Vísir - 20.10.1972, Side 13
Vísir Föstudagur 20. október 1972. 13
□ □AG D KVÖLD | Q □AG | D J > * Q □AG |
Sjónvarp kl. 21,45
SJÓNAUKINN
Viðtal
við
Jóhann
risa
Einnig verður fjallað
um ölvun við akstur,
viðtöl við erlenda
fulltrúa ó þingi S,Þ,
um landhelgismólið
og rœtt um óstandið
í Chile.
i kvöld er „Sjónaukinn” aftur á
dagskrá og eru það fréttamenn
sjónvarpsins sem sjá um þáttinn.
i þetta sinn verður fjallað um
landhelgismálið og þorskastriðið.
Rætt verður við þrjá fulltrúa scm
sitja á allsherjarþingi Sameinuðu
þjóöanna. Iíru það fulltrúar Kan-
ada, Kenýa og forseti Einingar-
samtaka Afrikurikja. Þá er fjall-
að um ástandið i Chile og orsakir
fyrir þeim vandræðum sem þar
rikja. Þá verður tekið fyrir málið
ölvun viö akstur en alltaf eykst
það að menn aka undir áhrifum
áfengis. Þá verður spjallað við
Jnhann Svarfdæling en hann hef-
ur dvalið fjölda ára í Randa-
rikjunum og starfað þar i fjöl-
leikahúsum og notað stærð sina til
að lifa af, cn hann er hvorki nteira
né minna en 2.25 metrar á hæð.
Mörg önnur mál eru tekin fyrir og
má búast viö að þátturinn verði
bæði skemmtilegur og fróðlegur.
—ÞM
Jóhann risi er nú i heimsókn á islandi eftir að hafa dvalizt fjölda ára er-
lendis þar sern hann hefur leikið vikinga og fleira i fjölleikahúsum. Auk
þess aö koma til aðskoða fornar slóöir, er einn aðaltilgangur ferðarinn-
ar hingað að láta smiða á sig skó.
Útvarp kl. 22,15:
„Ég veit ekki hvort
ég get það
Ævar Kvaran, leikari les i
kvöld smásöguna „Salvatorc”
eftir Somerset Maugham. Sagan
er mjög stutt en sérkennileg á
margan hátt. Það kemur ekki
fram fyrr en í lok sögunnar, hver
boðskapur höfundarins er.
Sagan fjallar um lif mjög
fátæks italsks fiskimanns og lýsir
starfi hans og æfi á mjög ein-
faldan hátt. Sagan er skrifuð
þannig, að hlustendur fara að
hugsa um hver boðskapur hennar
i raun og veru sé, en eins og áður
er sagt, kemur það ekki fram fyrr
en i lok sögunnar. Sagan byrjar á
setningu sem virðist i upphafi
BLÓMAHÚSIÐ
SKIPHOLTI 37 SlMI 83070
(Við Kostakjör, skammt fró Tónabíó)
OpiS alla daga — öll kvöld og um helgar.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 30.21. og 33. tbl. Lögbirtingablaðs 1972 á
hluta i Gnoðarvogi 30, talinni eign Sævars Snæbjörnssonar
fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka islands á
eigninni sjálfri, þriöjudag 24. okt. 1972, kl. 14.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik
ekki vera i neinu samhengi við
söguþráðinn i heild. Höfundur
ljóstrar upp meiningunni með
setningunni, sem er ,,Ég veit
ekki hvort ég get það” alveg i
lokin og þá fyrst geta hlustendur
áttaðsig á samhenginu. Sagan er
forvitnileg mjög og má búast við
að hlustendur muni hafa ánægju
af henni.
—ÞM
Spáin gildir fyrir laugardaginn 21. okt.
Ilrúturinn, 21. marz—20. april. Ýmislegt bendir
til að dagurinn geti orðið nokkuð erfiður. Mest
fyrir það að áætlanir standast ekki, eða að
loforð verða ekki haldin.
jfö
W
Nl
uá
Naulið.21. april—21. mai. Einhver mannfagnað-
ur er framundan, sem þér býðst tækifæri til að
taka þátt i. Þótt þig langi ekki beinlinis ættirðu
samt að fara^ það getur borgað sig.
Tviburarnir, 22. mai—21. júni. Það verður tals-
verður hraði á hlutunum i dag. Ef til vill á það
sinn þátt i þvi að þú komist i timaþröng með
verkefni þin.
