Vísir - 31.08.1972, Blaðsíða 8
Visir Fimmtudagur 31. ágúst 1972
Visir Fimmtudaiíur 31. á£úst 1972
Umsjón: Hallur Símonarson
y
Bjarni varð í
sjötta sœti
lijarni Stcfánsson varð sjötti i 5
riöli 100 m. hlaupsins i riölakeppn-
inni i morgun. úrslit urðu þar
Korneliuk, Sovét, 10.38 sck.
Abdulai, Nigcria, 10.57 sek.
Wagner, Pólland, 10,62 sek.
Ilemex, Tékkóslóvakiu, 10.66 sek.
Mata, Venezúela, 10.73. sek. Bjarni
10.99 sek. Kabee, Kuvait, U.20 sek.
Þrir fyrstu koinust i milliriðil.
Borsov, Sovét, sigraði i 2 riöli á
10.47 sek. Kotot, A-Þýzkalandi, i 3
riðli á 10.49 sek. Matousek, Tékk, i
4. riðli á 10, 37 sek. og Robinson,
USA, i 5. riðli á 10.56 sek. Brautir
voru þungar og margir keppendur
hlupu á tima yfir 11 sekúndur.
400 pund, en
lítíll í fangi
björnsins
Bandariski glimumaðurinn Chris
Taylor, sem sést hér til hliöar, og
virðist ósköp litill i fanginu á stóra
bangsa, þrátt fyrir sin fjögur
hundruð pund, sigraði Vestur-Þjóö-
verjann Wilfried Dietrich, sem
unnið liefur til verðlauna á fjórum
Olympiulcikum, i gærkvöldi. Þjóð-
verjar kærðu keppni þeirra eftir á,
en alþjóöaglimusambandið tók þaö
ekki til grcina.
Frjólsíþrótta-
keppnin hafin
Frjálsiþróttakeppnin á Olympiu-
lcikunum hófst i morgun ineð
riðlakcppni i 400 m. grindahlaupi. i
fyrsta riðli sigraði Buettncr, V-
Þý/.kalandi, á 49.78 sek. i öðrum
riðli Olympiumeislarinn David
llemery, Bretlandi, á 49.72 sek.
eftir liarða keppni við Gary Knoke,
Astraliu, sem hljóp á 50.10 sek, og
Sorin, Sovétrikjunum, 50.35 sck.
Koskci, Kenýu fell úr á 50.58 sck.,
en þrir fyrstu komust áfram i milli-
riðil. i 3. riðli sigraði Kudolph, A-
Þý/.kaland, á 50.00 sek. Mann,
USA, sem talinn er sigurstrang-
legastur, varð annar á 50,18 sck.
Schubcrt, V-Þý/.kalandi, 3ji á 50.23
sek. en lil mikilla vonbrigða fyrir
Finna féll Noröurlandametbafinn
Ari Salin úr á 50.45 sek.
i 4. riðli sigraði Akii-Bua,
Uganda, á 50.35 sek, og i 5 riðli
Gavrilenko, Sovét a 49,73 sek, rétt á
undan James Seymour, USA, sem
liljóp á 49.81 sek. Fleiri riðlar voru
ekki komnir þegar blaðið fór i
prentun.
Úrslit í hand-
bolta í gœr
Austur-Þýzkaland—ísland 16-11
Tékkóslóvakia—'fúnis 25-7
Rúmenia—Noregur 18-14
V-Þýzkaland—Spánn 13-10
Ungverjaland—USA 28-15
Júgóslavia—Japan 20-14
Sviþjóð—Rólland 13-13
Danmörk—Sovét 12-12.
Tapaði gullinu í
fyrstasinní52ór
Vladimir Vasin, Sovétrikjunum,
sigraði i gærkvöldi i dýfingum af
fjaðurbretti (þau lægri) — og hlaut
þar með Olympiutitil, scm Banda-
rikjamenn liafa alltaf unnið allt frá
1920. Og ekki nóg mcð það. italinn
Franco Cagnotto, sem hafði forustu
fram að tveimur siöustu tilraunun-
um, varð i öðru sæti, en Banda-
rikjamaðurinn Craig Lincoln
þriðji. Það þótti Bandarikjamönn-
um að vonum lélcg uppskera i
grcin, scm liefur veriö ein þeirra
öruggasta.
