Vísir - 20.10.1972, Síða 1

Vísir - 20.10.1972, Síða 1
■ Mentamálaráðaneytið á metið í nefndunum G2. árg. — Föstudagur 20. október 1972. — 240. tbl. Menn fá allt að 380 þúsund krónur fyrir nefndastörf - sjá bls. 3 Stálu CIA-menn spútnik Rússa 1958? — Sjá bls. 5 Þykjustuleikur með konu í hjólastólnum? „Þau eiga mig að”, segir konan i hjólastólnum i leik- riti Ninu Bjarkar Árnadóttur „Fótatak”. Það er hitt fólkið i leiknum, sem á hana að, vitjar hennar með áhyggjur og raunir sinar. Hún er á sin- um stað, breytist ekki eða hverfur á burt, því má treysta. Að leikslokum situr hún kyrr á sama stað, hiekkjuð við stólinn. Þau eigahanaenn að. Fólkið er kannski bara „að þykjast”, þegar það læzt vera svo og svo óhamingju- samt, og þá er sök hennar sú að sjá i gegnum þykjustu- leikinn. Sjá leikdóm á bls. 7 Örlœtið dugði til einnar veizlu Menn hafa það á tilfinning- unni, að Sile sé einna helzt ,,á heimsenda”, en það er ekki lengra frá okkur en svo, að sjálfur formaður Alþýðu- bandalagsins er þar i lúxus- skemmtiferð. Sile býr nefni- lega við vinstri stjórn, og hún hefur verið nógu örlát til að halda „eina veizlu”, en svo er draumurinn lika búinn. Sjá föstudagsgrein á bls. 6 Halda tryggð við gömlu sveitina — með bílnúmerinu Sjá Lesendabréf bls. 2 Franski sendiráðs- maðurinn látinn Pierre Susini, franski sendiráðsmaðurinn, sem hlaut lifshættuleg brunasár i sprengjuárás Bandarikja- manna á Hanoi 11. okt„ lézt i Paris. Egypzk kona, sem vann við franska sendiráðið fórst i sprengjuárásinni, og fjórir vietnamskir starfsmenn einnig. Arthur Watson, ambassa- dor USA i Paris, var kallaður á fund franska utanrikisráð- herrans til að veita viðtöku mótmælum Frakka vegna atburðarins, en hann bar i'rain afsökunarbeiðni Bandarikjamanna. Richard Nixon, forseti, sendi persónulegt bréf til Pompidou, Frakklandsfor- seta, þar sem hann harmaði þennan atburð. — GP. Bretarnir grýttu kart- öflum að Fœreyingum — sem skóru á landfestar tveggja togara og hröktu þá frá Þórshöfn Skipverjar á brezka togaranum Northern Sun grýttu kartöflum að Þórs- hafnarbúum um leið og þeir lögðu frá bryggju í gærkvöldi. Höfðu Færeyingar veitt þeim óbliðar móttökur sem og togaranum Aldershot, sem Northern Sun fylgdi til hafnar í Færeyjum. Nú er unnið að viðgerð á Aldershot í Skálafirði. Von var á togurunum til Þórs- hafnar um hádegi i gær en þeir komu ekki fyrr en um kvöldið. Hafði sigling Aldershot gengið fremur hægt vegna leka sem knm að skipinu er það sigldi á Ægi. Fylgdarskipið kom fyrst inn og lagðist við oliubryggju. Mikill mannsöfnuður safnaðist brátt að togaranum og voru frændur vorir brúnaþungir, en höfðust ckki að. Aldershot kom nokkru siðar og lagðist að fyrir framan viðgerðarvcrkstæði. Þá var Færeyingum nóg boðið og lcystu þeir landfestar jafnóðum og þær voru festar. Leiddist þeim að Inkum þófið og skáru landfestar lausar en togarinn lagðist utan á Northern Sun. Mannsöfnuðurinn þyrptist þá að oliubry ggjunni og brá sveðjum á landfestar Northern Sun. híftir að hafa staðið i þessu stappi i tvær klukkustundir sigldu brczku togararnir á brolt. Þegar Northcrn Sun var kominn út i hafnarkjaftinn sneri hann aUt i einu við og sigldi aftur að bryggjunni. Þcytti hann flautuna ákaft meðan liann renndi meðfram en skip- Ánœgðar og ekki ónœgðar? Við þorum ekki að fullyrða, að þessar glaðværu skólastúlkur séu endilcga úr háskólanum, þó að þær hafi vcrið á leiðinni það- an þegar þessi mynd var tekin I gær. Anægja þeirra og kæti skýtur lika skokku við þa óánægju, sem ríkjandi er i há- skólanum, og raunar fleiri