Vísir - 20.10.1972, Síða 16
Ruðu blóði
ó hús við
Bragagötu
liaft brá mörgum ibúum vift
Bragagötuna i brún i fyrrakvöld,
þcgar þeir sáu húsveggi og
glugga vifta vift götuna r,oftna
blófti. Ilvaft haffti gerzt?
„Það sem þarna gerðist var
einfaldlega það að blóði, sem ég
ætlaði til sláturgerðar var stolið
frá mér”, sagði kona nokkur, sem
hringdi til blaðsins og vildi gjarn-
an létta áhyggjum af ibúum
hverfisins, sem kynnu að láta
imyndunaraflið leika með sig.
Brúsi með blóði hafði staðið
fyrir utan innganginn að húsi
konunnar. Einhverjir pörupiltar,
sem þarna hafa átt leið hjá, höfðu
tekið brúsann og slettu
blóðgusúnum upp á allmörg hús-
anna frá Nönnugötu og niður
Bragagötu vinstra megin. Sonur
konunnar sem átti blóðbrúsann
var að koma utan Of sjoppu þarna
i nágrenninu og tók eftir blóðböð-
uðu húsi þarna i grenndinni og
hitti m.a. konu sem var dauð-
skelkuð við þessa sjón.
—JBP—
Kramdi höndina
í vél
Þaft slys varft i sútunarverk-
siniftjunni Iftunni á Akureyri, aft
maftur lenti incft höndina i vél,
sem iiotuft er til aft skafa holdrosa
af skinnum. Talift er aft inafturinn
muni inissa framan af nokkrum
fingruin. Öryggisútbúnaður mun
liafa verift i lagi.
— Eó..
Þoka í stað
sólarinnar og
vonin bróst
Þaft er hálfgerft Lundúna-þoka,
sem liggur yfir Faxaflóanum i
dag.. Varla er liægt aft kalla þok-
una Austurlandsþoku hér vift Fló-
ann, enda kcmur liiin suðvestan
al' hal'i. Kunnan af Grænlandshafi
kemur liiin þessi, en þar er vfft-
áttumikift þokusúldarsvæöi og
inun þokan liggja yfir Faxaflóa
og Vesturlandi i allan dag. i gær
var bjart og fallegt veftur hér i
Keykjavik og kom upp von hjá
suiniim aft nú kæmu kannski
nokkrir þurrir og bjartir dagar.
Þokan kom i staft sólarinnar og
aftur dolnar yl'ir mönnuni. Kina
huggunin er aft lielgin er fram-
undan.
— ÞM.
Verðo fréttomenn
hóskólamenntaðir?
Vera má aft í náinni framtift
vcrfti hægt aft hlusta á útvarps-
stöft lláskóla íslands, og kaupa
sér vikuhlaft frá háskólanemum,
scm stunda nám i blaftamennsku.
Þaft er Benedikt Gröndal,
alþingismaftur, sem flytur þings-
ályktunartillögu um kennslu i
fjöimiftlun vift Háskóia islands.
Eins og kunnugt er, hafa is-
lenzkir blaðamenn fæstir há-
skólamenntun að baki, hafa yfir
leitt aðra. menntun i upphafi, en
læra starfið aðallega af sér eldri
og reyndari starfsfélögum. Er-
lendis hefur blaðamennska verið
kennd við háskóla frá þvi 1870 að
bandariskir háskólar tóku þessa
grein á stefnuskrá. Eftir seinni
heimsstyrjöldina má segja að
kennsla i þessari grein hafi verið
tekin inn i haskóla flestra landa i
heiminum.
,,Hér á landi má áætla að séu
150-200 stöður, sem sérmenntun á
sviði fjölmiðlunar mundi henta.”
segir Benedikt Gröndal i greinar
gerð sinni með frumvarpinu. Við
blöðin starfa 100 manns, en hjá
hljóðvarpi og sjónvarpi 25-50. Við
þetta bætast auglýsingastofur og
blaðafulltrúar, sem er vaxandi
starfshópur. Telur Benedikt að
eftir fá ár verði stöður þessar
orðnar 200-300 og fari stöðugt
fjölgandi.
,,Verði kennsla tekin upp i fjöl-
miðlun við Háskóla Islands gæti
hún leitt til BA-prófs á þrem
árum”, segir Benedikt, sem
sjálfur er nákunnugur
fjölmiðlunum af áralöngum af-
skiptum sinum, bæði sem rit-
stjóri Alþýðublaðsins og for-
maður útvarpsráðs.
Telur Benedikt að 25% námsins
gætu verið i ýmsum greinum fjöl-
miðlunar, 25% i móðurmálinu og
50%) i öðrum greinum, t.d. félags-
fræðum. Af námsefni tilgreinir
— þingsólyktunar-
tillaga um að
Háskóli íslands
taki upp
kennslu
í fjölmiðlun
hann fjölmiðlun almennt, blaða-
mennsku, útvarp, bókaútgáfu,
kvikmyndir, auglýsingar, „public
relation”, áróður, almennings
álit og skoðanamyndun. -JBP
Nú mó olían fara að vara sig
sést ólafur Metúsalemsson meft einn pokanna, sem hafa girftinguna aft geyma. Hún er annars i
jum og hana verftur auftvelt aft flytja á vörubilum hvert á land sem er, ásamt hinum útbúnaftinum.