Islenzkar stórskyttur
eru ekki lengur til!
— og Austur-Þjóðverjar sigruðu Islendinga 16-11 í gœrkvöldi
Frá Jóni Birgi Péturs- lega. En leikurinn var
syni, Munchen. góður af okkar hálfu og
úrslitin 16-11 of stór
sigur fyrir Þjóðverja —
það var enginn vafi á þvi.
Þeir eru af öllum stærðum og gerðum, glimumennirnir i Munchen.
Sovézki björninn, Alexander Medved, heldurbetur spikaður réö þó lítiö
við Bandarikjamanninn Chis Taylor.
Einstakur óheppniskafli
i byrjun siðari hálfleiks i
leik okkar við Austur-
Þjóðverja i gærkvöldi
setti endapunktinn fyrir
áframhaldandi vonir
okkar um að geta
hamlað gegn sigur-
göngu hinna einstöku
handknattleiksvél-
menna, sem Austur-
Þjóðverjar eru óneitan-
Liðin voru ótrúlega jöfn en ólik,
nema hvað varnir beggja léku
mjög likt og mynduðu að þvi er
virtist margfaldan múrvegg sem
ekki reyndist auðveltað komast i
gegnum. Slik.t varnarspil hef ég
aldrei séð fyrr i landsleik
Islendinga i handknattleik —
stórlega vel leikin vörn sem kom
Þjóðverjunum greinilega á óvart,
enda eru þeir sjálfir sérfræð-
ingar i ,,,járnbentri steinsteypu”
á handknattleikssviðinu.
Eyjamenn höfðu tögl og
hagldir
Blikana
og unnu
— Fimmti sigurleikur Vestmannaeyinga í rðð
Vestmannaeyingar
réöust eins og gráðugir
úlfará hið unga iið Breiða-
bliks í gærkvöldi á Mela-
vellinum og gjörsigruðu
þaö. Þrátt fyrir að
Blikarnir skoruöu fyrsta
markiö höfðu Eyja-
skeggjar yfirburði nær
allan tímann og unnu leik-
inn með 5:2.
Kópavogsliðið byrjaði af
miklum krafti, sem virtist koma
Kyjamönnum nokkuð á óvart.
Attuðu þeir sig ekki strax á bar-
áttugleði mótherjanna og þegar
um 10 minútur voru af leik
skoraði Heiðar Breiðfjörð fyrir
Breiðablik eftir velheppnað
upphlaup. En þá fóru Vest-
mannaeyingar að taka við sér og
hófu mikla sóknarlotu, sem
endaði með marki nokkrum
minútum siðar. Það var hinn
marksækni Tómas Pálsson, sem
jafnaði fyrir Eyjamenn og voru
þá þrir framherjar komnir fast
upp að marki Breiðabliks. Ekki
létu Blikarnir þetta á sig fá
heldur svöruðu með gagnsókn
samstundis og strax á næstu
minútu negldi Bjarni Bjarnason
boltann i Eyjamarkið. Það var
Fyrsta tapið
hjá Liverpool
Nokkrir leikir voru háðir í ensku
knattspyrnunni i gærkvöldi og
kom þar mest á óvart, að
Liverpool tapaði i fyrsta skipti á
keppnistimabilinu. Úrslit urðu
þessi:
1. deild
Leeds—Southampton 1-0
Leicester-Liverpool 3-2
Manch.Utd.-Chelsea 0-0
Newcastle-Tottenham 0-1
WBA-Birmingham 2-2
Norwich-Stoke City 2-0
2. deild
Cardiff-Millvall 1-0
Luton-Oxford 0-1
Portsmouth-Huddersf. 1-2
mikill hraði i leiknum og hart
barizt á báða bóga. En brátt tóku
Eyjamenn leikinn nær algjörlega
i sinar hendur
Tómas Pálsson átti gott færi á
að jafna, þegar hann stóð fyrir
framan mark Breiðabliks og fékk
góða sendingu frá Erni á
kantinum. en boltinn flaut yfir
þverslána. Þegar um 35 minútur
voru liðnar af leiktimanum sóttu
Eyjamenn stift og komst örn
Öskarsson innfyrir vörn
Blikanna. Hann vann kapp-
hlaupið við bakvörðinn og átti létt
með að vippa yfir úthlaupandi
márkvörð. Nokkrum minútum
siðar óð Tómas Pálsson með
eldinghraða i gegn um vörn
Breiðabliks og skaut hnitmiðuðu
skoti fram hjá markverðinum,
sem ekki fékk rönd við reist.
