Vísir - 10.08.1972, Blaðsíða 5

Vísir - 10.08.1972, Blaðsíða 5
Visir Fimmtudagur 10. ágúst 1972 í MORGUN UTLONDI MORGUN UTLÖND I MORGUN UTLOND UMSJON: HAUKUR HELGASON Kviðdómarar ósam- móla í morðmólinu Morðréttarhöldum yf- ir lögreglumanninum William Phillips lauk með þvi, að kviðdómur varð ekki á eitt sáttur. Lögregluþjónninn er ákærður fyrir að hafa myrt vændiskonu og „útgerðarmann hennar” árið 1968, en mesta athygli vekur mál- ið vegna þess, að Phillips er sá, sem kom af stað afhjúpun spill- ingar i lögregluliði New York- borgar i fyrra. Frásagnir hans af mútum og aðild lögreglumanna að glæpa- starfsemi vöktu heimsathygli, og þærhafa leitt til töluverðra breyt- inga i lögregluliði borgarinnar. Margar fullyrðingar hans hafa siðar sannazt. Hins vegar var hann i miðjum kliðum ákærður um morð, og vitni báru, að hann hefði skotið til bana vændiskonuna og mellu- dólginn, þegar þau vildu ekki greiða honum mútur, er hann krafðist. Ákærandi segir, að ný réttar- höld muni fara fram i málinu, þar sem þessi réttarhöld leiddu ekki til niðurstöðu. Phillips gerðist vitni i mútu- málum gegn lögregluþjónum, eft- ir að nefnd, er rannsakaði spill- ingu i borgarlögreglunni, hafði hendur i hári hans fyrir afbrot og hótaði að sækja hann til saka ella. Þau afbrot hans voru þó ekki tengd þessu morðmáli. STOÐUMÆLAR,SEM FYRIRGEFA, EKKI Amin Úgandaforseti segist nú vilja halda i þá Asiumenn, sem séu menntaðir, svo sem tann- lækna, lækna, lögfræðinga og at- vinnurekendur ýmsa. Hinir skuli allir burlu, líklega um 40 þúsund manns. VANDRÆÐALAUSIR Tilraunir með stöðumæla, sem „næstum gleyma og fyrir- gefa” iiafa ekki gefizt jafn vel i Nice (Nizza) á Rivierunni og borgarstjórinn þar vænti. Það hefur vafalaust verið sól- skinið, sem fékk borgaryfirvöld tii að trúa svo mjög á mannlegt eðli, að sökudólgar fá tækifæri til að bæta ráð sitt. Snemma i ár var hætt að sekta fyrir að leggja bifreið of lengi við stöðumæli og farið að skilja eftir á ruðunni miða, sem á var ritað „Okkur þykir þetta leitt”. Á umslagi var mönnum tjáð að þeir hefðu klukkustund til viðbótar ókeypis og þyrftu ekki að koma fyrir rétt, ef þeir létu um 90 krónur i umslagið og i rauðan kassa á stöðumælinum. En i stað peninga voru oft i umslögunum miðar, sem út- listuðu reiði ökumanna. „Skepnan þin”. „Drepstu”, „Snikjudýr, sem ræðst á fátæka” og „Af hverju færðu þér ekki hejðarlegt starf?” Slikt <>g þvilikt Krotuðu menn i um- slögin. Ilins vcgar voru nógu margir, sem lögðu i umslagið penings- upphæðir, sem freistuðu eins eftirlitsmannsins. Hann fannst i yfirvinnu við viðgerðir á mælum sem voru i bezta lagi. Hins vegar var hann orðinn töluvert fjáður af innihaldi kassanna. Borgarstjóri fyrirskipaði þá, að lögregluþjo'nar skyldu verða i för með eftirlitsmönnum. Þetta var i mai. Mánuði siðar voru tveir eftir- litsmenn þó teknir fastir og kærðir fyrir að stela úr um- slögunum. Þeir reyndust hafa liaft um 2000 kr. á dag upp úr sliku. Borgarstjórn er orðin örvæntingarfull og fyrirskipun hennar er nú: Leynilögreglu- menn fylgist með stöðu- mælunum, cftirlitsmönnum og .ökumönnum. Bandarísk stjórnvöld vongóð um sigur ó inflúensunni: Bóluefni nú úr lifandi veirum Bandariska stjórnin til- kynnti í gær, að nýtt bólu- efni við inflúensu væri komið fram, sem ,,i fram- tíðinni kynni að geta haft hemil á" þessari hættulegu og útbreiddu veiki, eins og sagt var. Vísindamennirnir, sem gerðu bóluefnið, gera sér vonir um, að það geti fyrirbyggt næsta stórfar- aldur veikinnar, sem búast mætti við i lok þessa árs. Bóluefnið er gert með ákveð- inni samsetningu virusa úr Hong- kong inflúensunni árið 1968 og Ófrœg sjóferð Sex Ný-Sjálendingár, sem fóru af slað til að mótmæla kjarnorku- tilraunum Frakka og ætluðu á báti sinum inn á bannsvæðið, eru að gera við bát sinn i Pago