Vísir - 20.12.1972, Qupperneq 12
Lítil reisn í
stökkunum
Stökkin, þar sem islenzkir
írjálsiþróttamenn hafa unnið
hvað mest afrek gegnum árin og
nægir i þvi sambandi að nefna
stökkvara eins og Vilhjálm Ein-
arsson, Torfa Bryngeirsson og
Jón Þ. Ólafsson, voru heldur
sviplaus i sumar. Engin stökk
yfir sjö metra i langstökki — Jón
Þ. Ólafsson, án æfingar, stökk
hæst i hástökkinu, sem segir sina
sögu — 4.20 metrar var bezt i
stangarstökki, en ljósi punktur-
inn var þristökk ÍR-ingsins
unga, Friðrik Þ. Óskarssonar,
sem stökk 15.00 m. Að visu ekki
mikið afrek, en þó þriðji bezti
árangur íslendings frá upphafi i
greininni, og afrek' pilts i mikilli
framför.
En látum þetta nægja og hér á eftir fer af-
rekaskráin i stökkunum í sumar.
Ilástökk: metrar
Jón b. Ólafsson, 1R 2,00
Elias Sveinsson, ÍR 1,95
Karl W. Fredriksen, UMSK 1,95
Hafsteinn Jóhannesson UMSK 1,90
Stefán Hallgrímsson, KR 1,90
Sigurður Ingólfsson, Á 1,85
Bergþór Halldórsson, HSK 1,83
Þröstur Guðmundsson, HSK 1,80
Hrafnkell Stefánsson, HSK 1,80
Árni Þorsteinsson, KR 1,80
Valbjörn Þorláksson, A 1,77
Páll Dagbjartsson, HSÞ 1,77
Hjörtur Einarsson, USÚ 1,76
Friðrik b. Óskarsson, 1R 1,75
Jóhann Jónsson, UMSE 1,75
Jón S. Þórðarson, IR 1,74
I.angstökk mctrar
Guðmundur Jónsson, HSK 6,99
Friðrik Þ. Óskarsson, 1R 6,99
Ólafur Guðmundsson, KR 6,98
Stefán Hallgrimsson, KR 6,88
Vilmundur Vilhjálmsson, KR 6,71
Karl Stefánsson, UMSK 6,53
Valmundur Gislason, HSK 6,51
Valbjörn Þorláksson, Á 6,51
Kristinn Magnússon, UMSK 6,35
Hannes Guðmundsson, A 6,32
Sigurður Hjörleifsson, HSH 6,30
Karl W. Fredriksen, UMSK 6,27
Jóhann Pétursson, UMSS 6,24
Aðalsteinn Bernhardsson, UMSE 6,23
Gisli Pálsson, UMSE 6,22
Helgi HaukssonJUMSK 6,21
FjölnirTorfason, USO 6,19
Elias Sveinsson, IR 6,19
Borgþór Magmísson, KR 6,15
Hannes Reynisson, UMSE 6,15
Þristökk metrar
Friðrik Þ. Óskarsson, 1R 15,00
Karl Stefánsson, UMSK 14,29
Helgi Hauksson, UMSK 13,82
Jason ívarsson, HSK 13,60
Borgþór Magnússon, KR 13,45
Siguröur Hjörleifsson, HSH 13,45
Guðmundur Jónsson, HSK 13,19
Aöalsteinn Bernhardsson, UMSE 13,09
Valmundur Gislason, HSK 13,08
Pétur Pétursson, HSb 13,05
Ásgeir Arngrimsson, KR 13,00
Karl W. Fredriksen, UMSK 12,97
Jóhann Pétursson, UMSS 12,94
Gisli Pálsson, UMSE 12,84
Lárus Guðmundsson, USAH 12,83
Fjölnir Torfason USÚ 12,71
Trausti Sveinbjörnss., UMSK 12,65
Guðgeir Ragnarsson, UtA 12,62
Vilmundur Vilhjálmsson, KR 12,56
Stangarstökk metrar
Valbjörn Þorláksson, Á 4,20
Guðmundur Jóhannesson, ÍR 4,15
Stefán Hallgrimsson, KR 3,60
Elias Sveinsson, 1R 3,50
Friðrik Þ. Óskarsson, 1R 3,40
Karl Lúðviksson, USAH 3,30
Stefán Þórðarson, HSH 3,30
Sigurður Kristjánsson, 1R 3,20
Jóhann Hjörleifsson, HSH 3,15
Karl W. Fredreksen, UMSK 3,10
Albert Sigurjónsson, HSK 3,10
Benedikt Bragason, HSÞ 3,09
Tómas Baldursson IR 3,05
Guðmundur Guðmundss. UMSE 3,03
Framtíðarinnar-
fólk í badminton
Mikil þátttaka var i
jólamóti TBR, sem háð
var i KR-húsinu sl.
