Vísir - 23.12.1972, Síða 7
Yisir. Laugardagur 2:i. desember 1972
7
cyMenningarmál
Ólafur Jónsson
skrifar um
bókmenntir:
í BRJÓSTI ÞJÓÐARINNAR
Halldór Laxness:
AFSKALDUM
ilannes Pétursson valdi efniö.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs 1972.
209 bls.
Og þvi má aldrei gleyma
að það er ekki bókin, stór
eða litil, sem ræður úrslit-
um um það hvort skáld er
gott, heldur þau fáu stef úr
bókinni, venjulega örstutt,
sem lifa i brjósti þjóðarinn-
ar þegar timar liða, segir
Halldór Laxness i grein um
Steingrím Thorsteinsson
frá 1962, Skáld tveggja
svana.
Það er auðvitað álitaefni eins
og annað hvort þessi ummæli lýsi
raunhæfum mælikvarða á skáld-
skap, allan skáldskap, eða hversu
vel hann eigi við kvæði Stein-
grims Thorsteinssonar sér i lagi.
Hvað sem þvi liður lýsa þessi
lokaorð greinasafnsins Af skáld-
um skoðun og viðhorfi sem þrá-
faldlega kemur upp hjá Halldóri,
allt frá hans fyrstu greinum um
skáld og skáldskap, og reynist
t.a.m. i bók hans um skáld-
snillinginn Ólaf Kárason Ljósvik-
ing hinzti mælikvarði á gildi
skáldskapar. Það sker úr um
kvæði hvort það lifir af i hug og á
vörum þjóðarinnar.
Þjóðlíf og
skáldskapur
Þetta er i verunni ekki skoðun á
skáldskap — heldur á fólki.
Skáldið talar fyrir munn þjóðar
sinnar, og i brjósti hennar eiga
orð hans sinn rétta hljómgrunn,
það sem varanlegt er i verki hans
verður eign allrar þjóðarinnar,
höfundlaust. En ef skáldskapur á
að ,,lifa i brjósti þjóðarinnar”
verður „þjóðin” að hafa brjóst
fyrir skáldskap. Heimsljós er
ekki „saga islenzka alþýðu-
skáldsins” heldur bók um skáld-
snilling og snilligáfuna sjálfa. En
jafnharðan felur verkið i sér veg-
sömun islenzkra alþýðuskálda
um þúsund ár, alþýðlegs bók-
menntaáhuga, skáldskapar-
ástriðu með þjóðinni. Halldór hef-
ur i lslendingaspjalli, og viðar
sjálfur borið vitni um þjóðlega
„akademiu” sveitarinnar,
sveitakarla og kerlinga, sem hinu
eina sanna skáldaskóla á Islandi.
I þessari bók kemur hið sama við-
horf upp t.a,m. i ritfregn um tvö
þingeysk skáld, frá 1939, og af-
mælisgrein um Guðmund
Böðvarsson á Kirkjubóli, 1954:
„En hvar hefðu höfundar
fornbókmennta vorra verið á vegi
staddir, og hvar islenzk stórskáld
i embættismannastétt á 19du öld,
hefðu ekki staðið að baki þeim
ótal fátækir menn sem ekki að-
eins héldu á loft ótæmandi sagna-
fróðleik, heldur sáu veröldina og
mannlega tilveru i ljósi skáld-
skapar...fólk sem mat sögur og
kvæði mest lifsgæða hér á jörð,
lifði og dó með fræði á vörum.
Hjalið um litil og stór skáld er að
þvi leyti blekking að skáld-
skapurinn er i sjálfu sér stór, og
sá sem temur sér að sjá veruleik-
ann i skáldskap og skáldskap i
veruleikanum hefur eignast stór
sjónarmið i lifinu, hin stóru
sjónarmið lifsins”.
