt =
Þór Hreiðarsson, Breiðabliki var bezti maöur á vellinum i gærkvöldi, =
þegar Breiðablik sigraði Akranes. Hann lék oft vörn Akurnesinga grátt =
með liraða sinum og ieikni og skoraði úrslitamark leiksins með hörku- =
fallegu skoti. Hér er hann með knöttinn — vigalegur á svip — en að =
þessu sinni tókst honum ekki að koma honum framhjá markverði j|
Akurnesinga. Ljósmyndir Bjarnleifur.g
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiimiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin
Mikil breyting
á golfliðinu!
Sigurganga Akurnesinga stöðvuð í 1. deild
Blikarnir komnir í bar-
áttu efstu liða mótsins
Mesta baráttuliðið i is-
1 e n z k r i k n a 11 s p y r n u,
Breiðablik úr Kópavogi,
bætti enn tveimur stigum i
gott safn sitt i 1. deildinni,
þegar liðið sigraði væng-
brotið lið Skagamanna á
Melavellinum i gærkvöldi 1-
0. Það var verðskuldaður
sigur og Kópavogsliðið, sem
margir spáðu falli, þegar
keppnin hófst i vor, er nú
komið i baráttu efstu liða
mótsins og draumurinn um
þátttöku i Evrópukeppni
næsta ár er nú ekki svo fjar-
lægur eftir þrjá sigurleiki i
röð.
Eftir næstum tvo mánuði án taps
kom loks að þvi, að Skagamenn biðu
lægri hlut i deildinni. Það tap kom ekki
svo mjög á óvart, þegar á það er litið,
að þeir er eru án margra lykilmanna
sinna — i gærkvöldi kom vel i ljós, að
liðið er ekki upp á marga fiska, þegar
Eyleif Hafsteinsson vantar, hvað þá,
þegar á það bætist, að Matthias Hall-
grimsson, Haraldur Sturlaugsson og
Björn Lárusson eru einnig meiddir.
Raunverulega furðulegt hvað Akur-
nesingar hafa hlotið mörg stig i mótinu
eins grátt og meiðsli hafa leikið þá.
Nokkra leikmenn vantaði einnig hjá
Breiðabliki i gærkvöldi eins og Ólaf
Hákonarson, markvörð, og framherj-
Jóhannes Daviðsson bakvörður Skagamanna, spyrnir frá áður en Gunnar
Þóröarson, hinn ungi miðherji Breiöabliks, sem vakti mikla athygli i leiknum,
nær til knattarins.
ana Hinrik Þórhallsson og Guðmund
Þórðarson, auk bakvarðarins Helga
Helgasonar, en það kom ekki að sök,
þvi þeir leikmenn, sem komu i þeirra
stað, fýlltu vel stöðurnar, öfugt við
það, sem skeði með flesta nýliða Akur-
nesinga.
Leikurinn i heild var slakur — held-
ur litil og léleg knattspyrna á hörðum
malarvellinum, en spenna var hins
vegar mikil og marktækifæri beggja
liða fjölmörg. Breiðablik var sterkari
aðilinn og lék ekki eins stórkallalega
knattspyrnu og fyrr i mótinu, enda
leikmenn liðsins komnir yfir þá
spennu, sem tilhugsun um fall orsak-
aði lengi vel — og af og til sáust snotr-
ar leikfléttur og samleikur liðsmanna.
Akurnesingar léku sinn lakasta leik i
mótinu — skiljanlegt, þegar meiðslin
leika liðið svo grátt og auka á tauga-
spennuna hjá leikmönnum til mikilla
muna.
Óttinn við tap var svo greinilega
þvingandi — erfitt að standa i baráttu
um islandsmeistaratitilinn með væng-
brotnu liði.
Marktækifærin létu ekki á sér
standa. Strax i byrjun renndi Teitur
Þórðarson gegnum vörn Blikanna en
eftir að hafa leikið á þrjá leikmenn
reyndi hann einum of mikið og bjargað
var i horn. Knötturinn barst að hinu
markinu — Þór Hreiðarson, bezti
maðurinn i leiknum, gaf vel til Heiðars
Breiðfjörð, sem spyrnti beint á mark-
mann. Nokkru siðar fékk Heiðar bezta
tækifæri leiksins — stóð einn fyrir gal-
opnu marki, eftir að knötturinn hafði
hrokkið til hans af Akurnesing eftir
hörkuskot Þórs, en það átti að negla
knöttinn i markið af metersfæri, þegar
hægt var að ganga með knöttinn i
markið, og hann flaug framhjá stöng
— næstum út að girðingu.
