Vísir - 24.10.1972, Side 5

Vísir - 24.10.1972, Side 5
Visir Þriðjudagur 24 október 1972. AP/NTB I MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖND í VVIORGU s Flugvélarœningj- arnir gófust upp Eftir 40 klukkustunda prisund i tyrknesku farþegaþotunni á flugvellinum i Sofia i Búlgariu, sluppu gislarnir 65 loks út seint i gærkvöldi, þegar tyrknesku skæruiiðarnir fjórir gáfust upp fyrir búlgörskum yfirvöldum. Fyrr um kvöldið höfðu þó flugvélaræningjarnir enn fram- lengt frestinn, sem þeir höfðu veitt tyrknesku stjórninni til þess að verða við kröfum þeirra um að sleppa lausum 12 félögum þeirra úr tyrkneskum fang- elsum. Með uppgjöf þeirra i gær- kvöldi létti loks af spennunni, sem rikt hefur siðasta sólar- hringinn, og hratt af stað ágreiningi milli Búlgariu og Tyrklands, sem átt hafa ágætis samvinnu síðustu árin. Hafði tyrkneska rikisstjórnin lýst þvi yfir, að yfirvöld Búlgariu bæru alla ábyrgð á tyrknesku farþegunum i flug- vélinni, meðan stjórn Búlgariu neitaði að taka við þeirri ábyrgð, þótt hún mundi gera ailt.semi hennar valdi stæði til að bjarga lifi farþeganna. Sakaði utanrikisráðherrann tyrknesku stjórnina um að reyna að velta ábyrgðinni yfir á Búlgariu, en halda svo sjálfir að sérhöndum. Tyrkneska stjórnin neitaði alveg . að verða við nokkrum kröfum ræningjanna. Tyrknesk flugvél verður send eftir farþegunum 56 og áhöfn- inni i dag. KEPPINAUTAR UM KANSLARA-EMBÆTTIÐ Þessir tveir eru aðalkeppinautarnir i komandi kosningum i Þýzkaiandi, og reyndar er baráttan þegar hafin með fylkiskosningunum, sem hófust I Neðra-Saxlandi og Hessen um helgina. Rainer Brazel, frambjóðandi og formaður kristilegra demókrata, hefur vakið á sér athygli fyrir skelegga stjórnarandstöðu, en Willy Brandt rikiskanslari er vinsælasti stjórnmálamaður Vestur- Þýzkalands og hefur verið undanfarin ár vegna framlags hans til heimsfriðar. Úrslitin i fylkiskosningunum í Neðra-Saxlandi og Hessen sýna að FDP, frjálsir demókratar, hafa tapað 9,2% fylgi i Hessen og 10,4% i Saxlandi. Social-demókratar juku við sig 1.5% I Hessen og 48.6% i Saxlandi (flokkur Brandts) En kristilegir bættu viðsig 7,6% í Hessen og 4,3% i Saxlandi. Skömmtun á nauðsynjum í Chile Matvæla- og elds- neytisskortur var farinn að seg.ja áþreifanlega til sín i Chile um helgina eftir verkfall vörubil- stjóra og var gripið til skömmtunar á bensini og mjólk i höfuðborg landsins, Santiago. Eins og eldur færi um sinu hefur verkfallið breiðzt út meðal margra stétta landsins. Auk verzlunareigenda, sem haldið hafa verzlunum sinum lokuðum i nær viku, hafa læknar, tann- læknar, einkakennarar, flugmenn o.fl. aðilar farið í samúðarverk- föll — tveggja sólarhringa eða lengri. „Við erum ekki að reyna að bola Allende frá,” sagði einn Skortur ú matvœlum og bensíni en verkfallið verzlunareigandi, þar sem hann stóð fyrir utan verzlun sina, þegar AP-fréttamaður kom þar að. ,,Við ætlum aðeins að snúa ögn upp á handlegg hans.” En fréttir hafa verið strjálar frá Chile undanfarna daga, eftir að stjórnin setti hömlur á frétta- flutning útvarpsstöðva i landinu i siðustu viku. 34 voru þó handteknir eftir árásir hermdarverkamanna á sunnudag hér og þar i landinu, en neyðarástandi hefur verið lýst yfir i 20 af 25 sýslum landsins. — Verkfallsaðilar hafa lýst þvi yfir, að þeir muni halda verkfallinu áfram og stjórnarandstaðan hefur hvatt til þess, að i dag, þriðjudag haldi fólk sig inni fyrir, og ,,þögnin látin rikja”. Skortur er á ýmsum tegundum matar, og bann hefur verið lagt við sölu nautakjöts þar til i jóla- mánuðinum, og ennfremur bann við innflutningi á smöri vegna eldur áfram gjaldeyrisskorts. Rikisstjórnin lét hinsvegar vöru- flutningabila rikisins flytja fá- séðustu matvælategundir i hverfi verkamanna i Santiago á sunnu- dag, þar sem stúdentar hliðhollir rikisstjórninni hjálpuðu við að losa bilana i sjálfboðavinnu. — Allendle á mestum vinsældum að fagna