Vísir - 24.08.1972, Blaðsíða 9

Vísir - 24.08.1972, Blaðsíða 9
 JESSE OWENS mesti Olympíumeistari allra tíma! Jesse Owens, sem sigraði í fjórum greinum á Olympiu- leikunum í Berlín 1936 og sem af mörgum er talinn mesti Olympíumeistari allra tima, kom til Miinchen i gær sem sér- stakur heiðursgestur vestur- þýzku framkvæmdanefndar- innar. Enginn viðhöfn var á flugvellinum heldur var Jesse „smyglað" út um bakdyr og ekiðtil leynistaðar. Samttókst blaðamönnum að ná tali af heiðursgestinum. — Ég mun aöstoða við sjónvarps- sendingar frá leikjunum, sagði Owens, og er einnig i bandarisku Olympiu- nefndinni. Um Ródesiumálið vildi hann ekki ræða — sagðist ekki hafa nógu staðgóðar upplýsingar til að láta hafa nokkuð eftir sér i sambandi við það. Hann er nú 58 ára og býr i Phonix i Arizona og hefur dregið sig i hlé frá störfum. Hann er nú 25 pundum þyngri, en þegar hann vann sin miklu afrek á Olympiuleikvanginum i Berlin — en þó er margt enn i svip hans og látbragði, sem minnir á afrefksmanninn mikla — manninn, sem rafmagnaði heiminn, þegar hann vann fern gullverðlaun, svarta manninn, sem rak hnefahögg i Aria-andlit fylgismanna Hitlers. Hann var fljótastur allra — sigraði meðmiklum yfirburðum i 100 og 200 m spretthlaupunum, var i sigursveitinni bandarisku i 4x100 m boðhlaupi. Og einvigi hans i langstökkinu við hinn hreinræktaða Aria Lutz Long ljóshærð an og hávaxinn, varð eitt af stórvið- burðum leikanna — i siðustu tilraun sinni stökk Jesse Owens lengst allra 8.06 metra — stökk, sem ekki margir i heiminum geta nú leikið eftir. Jesse Owens hefur vegnað vel i lifinu — afreksmaður þar ekki siður en á hlaupabrautinni. Hann hefur unnið að æskulýðsmálum hjá Ford félaginu og Lincoln-Mercury deildar Fordfélags- ins. Hann er talinn ræðumaður i sér- flokki og Ford greiddi honum i kaup 75 þúsund dollara á ári og þaðan af meira til að ferðast um og flytja milli 80 og 90 erindi á ári á vegum félagsins. En þetta var þreytandi — sagt að hann dveldist fjóra daga i viku að meðaltali i hótelherbergjum og ferðaðist 200 þúsund milur á ári. Þess vegna hefur hann nú dregið sig i hlé. Ekki alls fyrir löngu hélt hann ræðu i Binghamton og áheyrendur fögnuðu honum lengi og innilega, þegar hann gekk i ræðustólinn. Siðan var dauða- þögn og Jesse Owens hóf mál sitt ,,...það verða sigurvegarar og það verða aðrir sem tapa...en vináttan, sem hefst i hlaupabrautunum og völl- unum er gull keppninnar. Verðlaunin skipta ekki svo miklu máli og það fellur ekkert ryk á vináttuna. Æskan er verðmætasta eign hverrar þjóðar — heiðrið hana þvi og heiðrið Guð...” Fjölmargir aðrir kunnir Olympiu- meistarar verða einnig gestir fram- kvæmdanefndarinnar þýzku á leikun- um. Má þar til dæmis nefna Abebe Bikila, sem er eini hlauparinn, sem sigrað hefur tvivegis i maraþonhlaupi, fyrst i Róm 1960 og siðan i Tokió 1964. Bikila er nú 39 ára og það verður sorg- leg sjón að sjá þerinan glæsilega mann, lamaðan , i hjólastólnum sinum á leikunum. Hann lenti i bilslysi 1969 nærri Addis Abeba og hefur siðan ver- ið lamaður — frá brjósti og niður. Það var flogið með hann strax til Englands og Haille Selassie fór sjálfur þangað til að heimsækja þennan frægasta iþróttamann Ethópiu. Þó hann sé al- veg upp á aðra kominn heldur hann enn stöðu