Þetta mark er hægt að skrifa hjá
vörn Breiðabliks, sem lá of
framarlega og hafði ekki tök á að
elta Tómas uppi. Staðan 3:2. i
leikhléi.
í seinni hálfleik höfðu Eyjar-
skeggjar tögl og hagldir og bættu
við tveimur mörkum. Fyrra
markið skoraði Tómas eftir góða
fyrirgjöf frá Ásgeiri. Markvörður
hafði hendur á boltanum, þegar
Ásgeir skaut að marki, en missti
hann fyrir fætur Tómasar og þá
var ekki að sökum að spyrja.
Þegar nokkuð var liðið á leikinn
sóttu Breiðabliksmenn ákaft um
stund og skullu þeir þá hart
saman Páll markmaður Eyja-
manna og Guðmundur Þórðar-
son. Hlaut Páll einhver meiðzl og
varð að flytja hann af leikvelli á
sjúkrabörum. Þetta óhapp
hleypti nýjum krafti i Vest-
mannaeyinga og bætti Tómas við
fimmta markinu eftir að hafa
brotizt i gegn um vörn Breiða-
bliks. Markvörðurinn gerði ekki
tilraun til að verja. Lauk leiknum
þvi 5:2.
Uómari var Guðmundur
Haraldsson og hélt hann leiknum
vel i skefjum þurfti aðeins einu
sinni að veifa gula spjaldinu.
— SG
öðru komumst við að. Stór-
skytturnar, sem islenzk lið voru
áður heimsfræg fyrir, eru ekki til
i dag. Sorgleg staðreynd, en
skyttur eigum við varla svo
heitið geti. Og annað varðandi
skotmenn. Þeir þýzku skotmenn,
sem hreinlega varð ekki ráðið við
og urðu þess valdandi, að okkar
menn náðu ekki sigri, geta skotið
með svo ótrúlega stuttum fyrir-
vara — og án nokkurra vifilengja
— að ótrúlegt er. Mér virðist full
þörf á þvi, að okkar menn fari að
reyna þessa nýju skotaðferð, sem
er þó raunverulega ekki neitt
nýtt út af fyrir sig, en nú er
greínilegt að meira er lagt upp
úr skotum sem þessum en áður —
það eru þau, sem fara mest i
gegnum úlnliðinn.
Leikurinn i gærkvöldi var
geysijafn og spennandi framan
af og fram á 21. min. munaði
aldrei nema einu marki og þá
höfðu okkar strákar verið
óheppnir ‘ tvivegis i röð með skot
af linu. Stemningin á áhorfenda-
pöllum var með allra mesta móti
— liklega hafa nokkrir tugir
íslendinga verið hér i Augsburg
meðal hinna 2000 áhorfenda, sem
hér voru. Nær allir, sem vettlingi
gátu valdið voru komnir hingað —
þeir, sem i Olympíuþorpinu búa
og eins islenzkir námsmenn i
Vestur-Þýzkalandi og jafnvel
einn frá Sviþjóð, auk þeirra
manna, sem hér eru i nágrenninu.
„Jón, skjóttu bara”, hljómaði
hér i iþróttahöllinni i Augsburg,
rétteins og maður væri i Laugar-
dalshöllinni. En Jón Hjaltalin
litur ekki á áhorfendurna með
vikingablóðið og lætur þá ekki
hafa áhrif á sig. Hann veit að það
þýðir ekki að skjóta i steinvegg og
vonast til að veggurinn brotni.
Leikmenn okkar leika skyn-
samlega og leika af kappi. Þetta
tekst oft, en það sem ég varð
fyrir vonbrigðum með, var léleg
nýting á linuskotum i leiknum.
