Vísir


Vísir - 23.07.1973, Qupperneq 5

Vísir - 23.07.1973, Qupperneq 5
Visir. Mánudagur 23. júli 1973. 5 AP/NTB ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson 3/4 telia Nixon • X viorioinn Watergate Ni&urstaöa skoöanakönnunar, skýrir frá þessari könnun, þar sem birt var i dag, sýnir, aö þrir sem 9% telja, aö Nixon hafi átt af hverjum fjórum Bandarikja- þátt i skipulagningu hlustunar- mönnum telja aö Nixon hafi veriö njósnanna i Watergatebygging- viö Watergatemáliö riöinn. En , unni, meöan 30% telja, að hann aöeins 24% þeirra, sem spurðir hafi vitað um máliö og 34% telja, voru, eru þeirrar skoðunar, aö aö hann hafi einungis tekið þátt i hann ætti að vikja úr embætti. að reyna að hylma yfir þaö. Stórblaðið Washington Post Enginn kannast við félagsskap flugrœningjanna t þrjár nætur hafa farþegar og áhöfn japanskrar farþegaflugvéL- ar, sem rænt var aöfaranótt laugardags, mátt kúldrast inni i flugvélinni á Dubaifiugvellinum við Persaflóa. Óttast menn, að kæfandi hitinn og óloftiö inni i vél- innikunni að riða fólkinu að fullu. En flugræningjarnir, fimm arabiskir skæruliðar, segjast biða eftir frekari fyrirmælum frá stjórnendum sinum og hafa þeir ekki sett fram neinar kröfur eða skilmála fyrir þvi að sleppa gisl- um sinum. — En skæruliðasam- tök Araba hafa ekkert viljað ennþá við mennina eða flugránið kannast, og reyndar ekkert Arabarikjanna. Flugræningjarn- ir segjast þó heyra til samtökum, sem nefni sig „Syni Palestinu”, en enginn hefur heyrt þess félags- skanar getið. GeimfararRússa œfa aðferð USA Rússneski geimfarinn, V.N. Kubasov, flugverkfræðingur, svaml- ar hér á myndinni að ofan i sjónum hjá hylki Soyuzgeimfars, sem marar I hálfu kafi. — Hann er aö æfa björgun úr lendingarhylki Soyuzgeimfarsins af sjó, vegna fyrirhugaðrar sameiginlegrar geimferðar Bandarikjanna og Rússa árið 1975. Bandarikjamenn hafa lent sinum geimförum öllum i sjó, en Rússar hafa fram til þessa ávallt lent þeim i fallhlif á þurru landi. En björgun af sjó er þeim ný tækni, sem æfð verður i þaula, áður en hin stóra stund renn- ur upp. Slikur loftbelgur sást á lofti yfir Mururoaeyju i siöustu viku og hangandi neðan í honum tæki — notað til kjarnorkusprengjutilrauna. Þessa mynd sendu Frakkar sjálfir frá sér eftir tilraunirnar 1971. Frakkar sprengdu kjarnorkusprengjuna Ráðuneytisstjóri franska varnarmála- ráðuneytisins, Fould, skýrði fréttamönnum frá þvi seint i gær- kvöldi i Papeete á Hahiti, að sprengd hefði verið i tilrauna- skyni kjarnorku- sprengja við Mururoa- kóralrifin i Kyrrahafi á laugardag. Nákvæmlega tiltekið var til- raunasprengingin gerö kl. 18 á laugardag að islenzkum tima. Virðist sprengingin ekki hafa komið fram á mælum freigát- unnar Otago, né annars staðar þvi að ekkert hafði kvisazt út um hana, fyrr en ráðuneytis- stjórinn skýrði fréttamönnum frá henni i gærkvöldi. — En fastlega haföi verið við þvi bú- izt, að Frakkar notuðu sér hag- stætt veðrið um helgina eftir að hafa frestað tilraununum tvisv- ar áður. Frönsk blöð gagnrýna Astraliu og Nýja-Sjáland mjög fyrir mótmælin gegn tilraununum og kalla þau framkomu stjórn- valda þessara rikja „móður- sjúka”. Eftir að frönsk herskip drógu skonnortuna FRI út af hættu- svæöinu, var ekki vitað með vissu um fleiri slikar mótmæla- fleytur innan 72 milna linunnar, nema ný-sjálenzku freigátuna Otago, sem lá rétt utan viö tólf milna landhelgi Mururoa-eyjar, þegar tilraunasprengingin var gerð. — Eins og fram hefur komið i fréttum var hún send á þessar slóðir til þess að reyna að hindra með veru sinni á hættu- svæðinu að kjarnorkusprengjan yrði sprengd. Um borð i Otago er einn ráöherra Nýja-Sjálands. Freigátan er nú á leið út af hættusvæðinu til þess að taka eldsneyti af birgðaskipi, sem statt er skammt utan við 72 mllna linuna. En áhöfn skipsins hefur tilkynnt aö veður á svæö- inu sé svo óhagstætt að Frakkar verði að likindum að hætta við frekari tilraunir aö sinni. Hefur freigátan þvi tekiö stefnu heim á leið til Wellington. Eldrauð lítil hafmey Það á ekki af Litlu hafmeyjunni að ganga, þar sem hún situr á klettinum við höfnina i Köben. í siðustu viku komu menn að henni einn morguninn útataðri i rauðri skipamálningu. Myndin hér við hliöina var tek- in, þegar unnið var að þvi að ná af henni rauðu málningunni, sem gekk hreint ekki of greiðlega. — Lögreglan hefur ekki fundið neitt, sem bent gæti til þess, hver verk- ið hefði unnið. Hér fyrir nokkrum árum var einhver, sem réðst að þessari heimsfrægu styttu og sagaði af henni höfuöið. Sem betur fer gátu menn tekið afsteypu af frum- myndinni og gert nýtt höfuð á Litlu hafmeyjuna. En aldrei tókst lögreglunni i það sinnið heldur, að hafa upp á skemmdarvargnum.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.