sinni sem kapteinn i lifverði keisarans. Visir Fimmtudagur 24. ágúst 1972 Visir Fimmtudagur 24. ágúst 1972 9 Michael Morris heitir nýi forsetinn i Alþjóða-Olym- píunefndinni, sem kjörinn var í gær í stað hins 84ra ára Avery Brundage — eða að minnsta kosti er það skírnarnafn hans — en að hinni gömlu hefð var mað- ur með „frægan feril" kjörinn leiðtogi nefndar- innar. Hann verður þvi nefndur lá- varðarnafni sinu — Killanin lá- varður, þriðji lávarður Dublin og Spiddal. Killanin lávarður er fæddur 30. júli 1914 i Lundúnum. Hann er kvæntur og á fjögur börn. Hann nam i Eton og siðar i Cam- bridge og Sorbonne, en gerðist siðan blaðamaðúr og hefur starf- að hjá Daily Express, Daily Mail og Sunday Dispatch. 1937-1938 var hann striðsfréttaritari i Kina, þegar Japan réðist á Kina. Hann Reyna aftur í kvöld Umsjón: Hallur Símonarson Irskur lávarður í stað Brundage Þriðji lávarður Dublin formaður Olympíunefndar hefur skrifað nokkrar bækur og hefur einnig starfað sem kvik- myndaframleiðandi áður en hann gerðist forstjóri oliuhrings á Ir- landi (fririkinu). Hann var ágætur iþróttamaður á yngriárum einkum sem ræðari, hestamaður og hnefaleikamaður. Hann hefur lengi starfað að iþróttamálum og vali hans sem formanns Alþjóða-Olympiu- nefndarinnar hefur verið fagnað. Talið er að hann verði mun frjáls- lyndari en fyrirrennarinn Avery Brundage. Munchen 999 1972 Killanin lávarður og franski greifinn Jean de Beaumont voru hinir einu, sem voru i framboði til formanns. Hinn 58 ára Iri hlaut mikinn meirihluta atkvæða og franski greifinn tók tapinu bros- andi og sagðist með ánægju vinna með lávarðinum i framtiðinni. Killanin var valinn formaður til næstu átta ára. Varaformaður Ekki varð neitt af leik KR og Vestmannaeyja i 1. deild i gær- kvöldi vegna veðurs — það var ekki hægt að fljúga frá Eyjum til Reykjavikur. En liðin eru ekki á þvi að gefast upp og það á að reyna aftur i kvöld. Veður er mun skaplegra en i gær og miklar líkur á þvi, að Eyjaskeggjar komist til lands. Ef svo verður hefst leikurinn kl. sjö á Laugardalsveliinum. Sterkir Banda- ríkjamenn Bandarisku ■ kúluvarpararnir, sem keppa i Miinchen, og talið er að hreppi jafnvel þrjú fyrstu sæt- in þar, tóku þátt i æfingamóti i gærkvöldi og kom það talsvert á óvart hvað George Wood sigraði með miklum yfirburðum. Hann varpaði kúlunni lengst 21.38 metra og var meira en hálf- um metra á undan A1 Feuerbach — en Feuerbach er af flestum tal- inn sigurstranglegastur, þegar að sjálfri Olympiukeppninni kemur. Nú varpaði hann 20.76 metra og Brian Oldfield var skammt á eftir — varpaði lengst 20.73 metra. I 200 m. hlaupi sigraði Banda- rikjamaðurinn Larry Black á 20.24 sek., aðeins á undan Pietro Mennea frá ttaliu, sem hljóp á 20.40 sek. og þriðji varð Larry Burton, Bandarikjunum, á 20.60 sek. Bjarni Stefánsson tók þátt i hlaupinu og hljóp á 21.8 sek. I 3000 metra hlaupi sigraði Ben Jipcho, sá frægi hlaupari frá Kenýa, á ágætum tima 7:54.32 min. Mike Manley, Bandarikjunum, varð annar á 7:56.01 min. og Bob Fin- ley, Kanada, þriðji á 7:56.80 min. Kipchonge Keino var ánægður með árangur sinn i 800 m hlaup- inu I gær — það eru ekki margir langhlauparar, sem geta státað af slikum hraða. var kjörinn Willi Daume frá Vest- ur-Þýzkalandi og i stjórnina