Vísir - 06.11.1972, Page 2

Vísir - 06.11.1972, Page 2
2 Visir. Mánudagur 6. nóvember 1972 Tisutsm: Teljið þér að landhelgis- deilan sé að snúast okkur í hag? Úlfar Ármannsson, skrif- stofumaAur. Já, ég held það, það stefnir allt að þvi. Veðráttan i vetur verður okkur i hag. Noregur Grænland, og Færeyjar eru að tala um að færa út, og þetta snýst okkur allt i hag. líinar Gunnarsson, ver/.lunar- maður. Já, mér i'innst allt benda til þess. Veðrið i velur hjálpar mikið til. I>órður Sigmundsson, nemandi. Já, ég hugsa það. Þeir eru búnir að aflétta vörubanninu og vilja samninga. Þeir eru að gefa eltir. Asa Kolka, skrifstofustúlka. Já, alveg örugglega. Ef veðrið versnar i vetur, þá þurfa þeir meira á okkar hjálp að halda. Sigurjón Ingvarsson, lög- regluþjónn. Hún hlýtur að gera það. Ef viðræður verða og ekki verða átök eða misskilningur út af atburðum sem skeð hafa, þá liggur það i hlutarins eðli að deilan snýst okkur i hag. Þetta endar með fullkomnum sigri okkar. Ivar Friðþjófsson, skrifvélavirki. Já, ég held það. Ég held að þetta sér frekar i rétta átt. Timinn vinnur með okkur, við vinnum með timanum. bjóðir sem eitthvað eru, vita að við lifum enn á fiski, eða 80%,svo að þær sjá að við verðum að gera þetta. Allt fyrir hreinlœtið islendingar litu löngum varla á ýmsar fiskafurðir sem matvæli, og áslandið breytist, en kannski fullhægt. Frystihúsamenn hafa miklar óœtlanir um úrbœtur og nýbyggingar til að mœta kröfum erlendra um hreinlœti, en þetta er dýrt og tekur tíma. Víða mœtti með minni kostnaði bœta úr skúk Víöast hvarvantar mikiö á, að núgildandi lágmarks- kröfum um hreinlæti og búnaö i frystihúsum sé full- nægt. Hreinlætis- og búnaðardeild Fiskmats rikisins hefur fylgzt með þvi, að settum reglum um hreinlæti viö fiskvinnslu sé fram- fylgt. I þvi sambandi hafa öll frystihús landsins verið skoðuð og gerðar allnákvæmar skýrslur um ástand þeirra. Skjótar framfarir undangeng- inna áratuga i hverskyns tækni og visindum hafa gjörbreytt aðstöðu hins tækiþróaða hluta mannkynsins til heilnæmis og heilbrigðis matvælanna. bessar sömu þjóðir, sem lengst eru komnar, eru einnig beztu við- skiptaþjóðir islendinga. Þær gera okkur þannig kleift að lifa sem sjálfstæð þjóð þrátt fyrir tima- bundnar sveiflur i efnahagslifi okkar. bær gera sifellt strangari kröfur til hreinlætis i meðferð matvæla, sem þær kaupa. Enginn vafi er. að kröfurnar munu verða stöðugt strangari i framtiðinni, el'tir þvi sem tækni fleygir fram. Lægra þróaðar þjóðir munu einnig koma á eftir og auka kröfur sinar. Meðferð fiskafurða á islandi hefur að mörgu leyti verið ófull- nægjandi á þessu sviði. Nú eru gerðar meiri kröfur, og þvi eru islendingar i þann veginn að byrja „stóra stökkið” i þessum efnum. Margir hafa gert vel áður, en viðast hefur skort. í grein þeirri, sem hér er byggt á, rekur Halldór Gislason stöðuna, en Halldór hefur starfað á vegum Fisk- matsins að þessum málum. Halldór segir i Fréttabréfi Fiskmatsins: ,,t starfi minu fyrir Fiskmat rikisins hef ég frá árs- byrjun haft beztu möguleg skil- yrði til að kynnast ástandinu i hraðfrystihúsunum um land allt...Þvi miður hefur komið i ljós, að viðast hvar vantar mikið á, að ástandið fullnægi nú- gildandi lágmarkskröfum um hreinlæti og búnað, hvað þá hinum væntanlega auknu kröfum þar að lútandi”. Halldór getur þess, að i all- flestum þessum fyrirtækjum séu nú fyrirhugaðar miklar úrbætur eða jafnvel nýbyggingar. Viða séu tilbúnar kostnaðar- og fram- kvæmdaáætlanir um úrbætur. Fjármagn liggur ekki á lausu Hins vegar liggur enn ekki á lausu allt það mikla fjármagn, sem talið er, að þurfi til endur- bóta og nýbygginga. Gert er ráð fyrir, að fyrir- hugaðar framkvæmdir muni að langmestu leyti verða næstu 4-5 ár. Ennfremur megi þessar áætlanir um nýbyggingar og úrbætur alls ekki verða til þess að núverandi ástand húsanna fari versnandi vegna hirðuleysis. Menn megi ekki hugsa sem svo, að ekki taki þvi að halda hinu gamla við, þar eð