Vísir - 04.01.1973, Síða 3
Vfsir. Fimmtudagur 4. janúar 1973
3
„Neyðarástand vegna innbrota-
faraldurs
Segir Jón B. Þórðarson í Breiðholtskjöri
,,Ég vil meina, að það
sé löggæzluleysið, sem
veldur þvi, að hér rikir
neyðarástand vegna
innbrotafaraldurs”,
sagði Jón B. Þórðarson,
kaupmaður i viðtali við
blaðið, en innbrotsþjófar
sækja i striðum straum-
um að verzlun hans i
Breiðholtinu, Breið-
holtskjöri.
„betta er að verða ákaflega
þreytandi, þetta er satt að segja
að gera mann alveg vitlausan. Þó
er nú komið upp þjófakerfi hérna
núna, og það bjargar öllu. Á
laugardagskvöld var til dæmis
gerð tilraun til að brjótast hérna
inn. Rúða var brotin en um leið
glumdi þjófabjallan, sem veldur
þvi, að allt fólk i húsinu vaknar.
Þjófakerfið hefur tvisvar sinnum
varnað innbroti núna á stuttum
tima.”
„Kerfið var reyndar hérna í
verzluninni i sumar, en það var
rifið niður fyrir okkur. En nú
komum við þvi aftur upp fyrir
skömmu.”
— Hvernig er með verzlanir
þarna i grennd?
„Það er yfirleitt allt i lagi með
þær, þó hefur einhver eða ein-
hverjir haft ágirnd i lyfjabúðina,
en það er tóbakið i minni verzlun,
sem veldur þvi, að þeir sækja i
hana. Svo búast þeir við, að hér
séu einhverjir peningar. 8.
desember s.l. var til dæmis stolið
tóbaki fyrir 100 þúsund krónur,
sem ekki hefur sézt tangur né tet-
ur af.”
Mannsins enn leitað
Enn er haldið uppi leit að
Erlendi Jónssyni,. Suðurgötu 40,
Siglufirði, sem fór að heiman frá
sér á nýárskvöld. Að þvi er
lögreglan á Siglufirði tjáði
blaðinu i morgun, leituðu um 40-
50 manns i gær. Var gengið með
fjörum, slætt með bryggjum og
leitað i fjalishliðinni ofan við
bæinn. Leitin bar engan árangur,
og ekkert fannst, sem gæti gefið
visbendingu um það, hvar hann
væri að finna. Leitað verður
áfram i dag, á meðan dagsbirtan
lcyfir.
—EA
Fischer í sjónvarpinu:
Rússarnir hafa hatað mig
því að ég var krakki
„Hvernig á maður að geta tekið
hverju sem er, hvcrnig svo sem
það er. A móti i Berlin til dæmis
var náungi, sem rcykti beint ofan
i mann, meðan við tefldum,
maður getur ckki annað en kvart-
að”, sagði Bobby Fischcr heims-
er eins og að sitja daglega i 5
klukkutima við prófborð.”
— JBP —
— Þið hafi enga lögreglu i
Breiðholtinu?
„Nei, en það er alveg furðulegt,
að i svona stóru og mannmörgu
hverfi skuli ekki vera löggæzla.
Við höfum aðeins löggæzlu frá
Arbæjarlögreglunni, en þar eru
örfáir lögregluþjónar. Við höfum
ekkert af þessu taginu, ekki einu
sinni örlitinn hluta af slökkvi-
liði.”
„Löggæzluleysiö veldur þvi, að
þjófar telja sig eiga greiðari að-
gang i verzlanir eða i innbrot. A
meðan ekki er löggæzla, væri
reyndar ágætt að hafa vaktmann
i verzluninni, þó að þjófakerfið sé
gott.”
— Hefur ástandið verið þannig
lengi?
„Já, það hefur verið það. Ég
var til dæmis meö bráðabirgða-
verzlun hérna áöur en ég reisti
þetta stóra hús, sem nú er, og þá
var ástandiö alveg það sama.
Maður hélt þá, að ástæðan fyrir
innbrotunum væri sú, að hér var
illa lýst og mannfæö. Nú er þó,
þrátt fyrir allt, allt upplýst og
frekar mannmargt en hitt.”
— EA
Þar verður
að halda
þrjó jóla-
dansleiki
Það dugar ekki að halda aðeins
citt jólaball fyrir börn starfs-
manna hjá Loftleiðum. Það
vcrður að balda jólaböll hvorki
mcira né minna en þrisvar
sinnum, og 250 börn mæta á hvert
ball.
Jólaböllin þrjú voru haldin milli
jóla og nýárs. Starfsliðið hjá Loft-
lciðum er um það bil (i-700 manns,
en það eru tvö eða þrjú ár siðan
farið var að skipta jólaböllum
barnanna niður á þrjá daga.
Börnin fá svo að sjálfsögðu
jólasveina i heimsókn, þau fá gott
i poka eins og viðast hvar tiökast
á jólaböllum og svo licfur þeim
stundum verið boðið upp á
skcmmtikrafta hótelsins hverju
sinni.
Að þcssu sinni ncitaöi þó nú-
vcrandi skemmtikraftur að koma
fram fyrir börnin, þar sem hann
sagði, að dagskrá sin væri ekki
við hæfi barna. Enda kemur grin-
þáttur um „striptcase” inn i
dagskránal.