Syvvio, majór, frá Braziliu. Avery Brundage var kjörinn heiðursforseti CIO til æviloka. Killanin lávarður hefur verið i stjórn Alþjóða-Olympiunefndar- innar frá þvi 1950 — og á Olym- piuleikunum i Mexikó-borg 1968 var hann einn af þremur varafor- mönnum nefndarinnar. Blaða- menn umkringdu hann eftir kjör- ið, en hann sagði þeim, að þeir gætu ekki reiknað með neinum pólitískum yfirlýsingum frá hon- um. Avery Brundage tilkynnti valið á eftirmanni sinum af tröppum ráðhúss Munchen-borg- ar, og sagði jafnframt að at- kvæðatölur yrðu ekki gefnar upp. Enn bann ó Ródesíu Það á ekki af Ródesiumönnum að ganga. A þingi FIFA-alþjóða- knattspyrnusambandsins — sem nú stendur yfir i Paris, var reynt að fá bann það, sem sett var á Ró- desiu 1970 upphafið. En það var öðru nær en það næði fram að ganga. Ródesia verður áfram i banni i sambandi við alþjóðlega knattspyrnu og var það samþykkt með 68 atkvæðum gegn 18. írskt met Dougans! Þegar Úlfarnir sigruðu West Ham i vikunni skoraði miðherji þeirra, Derek Dougan, eitt af mörkunum og náði þar með merkum áfanga i markaskorun. Þetta var 200. deildarmark hans og er Dougan fyrsti írinn i enskri knattspyrnu sem skorar 200 mörk. George Best nálgast það mjög. Þess má geta, að Derek Dougan er einhver mesti per- sónuleikinn i knattspyrnunni og hefur verið formaður samtaka at- vinnuknattspyrnumanna i rúmt ár. Keppir ekki í 800 m. Finninn Pekka Vasala, sem setti nýtt Evrópumet á dögunum I 800 m hlaupi 1:44.5 min., mun ekki keppa á þeirri vegalengd i Miinchen, þó ráðstafanir væru strax gerðar til þess að hann gæti hlaupið þá vegalengd einnig. Vasala ætlar að einbeita sér að 150b m hlaupinu, þar sem hann hefur náð frábærum tima i sumar 3:36.8 min., og hann telur sig hafa góða möguleika á sigri þar. Hann vill ekki spilla þeim möguleikum með þátttöku i 800 m hlaupinu, sem þó fer fram þremur dögum áður en kemur að riðlakeppni 1500 m hlaupsins. Komast þeir þangað Islenzku Olympíu- fararnir héldu til Múnch- en eldsnemma i morgun og voru þvi komnir til Þýzkalands um hádegis- biliö. Tveir hlauparar, þeir Bjarni Stefánsson og Þorsteinn Þorsteinsson, voru farnir fyrr og á æf- ingamóti í gærkvöldi hljóp Bjarni 200 m. á 21.8 sek. og Þorsteinn 800 m. á 1:51.8 mín. Olympiuleikarnir verða settir á laugardag og munu flestir Is- lendinganna taka þátt i opn- unarhátiðinni. Fánaberi Islands verður hinn glæsilegi hand- knattleiksmaður Geir Hall- steinsson. A sunnudag hefst keppni á tuttugustu Olympiu- leikunum. Riðlakeppni i handknattleikn- um hefst undir mánaðamót og nú er stóra spurningin. Tekst handknattleiksmönnum okkar að komast i leiki i höllina, sem sýnd er hér að ofan? Riðla- keppnin verður háð i nokkrum borgum skammt frá Múnchen og Island er i riðli með Austur- Þýzkalandi, Tékkóslóvakiu og Túnis og þarf að ná 1. eða 2. sæti til að komast i úrslit keppninn- ar. Þá verða 22 leikir háðir i þessari höll siðari viku leik- anna, en hún rúmar sjö þúsund áhorfendur. Fyrri viku Olympiuleikanna verður þar háð fimleikakeppni. Liverpool á toppinn og fyrsta stig Manch. Utd! Metupphœð fyrir bakvörð i gær var greidd metupp- hæö fyrir bakvörð á Eng- landi — Leicester City greiddi Lundúnaliðinu Ori- ent, sem er i 2. deild 112 þúsund sterlingspund fyrir Dennis Rofe. Þetta er