laugardag. Keppt var
eingöngu i yngri flokk-
ununi, og sýndu margir
hinna ungu badminton-
leikara mikla leikni.
Sigfús Ægir Árnason. Broddi
Kristjánsson, Ottó Guöjónsson.
Kristin Kristjánsdóttir, Elsa
Ingvarsdóttir, Kristinn Helga-
son, Hrólfur Jónsson og Jónas Þ.
Þórisson. Á myndina vantar
Sigurð Kolbeinsson, Steinunni
Pétursdóttur og Evu Þorvalds-
dóttur.
Þarna kom greinilega
Iram fólk framtíðar-
innar.
Nú sigraði
Fyrstu meistarar Fram í körf ubolta
Fram varð Iteykjavikur-
meistari i 4. flokki i körfubolta á
mánudagskvöld, og er það fyrsti
sigur Fram i körfuboitamóti.
Myndina aö ofan — af fyrstu
mcisturum Fram á þessum vett-
vangi — tók Bjarnleifur cftir
kcppnina á mánudagskvöld i
Laugardalshöllinni.
Körfuknattleiksdeild Fram er
til þess að gera nýstofnuð. Það
voru ungir piltar, sem höfðu
stofnaö mcð sér félag, sem
nefndist Kátur, sem gengu inn i
raðir Fram með þeim árangri, að
þeir eru nú orðnir meistarar.
Þjálfari félagsins er Eiríkur
Björgvinsson.
Best aldrei valinn í lið
Manch. Utd. framar!
— og framkvœmdastjóri félagsins og þjólfari voru reknir í gœrkvöldi
Þá féll sprengjan hjá
Manchester United. Það
var stjórnarfundur hjá
félaginu i gærkvöldi og
fyrir og eftir fundinn
var ioftið beinlínis raf-
magnað. Fréttamenn
fengu efni við sitt hæfi —
framkvæmdastjórinn
Frank O’Farrell var
rekinn ásamt tveimur
aðstoðarmönnum sinum
og stjórnin tilkynnti, að
George Best yrði aldrei
Iramar valinn i lið hjá
félaginu, Best svaraði
með bréfi, að sögn BBC,
þar sem hann sagðist
aldrei mundu leika með
Manch.Utd. framar, en
nokkrar fréttastofu-
fréttir hermdu, að Best
hefði tilkynnt, að hann
mundi aldrei leika
knattspyrnu framar.
Það var vitað, að þýðingar-
miklar ákvarðarnir yrðu teknar á
Frank O’Farell — sparkað eftir 18
mánuði.
George Best — myndin var tekin
nýlega.
stjórnarfundinum eftir upplausn
þá, sem rikt hefur hjá félaginu
siöustu vikurnar og sjáldan hefur
Verið sagt eins mikiö frá væntan-
legum stjórnarfundi og var i gær.
Ýmsar ágizkanir voru meðal
blaðamanna og flestar reyndust
réttar.
Vitað var að dagar O’Farrell
hjá félaginu voru taldir — eftir 18
mánuði. Hann hefur ekki ráðið
við þau vandamál, sem komið
hafa upp. Þjálfari félagsins
Malcolm Musgrove, sem lék með
O’Farrell hjá West Ham, og
fylgdi honumu siðan til Torquay
og Leicester, þar sem O’Farrell
náði góðum árangri sem fram-
kvæmdastjóri, var líka rekinn.
