Vísir - 24.08.1972, Blaðsíða 5

Vísir - 24.08.1972, Blaðsíða 5
Visir Fimmtudagur 24. ágúst 1972 5 í MORGUN ÚTLÖNDÉ MORGUN UTLÖND 1 MORGUN ÚTLÖND UMSJON: HAUKUR HELGASON J Eiturskipið var stöðvað Geislavirkni vex við strendur Mótmæiin gegn ráðagerð- unum um að setja blásýru í Norður-Atlantshaf hafa haft áhrif. Samkvæmt þýzka útvarpinu er líkleg- ast, að þessum efnaflutn- ingi verði frestað um sinn og stjórnmálamenn í V- Þýzkalandi taki málið til athugunar, sem ætti að valda þvi, að hætt verði við þessa ráðagerð. Talsmaður samgönguráðu- neytis V-Þýzkalands gaf þetta i skyn i útvarpinu. Norðmenn hafa mótmælt harðlega, siðan fréttist um fyrirætlun um að varpa eitur- efnum i Atlantshaf. 1 Vestur- Þýzkalandi hafa margir mót- mælt, meðal annars borgarstjór- ar bæja við baðstrendur Norður- sjávar. I miðjum deilunum hafa borizt niðurstöður rannsóknarleiðang- urs vestur-þýzka hafrannsókna- skipsins Meteor. Vaxandi geisla- virkni hefur orðið vart við mæl- ingar við strendur V-Þýzkalands. Skipið hefur komizt að þessum niðurstöðum eftir þriggja mán- aða rannsóknir á Norðursjó, Norður-Atlantshafi og Norður-ls- hafi. Talið er, að orsakir aukinnar geislavirkni sé skólp frá verk- smiðju, þar sem unnið er með kjarnorkueðlisfræðilegt eldsneyti nálægt franska hafnarbænum Cherbourg. Skólpið rennur norður með straumi um Ermasundið. Geislavirkni hefur að visu ekki 1<omið fram i trska hafinu eða við Svalbarða. Alsír skilar lausnargjaldi Alsírstjórn afhenti í gær lausnargjaldið fyrir flug- vél Delta-flugfélagsins, sem flokkur svertingja hafði fengið greiddar 1. ágúst. Upphæðin er rúmlega 87 milljónir króna og greiddi Alsirstjórn hana tveimur fulltrúum flugfélagsins. Stjórnin hafði tekið féð af ránsmönnunum, þegar þeir komu til Alsir. „Vandamálin búin" „Erfiðleikar við viðgerð togara eru liðnir,” segir í texta þessarar myndar, sem við fengunr hjá NTB. Þessi franski útbúnaður, 15 metra hár með eigin vél, getur lyft togara allt að 100 tonnum, meðan tveggja og hálfs metra há hjólin eru fyllt af vatni. Myndin var tekin i hafnarbænum Etaples i Norður-Frakklandi, sem er skammt frá bænum Boulogne. Nasistar og vinstri sinnar slóg- ust i Miami. Hér eru vinstri sinn- ar að drösla nasistum burt úr tjaldbúðum sinum, sem nasistar- nir gerðu „innrás ” i. Nasistar höfðu um hrið völdin á fundarsvæði tjaldbúðanna. „Vinstri beygja í blindgötu" - segir Nixon — „Skiptum á Nixon og stríðsföngunum", hrópa kröfugöngumenn — Götuóeirðir í Miami „Kröpp beygja til vinstri mun færa vonir bandarisku þjóðarinnar i blindgötu," sagði Nixon i ræðu sinni í gærkvöldi, þegar hann tók formlega við útnefningu flokksþings repúblikana. Hann beindi orðum sínum til þeirra, sem hann kallaði „hinn nýja meirihluta". Mörg hundruð manna stóðu um það leyti fyrir mótmælaaðgerð- um i Miami, þár sem flokksþingið stendur. Þeir lokuðu götum og grýttu bifreiðar, brutu rúður og kveiktu i bilum. Herlið og lögregla var i vegi mótmælenda hvarvetna ogdreifði mannfjölda. 