Vísir - 19.01.1973, Side 13
Visir. Föstudagur I!). janúar 1973 __________________________________________________ ___________13
n □AG | Q KVÖLD | □ DAG | Q KVÖI L □ □AG |
Hljóðvarp í kvöld
kl. 19.20:
— ,n 111‘iiÉiÉiMlWr :'
Hér sjást þeir skemmta sér saman feðgarnir Willy Brandt, kanslari, og
yngsti sonur hans, Mattias.
speglinum?
Gunnar Eyþórsson sér
um Fréttaspegilinn i
kvöld.
Meðal annars verður
fjallað um formlega inn-
setningu Nixons i for-
setaembættið, en hún fer
fram á morgun.
Liklega verður eitt-
hvað rætt um Vietnam,
og þá verða væntanlega
vopnahlésviðræðurnar
einnig til umræðu.
Þá verður sagt frá
nokkrum mest áberandi
málum Vestur-Þýzka-
lands um þessar mundir
og hinum mikla sigri
stjórnarflokkanna i
Þýzkalandi i siðustu
þingkosningum. í kosn-
ingunum hlaut flokkur
Willy Brandts mikið og
að margra áliti óvænt
fylgi, en það er
J af naða rmannaf lokkur-
inn, og er hann stærsti
þingflokkurinn nú. Hinn
stjórnarflokkurinn,
Frjálslyndir, jók lika
fylgi sitt i þessum kosn-
ingum, og hafa þessir
tveir flokkar nú öruggan
meirihluta á þingi. lth
Hann fær þá félaga, Smith og
Jones, til að annast flutninginn,
og mikið er i húfi fyrir þá að geta
skilað þessum peningum til rétts
aðila, þvi ekki mundu þeir
minnka iáliti við það, t.d. hjá lög-
regluyfirvöldum. Ef ferðin hins
vegar mistækist, er hætt við, að
syrti frekar i álinn fyrir þeim.
Ýmsirmenn i áðurnefndu smá-
þorpi hafa fullan hug á að ná
þessum dollurum, enda hafa þeir
allir glatað töluverðum fjármun-
um vegna gjaldþrots bankans.
Þeir veita Smith og Jones eftir-
för, en þeir félagarnir hafa þann
hátt á, að annar ferðast á hest-
baki, en hinn með vöruflutninga-
lest.
Sá hestriðandi verður fyrir
árás þeirra", sem leita að
dollurunum, en þegar þeir upp-
götva, að hann er „blankur”,
sleppa þeir honum.
Það er af hinum að segja, sem
tók sér far með lestinni, að hann
komst þar i kynni við fallega
stúlku, en hvernig myndin
endar — já, við komumst að þvi
Sjónvarp í kvöld kl. 20.30:
Hvað varð um dollarana?
Þeir hafa liingað til reynzt ráðagöðir, félagarnir Smith og Jones. Tekst
þeim eins vel að leysa vandamálin i kvöld og áður?
Gitarleikarinn Stephen Stills er mjög göður sólóleikari, en hann
er lika afar vinsæll þjóðlagasöngvari.
Myndin i bandariska gaman-
myndaflokknum „Karlar i krap-
inu”, sem sýnd verður i sjónvarp-
inu i kvöld, nefnist LAUMU-
FARÞEGINN.
Banki i smáþorpi nokkru hefur
orðið gjaldþrota, en maður einn,
sem átti peninga sina geymda
þar, náði i tæka tið inneign sinni,
50 þús. dollurum, og vill nú koma
þeim til annars smábæjar, sem er
alllangt i burtu.
Hljóðvarp í dag
kl. 16.25:
STILLTIR
STRENGIR
í dag verður kynntur
i „Popphorninu”
bandariski gitarleikar-
inn Stephen Stills.
Hann kom fyrst fram opinber-
lega árið 1966 og lék þá með
hljómsveitinni Buffalo Spring-
fild, en lengst hefur hann leikið
með Grosby Stills Nash Yung.
I þættinum i dag verður rak-
inn hljómlistarferill Stephens
frá þvi hann kom fyrst fram, og
jafnframt fer fram kynning á
ýmsu sem hann hefur komið ná-
lægt i tónlistarheiminum.
Þessi kynning á gitar-
leikaranum Stephen Stills fer
fram i tvennu lagi, seinni hlut-
inn verður fluttur föstudaginn
26. janúar.
Popphornsstjórnandinn i dag
er örn Petersen. LTH
^V.V/.V.V.VVY.V.V.V.V.'.VY.V.V.V.V.VV.V.V/.VA
**
5
*£*
^ *
Spáin gildir fyrir laugardaginn 20. jan.
m
*
Nl
Hrúturinn, 21. marz-20. april. Annrikisdagur
fram eftir, en siðan tiltölulega rólegur, ef þú
vilt það við hafa, og ættirðu að stefna að þvi. Til
dæmis nota kvöldið til hvildar.
Nautiö,21. april-21. marz.Fréttir geta komið þér
að eiphverju leyti úr jafnvægi, en varla til
lengdar. Samkvæmi eða annar mannfagnaöur
getur valdið þér nokkrum vonbrigðum.
