Vísir - 06.11.1972, Síða 1
62. árg. — Mánudagur 6. nóvember 1972 — 254 tbl.
VEÐUR SAMBÆRILEGT
VIÐ FELLIBYL Sjá baksíðu
Aukaleikur eða
Víkingur meistari?
Keppni f meistaraflokki
karla á Reykjavíkurmótinu
lauk i gærkvöldi, og urðu
Vikingur og Valur efst og
jöfn að stigum. Hlutu 11 stig
hvort félag, en Fram varð i
þriðja sæti með 10 stig. Fyrr
i mótinu gerðu Vikingur og
ÍR jafntefli, en ÍR var með
ólöglegan leikmann, svo Vik-
ingur gæti fengið bæði stigin
með þvi að kæra og þar með
hiotið Reykjavikurmeistara-
titilinn.
Sjá iþróttir iopnu
Óorð á þorskinum
hér á landi
Þorskurinn hefur ekki notið
neinna sérstakra vinsælda
hjá húsmæðrum hér. Helzt
litur út fyrir, að á honum sé.
eitthvert óorð. En nóg er af
góðum uppskriftum sem
sýna, hvernig þorskurinn
getur orðið guðafæða og
manna. Sjá innsiðu bls: 13.
Eftirmaðurinn
varð þrœll
kerfisins
i bandalagsríki íslendinga,
Portúgal, vonuðu menn, að
andlát einræðisherrans
mundi verða til þess að auka
frelsið. Eftirmaðurinn
reyndi eitthvað til þess. en
hann varð þræll kerfisins.
Biðin er löng. Sjá bls 6.
Teljið þér að
landhelgisdeilan
sé að snúast
okkur í hag?
Sjú Vísir spyr
bls. 2
Rekstur og
fjárreiður
íslenzku
blaðanna
er viðfangsefni
menningarsíðu
Sjá bls. 7
McGOVERN
SÆKIR Á
Vaxandi spenna í
bandarísku kosningunum
McGovern, frambjóðandi
demokrata, sem flestir voru
farnir að spá jafnvel hrapalegri
ósigri en Goldwater hlaut i kosn-
ingunum 1964, hefur unnið á
siðustu daga.
Skoðanakannanir sýná, aö
honum hefur tekizt að brúa það
mikla bil, sem var milli þess
fylgis, sem hann naut, og svo þess
gfíurlega fylgis, sem Nixon hefur
notið i skoðanakönnunum að
undanförnu.
Sá dráttur, sem orðið hefur á
vopnahléinu i Vietnam, héfur
dregið fylgi frá Nixon yfir til
McGoverns, sem fullyrðir, að
„hugsanlegt friðarsamkomulag i
Vietnam sé tóm blekking af hálfu
Nixons”.
Tvö skoðanakannanafyrirtæki
lýstu þvi yfir i gær, að athuganir
þeirra leiddu i ljós, að McGovern
hefði dregið mjög á núna siðustu
dagana — en hvorugt þeirra
spáði þó McGovern sigri. —
Onnur skoðanakönnunin taldi, að
Nixon mundi sigra með minni-
háttar yfirburðum, 55% atkvæða
eða svo, en ekki eins miklum og
Johnson sigraði Goldwater 1964
með 61% atkvæða.
Skoðanakannanirnar sýna, að
þeir demókratar, sem i upphafi
kosningabaráttunnar ætluðu að
kjósa repúblikanann Nixon, hafi
nú séð aö sér, eftir þvi sem nær
hefur dregið kjördegi. Og ætli sér
nú að styðja flokksmann sinn.
SJABLS. 5.
HEIMSÓKNIN Á ENDA
Heimsókn Skozku Óperunnar er lokið. Á þessari mynd sjáum við listafólkið kveðja á sfðustu sýningu
sinni hérlendis i bráð a.m.k. Bjarnleifur tók þessa mynd, þegar Skotarnir voru kallaðir fram siðasta
sinni, en áður hafði þeim verið vel fagnað. Áhorfendur (og áheyrendur) skemmtu sér hið bezta.
Breti í hetjuleik
í landhelginni
Rólegt hefur verið á
miðunum undanfarið,
nema hvað veðrið
hefur gert réttiátum og
ranglátum lífið leitt. —
Frekar vel hefur
gengið að reka land-
helgisbrjótana út fyrir
linu, en þeir eru ekki
allir jafn upplitsdjarfir
skipperarnir, þegar
þeir eru komnir út
fyrir.
Skipperinn á Wyre
Victory fékk þannig
„móral”, þegar hann
hafði flúið út fyrir
undan varðskipi, að
hann laug þvi upp, að
varðskip hefði hótað að
klippa aftan úr togara
sinum, nema hann
kæmi sér út fyrir.
betta átti aö hafa gerzt á
laugardag, en landhelgisgæzlan
ber þetta alveg af sér. Varðskip
fór nálægt togaranum, en það
var aldrei reynt að klippa aftan
úr honum, sagði blaöafulltrúi
landhelgisgæzlunnar. — VJ
Ekkert lögbrot í
„hvarfmálinu"
Sjá baksíðu
★
Stúlka elti
uppi mink
Sjá baksíðu