Bókmenntirnar, iðkun bók-
mennta er uppistaðan i islenzkri
rnenningu frá öndverðu og fram á
þennan dag. Það eru bók-
menntirnar sem gætt hafa þjóð-
lifið og menninguna hinum stóru
sjónarmiðum — en án þeirra
hefði mannlif hér drabbazt niður i
verstöð og koti. Og þessi arfur,
samhengi þessarar sögu gerir i
raun réttri siðferðislega kröfu til
þjóðarinnar nú á dögum og til
skálda hennar:
„Þann dag sem skáldskapur á
Islandi fer að verða sérfræðinga-
vinna af þvi tagi sem aðeins skir-
skotar til sérfræðinga, án lifræns
sambands við þjóðina, þá er hætt
við að sú almenn arfleifð ljóðs og
sögu sem verið hefur sérgrein Is-
lendinga sé öll — og þá væntan-
lega eitthvað annað og betra
komið i staðinn”.
Endurlausn eða bylting
I hinni löngu ritgerð um
Hallgrim Pétursson, Inngangi að
Passiusálmum, er ýtarlegast lýst
þessari hugmynd eða kenningu
um samsömun skálds og þjóðar,
skáldskapar og þjóðlifsins. Sagn-
fræðin um Hallgrim Pétursson:
hinn efnaða vegsæla skáldprest
og heldrimenn sinnar tiðar (sbr.
ritgerð Sigurðar Nordals um efn-
ið) það er eitt. Annað er sú mynd
sem þjóðin hefur sjálf gert sér af
skáldinu, segir Halldór, hinum
likþráa beiningamanni — og
AF
SKÁLDUM
HALLDÓR LAXNESS
heimslystarskáldi: þeim
Hallgrimi samsamaðist hún svo
rækilega að erfitt er að sjá hvar
höfundur Passisálma endar og
þjóðin tekur við, segir hann.
Og yrkisefni Hallgrims — það
er þjóðlifið, þjóðin sjálf:
„Það er engum vafa bundið að i
goðsögninni um Jesú er á meira
eða minna táknræna visu falin
túlkun aldarinnar á manninum
sjálfum, þ.e.a.s. i guðinum Jesú
felst fyrst og fremst mannsmynd
timanna, harmleikur þeirra er
saman dreginn i þessari
guðdómspersónu..Þar sem hinn
reiði Drottinn dómsins, ásamt
framkvæmdavaldi sinu, Djöflin-
um, er spegill og tákn stjórnar-
farsins, þá er jesúsinn tákn
manneðlisins. I tárum hans græt-
ur almúginn hlutskipti sitt, blóð
hans táknar kvöl fólksins, i kross-
festingu hans er falin uppgjöf
þess gagnvart hinu fjandsamlega
þjóðskipulagi einveldis og aðals, i
dauða hans, dauða þess sjálfs,
eygir það lausn sina. 1 hinu ömur-
lega gervi Jesú birtist hlutskipti
mannanna og takmark. I dýrkun
hans fær virðingin útrás fyrir hin-
um djúpsettustu og ódauðlegustu
eigindum mannsins”.
1 þeim skllningi skáldskapar
sem hér er lýst er öðrum þræði
falin krafa um þjóðfélagslega
hlutdeild b ók m en n ta nn a ,
byltingarsinnaðar bókmenntir,
efnislega, ef ekki i formi. Hug-
myndin um endurlausn mannsins
i sálmakveðskap 17du aldar sam-
svarar á okkar dögum hugsjón-
inni um byltingu hins úrætta þjóð-
lelags, segir hér. En aðeins
öðrum þræði. Á nákvæmlega
sama skilningi bókmennta og á
samhengi þjóðlifs og skáld-
skaparins, má reisa ihaldssama
bókmenntaskoðun — sem allt
leggur upp úr eilifum og ófor-
gengilegum verðmætum skáld-
skapar, efni hans og formi.
En eitt er samt og jafnt hvernig
sem menn vilja „túlka” eða
„ráða” hvert og eitt skáldskapar-
verk: krafan um listræna full-
komnun verksins. „Fegurðin er
sjálfstæð höfuðskepna, hún er
takmark”, sagði Halldór i rit-
dómi um Fögru veröld Tómasar
Guðmundssonar, 1933, eins og oft
er vitnað til. „Um hitt er barizt,
hvort margir eða fáir eigi að
njóta fagurra hluta”.
