Vísir - 15.08.1972, Síða 3

Vísir - 15.08.1972, Síða 3
Visir Þriðjudagur 15. ágúst 1972 3 Þessar litlu kisur eru aö rannsaka biðstöðu 7. einvigisskákarinnar eins og sjá má, en henni lauk með jafn- tefli. Hvort þeim hefur tekizt af finna vinning hjá öðrum hvorum vitum við ekki, en eitt- hvað er kisan sem teflir fyrir Fischer (svart) að reyna nýjar vinningsleiðir.. „Fyrirtœki hika við að með Fischer" auglýsa ,,Mér virðist Bobby Fischer vera fremur „óvenjulegur”, svo að ekki sé meira sagt. Hvað finnst nánustu samstarfsmönnum hans um hann? Tekur hann einhvern þátt í félagslifi?” L. Y. Cedarhurst. Svo spyr einn lesandi „slúður- dálks” blaðsins Daily News i New York, og ekki stendur á svarinu i dálkinum: „Samstarfsmenn Fischers virðast ekki endast lengi, þar sem hann er fremur erfiður ungur maður. Undarleg hegðun hans á Islandi hefur kannski kostað hann arðvænlegan stuðning, þar sem mörg fyrirtæki hika nú við að nota hann i auglýsingum sinum. Fischer tekur sama og engan þátt i félagslifi. Nafn hans hefur aðeins einu sinni og um skamman tima verið bendlað viö stúlku.” — HH. 27 tíma með ískjarnann niður af jðklinum Boruninni á Bárðarbungu er lokiðT Eru leiðangursmenn komnir i bæinn með 116 metra af iskjarna. Færð var mjög farin að versna á jöklinum og urðu leiðangursmenn að skilja eftir ýmsan farangur m.a. tvo snjó- bila, sem leiðangur manna úr Jöklarannsóknarfélaginu mun ná i um næstu helgi, en verður þá farið á jökulinn að norðanverðu. Visir talaði við Pál Theodórs- son eðlisfræðing, sem kom i bæinn i gær eftir ianga ferð með iskjarnann. Lagði Páll af stað af jöklinum á fimmtudag og hófst þar með 27 tima ferð með iskjarn- ann. Ferðin niður gekk mjög seinlega vegna ófærðar. — Hópur manna kom á móti mér á föstudagsmorgun og reyndum við sameiginlega að böðla snjóbilnum i gegn um torfærurnar, en>viö það brotnuðu blöð af belti snjóbilsins. Siðan tókst okkur að keyra upp á jökulinn aftuc á bil Jöklarann- sóknarfélagsins, sem kallaður er „Rauður” og var iskjarninn settur i hann og eftir töluvert bras tókst að koma iskjarnanum i isbilinn, sem beið við Tungná. Við vorum 27 tima á leiðinni frá Bárðarbungu með iskjarnann, en bráðnun var mjög óveruleg. Páll sagði að borað hefði verið niður á 414 metra dýpi i jöklinum, ekki niður á botn, en eins langt og kapallinn náði. — Við nýttum hvern spotta og það var ekki eftir nema 5 cm. af spottanum, þegar við hættum. Nú er boruninni lokið á Bárðar- bungu og vinna við rannsóknir á iskjarnanum hefst. — SB — Ös í bólusetningu -og langar biðraðir — Það tók einn og hálfan tíma að komast þessa tíu metra í bólu- setninguna, sagði einn Spánarfara, sem lét bólusetja sig gegn kóleru á fimmtudag. Mikið aðstreymi fólks hefur verið í bólusetningu eftir að greint var frá kóleru- tilfellunum í Alsir. Löng biðröð hefur verið af fólki í Heilsuverndar- stöðinni, þar sem bólu- setningin fer fram fimmtudag, föstudag og i gær. Bólusetningin á að fara fram milli 4-5 daglega nema miðvikudaga og laugardaga, en með þessari miklu aðsókn tekur það mun lengri tima að bólusetja alla þá sem koma. — Það er gengið inn i bólu- setningardeildina af efra palli i húsinu og þegar ég kom i bólusetninguna var þar löng biðröð. Eftir einn og hálfan tima og þegar var búið að bólusetja mig náði biðröðin niður stigann. Eftir seina- ganginum að dæma hefur bólusetningu þennan daginn ekki verið lokið fyrr en klukkan átta, sagði Spánar- farinn ennfremur. — Fólk bregður við snar- lega, sagði Bragi Ólafsson aðstoðarborgarlæknir i viðtali við Visi i morgun. Hann sagði bólusetninguna ganga hratt fyrir sig. Ekki væri eingöngu um kólerubóluáetningu að ræða heldur einnig bólu- setningu gegn taugaveiki og margir kæmu i