— fyrstu hlutar olíu-
girðingarinnar þegar
komnir til landsins
h’yrstu hlutar oiiuhreinsunar-
tækjanna eru nú komnir til lands-
ins, cn afgangurinn væntanlegur
innan tveggja mánafta. Heildar-
verft þeirra verður um 4,3
milljónir króna. En það eru lika
nokkrir aftilar, sem fest hafa
kaup á tækjunum i sameiningu,
en þaft eru sem kunnugt er:
Reykja vikurhöfn, oliufélögin
þrjú, tryggingafélögin og Sigl
ingamáiastofnunin.
Það er hin svokallaða girðing,
sem komin er til landsins og svo
slöngur dælunnar. Allt er þetta
i geymslu i vöruskemmu Oliu-
félagsins, og þar leggur það hús-
rýmið að mestu undir sig.
Slöngurnar i pokum og flothylkin
i kössum.
„Strax og dælurnar og pramm-
inn eru komin til landsins verður
ráðizt i æfingar á notkun tækj-
anna,” segir Stefán Bjarnason
hjá Siglingamálastofnuninni, en
Stefáni hefur verið falin umsjón
tækjanna.
Hann upplýsir, að fjórir til
fimm menn nægðu til að vinna
með tækjunum þegar á þyrfti að
halda. Það yrðu að likindum
starfsmenn frá oliufélögunum,
sem þjálfaðir yrðu til starfsins.
„Oliuhreinsunartækin verða
leigð út og þurfa leigjendurnir að
greiða hinum sérþjálfuðu mönn
um starfslaunin,” segir Stefán
ennfremur. „Tækin eru heppileg
þegar hreinsa þarf oliu inn á
höfnum eða innan lokaðs svæðis
annars stáðar, en eru jafnframt
brúkleg þegar oliuleki hefur kom-
ið að skipum. Þá umlykur girð-
ingin oliusvæðið á meðan unnið er
með dælunum. En til þess að hægt
sé að koma tækjunum við, þarf að
vera sléttur sjór,” sagði Stefán að
lokum.
—ÞJM
Fox tapaði 5 milljónum
— og krefst 160 milljóna í skaðabœtur
Samkvæmt bráða-
birgðauppgjöri, sem
Chester Fox hefur látið
Skáksambandið hafa
afrit af, hefur hann
tapað 5,2 milljónum á
heimsmeistaraein-
viginu. Þar af hefur
hann orðið að greiða 2,1
milljón fyrir lögfræði-
lega aðstoð.
Guðmundur G. Þórarinsson
hitti Fox i Júgóslaviu fyrir
skömmu. Sagði Guðmundur i
samtali viö Visi að Fox hefði
verið frekar daufur i dálkinn,
sem vonlegt er, þegar hann
hefur tapað milljónum vegna
þrákelkni Fischers. F'ox hefur
látið Skáksambandið hafa afrit
af reikningum sem samtals
nema 60.000 dollurum eða 5
milljónir og 245 þúsund
islenzkar krónur. Þar af eru
reikningar frá lögfræðingum
24.000 dollarar eða 2,1 milljón.
Skáksambandið mun ekki
greiða neitt af þessu tapi, en
mun hins vegar yfirfara
reikningana.
Fox tjáði Guðmundi
Þórarinssyni, að Marshall, lög-
fræðingur Fischers, hefði boðið
sættir i þeim málaferlum sem
framundan eru, vegna stefnu
Fox á hendur Fischer. Enn-
fremur bauð Marshall ein-
hverja greiðslu til Fox vegna
fjárhagstjóns, sökum þess að
Fischer neitaði kvikmyndun
einvigisins. Fox vildi fá það
skriflegt frá Fischer að hann
vildi semja, en það fékkst ekki.
Heimsmeistarinn hefur áður
gert orð Marshalls ómerk og
vildi Chester Fox þvi hafa vaðið
fyrir neðan sig. 1 byrjun þessa
mánaðar lagði Fox fram stefnu
á hendur Fischers, þar sem
hann krefst liðlega 160 milljóna
króna i skaðabætur, vegna þess
að ekkert var kvikmyndað. A að
taka málið fyrir innan skamms,
en heimsmeistarinn fékk 20
daga frest til að undirbúa vörn i
málinu. SG.
Hvertók stroku-
bflsfjóra upp í?
Ökumenn tveggja bif-
reiða, sem óku fram hjá
Skiðaskálanum i Hvera-
dölum á milli klukkan
átta og niu i fyrrakvöld,
eru beðnir að gefa sig
fram við rannsóknarlög-
regluna sem fyrst.
Þetta er vegna utanikeyrslu
sem varð i Kömbum um það bil
hálfum öðrum tima áður. Annar
sem átti hlut að þessu óhappi
stakk af. Bifreið sem svaraði til
lýsingar á strokubilnum fannst
um niuleytið skammt fyrir vest-
an Skiðaskálann. Er talið að
einhver sem átti leið þarna um
muni hafa tekið ökumanninn
upp og ekið honum til Reykja-
vikur.
Allir sem geta gefið upp-
lýsingar um þetta mál eru beðn-
ir að hafa samband við rann-
sóknarlögregluna. Billinn sem
hér um ræðir var gömul árgerð
af Volkswagen, græn að lit.
—LÓ