Vísir - 13.01.1973, Blaðsíða 5

Vísir - 13.01.1973, Blaðsíða 5
.5 Visir, Laugardagur 13. janúar 1973 AP/NTB UTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson A Flensu varnir Daglega leggur inflúensa 70.000 manns i rúmið i Rússlandi, eins og við skýrðum frá s.l. laugar- dag; og hefur þurft að gripa til strangra varúðarráðstafana til þess að reyna að draga úr út- breiðslu flensunnar. Eins og t.d. að láta þessar afgreiðslustúlkur I matvöruverzlun i Moskvu bera sóttvarnardulur fyrir vitum sér, svo að þær smitist siður af viö- skipta vinum. Ætla að skilja Jens Otto Krag, fyrrum for- sætisráðherra Dana sést hér á gangi með konu sinni, Helle Virkner leikkonu og börnum þeirra tveim, Jens Christian (tv) og Astrid Heie. Þessi mynd var tekin af þeim i október 1972. En margt hefur breytzt siöan þessi hjón voru hciðursgestir Pressuballsins hér heima, og nú hafa þau staðfest, að þau ætli að skilja. Vinna með gasgrímur Mennirnir tveir á myndinni, sem eru hér að vinna við eina af vélum efnaverksmiðju i Porto Marghera i italiu, bera nú gas- grimur, vegna tilskipunar at- vinnumálaráöuneytisins. 205 efnaverksmiðjum hefur verið gert að útvega 50.000 starfs- mönnum gasgrimur, vegna hættu á lofteitrun. Nafni götunnar, þar sem Maurice Chcvalier átti heimili sitt, þegar hann lézt, hefur nú verið breytt. Hún hét áður Rue du Réservoir, en var nú kennd við söngvarann. Odette Melier, sem bjó með Chevalier siðustu ár hans og erfði hann, virðir fyrir sér nýja skiltið. Fráfarandi forseti Efnahagsbandalagsins, Sicco Mansholt, setur arftaka sinn Francis Ortoli (t.v.) i starfið. Satúrnus 1 B-flaugin, sem skjóta mun fyrstu Skylab geimförunum út i geiminn, sgst hér flutt eftir 3 1/2 km langri braut áleiðis á skotpallinn. Næstu 3 vikurnar mun hún verða þrautreynd, áður en henni verður skotið á loft 1. mai. með þremur geimförum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.