Um miðjan hálfleikinn léku Teitur
og Hörður skemmtilega gegnum vörn
Blikanna— Hörður komst i gott færi, en
gaf i þess stað á Teit og spyrna hans
lenti beint á markverði, og undir lok
hálfleiksins komst mark Skagamanna
tvivegis i hættu, en allt bjargaðist.
Fyrst i siðari hálfleik var hættan við
mark Blikanna — varamarkverðinum
Gissuri Guðmundssyni urðu tvivegis á
mistök, en tókst svo að bjarga öllu á
siðustu stundu — reyndar táknrænt hjá
honum mest allan leikinn, en lánið var
hans megin. Og svo náðu Blikarnir
snöggu upphlaupi — vörn Skaga-
manna opnaðist illa. Miðherjinn
Gunnar Þórarinsson dró að sér
varnarmenn og lagði siðan fallega á
Þór frian i vitateigshorninu. Þór lék
aðeins nær og hörkuskot hans flaug i
markið — sigurmark leiksins.
Akurnesingar reyndu mjög að jafna,
en hættan varð oftast meiri þeirra
megin. Haraldur Erlendsson átti
hörkuskot, sem Hörður varði glæsi-
lega, og aðeins siðar átti Haraldur
stórfallegt skot utan vitateigs, sem
Skagamaðurinn átti enga möguleika
að verja —en þversláin bjargaði hon-
um.
Rétt fyir leikslok munaði litlu að
Þröstur jafnaði fyrir Akranes. Hann
lék upp miðjuna, gaf á Hörð, og brun-
aði sjálfur inn i vitateiginn. Hörður gaf
til hans, en aðþrengdur spyrnti Þröst-
ur aðeins framhjá af tveggja metra
færi.
Þór Hreiðarson lék stórt hlutverk i
þessum leik fyrir Breiðablik og vörn
Skagamanna átti erfitt að ráða við
hraða hans. En margir aðrir vöktu at-
hygli. Karl Steingrimsson hefur ekki i
annan tima leikið betur, Gunnar er
sókndjarfur miðherji, og þeir Harald-
ur, Rikharður Jónsson og Einar Þór-
hallsson standa alltaf fyrir sinu.
I liði Akurnesinga vakti Karl
Þórðarson mesta athygli, og sá dreng-
ur á áreiðanlega eftir að ná langt.
Hörður og Jón Alfreðsson voru sæmi-
legir, og Teitur barðist af krafti, en
var oft átakanlega einn i þeirri bar-
áttu. Vörnin opnaðist stundum illa —
prátt fyrir yfirvegaðan leik Þrastar og
Hörður átti að venju góðan leik i marki
— i fyrsta skipti, sem hann tekur þátt i
tapleik Skagaliðs. —hsim.
miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuijU
I STAÐAN =
I 1 1. DEILD 5=
= Eftir leik Breiðabliks < >g =
= Akraness i 1. deildarkeppninni i =
= gærkvöldi er staöan i deiidinni =
= þannig: =
= Fram 8530 19-10 13 i
= Akranes 9603 18-11 12 =
= Keflavik 9342 16-13 10 =
= Breiðablik 9 4 2 3 9-13 10 =
= KK 8314 13-13 7 =
1 ÍBV 7223 15-16 6 =
= Valur 7133 11-12 5 =
= Vikingur 9117 2-15 3 =
lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllUIIIIIIIIII
Miklar tilfæringar urðu á
listanum yfir 10 stigahæstu
menn í stigakeppni Golf-
pilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllli
1 27 voru |
I heiðraðir (
EE i sambandi við 80 ára af- =
= mæli Golfsambands islands, i
| sein lialdið var hátiðlegt s.l. =
= laugardagskvöld i Atthaga- i
i sal llótel Sögu voru nokkrir =
= forvigisinenn golfiþróttarinn j|
| ar i landinu sænidir heiðurs- =
= merkjum GSi. Er þetta i =
= fyrsta sinn sem GSÍ sæmir |j
= einhverja heiðursmerkjum =
= cu þcir voru að þessu sinni 24 =
| talsins — 7 fcngu gullmerki =
= og 17 silfurmerki.
= Þcir sem sæmdir voru =
= gullmerkjuin voru þessir: =
= Halldór llansen, llelgi H. Ei- |j
= riksson, Helgi Eiriksson, =
= Valtýr Albcrtsson, Lárus Ár- fj
Ssælsson, Gu n n a r =
= Scliram og Sveinn ==
=E Snorrason. Þeir sem fengu =
= silfurmerki voru aftur á móti ^
S þessir: Anna Kristjánsdótt- =
= ir, Jón Thorlacius, Þorvald- s
II ur Asgcirsson, Jóhann =
= Eyjólfsson, Ólafur Agúst =
H ólafsson, Pétur Björnsson, =
= Ólafur Bjarki ltagnarsson, 5
S Svan Friðgeirsson, Sigurjón =
= Hallbjörnsson, Guðlaugur E
E Guðjónsson, ólafur I.oftsson, |§
= Sverrir Einarsson. Hermann =
= Magnússon, Helgi Skúlason, =
= Þorsteinn Þorvaldsson, As- E=
E grimur Kagnarsson, og Jón- g
H as Aðalsteinsson.
llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllli
sambands islands eftir is-
landsmótið i golfi, sem
fram fór i síðustu viku. Það
mót gaf stig til landsliðsins
og fengu 15 efstu menn stig
iþví. Sigurvegarinn, Loftur
ólafsson, .15 stig, annar
maður 14 o.s.frv.