Það kom ekki á óvart, þvi að
margir leikmanna United höfðu
lýst þvi yfir, að þeir væru
óánægðir með þjálfun hans. Þá
var Johnny Aston einnig sagt upp
starfi sinu sem „aðalleitari”
félagsins. Aston hefur verið hjá
félaginu frá striðslokum. Hann
lék fjölmarga landsleiki sem bak-
vörður — tók siðan við þjálfun hjá
félaginu, þegar hann lagði skóna
á hilluna, en hefur að undanförnu
haft það verkefni að finna ný
knattspyrnuefni. Hann er faðir
hins kunna leikmanns með sama
nafni, sem i haust var seldur frá
Manch.Utd. til Luton. Johnny
Aston yngri var fastur maður i
liðinu þar til hann fótbrotnaði
fyrir 2-3 árum og flestir muna
eftir stórleik hans gegn Benfica,
þegar Manch.Utd. varð EM--
meistari.
Stjórnin tilkynnti eftir fundinn
að staða framkvæmdastjóra
félagsins yrði auglýst laus til
umsóknar, en á meðan leitað væri
að framkvæmdastjóra — mundi
stjórnin — og þá er auðvitað átt
við Sir Matt Busby, sem þar á
sæti — velja lið félagsins. I gær-
kvöldi var mjög rætt um það, að
félagið mundi rey na að fá Tommy
Docherty til sin, en hann sér nú
úm skozka landsliðið.
Siðan Busby lét af störfum sem
framkvæmdastjóri Manch.Utd.
fyrir þremur árum hefur gengið á
ýmsu hjá þessu fræga félagi, en
Busby, hafði gegnt þvi starfi frá
styrjaldarlokum og náð frá
bærum árangri. Það var erfitt að
taka við af þessum mikla
meistara. Wilf McGuiness, sem
var þjálfari unglingaliðs félags
ins, tók fyrst við stöðunni — ungur
maður, sem leikið hafði með
„stjörnum” félagsins og komist i
landslið, en meiðsli bundu endi á
knattspyrnuferil hans. Hann var
látinn hætta eftir 18 mánuði og
var alltaf i „skugga” Busby. bó
náði félagið sæmilegum árangri
undir stjórn hans, einkum i bikar-
keppni.
Siðan var O’Farrell ráðinn frá
Leicester, sem hann var þá
nýbúinn að koma upp i 1. deild
aftur. Allt lék i lyndi fyrst i stað —
með sömu leikmönnum gekk
Manch.Utd. mjög vel og hafði um
tima á siðasta leiktimabili
fjögurra stiga forskot. Siðan hófst
„saga” George Best og allt fór að
snúast við til hins verra.
Hvað Best viðvikur nú eftir að
stjórn félagsins hefur tilkynnt, að
hann verði aldrei framar valinn i
lið félagsins, er ekki gott að segja.
Hann verður áfram á sölulista
— sem hann var tekinn af i
nokkra daga eftir að hann hóf
æfingar aftur i siðustu viku.
Aðeins eitt formlegt tilboð hefur
borizt i hann. bað er frá Bourne-
mouth i 3. deild, sem býður 250
þúsund sterlingspund, en er þó
fyrst og fremst með gylliboð i
sambandi við plötusnúðastarf.
Hinn kunni skemmtikraftur Jim
Saville er i stjórn Bournemouth
og hann á skemmtistaði, sem
hann vill fá Best til að sýna sig i.
önnur tilboð hafa ekki borizt, þó
þeir Malcolm Allison hjá
Manch.City og Brian Clough hjá
Derby segist hafa áhuga á Best.