Það sem úr sker um Passiu-
sálmana, eins og annan kveð-
skap, er þrátt fyrir allt formlegar
eigindir verksins — að þvi leyti til
sem aðgreiningur veröur gerður
á milli „forms” og „efnis” i
mikilsháttar skáldskap. En það
er auðvitað blekking.
Það er hin dularfulla angan
kveðandinnar, segir Halldór,
myndirnar, orðavalið, áherzlurn-
ar, hrynjandin, hvernig hann ber
tunguna og dregur andann —
„það er þessi óskýranlegi undir-
ómur Passiusálma sem hefur
gefið skáldinu eilift lif i brjósti
þjóöarinnar eftir að annar Jesú-
skáldskapur var gleymdur og
friðþægingarkenningin fallin i
gildi”.
Af skáldum og
skáldskap
Þessi fallega bók, likast tíl hin
fegursta á jólmarkaðnum i ár, er
tekin saman i minningarskyni við
Halldór Laxness sjötugan. Eins
og nafn hennar gefur til kynna er
hér einvörðungu safnað greinum
um einstök skáld, 21 talsins, frá
Jónasi, Steingrimi og Stefáni G.
til Arnar Arnarsonar, Jóns
Helgasonar og Steins Steinars,
margt af þessu tækifærisskrif,
ritdómar og afmælisgreinar. Að
þvi leyti til er nafn hennar „af
skáldum” réttnefni. En hér eru
tiltölulega fáar greinar sem fyrst
og fremst snúast um mannlýsing-
ar — minnisverð dæmi af þvi tagi
eru samt greinarnar um Nonna,
Jóhann Jónsson, Halldór Stefáns-
son. Hér er fyrst og siðast fjallað
um skáldskap.
Vissulega heíði mátt hugsa sér
annars konar úrval úr greinum
Halldórs Laxness um bókmennt-
ir, þóað vandasamt hel'ði orðið að
velja efnið. Það væri greinasafn
sem fyrst og l'remst lýsti skoðun-
un höfundarins á skáldskap og
þróun þeirra — með hliðsjón af
hans eigin verkum. 1 slikri bók
ættu heima ýmsar þær greinar
sem hér eru, en hún mundi auk
þess rúma aðrar veigamiklar rit-
gerðir hans um bókmenntaleg
el'ni, minnisgreinar hans um
fornsögur, um skáldsögur og leik-
rit, um vandamál skáldskapar á
vorum dögum svo að eitthvað sé
nefnt. í þessari bók rúmast ekki
nema drög þess efnis, enda er af
meiru en nógu að taka, vandinn
yrði að rúma efnið innan einna
bókarspjalda.
En hér var ekki ætlunin að
kvarta undan þessari bók, það
sem hún nær. Hún er hið bezta
l'allin til að vekja athygli á einum
efnisþætti i ritgerðum höfundar-
ins. Hver og ein og allar i senn
minna greinarnar sem hún rúmar
á það — þótt hér hafi ekki verið
nánar um þau efni rætt — að með
mörgu öðru hefur Halldór Lax-
ness verið einn næmasti og skarp-
skyggnasti gagnrýnandi bók-
mennta á Islandi um sina daga.
TRÉSMIÐJAN
VÍÐIR h.f.
auglýsir:
MIKIÐ ÚRVAL AF
HÚSGÖGNUM
SPEGLAKOMMOÐUR
SKRIFBORÐ
SPILABORÐ
SÓFABORÐ
SAUMABORÐ
INNSKOTSBORÐ
SNYRTIBORÐ
BORÐSTOFUBORÐ úr palesander
HJÓNARÚM úr palesander
GEFIÐ NYTSAMAR JOLAGJAFIR
Góðir greiðsluskilmálar
TRESMIÐJAN VIÐIR h.f.
Laugavegi 166. Símar 22222 — 22229