Vísir - 15.08.1972, Page 4

Vísir - 15.08.1972, Page 4
4 Visir Þriftjudagur 15. ágúst 1972 Síversnandi fœtur í V- Þýzkalandi Yfir sjötiu prósent af öllum i Vestur-Þýzkalandi þjást af ein- hvers konar fótaveiki, og er orsök þess yfirleitt og aðallega of þröngir skór, of háir hælar og þunnir sólar. Samt hafa hinir breiðu skór, það er að segja skór með breiöri tá og vel rúmir skór náð vinsældum þar sem annars staðar. En flestir eiga þó orðið erfitt með að ganga nokkuð að ráði, og er þvi kennt um að fólk ekur allt of mikið. Hart malbik gatnanna i borgunum hefur heldur ekki góð áhrif á fæturna. Sönnunin fyrir þvi að svo marg- ir Þjóðverjar þjást af einhvers konar fótaveiki, er sú aö á hverju ári eru framleiddir i Vestur - Þýzkalandi ein og hálf milljón af sérstökum sólum i skó, fyrir þá sem hafa slæma fætur. Umsjón: Edda Andrésdóttir 20.000 UNGMENNI Á HLJÓM- LEIKUNUM f HRÓARSKELDU Feður geta fylgzt með fœðingu barna sinna í sjónvarpi Nú geta þeir tilvonandi feður, sem þess óska, séð fæðingu barns sins i sjónvarpi. A St. Bernward' s Hospital sjúkrahúsinu i Þýzka- landi hefur verið komið fyrir sliku sjónvarpskerfi, þannig að hinir tilvonandi feður geta setið i næsta herbergi við sjálfa sjúkrastofuna, þar sem konan fæðir barnið, og fylgst með. Einnig er hægt að festa filmuna á band, þannig að foreldrarnir geta sýnt börnum sínum siðar hvernig þau komu i heiminn. Neftóbakið í tízku? Svo neftóbakið ætlar að komast i tizku. Að minnsta kosti má ætla svo, þvi að visindamenn segja að af allri tóbaksnotkun sé neftó- baksnotkunin sú hættu minnsta. Til að mynda eru pipur og vindlar hættulegri. Siðustu rannsóknir hafa einnig sýnt að nikótinmagnið i blóði þeirra er nota neftóbak er ekki meira en i blóði þeirra sem snerta ekki tóbak. Og neftóbakið hefur heldur ekki nokkur áhrif á blóð- Þar voru leikin beatlög, jazz og þjóðlög, ungmennin reyktu hass, böðuðu sig i sólskininu og dönsuðu. Allt of mikið hass, og slæm hreinlætisaðstaða sögðu sumir gestanna, en aðrir voru hinir ánægðustu,sátu i hópum og létu bjórinn, vinflöskuna eða hasspipuna ganga. En það var aðeins nokkra stund i morg- unsárið sem trommurnar, söngurinn og gitarleikurinn hætti. Þá var gert örstutt hlé. Gróðinn af þessari samkomu nam 200.000 dönskum krónum og þeir sem stóðu að henni undu glaðir við sitt. Án efa þeir allra stærstu og hávaða- mestu hljómleikar sem sögur fara af á Norður- löndum voru haldnir i Hróarskeldu i Dana- veldi fyrir stuttu. 20.000 ungmenni frá Dan- mörku og annars staðar frá voru þar saman komin og músik og meiri músik frá ýmsum hljómsveitum Norðurlanda, var and- leg fæða þessara áheyrenda i 40 klukku- stundir. — Já en þið sögðuð vera heim- sóknardag og ég ætlaði bara að heimsækja hana inömmu.....” Þau gera öllum til hœfis, jafnt yngri sem eldri Þeir eru sennilega fáir sem ekki kannast við New Seekers, þessi fimm ung- menni, sem syngja lög jafnt fyrir unga og gamla. Það er ekki oft sem hljómsveitir geta gert bæði ungum og gömlum til hæfis, en það hefur þeim svo sannarlega tek- izt. Músik þeirra er létt og fjörug, þeir eldri fara ósjálfrátt að raula með, og þeir ungu syngja hástöfum og hrista sig eftir músikinni. t dag eru meðlimir New Seekers allir milljónerar. Það var auglýsingarlagið um Coca- Cola og lagið ,,Beg, Steel & Borrow”, sem komu þeim á tindinn. ,,Það var mikið tómlegt eftir að hinir gömlu Seekers höfðu að fullu sagt skilið við tónlistina”, segir Keith Potger, umboðs- maður New Seekers. ,,Það sást fljótt að plötur þeirra héldur stöðugum vinsældum, og eftir að ár hafði liðið frá þvi þeir hættu, voru plötur þeirra ennþá meðal þeirra bezt seldu.” Og þrátt fyrir alla ,,under- ground” músik sáum við að það var raunverulega ennþá góður markaður fyrir létt og skemmtileg lög sem tilheyra öll um aldursflokkum. Með fimm áströlskum og enskum söngvurum stofnaði Keith Potger siðan New Seekers, nokkurs konar ,,mini” útgáfu af Les Humphries Singers. Meðlimirnir skyldu all- ir vera aðlaðandi og hýrlegir, þeir urðu að geta sungið og kannski dansað örlitið með. Þá hæíileika fann hann hjá þeim Paul Layton, Eva Graham, Peter Doyle, Lyn Paul og Marty Kristian. ,,Við höfum mikinn áhuga fyrir peningunum, sem við fáum fyrir að syngja”, viður- kennir Eva Graham, en hún er aldursforseti þeirra félaga, og sú eina sem komin er i hjóna- bandshöfnina. Og þau vinna svo sannarlega fyrir þeim þessa dagana. Takmarkið er tvær breiðskifur og 5 litlar plötur á ári. Þau feröast land úr landi, gera sjónvarpsþætti, halda hljómleika og syngja inn á plöt- ur. Og New Seekers eiga sér einnig annað takmark. Þau ætla að fylla upp það tóm, sem þeim fannst verða eftir að hinir gömlu Seekers höfðu sagt skilið við tónlistarheiminn. Þau vissu að þau myndu koma til með að þéna peninga á hljómleikahaldi, plötuútgáfu og fleiru, en þau vissu ekki að þau yrðu svo fljótt milljónerar. Og þau segjast lika njóta þess. ,,Núna lifum við lúxus lifi. Við búum á öllum dýrustu hótelun- um, borðum góðan mat, gerum allt það sem okkur langar til að gera, og neitum okkur ekki um neitt. Og þvi skyldum við gera það? Nóg er júáf peningunum.” Það rikir ekkert nema vin- skapur meðal þeirra, þrátt fyrir það að ýmsum hefur dottið ann- að i hug. Þarna eru jú komin saman stúlkur og piltar. ,,En það kæmi ekki til greina”, segja þau. Ef farið er út i alvarlegri mál- efni við þessa fimm félaga, svo sem stjórnmál og byltingar, segjast þau ekkert vit hafa á slikum málum. Um músik, segja þau aðeins: Hún er skemmtileg. „Gerum allt sem okkur langar. Nóg er jú af peningunum!"

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.