225 voru handteknir, svo að kunnugt væri. Um þrjú þúsund æskumenn héldu frá tjaldbúöum sinum og stefndu til fundarstaðar flokks- þingsins. Um eitt þúsund skildu við aðalfylkinguna og fóru dreifð- um flokkum um götur. Lögregla beitti táragasi og pipargasi. Tveimur lögregluþjónum var steypt af mótorhjólum sinum, og annar slasaðist hættulega. Skáldið Allan Ginsberg mun hafa verið handtekinn ásamt Jeff Nightbyrd, foringja hippaflokks- ins. Hópar fóru um götur og báru fána þjóðfrelsishreyfingar Viet- nam, hrópandi, ,,úr Asiu, nú” og „Skiptum á Nixon og striðs- föngunum”. Fulltrúar S-Karólínu í háska Óeirðir hófust um það leyti, sem fulltrúar á flokksþinginu komu til kvöldfundarins. Mikið lögreglulið gætti ráð- stefnusalarins. Strætisvögnum hafði verið stillt upp sem „vig- girðingu” við bilastæði, þar sem aðeins bifreiðar hins opinbera fengu að fara um. Þannig hindr- aði lögreglan, að kröfugöngu- menn gætu framfylgt fyrirmæl- um foringja sinna, sem höfðu hvatt þá til að „loka” aðaldyrum ráðstefnusalarins og götum við húsið sem þó skyldu verða frið- samleg mótmæli við stefnu Nix- ons. Fulltrúar frá Suður-Karólinu sögðust hafa komizt i hann krapp- an, þegar bifreið þeirra var stöðvuð og umkringd mótmæl- endum. Skorið var i hjólbarða og leiðslur i bilnum. Fulltrúar urðu að ganga. „Næst ættu allir að fá vélbyssur" Fulltrúar urðu reiðir. „Ef þeir ætla að hegða sér eins og hundar, ætti að fara með bá eins oe hunda,” sagði fulltrúinn Stocks frá Norður-Karólinu. „Ég held, að næst ætti hver fulltrúi að fá vélbyssu,” sagði hann. Bifreiðar fulltrúa frá Tennessee, Ohio, Mississippi og Illinois voru einnig stöðvaðir, þótt ekki væru þau tilvik jafn „æs- andi”. Agnew ætlar i forsetaframboð 1976 Nixon kom með þyrlu til bif* reiðastæðis bak við þinghúsið. Þar beiö hann, meðan Agnew vafaforseti flutti ræðu. Agnew sagði að helzta verkefni sitt sem varaforseta hefði verið að læra af forsetanum og þjóna honum. Var þetta talin enn frekari visbending um, að Agnew hefði hug á að bjóða sig fram til forseta árið 1976. Fulltrúarnir gerðu mjög góöan róm að ræðu Agnews. Nixon kom i ræðu sinni með fátt nýtt um Vietnam. Hann bað bandarisku þjóðina um tækifæri til að halda áfram tilraunum sin- um til að skapa „endanlegan heimsfrið”. Hann sagði, að kosningarnar milli sin og McGovern stæðu um „breytingar, sem yrðu árangurs- rikar og'breytingar sem misstu marks”. Hann minntist ekki á leynifundi Kissingers og Norður-Vietnama, en sagðist „aldrei mundu vinna með óvinum til að neyða fólkið i Suður-Vietnam til að taka við kommúnistastjórn”. „Við munum ekki heldur svikja striðsfangana eða leyfa, að heiður Bandarikjanna verði svivirtur,” sagði hann. Harðnar í dalnum í Chile Stjórn Chile kveðst munu beita hörku til að ganga milli bols og höfuðs á „hálf-hernaöarlegum” læskulýðssamtökum hægri sinna. Stjórnin kennir þessum samtök- um um uppþot og verkföllin i byrjun vikunnar. Allende forseti Chile, sem var kjörinn af bandalagi sósialista og kommúnista, hefur átt i vök að verjast að undanförnu. Löngum hafði hann stuðning kristilega demókrataflokksins i flestum málum, en sá flokkur er stærsti flokkurinn utan stjórnar. Að undanförnu hefur fjandskapur vaxið milli kristilegra demókrata og stjórnarinnar og stjórn Allende hefur gengið illa að fá þingmeirihluta fyrir málum sin- um. Auk þess er sótt að henni frá vinstri. Öaldarflokkar róttækra vinstri manna hafa sig viða i frammiog ráða ýmsum sveitum i trássi viö stjórnina.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.