meðal verkafólks. — Fréttasendingar þriggja út- varpsstöðva, sem stutt hafa stjórnarandstöðuna, voru stöðv- aðar i morgun, vegna þess að þær höfðu sent fréttir, sem ekki höfðu hlotið samþykki rit- skoðunarinnar. — Um leið og þulir þeirra tilkynntu, hvernig komið væri fyrir þeim, og að stöðvarnar myndu loka, upphófst mikil háreysti i Santiago, þegar húsmæður mótmæltu þessu með þvi að berja saman potta- hlemmum út um glugga heimila sinna. Umsjón: Guðmundur Pétursson ÍRAR RÆNA VOPNUM FRÁ BRETUM 14 manna flokkur hermdarverkamanna réöst á birgðastöð bre/ka hersins i Lurgan á irlandi i dögun i gær, og hafði þaðan á brott með sér 100 léttar vél- byssur og sjálfvirka riffla. Fjórir menn klæddir brezkum einkennisbúningum stöðvuðu tvo verði fyrir utan stöðina og yfir- buguðu þá, en 10 hermdarverka- menn bættust svo i lið með þeim. Birgðavörðurinn varð þessa áskynja og læsti sig inni hjá vopnabirgðunum en neyddist til að opna, þegar Irarnir hótuðu að drepa hermennina, „einn og einn i senn, ef þú ekki opnar.” Fleygðu þeir siðan 21 vélbyssu, 83 sjálfvirkum rifflum og skot- færum upp i herbil, og óku af stað, án þess að hafa hleypt af einu skoti. Umfangsmikilli vegaleit var komið á, og i gær hafði brezki herinn fundið aftur 61 riffil og 8 vélbyssur, auk meirihlutans af skotfærunum, en það hafði allt verið falið á golfvelli i Porta- down, 30 milur sunnan við Bel- fast. Vopnaræningjarnir höfðu sagt vörðunum, að þeir væru meðlimir i varnarsamtökum Ulster (mót- mælenda). Þeir hurfu, eins og jörðin hefði gleypt þá. Hins vegar hafa brezkir her- menn handsamað i siðustu viku alls 70 manns, sem grunaðir eru um að vera meðlimir i IRA (trska lýðveldishernum) og Ulster - varnarsamtökum mótmælenda. Þar af voru 5 háttsettir „liðs- foringjar” úr IRA handteknir i gær. ,Nokkur órangur/ - sagði Kissinger um viðrœðurnar í Vietnam, en horfur á því að friðarsamningar hafi strandað Bandariska sendiráðið i Saigon lýsti þvi yfir I gær, að miðað hefði i átt til friðar i Indókina, en gaf i skyn, að ágreiningur væri milli Bandarikjanna og Suöur-Vietnam um nokkur atriði varðandi vopna- hléið og önnur varðandi pólitíska lausn i deilunni við Norður-Viet- nam. Yfirlýsing sendiráðsins kom stuttu eftir að Kissinger lagði af stað til Washington i gær, til þess að skýra Nixon forseta frá árangri þeirra 6 funda, sem hann hefur haldið með Thieu forseta á siðustu 5 dögum. Kissinger sagði blaðamönnum sjálfur, að viðræðurnar hefðu borið töluverðan árangur, en varðist að öðru leyti allra frétta. Eitt dagblaðanna i Saigon, mál- gagn Thieu forseta, sagði að það hefði verið skoðun flestra, að „viðræður Thieus og Kissingers hefðu farið fram með nokkrum hita vegna afstöðu Norður-Viet- nams, sem ekki gæfi neitt eftir”. Einn fulltrúi sendinefndar Norður-Vietnama i Paris sagði, „Vietnamvandamálið er enn óleyst”. „Undir þessum kringumstæð- um”, sagði Nguyen Thanh Le, „getur almenningsálitið ekki annað en spurt, hvort stjórn Nixons vilji i alvöru friðarsamn- inga, eða hvort hún vilji aðeins halda áfram tilraur.um sinum til að blekkja almenning?” LIFÐI AF FALL AF 9. HÆÐ Sextán mánaða gamall drengur lifði af 24 metra hátt fall af svölum 9. hæðar i ibúðarháhýsi i Jama i úthverfi Tokyo i gær. Tokyo-lögreglan lýsti þessu sem algeru kraftaverki, en Akio Sato — sonur 31 árs gamals skrif- stofumanns — hlaut höfuðáverka, sem kostar hann mánaðarlegu á sjúkrahúsi. Barnið klifraði yfir grindverkið á svölunum og féll fram af, en á meðan var móðirin i öðru her- bergi við heimilisstörfin. <1 „Þeir eru nokkuð seint á' fcrðinni með rúninginn i Norcgi”, haldið þið kannski, en svo er nú ekki. Hin árlega sauðl'jársýning i Faavangi f Vinstra var haldin i siðustu viku, en þar var meðal annars keppt i starfs- greinum eins og að rýja kindur, og það vakti mikla at- hygli — ekki sizt hinna yngri sýn- ingargesta.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.