Vísir - 23.07.1973, Síða 3
Visir. Mánudagur 23. júli 1973.
3
Hjálpræðisherinn var með samkomu á Lækjartorgi um miðjan daginn I gær. Þar var sungið og beðiö
af mikilli innlifun, og talsverður hópur manna safnaðist saman til aðhlusta og horfa.
Steinunn Maria heitir hún, og var að labba um í góða veörinu í gær ásamt frænku sinni. Við hittum
þær niðri i miðbæ, þar sem þær hlýddu á Hjálpræðisherssamkomuna. Hún er 17 ára menntaskóla-
nemi, og sagðist aiveg eins njóta þess að labba um ibænum, eins og að vera aö þeysast út I sveit,
Bílabeltabingó
— verðloun 1500 lítrar
Næstu fimm helgar verður
tekin upp líýbreytni I sambandi
við notkun bilbelta. Er hér verið
að hvetja ökumenn og farþega
til þess að nota bflbeltin, og er
um að ræða eins konar ,,bil-
beltabingó.”
Það er þvi eins gott fyrir is-
lenzka ökumenn að drifa sig i að
nota bilbeltin hvenær sem færi
gefst, bæði til þess að geta tekið
þátt i bingóinu, og svo er ekki
svo litið i boði. Það má bæði
spara lif og limi og svo benzin
með þvi að vera þátttakandi.
Verðlaun eru 1500 litrar af
benzini. Vinningurinn er að
verðmæti 31.500 krónur og ætti
að nægja meðalfjölskyldu allt
árið.
Leiknar verða sex umferðir,
ein um hverja helgi, nema um
verzlunarmannahelgina, en þá
verða leiknar tvær umferðir. Er
einn vinningur fyrir hverja um-
ferð.
Bingó þetta er á vegum um-
ferðaráðs i samvinnu við lög-
reglu og 7 tryggingafélög, en
það eru tryggingafélögin sem
gefa vinningana.
í útvarpsþáttum um umferð-
ina, sem eru á laugardögum frá
klukkan 17.15-18 verða svo lesn-
ar upp nógu margar tölur til
þess að einhver fái bingó. Seðl-
ana ber siðan að senda til Um-
ferðarráðs, en vinningar verða
birtir i útvarpi og dagblöðum.
Dreifing á bingóseðlum hófst i
gær en dreift verður áfram frá
sunnudegi til laugardags i dreif-
býli og þéttbýli og verður dreift
eftir umferðarmagni á hverjum
stað, þannig að mestu verður
liklegast dreift hér á Suðvestur-
landi.
Pétur Sveinbjarnarson fram-
kvæmdastjóri Umferðarráðs
tjáði okkur i morgun, að slik til-
raun sem þessi hefði gefizt vel,
t.d. happdrættið i fyrra, og
kvaðst vona að þetta hefði sin
áhrif og væri hvatning til öku-
manna og farþega um að nota
bilbeltin. —EA
014199
4
,Leita að fallegum
stöðum og stúlkum'
— segir Ijósmyndari Playboy, sem enn hefur ekki fundið
neina islenzka,
þótt 450 þús.
séu í boði
Það er til einhvers að vinna að
verða Ijósmyndafyrirsæta fyrir
„Playboy". livorki ineira né
minna en 5 þús. dollara eða
u.þ.b. 150 þús. kr. fá þær, ef þær
eru fyrirsætur að stóru mynd-
inni sem er brotin saman og heft
inn i blaðið.
Við ræddum við Pompeo Pos-
ar, sem er ljósmyndari fyrir
„Playboy”, og dvelst nú hér á
landi i nokkra daga á leið sinni
til Evrópu.
„Mig hefur alltaf langað að
stoppa á Islandi bæði af þvi að
við höfum frétt að hér séu
margar fallegar stúlkur og eins
vegna fegurðar landsins. Alltaf
er verið að leita að fallegum
stöðum til að hafa sem baksvið
mynda okkar og það er gaman
að fá eitthvað ólikt þvi sem við
höfum áður haft”, sagði hann.
Pompeo Posar er frá Italiu,
en hefur verið i Chicago i
Bandarikjunum i 14 ár. Hann er
einn af þeim, sem hefur tekið
flestar stóru myndirnar fyrir
„Playboy”. Ferðast hann viða
um heim og var t.d. i fyrra i
Þýzkalandi, þar sem tvær stúlk-
ur sem hann hitti voru valdar úr
og var þeim báðum boðið til
Chicago til þess að verða fyrir-
sætur önnur fyrir „Playboy” og
hin fyrir timaritið „Qui”.
Sú stúlka, sem er vinsælust
„Mig liefur alltaf iangaö að koma lil íslands".
eftir árið.af fyrirsætunum fær
að auki greiddar um 450 þús. kr.
og um 900 þús. kr. virði i bil,
sjónvarpi, útvarpi klæðnaði og
eiginlega öllu milli himins og
jarðar.
Þar að auki fá stúlkurnar
heilmikið af bréfum með alls
konar atvinnutilboðum t.d. um
að leika i kvikmyndum eða vera
fyrirsætur og að auki fá þær
mörg giftingartilboð.
Það þarf að hafa drjúgan
skilding i tekjur til að geta aug-
lýst i „Playboy” þvi að aug-
lýsing á eina siðu kostar um 3
millj. og 700 þús., en blaðið
kemur út i 7 milljón eintökum.
Ljósmyndari sem hefur að-
stöðu til að fullvinna stóra mynd
fyrir blaðið ásamt viðtali við
fyrirsætuna fær um 540 þús. kr.
fyrir og allan kostnað borgaöan
að auki.
Pompeo Posar hefur þegar
bragðað marga islenzka rétti
t.d. lax, rækjur, hval og skyr
og hlakkar mikið til að smakica
hákarlinn okkar. Hann er búinn
að fara Þingvallahringinn og i
dag ætlaði hann m.a. að fara til
Gullfoss og Geysis. Svo langaði
hann til að kaupa sör eina af
þessum íallegu lopapeysum
sem búnar eru til á Islandi og
aðra fyrir konu sina ásamt
þessum skemmtilegu lopasokk-
um og sagðisl hann oft láta
fyrirsæturnar klæðast ýmsu þvi
óvenjulega, sem hann lyndi á
ferðum sinum um heiminn.
Hann var mjög ánægður með
ferð sina hingað og ekki siður
með veðrið og sagðist ábyggi-
lega eiga eftir að koma aftur.
Ekki sagðist hann samt hafa
fundið neina stúlku ennþá, enda
væri hann ekkert siður að svip-
ast um eltir lallegu landslagi,
en fallegri stúlku. —EVI—
Ný komnar
sumarpeysur og
sumorkjólar.
Velúr buxnasett
Tízkuverzlun ungu konu
Kirk juhvolí Simi 12114
Fékk glas
í andlitið
Ungur piltur skarst inikið í and-
liti er glasi var fleygt framan i
hann á Röðli á laugardagskvöld-
ið. Glaskastið kom til af þvi að
eiginmaður stúlku taldi, að hann
og annar piltur væru að „kássast
upp á” hana.
Voru þeir að káfa á henni, ofan i
hálsmálið og viðar. En eiginmað-
ur stúlkunnar, sem er útlending-
ur, var nærstaddur, og reiddist
hann mjög mikið er hann sá að-
farir piltanna, með þeim afleið-
ingum að glasið flaug i andlit
annars þeirra. Hann skaddaðist
mikið i andlitinu, og var fluttur á
slysavarðstofuna.
Lögreglan tók skýrslu i málinu,
en enginn var handtekinn.
— ÓH.