Vísir - 23.07.1973, Síða 2

Vísir - 23.07.1973, Síða 2
2 Visir. Mánudagur 23. júli 1973. SjíSS , KEISARANUM ÞAÐ risBffir Ertu ánægð(ur) með strætis- vagnakerfið? Helgi Felixson, ncmi: — Ég er Kópavogsbúi, og þar mætti ástandið vera betra. T.d. eru oi strjálar ferðir á morgnana, það liða 45 minútur á milli ferða, og svo vantar algjörlega ferðir innan bæjarins, á milli austur- og vesturbæjar. Asbjörn Þórðarson, netamaður: — Ég kann ágætlega við það, strætóferðir passa akkúrat fyrir mig til að komast á tuttum tima i vinnuna. Ég læt mér strætó nægja sem ferðatæki. Ituth Petersen, húsmóðir:— Alls ekki, ég bý i Kópavogi, og er ekki ánægð með strætisvagnana þar. I þau 10 ár, sem ég hef búið þar, hefur alltaf vantað strætó, og ferðirnar eru of strjálar, þótt það eigi vist að fara að batna eitthvað núna. (luðbjörg Sveinsdóttir, húsmóðir: — Ég hef yfir engu að kvarta, ég ferðaðist mikið með strætó, og er ánægð. SEM KEISARANS ER Bankarnir, sem til skamms tima greiddu ekki opinber gjöld, greiða landsútsvar samkvæmt breytingum, sem gerðar voru á skattalögunum i fyrra. Bönkunum ber að greiða 1% af mismuni heildarinnláns- og heildarútlánsvöxtum sinum. Bankarnir greiða eftirfarandi: Þúsund krónur Landsbankinn 3.744 Seðlabankinn 1.806 Útvegsbankinn 1.210 Búnaðarbankinn 1.163 Samvinnubankinn 438 Verzlunarbankinn 372 Iðnaðarbankinn 366 Alþýðubankinn 104 I þessum friða hópi nýtur Seðlabankinn nokkurrar sér- stöðu, þar sem viðskipti hans snúa aðeins að öðrum bönkum og lánastofnunum. Eftir þessum tölum að dæma ætti Landsbankinn að hafa umráð yfir um það bil 51% af þvi fjár- magni, sem i út og innlánum er hjá viðskiptabönkunum. Hann mun þó ekki hafa nema 45% af heildarf jármagni bankanna, samkvæmt upplýsingum Jónasar H. Haralz, bankastjóra i VIsi i gær. Landsbankinn sker sig þó al- gjörlega úr en Útvegsbankinn greiðir 16,3%, Búnaðarbankinn, 15,7%, Samvinnubankinn 5,4%, Verzlunarbankinn 5,1%, Iðnaðar- bankinn 4,9%, og Alþýðubankinn 1,5%. Þó þessar hlutfallstölur segi ekki nákvæmlega til um hlut þeirra i inn og útlánsfjármagni, munu þær gefa nokkuð glögga mynd af stöðunni eins og hún var á siðasta ári. —ÓG Gerður lljaltalin, húsmóðir og verzlunarmær: Já, og nei, ástandið er gott i bænum, en slæmt var það i Breiðholti þar sem ég bjó, en er nú vist að batna, en nú bý ég hjá Rauðavatni, og þar býr margt fólk, en þangað kemur enginn strætó, og maður þarf að ganga niður i Arbæjar- hverfi til að komast i strætó. Ralph Hannam, verzlunarfulltrúi I brezka sendiráðinu: Nei, það er miklu verra en áður, þá komst ég á einum strætó að heiman i vinn- una, en þarf nú að taka tvo. Annars á ég bil, og nota ekki strætó nema þegar hann fer á verkstæði. I SOL OG SUMARYL! Ovenjulegt. Það var sól um helgi hjá okkur sunnanmönnum. Slíkt hefur varla gerzt í manna minnum í langan tíma. Flestir notfærðu sér tækifær- ið og þeystu út úr bænum í leit að grænum mó og lækjarsprænu. Nokkrir urðu eftir í bænum og létu sér nægja sólina, sem þar var. Visismenn fóru viða um bæinn í fámenninu í gær- dag. Fólk sást hér og þar á stangli og þetta var allt saman ágætisfólk. Við hittum m.a. nokkrar bráð- fallegar stúlkur, sem voru á rölti, Hjálpræðisherinn á Lækjartorgi og kátt fólk í sundlaugunum. Verið var að mála hér og þar. Að sögn lögreglunnar var geysimikill straumur bíla út úr bænum, og svo aftur til baka í gærdag. —ÓH Ljósmyndir: Björgvin Sundlaugarnar voru sennilega vinsæiasti staðurinn innanbæjar i sólinni I gær. Þetta unga fólk sat uppi á áhorfendapöllum Laugar- dalslaugarinnar og sóiaði sig sem mest það mátti. Mála, mála, mála. Þótt margir hafi fariö út úr bænum um helgina, voru samt nokkrir eftir til að halda áfram við það málningaræði, sem hefur gripið borgarbúa, þar á meöal þessi unga stúlka. Þessar kátu stúikur voru meðal þeirra sem ekki fóru út úr bænum um helgina, en hvað þær voru að gera, vitum við ekki.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.