endurbólu- setningu. Bólusetja þurfi tvisvar gegn kóleru og timinn, sem liði á milli bólusetningu sé vika minnst, en allajafna tiu dagar til hálfur mánuður. Hann sagði einnig, að fólk kæmi seint i bólusetninguna og ætli sér ekki nægan tima. Um aðsóknina sagði aðstoðarborgarlæknir, að fréttin um kólerutilfellin hefði breytt töluverðu. — SB — Skaut upp neyðarblysi og hafði nœr narrað út björgunar-flokk Björgunarsveitir SVFl voru kallaðar út um miðnætti i nótt, þegar rautt neyðarblys sást svifa i loftinu norður af Gróttu. Meðan björgunarleiðangur var undirbúinn komst þó lögreglan á snoðir um það, að ungur drengur á Seltjarnarnesinu hafði skotið blysinu upp, án þess aö gera sér grein fyrir merkingu neyðar- ljóssins. — GP TYNDUR í VIKU Enn hefur ekkert spurzt til franska gitarleikarans Gaston, sem saknað er siðan aðfaranótt miðvikudags i siðustu viku. Hann heitir fullu nafni Henry Dominique De St. Marie. Leitarflokkar leituðu hans með sporhundi s.l. föstudag, og rakti þá hundurinn einhverja slóð vest- ur i Ánanaust. En ekki hefur fundizt tangur eða tetur til þess að setja lögregluna á sporið, né nokkur visbending um, hver hafa orðið afdrif hans. Kunningjar hans hafa leitað siðan á eigin spýtur, en einnig án árangurs. — GP Bílinn hans Guðnafínn Sú frétt birtist hér i Visi fyrir nokkrum dögum að Bandarikja- mennirnir hefðu brætt úr bil Guðna i Sunnu. Þetta er ekki rétt. Rafkerfi bilsins bilaði og þar sem þetta var á laugardegi urðu þeir Fischer & Co. að biða fram yfir helgi og var þá gert við bilinn. Cramer fulltrúi Fischers vildi láta það koma fram að bill Guðna væri mjög góður og hefði aldrei bilað. Þeir færu lika m jög vel með hann og keyrðu gætilega i um- ferðinni. „Við erum góðir bil- stjórar,” sagði Cramer. GF Schmid: Er Cramer ekki Ijóstœknifrœðingur? „Ég þarf ekki að sýna Banda- rikjamönnunum læknisvottorð Spasskis”, sagði Lothar Schmid við Visi i morgun. „Samkvæmt reglum einvigisins geta þeir ekki krafizt þess af mér. Ég hef fengið vottorðið i hendur og það er full- komlega löglegt. Ég veit þess vegna ekki af hverju Cramer hefur mótmælt. Hann er ekki lög- fræðingur heldur ljóstæknifræð- ingur, það veit ég fyrir vist”, sagði Schmid. Hann kvaðst að lokum búast fastlega við þvi að 14. skákin hæfist i dag svo fremi að annar keppandi reyndi ekki að fresta, en þaö þarf að gerast fyrir kl. 12 á hádegi sama dag og ein- vigisskák fer fram. GF RAFVIRKJADEILAN TEKIN FYRIR í FÉLAGSDÓMI23. Þ.M. Mál það, sem rafverktakar höfðuöu á hendur rafvirkjum, verður tekið fyrir i félagsdómi þann 23. þ.m. Verður þá úr þvi skorið, hvort samþykkt sú, sem rafvirkjar gerðu á fundi sé lögmæt. Rafverktakar telja hana ólöglega og brjóta i bága við nýgerða samninga. Var sam- þykkt þessi á þá lund, að tima- vinna skuli bönnuð þegar unnið er við nýlagnir og meiriháttar breytingar. — ÞS Fischer í friðar- samningana í París „Húmoristinn” Art Buchwald vekur máls á þvi, að Bobby Kischcr ætti að taka að sér friðar- samningana við Norður-- Vietnama. Hann segir, að Nixon hafi afráðið að fela Fischer þetta erfiða verkefni. Úr þvi að Fischer hafi gert alla vitlausa á lslandi, ætti hann að geta gert hið sama i Paris. Fischer byrji starfið með þvi að mæta ekki til fundar við Norður-- Vietanma, sem biði með kynstur af árásum á Bandarikin. Loks komi hann. á næsta fund, en hálfri annarri klukkustund of seint. Norður-Vietnamar séu reiðir ókurteisinni og geri hrið að Bandarikjamönnum, en Fischer skeyti þvi engu og kvarti um lögun samningaborðsins. Heimtar nýtt borð og stóla. Þannig gengur áfram Þegar N- Vietnamar séu orðnir „tauga- hrúga”, birtist Kissinger og segir „Nú skulum við byrja”. — HH

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.