Vísir - 20.12.1972, Blaðsíða 5
Visir. Miðvikudagur 20. desember 1072
5
-----------------1
AP/IMTB ÚTLÖNDÍ MORGUN IiTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson.
Geimfararnir komnir til jarðar
„Eru allir
stálslegnir"
sagði lœknirinn eftir athugun
Einn og einn i senn
voru geimfararnir hifðir
upp úr geimfarinu
Ameriku inn i þyrlu,
sem flaug með þá um
borð i móðurskipið Ti-
conderoga, en það beið
þeirra aðeins 800 metra
frá lendingarstaðnum,
suðvestur af Samoaeyj-
um.
Hlæjandi og með glens á vörum
stigu þrimenningarnir úr þyrl-
unni niður á þilfarið og önduðu að
sér fersku sjávarloftinu eftir að
hafa lifað á blönduðu súrefni í 12
daga i geimfari sinu.
Lendingin, eins og aðrir þættir
ferðarinnar, tókst prýðilega —
nema hún var 36 sekúndum á eftir
áætlun, en það var enginn um
borð i Ticonderoga, sem setti það
fyrir sig.
Geimfarið eða sá hluti þess,
sem eftir var, sveif i fallhlif með
þá þrjá félagana innanborðs og
féll með skvampi miklu i Kyrra-
hafið, en hálftima siðar opnuðu
froskmenn það, og stuttu á eftir
voru þeir komnir undir hand-
leiðslu yfirlæknisins um borð i
flugmöðurskipinu.
,,Ég er harðánægður með ásig-
komulag þeirra. Þeir eru aliir
þrir stálslegnir,” sagði dr.
Laspinta eftir læknisskoðunina,
en skömmu siðar hringdi siminn,
og var Nixon Bandarikjaforseti á
linunni: Hann óskaði þeim félög-
um til hamingju með vel unnið
verk og hækkaði Evans i tign, en
Schmitt, sem er óbreyttur borg-
ari, gat hann ekki hækkað né
heldur Cernan, sem stendur það
hátt i metorðastiga hersino^að
frekari stöðuhækkanir verða að-
eins veittar af sjálfri herstjórn-
inni.
Um borð i flugmóðurskipinu
var mikill viðbúnaður til móttöku
þeim félögum, enda fögnuðu skip-
verjar ekki einungis heimkomu
geimfara utan úr heiminum,
heldur einnig sínum gamla striðs-
félaga, Evans, sem var orustu-
flugmaður þar um borð, þegar
hann gegndi þjónustu i Vietnam.
Evans sagðist vona, að félagar
sinir erfðu það ekki við sig, þótt
hann hefði yfirgefið þá og þegið
boðið um að ganga i þjónustu
geimferðarstofnunarinnar.
Þeir félagar eru væntanlegir til
aðalstööva geimferðastofnunar-
innar i Houston á morgun, en það
verður ekki fyrr en að afloknu
jólafrii, sem þeir munu gefa vis-
indamönnum skýrslu um ferð
sina.
Um borð i flugmóðurskipinu, Ticonderoga, var fjöldi háttsettra gesta, þingmenn (þar á meðal Barry
Goldwater) og aðrir, sem ætluðu að sjá geimfarið lenda á Kyrrahafinu. Þar á meðal var þessi 12 ára
drengur, Kevin Stecn, sem hér sést á myndinni heilsa yfirmönnum skipsins. Steen er krabbameins-
sjúklingur og vafasamt, að hans heitasta ósk (að verða geimfari) eigi eftir aö rætast. John L. Butts, að-
miráll, (sá með orðurnar t.h.) bauð honum um borð og kynnti hann fyrir skipstjóranum, Norman K.
Green, (t.v.) og áhöfninni.
SJUKLINGARNIR
MISSTU MÁLIÐ
EFTIR MEÐALIÐ
Virtur gcðlæknir i Lundúnum
varaði i gær gcðsjúkrahús við
notkun lyfs, scm ætlað er gegn
þunglyndi. Lyf þetta gengur undir
heitinu „Phenotia/.ine”.
I)r. Simon Behrman, sem er
ráðgefandi við fjölmörg geð-
sjúkrahús i I.undúnum, skýrði frá
þvi i riti bre/kra geölækna, að niu
manns hefðumisst málið um tima
eftir notkun þessa Ivfs.
