Vísir - 13.01.1973, Blaðsíða 10

Vísir - 13.01.1973, Blaðsíða 10
Skin og skúrir Þrátt fyrir þá stað- reynd/ að Annemarie Pröll, Austurríki, hefur verið langfremsta skiða- kona heims undanfarin þrjú ár, hlaut hún ekki gullverðlaun á Olympiu- leikunum í Sapporo í fyrra. Þa6 var unga svissneska skiðakonan Maria Theresa Nadig, sem kom öllum á óvart, og sigraöi Pröll bæöi i bruni og stórsvigi i Sapporo — skiöa- drottningin varö aö láta sér nægja silfurverðlaun. Þrátt fyrir vonbrigöi lét Pröll ekki hugfallast og i heimsbikar- keppninni i vetur hefur hún haft gifurlega yfirburöi. Myndirnar hér fyrir ofan segja nokkuö aöra sögu en i Sapporo. Efst geysist Pröll niður brekkurnar i Pfronten, hinn öruggi sigurveg ari þar i hverri keppni, en Mariu-Therese Nadig mistekst. Hún kastast út úr brautinni (tii hægri) og slasast. Blóöiö streymir úr andliti hennar og öll von um verðlaun i keppninni um heimsbikarinn er rokin út i veröur og vind. Efri myndin til hægri er tekin fyrir nokkrum dögum á Navacerrada á Spáni. Falleg mynd frá spænska meistara- mótinu i skiöastökki sem háö var viö frábærar aöstæöur — mikinn snjó og góöan. Já, þaö furðulega er, aö Spánverja hefur ekki skort skíöasnjó i vetur á sama tima og skiðamenn frá Noröuriöndum geta varla æft heimafyrir vegna snjóleysis. Norskir skiðamenn hafa gripiö til þess ráös, — einkum þó þeir, sem iöka skiða- stökk — aö feröast til Miö- Evrópu og þaöan af sunnar til aö komast i nothæf æfingasvæöi. Veðurfariö lætur ekki aö sér hæöa og er skritið og marg- breytilegt. Kannski er þróunin sú, aö eftir nokkur hundruö ár veröi fólk fariö aö stunda skiöa iökun i Sahara, en liggja i sól- baöi áriö um kring i Osló! • r og snjor og sól ó Spóni

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.