Linumennirnir voru of fljótir að
losa sig við þetta glóandi gull-
epli — árangurinn, markvarzla
eða skot i stöng.
t hálfleik var staðan 7-6 fyrir
Austur-Þjóðverja. Þjóðverjarnir,
eitt allra skemmtilegasta lið, sem
ég hef séð, byrjuðu á þvi að skora
i siðari hálfleik. Skot þeirra var
erfitt að ráða við eins og fyrr seg-
ir — það var einkum tvisturinn
þeirra, Peter Randt, sem menn
áttu i brösum með. Hann skoraði
fimm mörk og þau voru hreint
frábær. Slikar skyttur þurfum við
að eignast, þá standa ekki marg-
ar þjóðir i vegi okkar. Lið okkar
er full einhæft og mér finnst að
það mætti reyna að fara svolitið
eigin leiðir i leik — meiri
fjölbreytni þarf til að gera leiki
okkar að algjörum toppklassaleik
— á við það, sem austur-þýzkir
sýndu hér i kvöld.
Og hvaö um skytturnar okkar?,
spyrja menn eflaust. Þvi er að
svara,að Geir Hallsteinsson kom
ekki út sem skytta i leiknum.
Enginn efast um hæfni hans, en
aðdragandinn að skotum hans er
of mikill. „Berlinarmúrinn” er
stöðugt kominn i veg fyrir skot
hans, svo augljós eru þau. Nú,
Jóni Hjaltalin tókst heldur ekki
vel upp með skot sin.þau eru föst,
en of augljós fyrir vörn og mark-
verði i þeim heimsklassa, sem
hér rikir. Jón virðist heldur ekki
kunna að staðsetja sig nógu vel til
að komast i færi. Að auki þarf is-
lenzka liðið meiri ógnun á báða
bóga — viðar en á einum stað i
vörn mótherjanna. Islenzka liðið
átti ágætan leik eins og fyrr segir
og við getum að svo komnu máli
verið ánægð með leik liðsins.
Sannarlega eru Islendingar ekki i
sund- eða frjálsiþróttaklassa hér
— númer átta af átta i riðli eins og
alltof algengt er.
Mörk tslands i leiknum skoruðu
Geir2, Jón Hjaltalin 2, Ölafur H.
Jónsson 2, Stefán Gunnarsson 2,
Björgvin Björgvinsson 1, Sigur-
bergur Sigsteinsson 1 og Sigurður
Einarsson 1.
Skipting verðlauna
Eftir að keppni var lokið i 31 grein i Múnchen i^
gærkvöldi skiptust verðlaun þannig:
Lönd
Bandarikin
A-Þýzkaland
Sovétrikin
Japan
Ástralia
Pólland
Sviþjóð
Ungverjaland
ítalia
Búlgaria
Norður-Kórea
V-Þýzkaland
Frakkland
Rúmenia'
Austurriki
iran
Iiolland
Gull Silfur
Bronz
6
Hefðu ótt að nota
toktik Fischers!
Frá Jóni
Míinchen:
Birgi Péturssyni,
Eftir leikinn náöi ég tali af
nokkrum mönnum og þeir sögðu:
Jón Erlendsson, liðsstjóri. —
Ég er aldrei ánægður nema þeg-
ar við vinnum leik, en eftir atvik-
um er ég ánægður með þennan
leik. Mér fannst Tékkarnir góðir,
en Túnisbúar alltof reynslulitlir.
Gunnsteinn Skúlason, fyrirliði
isl. liðsins. Ég er ánægður með
vörnina, en sóknin einkum fyrir
utan, brást um of — ógnunin var
sjálfsagt fyrir hendi. Varðandi
áframhaldið þá sýnist mér, að
Tékkarnir séu þess eölis, að þá
megisigra ef vel verður á spilun-
um haldiö. Túnismenn eru lélegir
og án reynslu. Ég veit að Tékkar
eru sterkir, en i miklum öldudal,
þó ekki inegi dæma neitt eftir leik
þeirra við Túnis. Þaö var heldur
dapurlegt fyrir okkur Björgvin
Björgvinsson að eyðilcggja sin
hvor tvö tækifærin á linu. Slikt
gerist sem betur fer ekki oft.
Jóhann Gislason, oft kallaður
skothraði vélstjórinn úr V'iking.
Við hittum hann eftir leikinn.
Hann var meðal áhorfenda hér og
er með fjölskyldu sina i Múnchen.
Mér fannst ógnun vanta allan
leikinn ööru megin. Það er ekki
nóg að Geir ógni einn öðrum meg-
in á vellinum — það þarf ógnun
lika hinum megin.
Tschochohei, þjálfari af tékk-
neskum ættum, semþjálfar þýzka
úrvalsliöið Bavaria, milljónalið.