Hann sagði, að vel kynni að
vera, að miklu fleiri sjúklingar
hefðu misst málið heldur en
þessir niu, sem vitað var um með
vissu. Þvi að erfitt væri að átta
sig á þvi, að málleysið væri
sprottið af meöalagjöfinni Margir
álitu af misgáningi, aö það stafaði
einungis af þvi, að sjúklingnum
hefði hrakað andlega.
Phenotiazine ku vera mjög
algengt lyf.
Behrman fullyrti, að þessir
sjúklingar, sem misst höfðu
máliö, hefðu ekki fengið stærri
skammta en almennt er gefið. —
Hann sagði, að þessir niu hefðu
flestir smám saman fengið málið
aftur, nokkrum mánuöum eftir að
hætt var að gefa þeim meðalið. f
einu tilviki er afturbatinn þó ekki
fullkominn, og einn mannanna
dó.
Kveikt á
jólatrénu
í Brussel
í Brussel eru menn búnir að
kveikja á jólatrénu á Grand-
torginu á milli Ráðhússins (t.v.)
og Konungshússins svonefnda
(t.h.). Þeir i Belgíu leggja sér
sjálfir til jólatré, þótt þeir að
sjálfsögðu eigi góða vini til þess
að hlaupa upp á eins og við sem
fáum stóru jólatrén okkar frá
vinabæjum okkar. — Hviti dep-
illinn til vinstri við Ráðhústurn-
inn er tunglið, en myndin var
tekin, meðan Apollo 17. var
enn á leið til jarðar — „senni-
lega einhvers staðar staddur á
milli Ráðhústurnsins og tungls-
ins,” eins og Ijósmyndarinn
sagði.
Öflug öryggisgœzla í Betlehem um jólin
Óttast skemmdarverk arabískra skœruliða
Jólahátiðahald i
Betlehem, þar sem
Kristur fæddist, verður
undir strangri öryggis-
gæzlu israelska hersins
til þess að hindra hugs-
anleg hermdarverk ara-
biskra skæruliða.
Betlehem, sem er
syfjulegt Araba-þorp
með 25.000 ibúa
(meirihluta ársins), er
nú allt undirlagt af jóla-
skrauti og á von á þús-
undum gesta viðs vegar
úr heiminum.
En ótti við skemmdarverk i
miðju jólahaldinu blossaði upp,
þegar yfirvöld handtóku á dögun-
um 40 menn grunaða um njósnir i
þágu Sýrlands. Enda mun eitt-
hvað slikt hafa komið fram i yfir-
heyrslum. — „Hins vegar átti
ekki að beina þvi gegn pilagrim-
unum,” sagði liðsforingi nokkur,
sem viðriðinn hefur verið rann-
sókn málsins.
Ekki hefur verið látið uppi,
hverjar öryggisráðstafanir verða
gerðar, ,,en þær verða eins öflug-
ar og við teljum vera nauðsyn-
legt,” sagði einn yfirmanna hers-
ins.
Bæjarstjóri Betlehem, Alias
Freij, sem væntir metaðsóknar
ferðamanna að þessu sinni,
sagði: „Ég held ekki að nokkur
heilbrigður maður muni reyna að
spilla jólahelginni i þessum
heilaga bæ.... en maður getur
aldrei verið viss.”
Unnið er að þvi þessa dagana
að hengja upp jólaskraut á „Jötu-
torgi” fyrir framan 12. aldar
kirkjuna, sem reist var þar, sem
jata Jesúbarnsins er talin hafa
staðið. — Og skipulagður hefur
verið fjöldi ferða með flugvélum
og skipum til þess að flytja jóla-
gesti til landsins helga.
Einn hinna þekktari gesta er
James Irwin, geimfarinn úr
Apollo 15., . en hann er i fylgd
þriggja bandariskra kóra.
Israel gerir ráð fyrir að sjón-
varpa miðnæturmessu beint frá
Betlehem og endurvarpa henni i
gegnum gervihnött til Evrópu.
Eftir að tsraelsmenn náðu
Betlehem á sitt vald frá Jórdaniu
1967, hafa arabiskir skæruliðar
árlega hótað að spilla jólahátíð-
inni þar. Enn hafa þeir þó ekki
framkvæmt hótanir sinar utan
einu sinni, að þeir rufu rafleiðSlur
og hindruðu að miðnæturmessu
væri útvarpað frá Fæðingarkirkj-
unni.