Vísir


Vísir - 27.03.1973, Qupperneq 5

Vísir - 27.03.1973, Qupperneq 5
Visir. Þriðjudagur 27. marz. 1973 5 AP/NTB ÚTLÖNDÍ MORGUN UTLÖND I MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson Deilan leystist hjá Dönum f nótt Aðilar í vinnudeilunni í Danmörku komust að samkomulagi í nótt. Málamiðlunartillagan verður borin undir at- kvæði hjá launþegasam- tökunum og svo hjá at- vinnurekendum, ýmist á morgun eða á fimmtu- dag. Hvaða undirtektir þetta bráðabirgðasamkomulag fær, mun ekki liggja ljóst fyrir — fyrr en að 10-12 dögum liðnum, að úrslit atkvæðagreiðslunnar verða kunn. Þeir, sem eru núna i verkbanni eða verkfalli, munu þvi ekki geta byrjað aftur vinnu fyrr en i fyrsta lagi 8.-9. april. Sáttasemjari rikisins hefur slegið á frest verkföllum, sem boðuð höfðu verið hjá orkuver- um, bensin- og oliufélögunum og á sviði verzlunar og hjá skrif- stofumönnum. — Er það samkvæmt venju hjá Dönum, ef gert hefur verið bráðabirgða- samkomulag. Frestast þá önnur boðuð verkföll fram á þriðja dag, eftir að úrslit atkvæða- greiðslu hjá félögunum liggja fyrir. Fundir sáttasemjara með deiluaðilum höfðu staðið alla helgina, þegar hlé var gert á þeim i gær. En siðan hófust þeir strax aftur i gærkvöldi. — En rétt á meðan hléið var gert, bættust fleiri þúsund kennarar og nemendur i deiluna, þegar þeir lýstu yfir eins sólarhrings verkfalli til þess að mótmæla sparnaðarráðstöfunum rikis- stjórnarinnar. Þessir tveir menn hafa borið mestan hita af samningaumleitunum að undanförnu. T.v er Tor Aspengren, formaður launþega- samtakanna, og t.h. er Knut Selvig, framkvæmdastjóri vinnuveit- endasambandsins danska. Hermdarverk hafín á ný IRA boðar nýja hríð, ef krðfur þeirra verða ekki uppfylltar Irar mega nú búast við enn einni öldu hryðjuverka, þar sem verzl- anir eru sprengdar i loft (á borð við þessa stórverzlun I Belfast, sem brann 8. marz), saklaust fólk myrt o.s. frv. Þinga um peninga Hermdarverkamenn úr irska lýðveldis- hernum (IRA) skutu eldflaugum að lögreglu- stöð i bænum Newton á Norður-írlandi i gær. Áköf skothrið var hafin, og var einn árásar- mannanna felldur. Talsmaður brezkra sagði, að skotið hefði verið á lögreglu- stöðina frá tveim hliðum, og hefði skothriðin staðið rúmar fimm minútur — án þess þó að nokkur inni i lögreglustöðinni hefði orðið fyrir skoti. Þá var ráðizt einnig á þrjár varðstöðvar brezkra hermanna á N-frlandi i gær með skothrið, en enginn særðist. Hins vegar særðist brezkur her- maður, sem varð fyrir skoti frá leyniskyttum i kaþólska borgararhlutanum New Lodge i Belfast. — Siðar i gærkvöldi var sprengju varpað inn i kaþólskan klúbb, en enginn særðist, þótt skemmdir yrðu hins vegar miklar. Skammt frá klúbbnum fundu brezkir hermenn tvær skammbyssur og miklar birgðir skotfæra grafnar niður i kjallara- gólfi, og var húseigandinn hand- tekinn. Árásirnar á lögreglustöðina og varðstöðvar Breta komu eftir nokkuð hlé, sem verið hefur á hermdarverkum á Norður-lr- landi að undanförnu — þegar frá er talið morðið á hermönnunum tveim um helgina. Skömmu áður en eldflauga- skothriðin hófst, hafði einn af frammámönnum IRA, David 0’ Connel, lýst þvi yfir, að IRA mundi ekki gangast inn á vopna- hlé, fyrr en þeir hefðu fengið ákveðnar kröfur sinar uppfylltar. 