— islenzka liðið var mjög gott i
fyrri hálfleik, en féll niður svolitið
i þeim siðari, cinkum þegar aust-
ur-þýzki markmaðurinn Voigt fór
að verja af miklu kappi. Hann
taldi Gcir langbezta lcikmann is-
lands — en vörnin of litil á miðj-
unni, fannst hún halla vitlaust, of
kúpt, stóru mennirnir úti i hliöun-
um.
Og aö lokum. Kannski hefðu
lcikmenn okkar bctur notað þá
taktik, sem Bobby Fischer hefur
kynnt svo rækilega heima að und-
anförnu — að láta biða eftir sér.
Það var haldiö af stað úr
Olympiuþorpinu kl. þrjú i gær, en
kl. sjö hófst leikurinn. Milli stað-
anna er þó ekki nema 55 min. fcrð
með járnbrautarlcst og 5 min. i
bil á litlu járnbrautarstööina,
sem Olympuþátttakendur nota i
þorpinu. Ég er ekki frá þvi að
betra hefði verið að biða svolitið
— senda liðið með eigin farar-
tæki, það er rútunni, og leyfa
AusturÞjóðverjunum að biða i
reiðuleysi i Augsburg i hátt á
þriðja tima. Það var áreiðanlega
taugatrekkjandi bið fyrir báða
aðila, ekki sizt okkar menn, en
þeir fóru inn i höllina strax við
komuna og biöu þar allan timann.
Austur-Þjóðverjarnir hins vegar
stóðu i hnapp fyrir utan — töluðu
við unga aðdáendur, gáfu eigin-
handaráritanir og léku á alls
oddi. Mér fannst þetta svolitið
röng taktik hjá islcnzku forráða-
mönnunum. Þcir hefðu heldur átt
labba með sina mcnn úti skdginn
þarna og slappa svolitið af i stað
þess að biða i mjög þungu lofti og
leiðinlegu inni i Höllinni.
Ludmilla Touisheva sigraði i fimleikum kvenna i gær og þessi svóvezka
stúlka átti nær fullkomnar æfingar I lokin — hlaut 9.90 stig, sem
tryggðu sigurinn. Hér sést hún á æfingu á slá á leikunum. önnur varð
Karin Janz A-Þýzkalandi, og 3ja Tamara Lazkotich, Sovét.
Tékkor ekki
óyfirstígan-
leg hindrun
Frá Jóni Birgi Péturs-
syni, Múnchen
Túnismenn virðast ekki eins
sterkir mótherjar og þeir sjálfir
virðast hafa haldið og kom fram á
dögunum, þegar þeir töluðu við
Vísi. Þeir eru þó ekki slakir af
byrjendum að vera, þvi þeir eru
sannarlega mjög skemmtilegir
óg liðlegir leikmenn. Margt fall-
egt gerðu þeir á móti Tékkunum,
en sýndu jafnframt að þeir eiga
margt eftir ólært og óreynt i list-
um handknattleiks.
Framan af ógnuðu þeir veru-
lega, en smám saman tókst þó
heimsmeisturunum fyrrverandi
að ná yfirhöndinni og taka öll
völd i sinar hendur. Það yrði okk-
ur tslendingum hið mesta áfall ef
Túnismenn reyndust okkur erfið-
ir i keppninni nú um helgina.
En það er af Tékkunum að
segja, að þeir eru hreint ekki eins
sterkir og undanfarin ár. Tékkar
hafa lengi verið ein albezta hand-
knattleiksþjóð heims, en svo ein-
kennilega viljað til, að Island hef-
ur ætið verið eitt þeirra landa,
sem þeir hafa aldrei ráðið al-
mennilega við i landsleikjum
hverju sem um hefur verið að
kenna eða þakka fyrir okkur.
Eftir að hafa horft Tékka mylja
Túnismenn mélinu smærra 26-7
eftir 10-3 i hálfleik hér i kvöld, þá
er ég ekkert sérlega ánægður með
Tékkana og tel þá ekki óyfirstig-
anlega hindrun i riðli okkar. Ég
tel að strákarnir okkar ef þeir
verða eitthvað i likingu við það
semþeir voru hér i kvöld — ættu
að vinna Tékkana. Um Túnis
er ekki spurning — það land eig-
um við að sigra með miklum
markamun. Þeir kunna alltof litið
og geta vart unnið nokkurn leik i
þessum riðli.
