Vísir - 12.02.1973, Side 4
4
Visir. Mánudagur 12. febrúar 1973.
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND I MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
BYRNE Bandaríkja-
meistari í skók
Ilobeirt Byrne hreppti
Bandarikjameistara-
titilinn i skák i úrslita-
umferðunum, sem tefld-
ar voru núna fyrir helg-
ina.
Byrne, sem er skák-
ritstjóri New York Tim-
es, tryggði sér titilinn,
þegar hann náði jafntefli
við Samuel Iteshevsky á
laugardagskvöld, en
Iteshevsky tókst ekki að
verja titilinn. Iteshev-
sky hefur verið Banda-
rikjameistari átta sinn-
um.
1 sex skáka úrslitunum fékk
Byrne 3 stig, tvo vinninga og tvö
jafntefli. Reshevsky vann eina
skák, gerði tvö jafntefli og tapaði
einni. Lubomir Kavalek, hinn
tékkneski, gerði tvö jafntefli og
tapaði tveimur.
Byrne og Reshevsky fara á
svæðamótið i Brasiliu i sumar og
munu keppa áfram um það, hver
öðlast skuli réttinn til þess að
skora á Bobby Fischer 1975.
Byrne gerir sér engar grillur
um Fischer: „Hann er ósigr-
andi,” segir Byrne.
Reshevsky segist vita, hver ætti
að tefla við Fischer:
„Ég ætla að skora á Fischer,”
sagði hann um helgina. „Ég tefli
núna betur, en ég hef nokkurn
tima gert áður.”
Margir skáksérfræðingar, sem
fylgdust með mótinu, voru sam-
mála þessu hjá Reshevsky og
töldu vinningsskák hans gegn
Kavalek bezt tefldu skák mótsins.
— Kavalek tefldi hins vegar ekki
eins og hann átti að sér, meðan
Byrne tefldi jafnvel og nákvæmt
allan timann.
VELJUM ÍSLENZKT
iSLENZKAN IÐNAÐ
Þakventlar
Kantjárn
ÞAKRENNUR
J. B. PÉTURSSON SF.
Frá vöggu til grafar
Fallegar skreytingar
Blómvendir i miklu
úrvali.
Daglega ný blóm
Mikið úrval af
nýjum vörum. —
Gjórið svo vel að lita
inn.
Sendum um allan bæ
GLÆSIBÆ,
23523.
simi
Kröfugöngum var dreift í Belfast
Dró úr óeirðum í gœr
Alvarlegar óeirðir brutust
út i Belfast á laugardags-
kvöld, þegar brezkar
öryggissveitir stöðvuðu
kröfugöngu, sem var á leið
til hjarta borgarinnar.
Göngumenn voru úr hópi
vinstrisinnaðra kaþólikka,
og stýrði þeim Michael
Facrel. En þegar þeir
komu að tálmunum, sem
hermennirnir höfðu sett
upp í Kastalastræti, var
Facrel handtekinn, og ætl-
aði þá allt vitlaust að
verða.
Þessi þrjú hundruð, sem voru i
göngunni, réðust til atlögu með
grjótkasti á hermennina, sem
eftir langa hrið gátu þó dreift
hópnum.
Brezk yfirvöld höfðu fyrr um
daginn bannað þrjár mótmæla-
Bernadette Devlin —fékk ekki að
efna til kröfugöngu.
göngur, sem kaþolskir ætluðu sér
að efna til. Og lögreglan dreifði
hóp 60 kvenna og unglinga, sem
söfnuðust saman til kröfugöngu á
kaþólska markaðnum. Ekkert
varð úr göngu, sem Bernadetta
Devlin ætlaði að safna i.
Þrir mótmælendur, sem drepn-
ir voru i skotbardaga á miðviku-
daginn, voru jarðsettir i fyrra-
dag, en margsinnis var skotið á
likkistur þeirra, meðan jarðar-
förin fór fram. — Fyrr þennan
dag sprakk sprengja i kaþólskri
kirkju i austurhluta Belfast, sem
lagði hana i rúst.
I gær fann lögreglan lik ungs
manns og ungrar konu, eftir að
sprenging varð i yfirgefnu húsi i
bænum Strangford, 32 km suður
af Belfast. Ekki var vitað, hvað
valdið hefði sprengingunni, en
grunur lék á þvi, að i húsinu hefðu
verið gerðar sprengjur fyrir
hermdárverkamenn.
En að öðru leyti hafði dregið
mjög úr óeirðunum á sunnudag,
og vonir stóðu til þess, að hinir
hóflyndari i báðum flokkum hefðu
loks fengið haldið aftur af striðs-
æsingaröflunum.
Innbú og
innstæða
Það er dýrt að stofna heimili og
margt sem þarf að kaupa. Stundum er
ungt fólk bráðlátt. Því finnst taka langan
tíma að spara fyrir því, sem það vill
eignast.
Nú kemur Landsbankinn til móts við
sparifjáreigendur með nýju sparilánakerfi
Sparilán eru nýr þáttur í þjónustu Lands-
bankans. Reglubundinn sparnaður
skapar yður rétt til lántöku á einfaldan
og fljótlegan hátt.
Ungt fólk getur gert áætlun um
væntanlegan innbúskostnað. Síðan
ákveður það hve mikið það vill sþara
mánaðarlega.
Eftir umsaminn tíma tekur það
út innstæðuna, ásamt vöxtum, og
fær Sparilán til viðbótar. Rétturinn
til lántöku byggist á gagnkvæmu
trausti Landsbankans og viðskiptavin-
arins. Reglubundinn sparnaður og reglu-
semi í viðskiptum eru einu skilyrðin.
Reglubundinn sparnaður er upphaf
velmegunar.
Kynnið yður þjónustu Landsþank-
ans. Biðjið bankann um bæklinginn um
Sparilán.
IM>£?]ÍÐ3m£>KIIIS3
Banki attm landsmanna