Vísir - 12.02.1973, Blaðsíða 10
Forsetinn á
Bessastaðahlaupi
Dr. Kristján Eldjárn var meöal áhorfenda
á fyrsta Bessastaöahlaupinu, sem háö var á
Alftancsinu i gær. Þrátt fyrir vonzkuveöur 1
var þátttaka mjög góö — alis tóku 20 þátt I
hlaupinu. '
Keppni var skemmtileg og tvisýn I flokki
karla, en Hagnhildur Pálsdóttir haföi mikla'
yfirburöi i kvennaflokki.
Úrslit uröu þessi.
1. Agúst Asgeirsson, ÍR, ..... 17:56.6
2. Einar Óskarsson, UBK..... 17:58.8'
3. Július Hjörleifsson, 1R,... 18:04.0
5. Erlingur Þorsteinss. Stj. 18:47.51
Keppendur voru 14 og vegalengdin um 5,
km Fyrstu mcnn hlutu bikara, og Agúst aöj
auki farandbikar. Þá gaf Jóhann Jóhannes-
son styttu til bezta hlaupara Stjörnunnar, I
sem keppt veröur um árlega.
1 kvennaflokki uröu úrslit þessi, en þar|
kepptu sex stúlkur.
1. llagnhildur Pálsdóttir. Stj. 10:46.2|
2. Anna Haraldsdóttir, FH, . 11:19.6,
3. Bjarney Arnadóttir, ÍR... 14:15.o|
4. Sigriöur Magnúsd. UMF Bessast.. 15:47.2,
Fyrst innan við
sautján mínútur
Mesta sundkona heims, Shane Gould,
Astralfu, drifin áfram af áköfum kölium
áhorfenda, varö fyrsta kona I heiminum til
aö synda 1500 m skriösund innan viö 17 (
minútur á ástralska sundmeistaramótinu I,
Adelaide I gær.
Hún synti vegalcngdina á 16:56.9 min. og .
bætti fyrra heimsmet sitt um 4.37 sekúndur. (
Millitimi Gould eftir 750 metra var 8.30 min.
og þá fór stemningin aö stiga meöal áhorf-|
enda. Spenningurinn komst I hámark, þegar
Gould synti brautarlengd eftir brautarlengd|
á 31.8 sek. og komst þannig innan viö þann’
tima, þcgar hún setti heimsmetiö I Sydneyj
1971. Þcgar 300 m voru eftir var millitimi
hennar 3.25 sek. innan viö heimsmetiö ogi
áhorfendur slepptu fram af sér beizlinu. Allir
stóöu á fætur hrópandi og hvetjandi dálæti j
sitt lokakaflann.
Fyrir sundiö hlaut Shane Gould sjöunda i
meistaratitil sinn á mótinu -sigraði f öllum ’
greinum, sem hún keppti I. I hinum sex I
greinunum synti hún aðeins til sigurs, en var
ckkcrt aö hugsa um metin.
... . ..
:
Shane Gould
Akureyrar-Þór
er ósigrandi!
Fimm leikir voru háöir I 2. deild islands-
mótsins I handknattleik um helgina. úrslit
uröu þessi:
Grótta — Þór, Akureyri...... 16-24
Keflavik —KA................ 19-23
Breiöablik — Þróttur....... 14-32
Stjarnan —Þór............... 16-35
Fylkir — KA................. 17-27
Þór heldur áfram sigurgöngu sinni og er nú
eina liöiö, sem ekki hefur tapaö leik. Staöan I
deildinni er þannig:
Þót 7 7 0 0 161-87 14
, Grótta.............. 7 60 1 115-93 12
KA.................... 8 5 0 3 180-137 10
Þróttur............... 5 3 0 2 83-53 6
ÍBK................... 7 3 0 4 87-92 6
Breiðabiik............ 8 3 0 5 142-181 6
Stjarnan.............. 6 1 0 5 101-167 2
Fylkir................ 8 0 0 8 122-192 0
Leikir tBK gegn Gróttu, og Þrótti hafa ver-
iö dæmdir tapaðir og markatalan strikuö út.
Af þvi stafar hin óeðlilega markatala sumra
liöanna iTfotíunni.
Framtak einstaklmgsins
sigraði sovétskipulagið
Ekki veit ég hvort Rúss-
ar eiga eftir að skrá
leikina sina tvo hér á
landi sem landsleiki.
Þeir fara oft sinar eigin
leiðir í ýmsum málum
eins og kunnugt er. En
áreiðanlegt má telja að
hér var ekki um þeirra
sterkasta landslið að
ræða eins og fyrr hefur
verið sagt hér í blaðinu,
en áreiðanlega hefði
Rússum ekki veitt af
betri leikmönnum gegn
þeim islenzku ef sigur
átti að nást.