Tviburarnir, 22. mai-21. júni. Þú átt góða og að
mörgu leyti skemmtilega helgi fram undan.
Sennilegt er samt, að dagurinn einkennist af
nokkru annriki, en veröi skemmtilegur samt.
Krabbinn, 22. júni-23. júli. Þú virðist hafa tals-
verðar áhyggjur i sambandi viö peningamál og
afkomu, mun þyngri en þörf gerist og fyrst og
fremst sjálfum þér til ama.
Ljónið.24. júli-23. ágúst. Dagurinn virðist munu
verða ljónum og ljónynjum góöur, einkum er á
liður. Litur út fyrir að þá muni einhver
metnaðardraumur rætast að þeirra vild.
Meyjan,24. ágúst-23. september. Það bendir allt
til þess, að dagurinn verði góður, en eitthvað
mun það samt, sem þú setur fyrirþig. Kannski i
sambandi við heilsufar þitt eða annarra.
Vogin, 24. sept.-23. okt. Góður dagur og nota-
drjúgur en dálitið erfiði er á liður. Að visu
hefurðu kallað það yfir þig sjálfur og hefur þvi
að minnsta kosti ekkert á móti þvi.
Drekinn,24. okt.-22. nóv. Þú þarft sennilega að
breyta að einhverju leyti um stefnu, þó aö það
kosti þig að brjóta odd af oflæti þinu i bili,
verður það betra nú en siöar.
Bogmaðurinn, 23. nov.-21. des. Þetta getur oröið
notadrjúgur dagur, ef þú lætur ekki smámuni
valda þér gremju, en einbeitir þér að þvi, sem
mestu máli skiptir i svipinn.
Steingeitin 22. des.-20. jan. Reyndu að skipu-
leggja gaumgæfilega þau viðfangsefni, sem
biöa þin i dag, með tilliti til þess, að þér verði,
óvæntra hluta vegna litið úr verki, er á liður.
Vatnsberinn21. jan.-19. febr. Það litur útfyrir aö
yngri kynslóðinni verði dagurinn að einhverju
leyti varhugaverður. Hvað eldri vatnsbera
snertir, mun dagurinn verða rólegur.
Fiskarnir, 20. febr.-20. marz. Þetta verður yfir-
leitt notadrjúgur og um leið skemmtilegur
dagur, en þó vissara aö fara að öllu meö gát,
ekki hvað sizt i peningasökum.
'.WJ’.W.WAVW.WAV.W.Wi'.VV.V.W.VWWAV
IrÁ
&
l
i
SJÓNVARP •
FÖSTUDAGUR
19. janúar
13.00 Viö vinnuna: Tónleikar.
20.00 Fréttir
20.25 Vcður og augtýsingar
20.30 Karlar i krapinu.
Bandariskur gamanmynda-
flokkur i kúrekamyndastil.
Laumufarþeginn Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
21.20 Sjónaukinn.Umræðu- og
fréttaskýringaþáttur um
innlend og erlend málefni.
22.20 Slansk. Pólskur dans-
flokkur sýnir ýmiss konar
þjóðdansa i norska Óperu-
húsinu. (Nordvision —
Norska sjónvarpið)
22.55 Ilagskrárlok
ÚTVARP #
FÖSTUDAGUR
19. janúar
14.00 Búnaðarþáttur Dr. Hall-
dór Pálsson búnaðarmála-
stjóri talar um landbún-
aðinn á liðnu ári (endurt.
þáttur)
14.30 Sfðdegissaga: „Jón Ger-
rcksson" eftir Jón Björns-
son Sigriður Schiöth les (8)
15.00 Miðdegistónleikar:
Leontyne Price og Martti
Talvela syngja lög eftir Ro-
bert Schumann.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku
16.00 Fréttir
16.15 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
16.25 Popphornið
17.40 Tónlistartimi barn-
anna
18.00 Létt lög. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Fréttaspegill
19.35 Þingsjá Ingólfur Krist-
jánsson sér um þáttinn
20.00 Sinfóniskir tónleikar.
Flytjendur: Sinfóniuhljóm-
sveit útvarpsins i Stuttgart.
Einleikari: John Lill.
Stjórnandi: Gabriel
Chumra. a. Pianókonsert
nr. 2 i B-dúr eftir Brahms. b.
„Pelléas og Mélisande”,
hljómsveitarsvita op. 80
eftir F'auré. c. „Eldfugl-
inn”, ballettsvita eftir
21.30 Forsendur huglækninga
Ólafur Tryggvason frá
Hamraborg flytur erindi.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir útvarps-
sagan: „Haustferming”
eftir Stefán Júliusson
Höfundur les (7)
22.35 Létt músik á siðkvöldi
Hljóðritanir frá franska
útvarpinu. Tónlist eftir
d'Indy, Kéler Béla, Ernest
Guiraud, Saint-Saens,
Massenet og Demersseman.
23.40 Fréttir i stuttu máli.
Dagskráriok.