Vísir - 23.07.1973, Side 4
4
Vísir. Mánudagur 23. júli 1973.
UTLÖNDUTLÖND ÚTLÖND UTLÖND ÚTLÖND UTLÖND ÚTLÖND ÚTLÖND ÚTLÖND
Kanada hœtti
Kanadiska sendi-
nefndin i alþjóða friðar-
gæzluráðinu i Vietnam
dró sig i hlé úr ráðinu
siðdegis á laugardag.
Allir kanadiskir vopna-
hléseftirlitsmenn eiga-
að verða á brott innan
næstu tiu daga.
Þetta mun leiða til þess að
starfsemi ráðsins mun lamast,
meðan ennþá hefur ekki fundizt
neitt ríki, sem taka vill að sér aö
skipa sæti Kanada.
Það hefur verið tilkynnt um
harða bardaga á Mekongsvæðinu,
og samkvæmt frétt yfirstjórnar
hersins i Saigon, missti stjórnar-
herinn tfu menn i þessurn bardög-
um, meðan 35 skæruliðar voru
felldir.
Nú munu hefjast á nýjan leik
g œzlu
fangaskipti Víet Cprig óg Saiogon-
stjórnarinnar, og hefur Saigon-
stjórnin ákveðið að láta lausa 2000
fanga i skiptum fyrir rúma 600,
sem Þjóðfrelsishreyfingin mun
sleppa. Fangaskiptunum á að
verða lokið fyrir 28. júli.
Talsmaður stjórnarinnar i Sai-
gon segir, að úr liði stjórnarhers-
ins sé saknað 30.000 manna, sem
Þjófrelsishreyfingin hafi ekki
gefið upp á listum yfir stríðsfanga
sína.
KRAKKAR LITIÐ SJALF Klippið hér meófram.S' LitiÓ síóan myndina eins
og ykkur finnst fallegast.^í^gpÞegar því er lokió, getió þió fest auglýsinguna My
upp á vegg, eóa notaó ®^^^nana í næsta/^búóarleik. Nú eruó þió búin aó æfa
ykkur svo vel og getió þess vegna reynt aó^gera auglýsingu sjálf til aó segja frá
nýja Emmess klakanum og aö bananatoppurinn sé núna meó karamellusósu.
Sendió auglýsingarnar, sem þió gerið, ásamtV ^mióanum hér í horninu, /
til Emmesspósthólf 635, Reykjavík. Vió drögum úr innsendum /
mióum og hinir 200 heppnu fá send stór plaköt frá Emmess. /^,
Hér sést bilalest þúsund Libýu-
manna fara í gegnum Tripóli á
leið til Egyptalands, en tak-
markiö var að aka um götur
Egyptalands til að mótmæla
ákvörðun Sadats Egyptalands-
forseta um að fresta samein-
ingu Egyptalands og Libýu.
Gangan
stöðvuð
Um 40.000 Libýumenn, sem
stefndu i langri lest til Egypta-
lands, urðu að snúa við á laugar-
dag, eftir að Egyptar höfðu sett
upp vegartálma til að hindra
þessa pilagrimsför.
Fyrri tilraunir svo sem eins og
að sprengja upp vegarkafla,
höfðu ekki stöðvað þessa lest
einkabila, vörubila og strætis-
vagna, en þegar heilli járn-
brautarlest var stillt þvert á veg-
inn urðu Libýumenn að gefa sig.
— 21 fulltrúi úr þessum hópi fékk
þó að ganga á fund Sadats forseta
Egyptalands of færa honum orð-
sendingu libýsku þjóðarinnar
skráða i blóði.
Reyndi
flótta
— fékk svo
fararleyfi
Austur-Þýzkaland tók þá
óvenjulegu ákvöröun, aö
leyfa átján ára unglingi,
sem á föstudag hafði gert
misheppnaða tilraun til að
flýja vestur yfir, að fara til
Vestur-Berlínar.
En það er margra hald, að
austurþýzk stjórnvöld hafi leyft
manninum að fara til þess að af-
sanna ásakanir um, að maður
hefði verið skotinn til bana af
landamæravörðum á föstudag,
þegar hann reyndi að flýja yfir
múrinn, sem aðskilur vestur- og
austurhluta Berlinar.
Þetta erfyrsta sinni, sem Aust-
ur-Þýzkaland hefur gengizt inn á
það, að láta Austur-Þjóðverja
ferðast vesturyfir, eftir að sá
sami hefur gert misheppnaða til-
raun til flótta.
Flóttamaðurinn, sem heitir
Klaus Gomert og er flutninga-
verkamaður, skýrði fréttamönn-
um svo frá, að skotið hafi verið á
hann, þegar hann reyndi að flýja
á föstudag, en hann hafi ekki orö-
ið fyrir skoti. Hann sagðist hafa
legið á jörðunni nokkrar sekúnd-
ur hreyfingarlaus þar til landa-
mæraverðirnir komu að honum.
A hinn bóginn ber honum ekki
saman við lögregluna i Vestur-
Berlin varðandi það hvenær þetta
skeði. Hann segist hafa reynt, að
flýja klukkan tiú um kvöldið, en
lögreglan segir, að skothriðin hafi
verið kl. eitt eftir miðnætti.
Gomert visar á bug öllum frétt-
um um, að nokkur hafi verið
drepinn i þessari flóttatilraun.