Seinni leikurinn var ósköp
átakanlegur fyrir báða aðila að
minum dómi, — eiginlega var
hann táknrænn leikur, þar sigraði
einstaklingsframtakið sovét-
skipulagið. Þeir Geir Hallsteins-
son, Einar Magnússon og ólafur
Jónsson voru þarna fulltrúar ein-
staklingsins, og sannarlega tókst
þeim að breyta vonleysinu i sigur
islenzka liðsins.
Fyrri hálfleikurinn hjá islenzka
liðinu er áreiðanlega meö þvi
allra lakasta, sem sézt hefur til
liðsins. Enginn virtist ætla að
skjóta. Allt i einu voru tölurnar
5:1 fyrir Sovétrikin (Grúsiu)
komin á töfluna, og i hálfleik var
staðan 9:6 fyrir Sovét.
Siðan gerðist það sama og fyrr.
Það var eins og úthald brygðist
Grúsiumönnum og einstaklingar
islenzka liðsins fótu að njóta sin.
Skot Geirs voru gullfalleg, og i
vörninni átti hann jafnvel prýðis-
leik. ólafur Jónsson tók svo við að
skjóta af Geir og átti einnig láni
að fagna. Lokaorðin átti Einar
Magnússon með nokkur falleg
mörk, sem innsigluðu sigur
Islands i þessum leik.
íslenzka liðið á framundan leik
við Dani ytra og fær þá að kynn-
ast þar öllu betra liði en þessu
sovézka . Markvarzlan okkar
virðist stöðugt stærsta vanda-
málið. Það er sama hvaða erlent
íið kemur hingað alltaf sjáum við
betri markverði en okkar eigin.
Helðum viö haft rússnesku mark-
verðina og þeir okkar, — hefðu
úrslitin ugglaust orðið sigur
okkar með 12-14 marka mun.
Vörnin virðist góð, og sóknar-
menn okkar eru áreiðanlega með
allra bezta móti. Einkum er
ástæða til að fagna þvi að sjá
Auðunn Óskarsson i liðinu, og
Einar Magnússon á áreiðanlega
eftir að reynast liðinu traustur
bakhjarl. _jbp—
Ilinn frábæri markvöröur sovézka liðsins, Alexandre Hutsishvili, gerði sér litið fyrir og varði meðal annars vitakast frá Geir Hallsteinssyni.
Hann var mörgum klössum betri en kollegar hans i íslenzka markinu. Ljósmynd Bjarnleifur.
— og David Zwilling
Anna María Pröll var að
venju í sérflokki, þegar
keppt var i bruni St. Moritz
i Svissá laugardag i keppn-
inni um heimsbikarinn.
Þetta var áttundi brunsigur
hennar i vetur— í átta mót-
um.
Einnig var keppt þar i bruni
karla — hinu siðasta i keppninni
um heimsbikarinn i ár. Mjög á
óvart varð Werner Grissman,
Austurriki, sigurvegari, þó hann
væri með rásnúmer 37. David
Zwilling, Austurriki, varð fjórði
og náði þar með efsta sætinu i
stigakeppninni ásamt Collombin,
Sviss, sem er úr leik vegna
meiðsla.
Konurnar kepptu I stórsvigi i
gær i Aþetone og þar^sigraði
Monika Kaserer, Austurríki, og
dró aðeins á Onnu Mariu i stiga-
um heimsbikarinn
Olympiumeistarinn Russi varð
aðeins i 25 sæti og Erik Haker 42.
Stigakeppnin er nú þannig. 1-2.
Collombin og Zwilling 131 stig 3.
Gustavo Thoeni, ítaliu, 129 stig. 4.
Bernhard Russi 106 stig 5.
Christian Neureuter, V-Þýzka-
landi 85 stig og Henri Duvillard,
Frakklandi, 84 stig.
1 stórsviginu i Abetone urðu úr-
slit þessi:
1. Kaserer, Aust. 1:44.64
2. T. Treichl, V-Þ. 1:45.11
3. S. Poulsen, USA, 1:45.81
4. Mittermaier, V-Þ 1:46.12
5. Wenxel, Lichtenst. 1:46.75
6. Zurbringen, Sviss 1:46.86
7. Morerod, Sviss, 1:47.22
8. Pröll, Austurr. 1:47.25
9. B. Cochran, USTÁ^ 1:47.46
10. I. Gfölner, Aust. 1:48.08
er nú kominn í efsta sœtið í stigakeppninni
keppninni, þvi hún varö þar aö-
eins i áttunda sæti.
Úrslit urðu þessi á Brun kvenna: mótunum.