—EA
Atvinnan í Reykjavík:
Mannekla á miðjum vetri!
meistari i skák i viðtali við frétta-
mann þáttarins „00 minútur” i
Keflavikursjónvarpinu á dögun-
um.
Þar var gengið mjög hart að
Fischer og um suma hluti, sem
honum fannst of persónulegs eðl-
is, bað hann um að þurfa ekki að
ræða. Hinar erfiðu æfingar Fisch-
ers voru sýndar, róður og likams-
æfingar, tómstundir han og kenj-
um hans lýst. Þá var Fischer
sýndur i 5 min. skák við hinn 12
ára Cohen, sem hingað kom i
sumar.
„Rússarnir hafa hatað mig allt
frá þvi ég var krakki og byrjaði
að tefla,,” sagði hann.
Um skákina sagði hann: „Þetta
Vinnu-
samur
þjófur
gómaður
Lögreglan handtók i nótt
mann, sem brotizt haföi inn i
einn vinnuskúr borgarinnar
við Samtún. Litið var þó á
þvi innbroti að græða fyrir
hann, en ef til vill hefur hann
upphaflega ætlað sér að ná
einhverju af þeim áhöldum
eða vinnufatnaði, sem i
skúrnum er að finna. Að
minnsta kosti hafði hann
með sér stigvél, samfesting
og annað slikt. Maðurinn
hafði rétt lokið sér af og var
kominn stutta vegalengd frá
vinnuskúrnum, þegar lög-
reglan handtók hann.
— EA
Það merkilega hefur
gerzt. Á miðjum vetri vant-
ar verkafólk i Reykjavík.
Yfirleitt hefur nokkurt at-
vinnuleysi verið i borginni
um áramót, en nú má
heita, að það fyrirfinnist
ekki.
Aldrei hafa færri sótt um
atvinnuleysisstyrk á þess-
um tíma en nú er.
Fimmtán, átta karlar og
sjö konur, voru á skrá í
gærkvöldi sem umsækjend-
ur um stýrk. Allir karl-
mennirnir voru komnir yf ir
67 ára aldur, það er flest
allir á ellilaunum.
Hins vegar liggja fyrir hjá
Ráðningarstofu borgarinnar
margar beiðnir frá fyrirtækjum
um starfsfólk, sem fólk finnst
ekki til að taka. Auk þess er
urmull auglýsinga i fjölmiðlum,
þar sem beðið er um fólk. Hjá
Ráðningarstofunni eru óafgreidd-
ar beiðnir um fólk til starfa, svo
sem i byggingarvinnu, sem er
harla óvenjulegt á þessum árs-
tima.
Menn vantar i borgarvinnu.
Erfiðlega gengur að fá sjómenn.
Auk þeirra, sem sækja um at-
vinnuleysisstyrk, eru 32 bilstjórar
á skrá, sem sækja um borgar-
vinnu, en eru ekki atvinnulausir.
1 Sá háttur er hafður, að bilstjórar
1 eru taldir á atvinnuleysisskrám,
er þeir sækja um borgarvinnu.
Kemur þetta atvinnuleysi litið
við.
Þvi eru alls á atvinnuleysisskrá
i Reykjavik, þegar bilstjórar eru
taldir, 47 manns. Fyrir einu ári
voru 72 á skrá, en 114 árið þar
áður. Hefur þvi jafnt og þétt
fækkað þeim, sem eru atvinnu-
lausir um áramót i borginni, en
hámark atvinnuleysisins var áriö
1969.
— HH
Innritun í Nómsflokka Reykjavíkur
fer fram i Laugalækjarskóla dagana 4. og 5. janúar kl. 5-9 siðdeg-
is.
Nýjar kennslugreinar:
Kennsla i notkun reiknistokks, lestrarkennsla fyrir fólk með les-
galla, leikhúskynning, myndlistarkynning.
Kennsla til gagnfræðaprófs (isl. enska, danska, reikningur).
Kennsla til miðskólaprófs þ.e. 3. bekkjar (isl., enska, danska,
reikningur).
Að öðru leyti kennsla i sömu greinum og fyrr:
islenzka 1. og 2. fl. og isl. fyrir útlendinga. Reikningur 1. og 2. fl.
og mengi.
Danska 1.2. og3. flokkur. Enska 1-6. fl. Þýzka 1.-5. fl. Franska 1-3.
fl.ítalska 1. og 2. fl. Spænska 1.-4. fl. Rússneska. Jarðfræði.
Nútimasaga. Fundarsköp og ræðumennska. Verzlunarenska.
Bókfærsla. Vélritun. Föndur. Smelti. Kjólasaumur. Barnafata-
saumur. Sniðteikning (teiknað, sniðið og saumað eftir sniðunum).
Nýir byrjendaflokkar i dönsku, ensku, þýzku og spænsku
Innritun i Breiðholtsskóla fer fram mánudaginn 8. jan kl. 8-9,30 og
i Árbæjarskóla þriðjudag 9. jan. kl. 8-9.30. Á þessum tveimur stöð-
um verður kennd enska 1.-3. fl. og barnafatasaumur.
Skólastjóri.