Vísir - 13.01.1973, Blaðsíða 15

Vísir - 13.01.1973, Blaðsíða 15
Vísir. Laugardagur 13. janúar 1973 n □AG | n KVÖLD n □AG 1 Q KVÖLD | n □AG Sjónvarp í kvöld kl. 20,25: NU HLÆR ÖLL FJÖLSKYLDAN Hljóðvarp í kvöld kl. 19,20: JÓLABÓKAFLÓÐIÐ OG FYLGIKVILLAR ÞESS Og enn einu sinni fáum við a6 sjá mynd úr hinum bráðskemmti- lega gamanmy ndaflokki, „Heimurinn minn”. Hvað fjölskyldan tekur sér nú fyrir hendur er ekki gott að gizka á. En áreiðanlega kemur margt spaugilegt og kúnstugt fram i myndinni. „Húsbóndinn á heim- ilinu” lendir vafalitið i ýmsum erfiðleikum, og ef svo verður, kippir „veika kynið” örugglega öllu i lag. Þessi myndaflokkur hefur notið mjög mikilla vinsælda hjá börnum frá aldrinum þriggja til niutiu og þriggja ára, og er ósennilegt, að þessi mynd valdi sjón varpsáhorfendum von- brigðum frekar en hinar fyrri. I-TH Þetta er hinn skemmtilegi húsbóndi I gamanmyndaflokknum „Heimurinn minn”. Það má segja, að hann hafi varðveitt vel ýmislegt af „barninu” i sjálfum sér, i jákvæðustu merkingu þess orðs. i þættinum „Bækur og bók- menntir” i kvöld koma þeir saman gagnrýnendurnir Árni Bergmann, Helgi Sæmundsson og Ólafur Jónsosn. Þeir munu segja álit sitt á ýmsum bókum og bókaútgáfum, útgáfustarfsemi og fleiru þar að lútandi. Fyrst og fremst verður fjallað um nýútkomnar bækur, þ.e. bækur sem komu út fyrir siðustu iól. Þó að þá greini sjálfsagt á um margt er trúlegt, að þeir geti verið i aðalatriðum sammála um það, að æskilegast mundi vera að dreifa bókaútgáfunni á lengra timabil ársins en verið hefur. En eins og allir vita kemur lang- stærsti hluti bóka, sem gefnar eru út á tslandi, á markaðinn skömmu fyrir hver jól. Umræðum þessum stýrir Sverrir Hólmarsson. —LTH Hljóðvarp sunnudag kl. 14,00: Hvað er MÖRSUGUR? „Mörsugur á miðjum vetri” nefnist þáttur sem Jón B. Gunn- laugsson verður með á sunnudag. Loftur Guðmundsson rithöf- undur, hefur tekið saman og flytur frásöguþætti um mörsugu- mánuð, segir meðal annars frá ferðum manna hér áður fyrr þegar þeir voru að fara i verið, eins og það var þá kallað. Þá rabbar Jón við Arna Björns- son, þjóðháttafræðing, um mörsugumánuð, sérstaklega það sem átti sér stað um þann tima til forna. Sagt er að mörsugumánuður hefjist fyrsta miðvikudag eftir 18. desember. Stundum hefur hann lika verið nefndur hrútmánuður. í þættinum munu lesa ljóð þau Herdis Þorvaldsdóttir, leikkona og Hjörtur Pálsson, dagskrár- stjóri —LTH Hinn landskunni hljóðvarpsmaður, Jón B. Gunnlaugsson, fjallar um mörsug á sunnudag, og fær þar til fylgis við sig fróða menn og snjalla. Sjónvarp sunnudag kl. 20,55: ÖRVÆNTING OG ÁST Sjónvarp í kvöld kl. 20,50: SEKUR EÐA SAKLAUS? Margt gerist i þeim þætti fram- haldsmyndaflokksins „Sól- setursljóð” sem sýndur verður á sunnudag. Móðirin verður barnshafandi enn á ný, og gripur til þess óyndisúrræðis i örvæntingu sinni, að fremja sjálfsmorð. Hinn harð- lyndi heimilisfaðir kennir tiðar- andanum um og lætur hvergi bugast, eins og geta má nærri, þvi ekki sýndi hann sérlcga mikla viðkvæmni i fyrsta þætti þessa myndaflokks. Elzti sonurinn er i trúlofunar- hugleiðingum og hefur fullan hug á að komast sem fyrst að heiman. Dóttirin tekur að sér hús- móturstörfin en yngri börnin eru send að heiman. Dóttirin er orðin 'ástfangin af verkstjóra nokkrum, sem hún hefur kynnzt þegar stórbruni átti sér stað á bæ nokkrum i grendinni. Mikið er slúðrað þarna i sveitinni, meðal annars um prestinn, og er hann heldur farinn að falla i áliti hjá söfnuðinum. LTH Erfitt er aö halda þvf fram, aðsólskin og blíða skíni út úr svip feðganna á þessari mynd. Kvikmyndin i sjónvarpinu i kvöld er gerð eftir leikriti Terence Rattigan „The Winslow Boy” og er gerðá árinu 1949. Efni hennar er á þá leið, að ungt sjó- liðsforingjaefni er ásakað um að hafa stolið póstkröfu. Er hann rekinn úr skóla sjóhersins. Faðir hans er ekki sáttur við málsmeðferð herréttarins og ákveður að finna út hið rétta i málinu. Hann ræður frægan verjanda og tekur upp málið að nýju. Robert Donat leikur verjandann, sem ráðinn var til að hreinsa nafn sjóliðsforingjaefnisins unga. Auk þess koma fram i myndinni þekktir leikarar svo sem þau Sir Cedric Hardvice og Margaret Leighton. Sverrir llólmarsson, mennta- skólakennari, stýrir umræðum i þættinum „Bækur og bók- menntir" i kvöld. Sjónvarp sunnudag kl. 18,00: Lína þögnuð - Fjórir félagar vœntanlegir Þcir ætla ekki að láta sig vanta i „Stundina okkar”félagarnir bráðskemmtilegu , Glámur og Skrámur. Þá verður sýndur ballett, einnig lcikfimisýning og teikni- myndir. Endurtekið verður barnaleikrit eftir Guðrúnu Asmundsdóttur, en það nelnist „Pipar og salt”. Nú hefur hin fjörmikla Lina langsokkur sagt sitt síðasta orð i sjónvarpinu, en væntanlegur er i sjónvarpinu nýr myndaflokkur, sem að visu byrjar ekki þennan sunnudag, en fyrsti hlutinn i þeim flokki verður sýndur næsta sunnudag. Sá myndaflokkur nefnist „Fjórir félagar”, en þar er um að ræða þrjá stráka og eina stelpu, fjörkálfa mikla, og stunda þau leynilögreglustörf af miklu kappi. Þessar myndir eru jafnt við hæfi yngri sem eldri barna. Enn- fremur er áformað að hefja sýn- ingar á nýjum myndaflokki fyrir yngstu áhorfendurna, en það er teiknimyndasafn sem kaliast „Jakuxinn” Ekki er enn búið að ákveða hvort sá myndaflokkur verður á miðvikudögum eða sunnudögum. LTH Barnaleikritið f sjónvarpinu er eftir Guðrúnu Asmundsdóttur, leikkonu, og heitir það Pipar og salt.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.