Bœtist í safnið
Hjörleifur Þórðarson
var upptekinn að mynda
á myndsegulband is-
lenzka handknattleiks-
sambandsins i gær-
kvöldi. Smátt og smátt
eignumst við gott safn
með beztu handknatt-
leiksmönnum heims og
það er ekki ónýtt.
Sviar og Norðmenn hafa bönd
af mörgum þeirra þjóða, sem
hæst ber hér og vonandi fáum við
að njóta þess fróðleiks, sem þar
er að finna. Reyndar fengum
við frá Svium — eins og sagt var
frá i blaðinu i gær — band af
A-Þjóðverjum, en það reyndist
þvi miður heldur illa upptekið.
Það kom okkur þó að nokkru
gagni, þvi þar sást greinilega
hvernig gangurinn er i sóknum
þeirra og tókst islenzka liðinu
þess vegna að komast inn i þessar
sóknir að verulegu leyti. JBP
Ennþá eykst
stigamunurinn
Eftir aö keppni var lokið i 31
keppnisgrein á Olvmpiuleikunum í
gærkvöldi var hin óopinbera stiga-
tala þjóðanna þannig (28 þjóðir af
122 hafa blotið stig).
1. Bandarikin 152
2. A-Þýzkaland 104
3. Sovétrikin 76.5
4. Pólland 44
5. V-Þýzkaland 43.5
6. Ungvcrjaland 39.5
7. Japan 38
8. Ástralia 28
9. ítalia 27
10. Sviþjóð 25
11. Búlgaria 14
12. Frakkland 13
13. Kúmenia 13
14. Austurriki 12
15. ‘Tékkóslóvakía 9
16. Norður-Kórea 8
17. Holland 6
18. iran 6
19. Kanada 6
20. Bra/.ilia 4
21. Belgia 3
22. Ekvador 3
23. Burma 2
24. Noregur 2
25. Júgóslavia 1
26. Kúba 1
27. PuertoRicó 1
28. Thailand 1
Þeim er illa
við Mark Spitz
Það er fjandsamlegt og biturt
taugastrið komið upp innan banda-
riska sundflokksins i Miinchen.
Þetla segir silfurmaðurinn i 200 m
skriðsundi, Steve Genter, um
félaga sinn Mark Spitz, hinn ósigr-
andi.
— Ég hef litla trú á þeim manni.
Ekkert hefði glatl mig mcira, en að
sigra liann, en þvi miöur tókst það
ekki. Mark var aigjörlcga upptek-
inn af sjálfuin sér og „glamour-
strákurinn” reyndi að koma mér úr
jafnvægi fyrir keppnina ( Steve er
nýkominn af sjúkrahúsi, þar sem
liann var skorinn vegna vcikinda i
lungum ).
— Ilann ræddi við mig á þriðju-
dagsmorgun, fyrir riölakeppnina,
og sagði, að það gæti engán veginn
verið gott fyrir mig að keppa —
sárin gætu tekið sig upp. Hann
reyndi aftur um kvöldið og sagði þá
að það væri ckki rétt fyrir mig að
icggja harl að mér i úrslitasundinu.
Eina ástæðan til þess að ég og Gary
Hall erum að synda i keppni er sú,
að við álitum að okkur gæti tekizt
að sigra Spitz.
Olympíumet og
olympíumet!
Bandariska sveitin i 4x200 m
skriösundi setti nýtt, ólympiskt
inet i riðlakeppninni i morgun,
synti á 7:46.42 min. Mark Spitz
synti þó ekki i sveitinni þar sem
liann reynir að vinna sin fjórðu
gullvcrölaun siðar i dag i 100 m
flugsundi — hcztu grein hans.
í 100 m flugsundi kvenna setti
Andrea Gyarmati, Ungverjalandi,
nýtt Olympiumct i morgun, þegar
liún synti á 1:04.1 min i öðrum riðli.
Þann tima biætti Mayumi Aoki,
Japan, i 1:04.00 i fjórða riðli.
USA-risarnir kom-
ust í taphœttu!
i fyrsta skipti á Olympiuleikum
var bandariska körfuboltaliðiö i
taphættu i keppni cða i 36 ár. Það
var i leik i gærkvöldi gegn Braziliu
og það var aöcins á tveimur síðustu
minútunum, sem USA tókst að
vinna upp mun Brassana og sigra