Pago á handarisku Samoaeyjunum. Þeir koniust aldrei inn á bannsvæðið. Bandariskur drattarbátur dró bál þeirra til hafnar. Þeir voru á reki í þrjár vikur. „Við vissum alltaf, hvar við vorum og töldum okkur aldrei i háska,” segir Barry Mitcalfe, sem hafði orð fyrir hópnum. „Við skömmtuðum mat og vatn og urð- um aldrei hungraðir, þótt við næðum ekki of góðum „árangri”. Ungfrú nakin Jocelyn Lapine, 22ja ára frá Montreal, var kjörin „Ungfrú nakinn heimur 1972” i keppni um titilinn i Freelton Ontario, þar sem fegurðin var alveg óhulin. eldri virusum úr Ásiuinflúensunni árið 1965. Bóluefninu á að úða inn i nefið, lremur en að um sprautur sé að ræða. 1 tilraunum, sem haía verið gerðar með elnið á föngum, hetur bóluefnið reynzt veita þeim full- komna vernd gegn öflugum bakterium af Hongkong-gerðinni, segir i frétt AP-fréttastofunnar. Frysting lifandi veira Þó er ef til vill mikilvægara, að sögn visindamannanna, að unnt ætti að vera að beita sömu tækni, frystingu virusa, til aö gera fljót- lega bóluefni við nýjum tegund- um inflúensu i framtiðinni. Virusarnir i bóluefninu eru sagðir veita mjög öfluga vernd gegn inflúensubakterium, sem „ráðast á” nef og háls. Rikisstofnun sú i Bandarikjun- um, sem tilkynnti um uppgötvun- ina, fjallar um smitsjúkdóma og ofnæmi. Stofnunin segir á þessa leið: „Árum saman hefur inflúensa veriðsérstaklega erfitt vandamál i sóttvörnum. Breytingar á sjúk- dómnum hafa gert eldri bóluefni gagnslaus og heilu þjóðirnar orð- ið fórnardýr inflúensunnar”. Frekari rannsóknir, áöur en almenn sala leyfð. Stofnunin tilkynnir, að enn verði að reyna hið nýja bóluefni til hlitar og efnið að hljóta endan- lega staðfestingu stjórnvalda að þeim rannsóknum loknum. Þá muni verða veitt leyfi til fram- leiðslu og almennrar notkunar. En jafnlramt sé unnt að leggja áherzlu á, að þetta sé fyrsta bólu- elnið við inflúensu, sem lofi mjög góðu og sé gert úr lifandi virusum (veirum). Það er þvi allt annað en venjuleg bóluefni við inflú- ensu, sem hafi verið gerð úr dauðum veirum og ekki verið nægilega árangursrik. Kostar 200-400 milljarða BRETAR BYGGJA HIMNA- RÍKI UMHVERFISMANNA Brczka stjórnin hefur samþykkt áætlun um byggingu fyrstu borgarinnar og flugvallarins í heiminum, þar sem umhverfisverndin á að sitja algerlega i hásæti.” Borg 250 þúsund manna verður reist i sveitarhéruðum Essexskiris og þriðji flugvöllur London gerður á þeim slóðum, ásamt höfn og oliustöðvum á landi, sem gert verður með uppfyllingu á sjó út. Eldon Griffiths aðstoðarráð- herra i umhverfismálaránuneyt- inu lagði áætlunina fyrir þingið i gær og sagði, að þetta yrði mesta verkefni i verklegum fram- kvæmdum sem nokkru sinni hefur verið glimt við i BretlandL Kostnaðurinn verður frá rúmum 200 til nær 400 milljarða islenzkra króna samkvæmt áætlunum. Giffith sagði, að aðalmark- miðið yrði að borgin skyldi verða „indæl að búa i, vinna i og horfa á.” Umhverfismenn gagnrýndu stjórnina þó fyrir að hafa flug- völlinn ekki „lengra á haf út” með þvi að fylla upp með jarðvegi út i sjóinn. Derrick Wood einn helzti talsmaður náttúruverndar sagði: „Þar til fyrsta stein- steypan er lögð á jörðina er orrustan ekki töpuð okkur.” Flugvallarsvæðið var valið eftir langvinna baráttu stjórn- valda og nattúruverndarmanna, þar sem ósar Thames-fljóts, eru við Norðursjó. London þarfnast þriðja flugvallarins mjög nauð- synlega. Heathrow er einhver annasamasti flugvöllur heims og hinn núverandi flugvöllur Gate- wick, er hvergi nærri nægilega stór. Nýi flugvöllurinn yrði við Foulness, um 800 kilometrum frá hjarta London og hraðbrautir munu tengja hann við borgina. Nýja borgin er nú þegar kölluð „Jet City,” sem þýðir „Þotu- borg”. Hún verður „hljóðheld” að sögn ráðherrans, eftir þvi sem unnt verður.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.