1. Pröll, Austurriki, 1:58.09
2. I. Gfölner, Aust. 2:00.46
3. W. Drexel, Aust. 2:01.35
4. J. Rouvier, Frakkl. 2:01.38
5. C. Giordani, ttaliu, 2:01.85
5. S. Eberle, Aust. 2:02.15
Eftir þessa keppni var stiga-
taflan þannig. 1. Pröll 250 stig. 2. Kaserer 133 stig. 3. Rouvier 103 stig 4. Rosi Mittermaier, Austur- riki, 100 stig 5. Drexel 98 stig og Patricia Emonet, Frakklandi, 76
stig.
Brun karla: 1. Grissmann, Aust. 2:06.06
2. J. Walcher, Aust. 2:07.68
3. Kalmmer, Aust. 2:08.18
4. Zwilling, Aust. 2:08.24
5. F. Bielher, ttal. 2:08.28
6. Tritscher, Aust. 2:08.52
Anna-Maria Pröll
Átta sigrar Önnu-Maríu
í ótta mótum í bruninu!
LandsSeikurinn í
járnum vegna lé-
legrar markvörzlu
— en íslenzka liðið sigraði Sovétríkin í lokin með 19-17
eftir að þeir sovézku komust í 5-1
Sovézka landsliðið
náði yfirburðastöðu
upphafsminúturnar i
siðari landsleiknum við
ísland i Laugardalshöll-
inni á laugardag. Fátt
heppnaðist hjá islenzka
liðinu — skotin glumdu i
stöngum eða þá sovézki
markvörðurinn var á
réttum stað og varði, en
hins vegar þurftu
sovézku leikmennirnir
ekki nema hitta markið.
Þá lá knötturinn inni.
Gifurlegur munur var á
markvörzlu liðanna —
Birgir Finnborason
varði tvö skot i fyrri
hálfleik, ólafur Bene-
diktsson þrjú i þeim
síðari, meðan kollega
þeirra í sovézka mark-
inu varði hvert skotið á
fætur öðru. En ekki
nægði þetta sovézku
leikmönnunum.
íslenzka liðið snéri
leiknum smám saman
sér i hag og munaði þar
mestu um mikið ein-
staklingsframtak Geirs
Hallsteinssonar fyrst, og
siðar Einars Magnús-
sonar. Þessir tveir leik-
menn risu hátt upp fyrir
meðalmennskuna og
tryggðu islenzkan sigur
19-17
Já, leikurinn byrjaði ekki gæfu-
lega og Grúsiumenn skoruöu tvö
fyrstu mörk leiksins. Loksins á
fjórðu min, skoraði Geir með
fallegu skoti, en áfram héldu
mörkin að hafna i islenzka mark-
inu meðan það sovézka nötraði af
stangarskotum. Sovétmenn
komust i 5-1 — Einar skoraði
annað mark Islands -á 8 min, og
átti aöeins siðar ágæta linusend-
ingu á Auðunn óskarsson, sem
skoraði örugglega.
Staðan lagaði$t i 5-3 og breyt-
ingar voru gerðar á isl. liðinu.
Ólafur H. Jónsson, GUnnsteinn og
Björgvin komu i Stað Guðjóns
Magnússonar, Sigurbergs Sig-
steinssonar og- nýliðans
Magnúsar Sigurðssonar. En litið
lagaðist leikurinn. Sovétmenþ
skoruðu næstu tvö mörk og stað-
an var 7-3 eftir 18 min. Björgvin
skoraði fjórða mark Islands á 1'9
min. eftir linusendingu Einars og
siðan kom ólafur með tvö mörk.
7-6. Útlitið var að skána — en þá
kom enn slæmur kafli, Geir lét
verja frá sér vi,ti meðal annars
og átti nokkurvskot varin — i
stöng eða frarfrhjá, sem er afar
ólikt Geir, eitt mark úr fimm
skotum. Ekkert íslenzkt mark
siðustu átta minútur hálfleiksins
— en þeir sovézku skoruðu tvö og
staðan i hálfleik var 9-6 fyrir
Sovét.
Staðan var þvi allt annað en
glæsileg,. en Geir tók af skarið i
byrjun siðari hálfleiks. Lék eins
og hann getur bezt — sem sagt
snilldarlega. Frábær skot hans
höfnuðu fjórum sinnum á
stuttum tima i sovézka markinu
og Björgvin stakk einu inn á milli
— og þá urðu dönsku dómurunum
á mistök og tóku stórgott mark af
Geir.
Staðan var orðin jöfn eftir 8
min. 11-11 og greinilegt að
sovézka liðið var að gefa eftir.
Tsetvadze (nr. 8), sem hafði
borið mjög af, var farinn að
þreytast en þessi leikmaður lék
hér með sovézka landsliðinu 1966.
En Sovétmenn náðu aftur forustu
12-11 og það var i siðasta skiptið,
sem þeir höfðu yfir i leiknum.
Ólafur jafnaði i 12-12 á 15 min. og
rétt á eftir skoraði Einar úr viti.