Féllu nú af listanum tvö nöfn
frá þvi siðast — Sigurður Héðins-
son, GK og Jón H. Guðlaugsson,
GV, en þeir voru ekki með i þessu
móti. 1 stað þeirra komu Björgvin
Þorsteinsson, GA og Jóhann
Benediktsson, GS, sem báðir voru
búnir aö fá stig i mótum fyrr i
sumar.
Einar Guðnason, GR, er nú i
efsta sæti á listanum með 35,5
stig. Tók hann nú efsta sætið af
Björgvin Hólm, GK, sem hætti
keppni i tslandsmótinu eins og
þegar er kunnugt.
Annars er röð 10 efstu manna i
stigakeppninni þessi:
Stig Mót
Einar Guðnas., GR 35,5 4
Jóh. Ó. Guðmundss. GR 31,5 5
Björgvin Hólm, GK 30,5 4
Gunnl. Ragnarss., GR 29,0 6
Loftur Ólafss., NK 28,0 4
Július R. Júliuss., GK 27,5 6
Óttar Yngvas., GR 25,5 4
Þorbj. Kjærbo, GS 23,5 3
Jóh. Benediktss., GS 19,5 4
Björgv. Þorsteinss., GA 18,5 2
Nú eru aðeins 3 mót eftir, sem
gefa stig til landsliðsins og eru
þau öll utan Reykjavikur — eða á
Akranesi, Akureyri og svo mót,
sem haldið verður á völlunum á
Ólafsfirði og Siglufirði. Að þeim
loknum verður hægt að sjá hvaða
10 menn skipa landsliðshópinn
næsta sumar.
9&P
Rhódesía
undir
brezkum fóna
I gær náðist loks sam-
komulag í Múnchen
milli framkvæmda-
nefndar Olympíuleik-
ana og nefndar frá
Afríkurikjum um þátt-
töku Rhódesíu á leik-
unum. Samkomulagið
byggist á því, að
Rhódesía gangi undir
brezkum fána inn á
leikana við opnun
þeirra og ef einhver
íþróttamaður frá land-
inu hlýtur verðlaun
verður brezki fáninn
dreginn að hún — og ef
keppandinn verður
sigurvegari verður
brezki þjóðsöngurinn
leikinn. Mörg Afríku-
ríki höfðu hótað að
taka ekki þátt í leikun-
um ef Rhódesía hefði
komið þar fram sem
sjálfstæð þjóð.
Þátttökuþjóðir
verða 124
Mið-Ameríkuríkið
Panama tilkynnti þátt-
töku á Olympíuleikana
i gær og eru þátttöku-
þjóðir þá orðnar 124 —
eða mun fleiri en
nokkru sinni áður. Ekki
er talið líklegt, að þeim
fjölgi úr þessu.
ítalir
fjölguðu mjög
ítalir komu á óvart í
gær og fjölguðu mjög í
Olympiuliði sínu. Þeir'
bættu í hóp sinn 55
keppendum — juku
töluna úr 184 í 239 þátt
takendur.
A-Þjóðverjar
með 322
Einn fjölmennasti
þátttökuhópur ein-
staks lands í Múnchen
verður frá Austur-
þýzkalandi eða 322 og
keppa Austur- .Þjóð-
verjarnir í nær öllum
greinum leikanna, sem
eru 21. Reiknað er með
að þeir hljóti mikinn
fjölda verðlauna í
Múnchen.
iiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiii!ii=
Hann er ckki hár i ioftinu,
hann Karl Þórðarson, 17 ára út-
herji hjá Akranes-liðinu, en
enginn leikmaður vakti jafn
mikla athygli áhorfenda og
hann i gærkvöldi á Mela-
veliinum. Það var oft klappað,
þegar snáðinn — sonur liins
kunna iandsliðsmanns Þórðar
Jónssonar — sýndi listir sinar,
enda óvenju leikinn með
knöttinn. Karl er til hægri á
myndinni og ckkert banginn við
að ráðast gegn markverði
Breiðabliks, þótt stærðarmun-
urinn sé mikill.