1 blaðaviðtali upplýsti O’ Connell, sem er i hópi þeirra rót- tækustu, að IRA krefðist sjálf- stjórnar til handa irsku þjóðinni og að Bretar mundu ákveða þegar i stað þann dag, sem þeir verði á brott með hermenn sina úr landinu og að Stóra-Bretland sleppi úr haldi öllum föngum úr lýðvéldinu, sem hafðir eru i fang- elsum á N-írlandi. „Þar til þessar kröfur hafa verið uppfylltar, mun IRA halda áfram hermdarverkum sinum”, sagði 0’ Connell. Fjármálaráöherrar 20 landa hófu í gær tveggja daga ráöstefnu í Washington, þarsem leitaö skal að úrræðum til þess að tryggja alþjóðlega gjald- miðla. Ráðstefna þessi er haldin vegna gjaldeyriskreppunnar á dögunum, sem leiddi til þess, að Bandarikin urðu að fella gengi dollars og að önnur riki urðu að Fulltrúar sameigin- legs herráðs deiluaðil- anna i Vietnam flugu i dag til Hanoi til þess að lita eftir afhendingu 32 bandariskra striðs- fanga. Fangar þessir voru i haldi hjá þjóð- frelsishreyfingunni. Niu fangar aðrir, sem voru i haldi hjá Pathet Lao, skæruliða- hreyfingu kommúnista i Laos, verða látnir lausir á morgun ásamt 40 Bandarikjamönnum, sem eru i haldi i Norður-Vietnam. hafa gjaidmiðla sina á fljótandi gengi gagnvart dollarnum. Fjármálaráðherrarnir eru úr hinu svonefnda 20 landa-ráði, sem kemur fram i nafni þeirra 125 aðila, sem eiga hlut að alþjóða- gjaldey rissjóðnum. Ráðstefna þeirra að þessu sinni kemur einmitt i kjölfar áskorunar fjár- hagsnefndar Bandarikjaþings á Nixon forseta um að hafa samráð við stjórnir Japans, Vestur- Evrópulandanna og Kanada um framtið gjaldmiðla og verzlunar- viðskipta landanna. Enn verða þá eftir 67 banda- riskir striðsfangar, sem látnir verða lausir á fimmtudaginn. Siðdegis i dag hefst að nýju brbttflutningur bandariskra her- manna frá Vietnam. Með fyrstu -ferðinni fara 900 hermenn, og er búizt við þvi, að brottflutningnum verði lokið fyrir þann tima, sem kveðið var á um i vopnahlés- samningunum. Nixon forseti, sem hafði fyrir- skipað, að brottflutningurinn yrði stöðvaður i bili, aflétti þeirri stöðvun, þegar fulltrúar Pathet Lao lýstu þvi yfir, að Bandarikja- mennirnir nfu, sem þeir hafa i haldi, yrðu látnir lausir á morg- un. Herliðið á brott í tœka tíð Stúdentaróstur hafnar í París Götubardagar og skróp í skólum Mikil ólga hefur verið i stúdentum i Paris, allt frá þvi að götubardagarnir brutust út á fimmtudaginn. Hafa stúdentar ekki stundað námið siðan, skrópað i fyrirlestrum og kennslustundum og hafa farið hópgöngur til að mótmæla nýjum herkvaðningarlögum rikis- stjórnarinnar. Oeirðirnar brutust út þegar samin voru ný lög, sem drógu mjög úr lfkum háskólaborgara á að sleppa við herskyldu. Hingað til hafa námsmenn ekki verið teknir frá námi til þess að gegna herþjónustu — Stúdentar efndu til kröfugöngu á fimmtudag, án þess að hafa fengið leyfi fyrir henni, og var fjölmennt lögreglulið sent á vettvang til þess að dreifa hópnum. Til ofbeldisverka hefur ekki komið, en óánægja meðal stúdenta hefur ekki hjaðnað, og hafa þeir ekki mætt I kennslu- stundir siðan. Það var talið, aö nær 25.000 stúdentar hafi tekið þátt i óeirðunum á fimmtudag, þegar efnt var til kröfu- göngunnar, sem lögreglan siðan reyndi að dreifa. M i mmm í i amn

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.