Vísir - 03.02.1973, Side 3

Vísir - 03.02.1973, Side 3
Vlsir. Laugardagur 3. febrúar 1973. 3 Dansglaðir námsmenn — frá Júgóslavíu í þióð leikhúsinu í Áttatíu manns á hraðferö dönsuðu þjóðdansa á tveim sýningum í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Hér voru stú- dentar frá háskólanum í Ljubljana á ferðinni og dönsuðu þau í hinum marg- vislegu þjóðbúningum Júgóslava. Blaðamaður Visis brá sér i gær á fund fólksins og hitti að máli Tomaz Zajc fyrirliða hópsins. „Þetta eru stúdentar úr öllum mögulegum greinum við háskól- ann i Ljubljana, hagfræöi, stærð- fræöi, læknisfræði og svo fram- vegis,” sagði Tomaz. „Enginn úr hópnum fær greitt fyrir að dansa. Þau fá aöeins uppihald og vasa- Nokkrir júgóslavnesku stúdent- anna ieika þjóðiög á hljóðfæri sin og hinir dansa eftir tónlistinni. gœrkvöldi peninga, enda er þetta lika skemmtireisa fyrir þau.” Það eru engir sérstakir tækni- menn, það eru bara stúdentarnir, sem eru með i förinni. Tomaz Zajc fræddi okkur einn- ig á þvi að fólkið skipti nokkrum sinnum um búninga, á meðan á sýningunni stæði, vegna'þess hve fjölbreyttir Júgóslavnesku þjóö- búningarnir væru. Það eru nefnilega sex fylki eöa riki i Júgóslaviu og hvert þeirra hefur sina sérstöku þjóðbúninga og fleiri en einn. Sagði viðmæl- andi okkar, að þeim hefði komið þægilega á óvart að sviðið i Þjóö- leikhúsinu gæti snúizt, þvi að þá væri miklu auöveldara að koma öllum búningaskiptingunum við. Það var sagt hér fyrst að þetta fólk væri á hraðferð, og það var af þvi að það hefur ekki viðdvöl hér nema i tvo sólarhringa. Það kom i fyrrakvöld og fer i kvöld. Leiðin hingað lá frá Luxemburg og i kvöld er henni heitið til New York. —LÓ ÓK Á KONU BÚIÐ AÐ RYÐJA OG STYÐJA ÖLL ÞÖK FYRIRTÆKJA Björgunarsveitir halda áfram störfum linnulaust. Hvassviðri gerði þó aðstæður til vinnu erfiðar i gær. Nú má heita lokið að ryðja af og styðja við þök at- vinnu- og þjónustufyrir- tækja. Unnið hefur verið að mokstri af þökum ibúðarhúsa, og að styðja við þök ibúðarhúsa á svæði, sem takmarkast af Vestmannabraut og Landagötu að norðan, Heiðarvegi og Strembu- götu að vestan og Suður- vegi að austan. Sum húsin á austanverðu þessu svæði eru þó grafin i vikri, og hef- ur ekki reynzt unnt að komast aö þeim til vinnu. Verkinu miðar vel áfram, og vinna við það 90 trésmiðir auk hjálparsveita, sem telja yfir 300 manns. Sveitirnar hafa í vaxandi mæli til umráða stórvirkar vinnu- vélar og stórvirk ökutæki. Búslóðaflutningum hefur veriö haldið áfram með skipum og flug- vélum. Nú er álitið, að lokið sé við að flytja búslóðir úr þeim húsum, sem hafa verið talin á hættu- svæði. Slökkvilið hefur ekkert þurft að vinna að slökkvistörfum seinustu daga, og hafa slökkviliðsmenn starfað við ýmis þjónustustörf. Lögreglan hefur séð um eftirlit á hafnar- og flugvallarsvæðinu, og á hættusvæðinu austast i bænum. Auk þess hefur hún á hendi upp- lýsingar um birgðavörzlu, oliu- dreifingu og aðra fyrirgreiðslu. Engin slys hafa orðið né meiri- háttar meiðsli. Á þriöja hundrað stúdentar fóru til Eyja i gær, flugleiöis og sjó- leiðfs. Þeir munu vinna að þak- ruðningi undir stjórn kennara og slökkviliðsmanna. Þá fóru rúm- lega 100 menn úr varnarliðinu til sömu starfa , og er unnið að skipu- lagningu áframhaldandi aðstoðar á