öllu verði bjargað með nýbyggingunni eða fyrirhuguðum úrbótum. Viða sé einföldum atriðum ábótavant. Vissulega séu niður- stöður fyrstu úttektar á ástandinu þær, að ýmis aðkallandi og kostnaöarsöm vandamál biði skjótrar úrlausnar. Þar má nefna ófullnægjandi húsakost, ryk- bindingu nærliggjandi umhverfis, skort á nægu heilnæmu vatni og ófullnægjandi holræsi. Þetta er þó aðeins hluti af þvi, sem lagfæra þarf. Mörg atriði, sem er ábótavant, mætti lagfæra án mikilla fjárútláta. Halldór bendir á atriði eins og óþéttar hurðir i fiskmóttöku og ófull- nægjandi snyrtimennsku á lóð húsanna og við beinakassa. Ennfremur ófullnægjandi fisk- þvott, skort á búningsaðstöðu og slæma umgengi á salernis- svæðum. Eftirlitsleysi með ýmsu veigamiklum þáttum er viða vandamál, svo sem sé eftirlit ekki nægilegt með persónulegu hrein- læti og þar af leiðandi verði per- sónulegt hreinlæti og klæðnaður starfsfólks ófullnægjandi til að mæta þeim kröfum, sem eru gerðar. —HH Enn deilt um Daniel „Sjúklingur, sem fer til lœknis ó 6-8 vikna fresti, hittir kannski aldrei ó þann sama tvisvar" ,,Þegar ég leit á forsíðu Visis miðvikudaginn 1. nóvemberog sá efstu tilvis- un vinstra megin, varð ég alveg undrandi á þeim mis- skilningi, sem þar blasir við. Daniel Danielsson Það er ekki rétt, að svokölluð læknadeila hafi endað með upp- sögn Daniels Danielssonar. Það er sönnu nær, að þá fyrst hafi hitnað i kolunum, svo að um mun- aði, og ef til vill er deilunni ekki lokið ennþá. Næsta atriði er laukrétt. Norð- firðingar eru sannarlega sigur- vegarar i læknadeilunni á Húsa- vik. Þeir fagna þvi áreiðanlega að fá lækni, sem yfir 80 prósent hér- aðsbúa vottuðu i haust stuðning og vilja hafa. Þá kemur i klausunni þessi frá- leita staðhæfing: ,,en á Húsavik er ánægja með breytta skipan mála svo allir virðast vel við una.” Þetta er grófur misskilningur. Fjöldi af Húsvikingum og nær- sveitamönnum er sáróánægður með þann hrærigraut, sem nefnd- ur er nýskipan læknamála og læknamiðstöð. Frá 30. september 1969 hafa verið tveir yfirlæknar við sjúkrahúsið, og sá fyrri var ekki heilt ár. Auk þeirra hafa svo komið milli 15 og 20 aðrir læknar, og flestir til stuttrar dvalar . Það er fræðilegur möguleiki, að sjúkl- ingur sem þarf að hitta lækni á 6-8 vikna fresti, hitti aldrei á sama lækninn tvisvar. Hér verður ekki rakin reynsla sumra sjúklinga af þessu fyrir- komulagi, þó af mörgu sé að taka og ánægjan sé siður en svo allra. Hvað dómi hæstvirts Hæsta- réttar viðvikur, þá breytir hann ekki áliti þeirra manna og kvenna, sem styðja málstað Daniels. Það verður að minnsta kosti að teljast siðferðisréttur, þegar fámenn nefnd gengur i ber- högg við ótviræðan vilja alls þorra héraðsbúa. t leiðinni má svo geta þess, að sú marglofaða reglugerð um störf- lækna hefur ekki heyrzt nefnd og kjörorðið fallega „Allir i allra verk” hefur alveg dottið upp fyrir siðan Daniel Danielsson fór frá Húsavik.” Gunnar Karlsson. „Kommar vaða uppi" ,,Mér finnst ekki koma nóg fram, hvernig kommarnir hafa náð kverkatökum á útvarpi og sjónvarpi. Ekki veit ég, hvað fólkið i landinu getur gert til að stoppa þetta, en hitt er greinilegt, að alls konar afbakanir og fals- anir eru bornar á borð fyrir hlust- endur og áhorfendur.eins og væru þær heilög sannindi. Það er vandmeðfarið að fjalla um hluti sem gerast langt i burtu og sennilegá verður það alltaf af einhverjum vanefnum gert. En illa er komið okkar lýðræðishug- sjón, þegar fámennt lið eins og þeir þó eru Alþýðubandalags- menn, getur ráðið svo miklu. Ég hefði talið, að eitthvað mætti treysta á fulltrúa Framsóknar i útvarpsráði. Ekki held ég, að gert sé ráð fyrir einveldi formanns út- varpsráðs, heldur eigi ráðið allt að fjalla um þetta. Ráðið i heild sinni á að hafa ábyrgðina, og hvernig getur sá fulltrúi Fram- sóknar, sem þykist vera andstæð- ur kommúnistum kyngt öllu? Hvaöa leikur er það?” — HRINGIÐ í sima86611 KL13-15

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.