i annað skipti á þremur dögum, sem Leicester greiðir stórupphæðir fyrir leikmenn, áð- ur Frank Worthington. Dennis Rofe er 22ja ára, en hefur samt verið mjög i sviðsljósinu siðustu árin. Framkvæmdastjóri Leic- ester, Jimmy Bloomfield, þekkir getu hans vel, þvi þeir léku sam- an hjá Orient, þegar Bloomfield var framkvæmdastjóri liðsins auk þess, sem hann lék með þvi. Rofe, sem er ekki hár vexti, aðeins um 1.70 m á hæð, mun leika sinn fyrsta leik með Leicest- er gegn Coventry á laugardag. Eftir þessi kaup er talinn mögu- leiki á þvi, að David Nish, fyrir- liði og bakvörður hjá Leicester, fari til Manch. Utd. fýrir ein-: hverja stórupphæð. Manch. Utd. hefur lengi reynt að fá hann i sin- ar raðir. Liverpool skauzt upp á toppinn í 1. deildinni ensku i gærkvöldi eftir sigur gegn Chelsea í Lundúnum — náði Arsenal að stigum, en ermeð betra markahlutfall eftir leikina fjóra. Og i gærkvöldi hlaut hið fræga lið Manch. Utd. sín fyrstu stig hingað til — náði jafn- tefli á heimavelli gegn Leicester, sem ekki getur talizt mikið afrek. Sigur Liverpool i Stamford Bridge er mjög athyglisverður — að visu ekki stórsigur, en 2-1 nægði til að hljóta bæði stigin og það er mikið afrek gegn Chelsea, sem var taplaust fyrir leikinn. Annars var mikið um jafntefli i leikjunum i gáerkvöldi. Úrslit urðu þessi. Chelsea-Liverpool 1-2 Derby-Manch. City 1-0 Leeds-Ipswich 3-3 Manch. Utd.-Leicester 1-1 Newcastle-WBA 1-1 Norwich-Southampton 0-0 Stke-Sheff. Utd. 2-2 Tottenham-Birmingham 2-0 Frank Worthington, sem Lei- 1 Birmingham-C. Palace 1 Chelsea-Manch. City x Leicester-Coventry 1 Liverpool-West Ham x Manch. Utd.-Arsenal 1 Newcastle-Ipswich 2 Norwich-Derby x Southampton-Wolves 1 Stoke-Everton 1 Tottenham-Leeds 1 WBA-Sheff. Utd. x Burnley-Aston Villa Frank Worthington — skoraði I sinum fyrsta leik með Leicester cester keypti i vikunni frá Huddersfield skoraði jöfnunar- mark liðsins á Old Trafford. Meistarar Derby unnu sinn fyrsta sigur á leiktimabilinu og það gegn Manch. City. Geoff Hurst skoraði annað af mörkum Stoke i gær- kvöldi — fyrsta markið, sem hann skorar fyrir sitt nýja félag og Allister Brown (áður Leicester) skoraði jöfnunarmark WBA gegn Newcastle — fyrsta mark WBA á leiktimabilinu. Heil umferð verður á laugardag og getraunaspá blaðsins fyrir leikina á getraunaseðlinum er þannig: Bezti árangur í 400 m boðhlaupi A æfingamóti í Múnchen í gær náði bandarísk boð- hlaupssveit bezta tíma, sem nokkru sinni hefur náðst i 4x100 m boðhlaupi — hljóp hringinn á 37.89 sek., og var um fimmtán metrum á undan næstu sveit í keppninni — sveit Frakklands. Kvennasveit Kúbu i 4x100 m boðhlaupi náði einnig stórglæsi legum árangri — hljópá 43.91 sek. og var langt á undan sveitunum frá Vestur-Þýzkalandi og Astra- liu, sem hlupu á 44.45 sek. og 44.53 sek. — en nú er allur timi á styttri vegalengdum mældur i hundruð- ustu hlutum úr sekúndu. I langstökki kvenna setti Lynn Tillett nýtt, ástralskt met, þegar hún stökk 6.60 metra og sigraði með yfirburðum. Dwight Stones, Bandarikjunum, stökk 2.18 m I hástökki, og Keino, stórhlaupar- inn frá Kenýu, sigraði i 800 m. hlaupi á 1:46.41 min., en hann hleypur ekki þá vegalengd á leik- unum — sennilega ekki heldur 1500 m.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.