þessu sviði. —HH — en stöðvaði ekki Ekið var á fullorðna konu á Hringbraut í lyrrakvöld. Öku- maöurinn stöðvaði ekki, heldur ók áfram. Konan var að fara yfir götuna á móts við Landsspitalann, þegar slysið varð. Bláleitur fólksbill kom á mikilli ferð vestur Hring- brautina og straukst hann utan i konuna og varð vinstri fótur kon- unnar fyrir afturhjóli bílsins. Bil- stjórinn var ekkert að hafa fyrir þvi að stanza, heldur ók hann við- stöðulaust áfram. Konan taldi sig hafa náð númeri bilsins, en þegar það var athugað, reyndist númerið, sem konan gaf upp ekki vera til. Ekki hefur því enn hafzt upp á ökumanninum. Konan mun hafa slasazt tölu- vert, og var hún flutt á spitala. —ÞM Skyndilega yfirfylltist Loft- leiðahótelið i gærdag, en þá komu þangað um 300 skipti- nemar frá Bandarikjunum, sem eru á leið til fjögurra mánaða dvalar i Danmörku. Hér er viðkoman aftur á móti ekki nema tveir dagar og einu endurminningarnar frá þessu landi verða skiptinemunum sennilega þær einar, að taka upp náttfötin og tannhurstann á hótelinu. Skipulögö skoðunar- ferð var I það minnsta ekki fyrirhuguð þegar VIsis spurðist fyrir um það I gær á hótelinu. En án efa hefur hópurinn flogið yfir hina gjósandi eyju úti fyrir landinu — og gerir sennilega aftur á leiðinni til Danmerkur. Nokkuð, sem allmörgum Iöndum þeirra þætti sennilega eftirsóknarvert.... ÞJM/Ljósm.: BB. Loðnuflutninga- skip leigð? Þegar á fyrsta degi gossins voru gerðar ráðstafanir til að undirbúa að fá skip til flutninga á loðnu, ef nauðsynlegt reyndist. Ilelztu hagsmunaaðilar voru þá kallaðir á fund hér I ráðuneytinu og stjórn Síldarverksmiðja rikis- ins og Fiskifélagi islands var fal- ið að kanna möguleika á flutning- um, sagði Jón Arnalds, ráðu- neytisstjóri I sjávarútvcgsráðu- ncytinu, I viðtali við VIsi I morg- un. Flutningaskip hefur ekki verið tekið á leigu ennþá. Það verður fyrst að kanna, hvort yfirleitt sé þörf á sliku skipi. Það er heldur óskemmtilegt að leigja skip ef ekki reynast vera not fyrir þaö. Fyrst yrði þvi að fylla þær þrær, sem fyrir hendi eru og nýta þá af- kastagetu, sem eru i verksmiðj- um næst miðunum, en það er m.a. verkefni sérstakrar loðnulöndun- arnefndar, sagði Jón. Þess má geta að ýmsir eru nú orðnir bjartsýnir á það, að unnt reynist að nýta loðnuverksmiðj- urnar i Eyjum, og er m.a. ráð- gert, að önnur geti nú farið að taka á móti loðnunni. — VJ Við erum rúm 210 þúsund íslendingar eru 310.332 talsins samkvæmt manntalinu 1. desember siðastliðinn. Karlkynið hefur talsverðan meirihluta, og sýnist sitt hverjum um kosti þess. Á landinu eru 104.078 konur og 106.274 karlar. i Reykjavík búa 83.831, og eru það 42,962 konur og 40.869 karlar. 11.434 buá I Kópavogi, 10.694 i Ilafnarfirði og 11.158 á Akureyri. —HH Æfing fyrir eldgos í Vík Við munum hafa æfinguna i al- mannavörnum, ekki slzt eftir al- burðina I Eyjum, sagði Einar Oddsson, sýslumaður I Vik I morgun. Æfingin átti að veröa I janúar, en henni var frestað og siðan enn skotið á frest, þegar al- mannavarnir hlutuóvænta þjálf- un i Eyjum. Vík i Mýrd.il veröur þvi brátt vettvangur meiriháttar æfingar i almannavörnum, sem munu mið- ast við, að þorpinu sé ógnað af eldgosi eða öðrum náttúruham- fiirum. —HH

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.