Vísir - 23.07.1973, Side 1

Vísir - 23.07.1973, Side 1
Býður íslenzkri stúlku 450 þúsund fyrir nektarmynd — en hefur enn enga fundið Sjú bls. 2 Rœningja- höfðinginn var heróin- kóngur Asíu „Heróínkóngur Suöaustur- Asiu” er auknefniö, sem ræningjahöfðingi einn hefur hlotið, en hann hefur undir vernd 1000 manna einkahers getað í mörg ár farið sinu fram á „Gullna þrihyrningn- um” — svæðinu þaðan sem drýgstur hluti eiturlyfja frá Austurlöndum er framleiddur. En landamæralögregla Thailands hafði fyrir stuttu hendur I hári þessa stærsta eiturlyfjasala, sem yfirvöld hafa nokkurn tima komizt yf- ir. Sjá bls.6. Litlu KR- Ijónin urðu að Zebra dýrum — sjú íþróttir bls. 8-9, 10, 11 og 12 „Bílabelta- bingó" fer af stað Sjú bls. 3 Sól og úframsól Sjó baksíðu Frakkar sprengdu kjarnorku sprengju þrótt fyrir mótmœlin Sjó bls. 5 Geymdu tékk fram yfir hðgnuðust um 700 þús. Sveiflur ó þýzka markinu Mjög margir fóru lit úr bænum i gær og fyrradag. Þó ekki allir. Jórunn Ragnarsdóttir sat á þessum voidugu timburbjáikum er Vfsismenn bar að úti á Granda í gær. Hún var bara ánægð meö að vera I bæn- um, og sagöist láta sér góða veðriö innanbæjar nægja um þessa helgi. Auðvitað mætti slðar skreppa út úr bænum. Við mynduöum hana uppi á þessum gömlu og fúnu bjáikum, sem nú liggja þarna yfirgefnir, búnir aö sinna sinu hiutverki. —ÓH. Ljósm. Björgvin Páisson. Sjá Myndsjá úr góða veðrinu á bls. 2 og 3. VEIÐIBJALLAN GERIR USLA Á TJÖRNINNI í REYKJAVÍK Það fór illa fyrir anda- mömmunni, sem fór i gönguferð í vesturbænum með ungana sína 8. Það var talin hætta á að hún færi sér að voða þarna I umferð inni og reynt að handsama hana og ungana, en ekki tókst að ná henni, en hins vegar náðust ungarnir og var siðan farið meö þá niður á tjörn. Þar kom að veiðibjalla og hugsaði sér gott til glóðarinnar og byrjaði að týna upp ungana' og éta. Rafn Sigurðsson lögreglu- þjónn var þarna á ferð ásamt félögum sinum og margt var um manninn að njóta góða veðurs- ins og fylgjast með lifinu & tjörninni. „Það færðist heldur ókyrrð I áhorfendur við atburðinn, og ég hefði gjarna viljað skjóta veiði- bjölluna, en horfiö var frá þvi vegna hins mikla fjölda fólks, sem þarna var saman kominn,” sagði Rafn. Lögreglan ber ekki byssur á sér, svo að alla vega hefði það tekið nokkurn tima að ná i þær. Þegar veiðibjallan haföi nælt sér i 2 unga virtist hún vera búin aö fá nóg og öllum létti. Seinna kom svo andamamma niður á tjörn og þegar Rafn athugaði málið i morgun var hún þar að gæta sinna 6 unga. ' _EVI— hódegi Við fréttum af þeim úti i heimi spákaup- mönnunum, sem kaupa og selja gjaldeyri og græða stórfé þegar vel gengur. Eftir siðustu gengisbreytingu og þá ákvörðun Seðlabankans, að láta gengi islenzku krónunnar fljóta innan vissra marka, virðast vera að skapast nokkuð aðrar að- stæöur I gjaldeyrisviðskiptum heldur en áður hefur verið um langt skeiö. Þróun verðs á erlendum gjald- eyrihefur veriö mjög misjöfn eft- ir þvi hvaöa gjaldeyri um er að ræða. Bandariski dollarinn hefur fallið. Með gengishækkunum er- um við búnir aö vinna upp gagn- vart dollar gengisfellinguna, sem gerð var i desember síðast liðn- um. Otflytjendur, sem selt hafa> i dollurum, hafa þvi ekki fengið gengislækkun á islenzku krónunni gagnvart dollar svo neinu nemi, til að vega upp á móti kostnaðar- hækkunum hér innanlands. Um vestur-þýzka markið gegn- ir öðru máli, og hefur verð þess stöðugt veriö aö hækka og staða þess að styrkjast á gjaldeyris- mörkuðunum. Það fyrirkomulag, sem tekiö hefur veriö upp hér, að láta geng- iðfljóta innan vissra marka hefur haft þau áhrif hér, að nú er það mjög breytilegt, hvaöa verð færst fyrir markið þegar það er selt hér I gjaldeyrisbönkunum og getur munað miklu frá einum degi til annars. Til dæmis má taka, að 3. þessa mánaðar var markið skráð 36,49 krónur fyrir hvert mark, en þrem dögum siðar var það komið upp i 38,12 krónur. Það hefur siðan sveiflazt upp og niður og munu þess dæmi að þeir aðilar, sem selja hér gjaldeyri, hafi bæði tap- að og hagnazt verulega á gengis- sveiflunum. Við vitum þess dæmi, aö ein- stakir seljendur hafi hagnazt um allt að 700 þúsund krónur á þvi að draga það framyfir hádegi að fara með allstóra ávisun, sem var i þýzkum mörkum. Islenzkir inn- óg útflytjendur þurfa að „spá” i gengið og mikið tap eða mikill gróði hefur fengizt á skömmum tima eftir þvi, hvernig tekizt hefur til. —ÓG Mat á eignum flugfélaganna tekur nokkra múnuði Mat á eignum Flugfélags ts- lands og Loftleiöa hefur ekki farið fram ennþá, og enn er ekki ákveðið hverjir muni skipa nefnd þá, sem siðar mun meta eignir félaganna. Sveinn Sæmundsson, biaðafuiltrúi Fiugfélagsins, sagði biaðinu i morgun, aö 1. ágúst yrði fyrsti stjórnarfundur Fiugleiða h.f. haldinn og þá myndi mats- nefnd væntanlega taka til starfa. Er gert ráð fyrir, að það muni taka nokkra mánuði að meta eignir félaganna, en miðað verður við stöðu eigna og hlutafjár 1. ágúst. Er geysi- legt verk að meta eignirnar en sem kunnugt er eiga Loftleiðir allmikiar fasteignir, en Flug- félagið meiri fiugvélakost. —ÞS

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.