Vísir - 06.11.1972, Qupperneq 5
Visir. Mánudagur 6. nóvember 1972
AP/IMTB útlöndí morgun útlönd í morgun útlönd
UMSJON:
HAUKUR HELGASON
McGovern sígur á
Tvö skoöanakannanafyr-
irtæki í Bandaríkjunum
lýstu þvi yfir i gær, aö
McGovern væri farinn að
sækja á i kosningabarátt-
unni, og búinn aö brúa aft-
ur að miklu leyti þann
mikla fylgismun, sem var á
milli hans og Nixons. —
Hvorugur spáir þó McGov-
ern sigri.
Fulltrúi annarrar skoðana-
könnunarinnar, Daniel Yakelo
vich, spáði Nixon þó góðum sigri
eða 55% atkvæða, sem er töluvert
minna en 61% atkvæða, sem
Lyndon B. Johnson hlaut, þegar
hann sigraði Barry Goldwater
1964 með þeim mesta mun, sem
nokkurn tima hefur fengizt i for-
setakosningunum i Bandarikjun-
Louis Harris frá Harris-skoð-
anakönnuninni vildi engu spá um
úrslitin, en taldi.að horfur
McGoverns hefðu batnað mjög á
undanförnum dögum. Taldi hann,
að McGovern, sem skoðanakann-
anir höfðu hingað til sýnt, að
Mafían
myrðir
sauðabœndur
í Sikiley
Rœndi japanskri
farþegaþotu og
œtlaði til Kúbu
Fimmtugur Japani
vopnaður skammbyssu
rændi Boeing 727 farþega-
þotu, sem var í farþega-
flugi milli Rokio og Fuku-
oka í gær.
Um borð i vélinni voru
122 farþegar (að honum
meðtöldum) og 6 manna
áhöfn.
Japaninn faldi sig i snyrtiher-
berginu, á meðan flugvélin tók sig
á loft af flugvellinum i Tokio, en
kom fram eftir nokkra minútna
flug, þegar vélin var yfir Nagoya.
Fór hann þá fram i til flugstjór-
ans, beindi skammbyssu sinni að
hnakka hans og krafðist þess, að
stefna yrði tekin til Kúbu. En
flugstjóranum tókst að sannfæra
manninn um, að hann þyrfti flug-
þolnari vél til þess að komast til
Kúbu, og fékk að lenda aftur i
Tokyo.
Þegar þangað var komið, hófst
margra klukkustunda samninga-
stapp milli flugræningjans ann-
ars vegar og yfirvalda og flug-
félagsins hins vegar. Sagðist flug-
ræninginn vera með 14 kg af
sprengjum, falin i farangurs-
geymslu flugvélarinnar, og gæti
hann komið þeim til að springa,
hvenær sem hann vildi.
Var fallist á að útbúa til Kúbu-
flugs fyrir manninn DC-8 þotu, og
þvi var lýst yfir við manninn, sem
statt og stöðugt harðneitaði að
gefast upp, að búið væri að koma
2 milljón dollara lausnargjaldinu
fyrir DC-8 þotunni.
Lét þá maðurinn farþegana 120
lausa og nokkra af áhöfninni.en
hélt eftir sem gislum flugstjóran-
um og tveim öðrum.
En lögreglunni tókst, dulbúin
sem flugvallarstarfsfólk, að yfir-
buga manninn, þegar hann ætlaði
að skipta um vél.
Þá hafði maðurinn haldið flug-
vélinni i sinum höndum með ógn-
unum i rúma 8 klukkutima.
Flugrán hafa verið fátið i Jap-
an, en 1970 rændi annar maður
flugvél þar og heimtaði, að flogið
yrði til Kúbu, en hann náðist, áður
en svo langt var komið.
í samkeppni
Lögreglan hefur fundið tengsl á
milli Sikileyjarmafiunnar og
fjölda morða, sem frantin hafa
verið á löngum tima á miðhluta
Sikileyjar.
14 bændur hafa verið myrtir á
þvi svæði siðan 1956 og siðasta
fórnarlambið fyrir aðeins
nokkrum vikum. Hann hét
Calo'gero Proietto, 62 ára, og
fannst kyrktur á heimili sinu i
Capizzi.
Lögreglan segir, að svo virðist
sem morð þessi stafi af ákafa
mafiunnar i að komast yfir
viðáttumiklar jarðir og beitihaga
á miðri eyjunni. Mafian á stórar
hjarðir sauða og þarfnast jarð-
anna fyrir afréttir. En þegar
bændurnir höfnuðu tilboðum maf-
iunnar um kaup á jörðunum,
týndu þeir lifinu fyrir.
Aöeins þrir menn hafa verið
handteknir vegna morðanna, og
þeir voru látnir lausir aftur vegna
skorts á sönnunargögnum.
Lögreglan segist eiga örðugt um
vik við að rannsaka málin, vegna
þeirrar hefðbundnu þagnar Sikil-
eyinga yfir öllu þvi, sem máfian
tekur sér fyrir hendur.