Liklegra er, að rétt sé, sem
BBC sagði i gær, að Best hafi lýst
þvi yfir, að hann mundi ekki leika
framar með United - frekar en að
hann sé hættur knattspyrnu. Hún
skiptir þó ekki máli fyrir hann
fjárhagslega, en piRurinn er ekki
nema 26 ára — likamlega heil-
brigður — og það verður erfitt,
sennilega óhugsandi, fyrir hann
að leggja skóna á hilluna.
t sveinaflokki, 13 og 14 ára
sigraði Jóhann Kjartansson
Sigurð Kolbeinsson i úrslitum
með 11-2 og 11-2. Baðir eru i TBR,
I hnokkaflokki, 12 ára og yngri,
sigraði Broddi Kristjánsson,
TBR, Kristin Helgason, TBR, i
úrslitaleik með 11-8 og 11-6.
t drengjaflokki, 14-16 ára,
sigraði Jónas Þ. Þórisson, KR,
Sigurð Ottó Guðjónsson, TBR, i
úrslitum með 12-10 og 11-8 i
jöfnum og skemmtilegum leik. I
stúlknaflokki, 16 til 18 ára, sigraði
Steinunn Pétursdóttir, TBR, Evu
Þorvaldsdóttur, Val, með 11-0 og
11-0 . I piltaflokki 16-18 ára,
sigraði Sigfús Ægir Arnason,
TBR, Hrólf Jónsson, Val, i
úrslitum með 15-4 og 15-11.
Myndina hér til hliðar tók Rafn
Viggósson af sigurvegurunum og
þeim, sem léku til úrslita. Talið
frá vinstri: Jóhann Kjartansson,
Blóðheitir
Rómverjar
Rómverjar hafa löngum verið
blóðheitir og það kom vel i ljós á
sunnudag i knattspyrnuleik
Roma og Inter á Olympiuleik-
vanginum. Þegar Milanó-liðið
náði forustu 2-1 með marki Bonin-
segna i siðari hálfleik ruddust
áhorfendur niður á leikvanginn.
Lögregla og starfsmenn réðu ekki
við neitt og varð dómarinn að
hætta leiknum. Atvikið kann að
hafa alvarlegar afleiðingar.fyrir
Roma.
Zuilling!
Austurrikismaðurinn
David Zwilling, 23ja ára,
sigraði i gær i keppninni
um heimsbikarinn og
náði þar með forustu
með (»0 stig.
Keppt var i stórsvigi i Madonna
di Campiglio og Austurrikis--
maðurinn keyrði brautina mjög
vel. Hann sigraði með nokkrum
yfirburðum á 3:42,99 min. Annar
varð Adolf Rösti, Sviss, á 3:43.52
min. Þriðji Helmut Schmalzl, eini
ttalinn, sem stóð sig vel i gær, á
3:44.31. Fjórði Henri Duvillard,
Frakklandi, á 3:44,78 og fimmti
Franz Klammer, Austurrfki, á
3:44.79 min.
Zwilling er nú með 60 stig i
keppninni um heimsbikarinn. Pi-
ero Gros, Italiu, hefur 50 stig,
Collombin 36 stig, Tritscher,
Austurriki, 34 stig og Schmalzl 30
stig.
t meyjaflokki, 14 ára og yngri,
léku Kristin Kristjánsdóttir og
Elsa Ingvarsdóttir, Val, til
úrslita. Kristin, sem er félagi i
TBR, sigraði eftir þrjár lotur með
7-11,11-4 og 11-5 i skemmtilegasta
úrslitaleik mótsins.
Upphaf endalokanna fyrir
Frank O’Farrell. Paddy
Mulligan, irski bakvörðurinn
hjá Crystal Palace og fyrir-
liði, hefur leikið á landsliðs-
félaga sinn, Tony I)unne hjá
Manch. Utd. i leiknum á Sel-
hurst Park á laugardag, og
skorar fyrsta mark Palace.
Hins vegar meiddist Dunne i
þessum átökum og var1
borinn af velli og eftir
stundarfjórðung kom Denis
Law i hans stað. Mulligan
skoraði aftur siðast i fyrri
hálfleik — og i þeim siðari
skoraði Palace enn þrjú
mörk. 5-0 og þar með voru
dagar O’Farrell taldir.
•oooooooooooooooooooooooo*
SKIÐA
SKIÐA-
jakkar
SKÍÐA-
buxur
SKÍDA-
skór
hanzkar
SKIÐA■
gleraugu
SKIÐA-
stafir
Aldrei
meira
úrval
Póstsendum
A
Sportval
j,.....
Hlemmtorgi — Sími 14390
00000000000(?)00000000000®'