Enn jöfnuðu Sovétmenn i 13,-13,
en svo komu tvö islenzk mörk —
Einar skoraði og siðan Björgvin
eftir linusendingu ólafs. 15-13 á 24
min, og eins til tveggja marka
mundur var til loka. Þó var
Stefáni Gunnarssyni visað út af i
tvær min, og á meöan skoruðu
Sovétmenn úr viti. Einar svaraði
strax með góðu marki 16-14, en
það stóð ekki nema augnablik,
Sovét skoraði.
Aftur var Einar á ferðinni — 17-
15 og þrjár mínútur eftir.
Þá kom sovézkt mark, sem
Ólafur svaraði nær samstundis
fyrir — siðan fengu Auðunn og
Ólafur báðir tækifæri til að gera
út um leikinn, en misheppnaðist
og Sovétmenn minnkuðu muninn i
18-17, þegar um min, var eftir.
Þeir reyndu „maður á mann”
lokaminútuna, en tókst ekki að ná
knettinum og þegar 10 sek voru
eftir sendi Einar knöttinn með
hörkuskoti i sovézka markið og
innsiglaði sigurinn — sigur, sem
hann átti svo mikinn þátt i með
fimm mörkum sinustu 13 min-
úturnar.
Þetta var leikur mikilla von-
brigða, þvi flestir höfðu reiknað
með auðveldum sigri — en þó ekki
án ljósra punkta. Það jákvæða
var fyrst og fremst stórleikur
Einars lokakaflann — þá sýndi
hann þann leik, sem hann á að
vera fær um að sýna i lands-
leikjum framtiðarinnar — geysi-
lega sterkur og góður leikmaður.
Sennilega er þetta bezti lands-
leikur Einars gegnum árin, þvi
framan af voru það linusend-
ingar hans, sem gáfu mörk og
sex mörk gegn hinum ágæta
markverði Hutsishvili er stórgott.
Þó átti Einar nokkur stangarskot.
Björgvin var mun betri en i fyrri
leiknum — og Ólafur lék
prýðilega, þó þaö jafnaðist ekki á
við leik hans i fyrri leiknum. Þá
var hlutur Geirs mikill i siðari
hálfleik og varnarleikurinn þá oft
góður — en markvarzlan var
næstum orðin liðinu af falli. Ný-
liðinn Magnús verður litið
dæmdur af þessum leik — var
litið með, og sama er að segja um
Sigurberg og Guðjón, en þeir geta
vissulega meir en þeir sýndu
þarna. Stefán Gunnarsson og
Gunnsteinn stóðu fyrir sinu i
vörninni — en sama er ekki
hægt að segja um sóknarleik
þeirra. Gunnsteinn átti meira að
segja óvenju mörg skot án þess að
skora.
Mörk tslands i leiknum skoruöu
Einar 6 (1 viti). Geir 5, Ólafur 4,
Björgvin 3 og Auðunn 1, en þeir
Guöjón, Gunnsteinn, Magnús,
Sigurbergur og Stefán skoruðu
ekki I leiknum. Fyrir Sovétrikin
•skoruðu Tsetsvadze,
Narimanidze og Vahtang Berias-
hvili 3 hver, Bunadze, Shiereli,
Georgiy Beriashvili og Chkonija
2 mörk hver. — hsim.
íslandsmet
Guðmundar
Guðmundur Siguröson,
Armanni, setti nýtt islandsmet I
tviþraut i þungavigt i gær og sigr-
aði kappana Óskar Sigurpálsson
og Gústav Agnarsson I þunga-
vigtinni, og þaö i fyrsta skipti,
scm hann keppir sem þungavigt-
armaður.
Guðmundur lyfti samtals 320
kilóum — 183 i jafnhendingu og
137 kg.i pressu. Óskar iyfti 185 kg.I
jafnhendingu og er það jafnt
islandsmeti hans. Keppni þessi
var á Unglingameistaramótinu
og kepptu þeir sem gestir. Gústav
varð meistari, en hann á við erfiö
meiðsli að striða og náöi sér^ekki
á strik i keppninni við Guffniund
og óskar.
Auöunn Óskarsson skorar 3ja mark islands eftir linusendingu Einars
Magnússonar.
Einar Magnússon lyftir sér hátt yfir sovézku varnarleikmennina og
skorar eitt af scx mörkum sinum ileiknum.
Ljósmynd Bjarnleifur.
TÍGRIS
straufría sængurfataefnið er nú fyrirliggjandi í mörg-
um mynztrum og litum.
Einnig í saumuðum settum. Kærkomin gjöf, hverj-
um sem hlýtur.
Sparið húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægilega og
lífgið upp á litina í svefnherberginu.
Reynið Night and Day og sannfærizt.
-I-53R-