Nixon
mundi hljóta jafnvel enn verri út-
reið en Goldwater á sinum tima,
mundi jafnvel öðlast möguleika á
sigri, þegar nær dragi kosningun-
um. Einkanlega, ef Nixon yrði á
skyssa á borð við að breyta um
snið á kosningabaráttu sinni, og
fara að svara McGovern i ræðum.
Báðir sérfræðingarnir voru
sammála um, að drátturinn á
vopnahléssamningunum i Viet-
nam hefði dregið úr fylgi Nixons
aftur, og styrkt McGovern. Enn-
fremur hefði nú McGovern heimt
aftur demókrata sem i upphafi
hefðu ætlað sér að kjósa republik-
anann Nixon, en væru nú að snú-
ast hugur, eftir þvi sem kjördag-
ur nálgaðist.
Skoðanakannanir
sýna að McGovern
saxar á fylgi Nixons
síðustu dagana
fyrir kosningar
Að þeirra mati mun McGovern
bæta stöðu sina enn betur þá
daga, spm eftir eru — „nerna eitt-
hvað sérstakt komi til i Viet-
nam”. En sé Vietnammálið ekki
tekið með i reikninginn i þessum
vangaveltum, þá beri önnur mál
töluvert á góma og hafi áhrif á
kjósendur. Eins og t.d. ásakanir
McGoverns á hendur Nixon fyrir
að standa i of nánu sambandi við
auðhringa og fyrir of miklar póli-
tiskar njósnir” sbr. Watergate-
málið.
Þessi mynd var tekin i byggingu Indiánamálastofnunarinnar i
Washington, sem Indiánarnir hafa lagt undir sig. — Þeir komu i
cinni fylkingu úr vcstur-fylkjunum til þess að mótmæla samnings-
rofuni og svikum viðsig og krcfjast leiðréttinga þeirra.
Hisaoliuskipið, sem byggt var i
Stord-skipasmiðastööinni fyrir
Hilmar Reksten-útgcrðarfélagið i
Björgvin, var skeytt saman á
föstudaginn og kom ekki fram svo
mikil sem centimctersskekkja.
Framskipið, sem mældist 165
metrar á lengd, var dregið að
skuthlutanum, sem var 182 metr-
ar á lengd, og soðinn fastur viö
hann. Risaoliuskipið er 283.000
tonn, og er það stærsta, sem j
byggt hefur verið á Norðurlönd-1
um, en það verður afhent i lok I
þessa mánaðar.
Bandariskir hcrmenn úr 87. herdeild á framverði við vigstöðvarnar i
nágrenni Long Binh-flugvallarins, sem er um 18 milur frá Saigon.
Stjórnarhermenn náðu um það leyti, sem þessi mynd var tekin fyrir
helgi, á sitt vald aftur þorpi úr höndum Norður-Vietnama, sem voru
aðeins 10 milur frá Saigon.
B-52 sprengjuflugvélar Banda-
rikjamanna flugu til sprengju-
árása i öllum fjórum hlutum
Indókina i gær og i nótt. — 5.000
tonnum af sprengjum var varpað
á Norður-Vietnam, Suður-Viet-
nam, Laos og Kambodiu eða á
herstyrk og birgðarstöðvar Norð-
ur-Vietnama á þessum svæðum.
Flugvélarnar fóru 200 árásar-
ferðir i gær, og sumar þeirra 180
milur norður i Norður-Vietnam,
sem er lengra en flogið hefur ver-
ið siðar. i april i sumar.
Nyrzta skotmarkið var um 34
milur norður af Vinh, sem er um
66 milur sunnan við 20. breiddar-
bauginn, en norður fyrir hann var
þó ekki flogið vegna loforðs Nixon
Bandarikjaforseta. Hann hefur
bannað árásir norður fyrir 20.
breiddarbaug, á meðan á samn-
ingaviðræðum um vopnahlé
stendur.
Flugvélarnar vörpuðu sprengj-
um á Ho Chi Minh-stiginn i eystri
hluta Laos.
200 sprengjuárásir USA
í Indókína í gœr
Indíánar leggja undir
sig opinbera byggingu
í Washington
500 Indiánar hafa setið i skrif-
stofum Indiánamálastofnunar-
innar i Washington siðan á föstu-
dagskvöld og neita að hreyfa sig
þaðan, fyrr en þeir hafa fengið
loforð um einhverjar úrbætur
þess misréttis, sem þeir telja
frumbyggja Ameriku beitta.
„Setuliðið” i skrifstofunum er
aðeins hluti stórs hóps, sem fór i
mótmælagöngu til Washington i
byrjun siðustu viku.
Fulltrúar tveggja ráðuneyta
hafa setið á stöðugum viðræðum
við Indiánana, en ekki tekizt að fá
þá til þess að hverfa úr bygging-
unni. Indiánunum hefur fundizt
viðræðurnar snúast að mestu um
að fjarlægja þá af staðnum, en
minna um þær úrbætur, sem þeir
óska i sinum málefnum.