æðri skólum, vegna námsfjárskerð- ingar þeirrar, sem um getur i frétt á bls. 2 i dag. Eftirlitsskipunum neitað um þjónustu — segir bœjarstjórinn á Akureyri „Þaö er ákveðið mál frá minni hálfu að brezkum eftirlitsskipum verður neitað um þjónustu sem óskað cr eftir af hálfu bæjarins. En það er litiö annað en vatn sem þau þurfa að kaupa af okkur”, sagði Bjarni Einarsson bæjar- stjóri á Akureyri i samtali við Vísi i morgun. Bæjarstjórinn sagði að það væri takmarkað hvað eitt sveitarfélag gæti gert i þessu máli. Það væri útilokaðfyrirsig sem bæjarstjóra að banna oliufélögunum að selja brezkum skipum oliu eða fyrir- tækjum i bænum að selja þeim vistir. „En ég hef gert ráðstafanir til að fá vineskju um öll brezk skip sem hingað koma og mun leggja blátt bann við að eftirlits- skipum togaranna verði selt vatn”, sagði Bjarni Einarsson. Hann kvað það siðan á valdi bæjarráðs og bæjarstjórnar að meta þessa ákvörðun sina. Bjarni sagðist ekki hafa orðið var við neinn áhuga hjá oliufélög- unum eða öðrum á þvi að skipta við brezk skip, en á það hefði ekki reynt. Brezka eftirlitsskipið sem kom með tvo veika togarasjó- menn til Akureyrar á dögunum fékk afgreitt vatn án vitundar bæjarstjóra, en slikur atburður mun ekki endurtaka sig. Fyrir borgarstjórn Reykjavik- ur liggur tillaga um að aðstoðar- skipum landhelgisbrjóta verði ekki neitt nein þjónusta i Reykjavikurhöfn. Þá hef- ur stjórn Alþýðusambandsins beint þeim tilmælum til allra sem innan vébanda þess eru, að veita eftirlitsskipunum enga fyrir- greiðslu. — SG. vcrjar hófu mikla kartöfluskot- lirið á hópinn á bryggjunni. Hélt togarinn siðan út á eftir Aldershot og voru skipverjar liinir ánægðustu aö sjá með þcssar hernaðaraðgerðir. „Aldershot hefði strax fengið viðgerð hér ef ekki hefði verið vitað um ásiglinguna á Ægi” sagði ölafur Guðmundsson i Þórshöfn, þegar Visir ræddi við liann i inorgun. „Skipin fóru til Skálafjarðar þar sem nú er unnið að viðgerð á Aldershot. Þeir cru ekki vanir neinum hóp- aögcröum svona á minni stöðum.” sagði Ólafur enn- frcmur. i fyrradag kom brezkur togari til Þórshafnar vegna bilunar og l'ékk hann viðgerð án tafar, enda ekki lengur i gildi bann það sem iönaöarmenn i Færeyjum höfðu sett á hrezka landhelgis- hrjóta. En þegar fréttist um ásiglinguna var almenningi i Þórshöfn nóg boðið og greip til sinna ráða. Skipstjórinn á Aldershot fullyrti að varðskipið hef'ði siglt á skip sitt en viður- kcnni að liafa ekki lilýtt skipun- um þess um að liifa upp. Brezkur togarasjómaöur var lagður inn á sjúkrahúsið i Þórs- höfn l'yrir skömmu og lét hann hið be/.ta yfir aflabrögðunum i landhelginni við island. -SB. Akstursmenning á batavegi? Grcinilegt er, að árekstrum hefur farið fækkandi undanfarin dægur. Nú siðasta sólarhringinn voru þeir aðeins átta og tvo sólar- hringa þar á undan voru þeir cllefu hvorn. Þctta cr mikil brcyting frá þvi sem verið hefur, þvi þá voru allir sólarhringar yfir mcðaltali (þrettán) Beina linan á linuritinu segir okkur hvernig kúrfan hefði verið ef um þrettán árekstrar hefðu orðið á hverjum sólarhring. A meðan kúrfan, sem sýnir raun- verulegan áresktrafjölda, heldur sig fyrir ofan beinu linuna, er árekstrafjöldi alls meiri en spáð var. Við getum aftur á móti séð það á halla kúrfunnar miðað við beina strikið, hvort áresktrafjöldi er undir eða yfir meðaltali ákveðinn sólarhring. h'jallað er um umferðarmál og orsakir umferðarslysa i leiðara i 1 nO------1-----1----1_____l____I-----1_____I r„ 14. ii. io. r. i>. i". 2i

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.