Krahbinu. 22. júni—23. júli. Dagurinn byrjar ef
til vill ekki eins og þú mundir kjósa, en það
rætist úr öllu, og þvi betur sem fram liður.
Kvöldið getur orðið skemmtilegt.
Ljónið 24. júli—23. ágúst. Töluvert annriki við
einhvern undirbúning i sambandi við helgína.
Allt bendir tii að þú munir njóta þar góðrar
aðstoðar.
Meyjan,24. ágúst—23. sept. Það er ekki útilokað
að ýmislegt gangi á afturfótunum i dag, að
minnsta kosti fram eftir. En ekki ætti það þó að
valda neinum vandræðum.
Vogin,24. sept,—23. okt. Það litur út fyrir að eitt-
hvert tilboð eða boð valdi þér nokkrum vafa og
hiki. Sjálfsagt lika að þú hugsir þig um, en ekki
of lengi.
Drekinn, 24. okt —22. nóv. Það litur út fyrir að
þetta verði talsvert erfiður dagur, og að þér
gangi ekki sem bezt að fá aðstoð eða liðsinni eins
og með þarf.
Rogimiöuriiin, 23. nóv.—21. des. Sæmilegur
dagur, þrátt fyrir alls konar annriki i sambandi
við helgina. Athugaðu peningahliðina gaum-
gæfilega i þvi sambandi, heldur fyrr en siðar.
Steingeitin, 22. des,—20. jan. Það bendir margt
til þess að dagurinn fari i allt annað en þú
hugðir, og ýmislegt óvæni beri til þess, sumt
fremur skemmtilegt að minnsta kosti.
Vatnsherinn 21. jan.—19. febr. Farðu nú gæti-
lega að öllu, og lofaðu ekki neinu umfram það
sem þú treystir þér til að standa við. Kvöldið
getur orðið skemmtilegt.
Fiskarnir, 20. febr.—20. marz. Þaö litur út fyrir
að dagurinn verði dálitið tætingslegur, að
minnsta kosti fram eftir. Með lagni ættirðu samt
að koma ár þinni vel fyrir borð.
SJÓNVARP •
FÖSTUDAGUR
20. oktober 1972
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Kálir söngvasveinar
Kenny Rogers & The First
Edition leika og syngja létt
lög frá Vesturheimi og setja
á svið ýmis skemmtiatriði.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
20.55 Fóstbræður Brezkur
sakamálaflokkur. Þýðandi
Vilborg Sigurðardóttir.
21.45 Sjónaukinn Umræðu- og
fréttaskýringaþáttur um
innlend og erlend málefni.
22.45 Ilagskrárlok
ÓTVARP •
FÖSTUDAGUR
20. október
13.00 Kftir hádegiö.Jón B.
Gunnlaugsson leikur létt lög
og spjallar við hlustendur.
14.30 Siðdegissagan: „Draum-
ur um Ljósaland” eftir Þór-
unni Klfu Magnúsdóttur.
Höfundur les (5).
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Lesin dagskrá næstu viku.
15.30 Miðdegistónlcikar:
Sönglög-Erika Köth syngur
lög eftir Hugo Wolf, og Nik-
olaj Ghjaurov syngur lög
eftir Tsjaikovsky.
10.15 Veðurfregnir. Létt lög.
17.00 Fréttir. Tónleikar.
17.30 Ferðabóka lestur :
„Grænlnadsföt 1897” eftir
llelga Fjeturss. Baldur
Pálmason lýkur lestrinum
(9).
18.00 Fréttir á ensku
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Fréttaspegill
19.45 Þingsjá
20.00 Sinfóniuhljómsveit is-
lands heldur hljómleika i
lláskólabiói. Stjórnandi:
Sverre Bruland frá Noregi.
Einleikari: Gervase de
Peyer frá Englandi
21.30 Útvarpssagan: „Bréf
séra Röðvars” eftir Ólaf Jó-
liann Sigurðsson. Þorsteinn
Gunnarsson leikari les
sögulok (6)
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. „Salva-
tore”,Smásaga eftir Somer-
selli Maugham. Pétur
Sumarliðason islenzkaði.
Ævar Kvaran leikari les.
22.35 Danslög i 300 ár Jón
Gröndal kynnir.
23.05 A tólfta timanumEétt lög
úr ýmsum áttum.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.