Vísir - 23.07.1973, Side 20
visir
Mánudagur 23. júli 1973.
Aðför að
öldruðum
manni
Tveir unglingspiltar
veittust á hinn grófasta
og ruddalegasta hátt að
öldruðum manni á
laugardagsnóttina.
Maðurinn, sem er hálfsextugur,
var á gangi á Barónsstignum,
nálægt Laugavegi, þegar tveir
piltar komu að, og byrjuðu að
veitast að honum. Var það fyrst
og fremst með ógeðslegu orð-
bragði og hrindingum. Einnig töl-
uðu þeir sin á milli um hvort þeir
hefðu ekki örugglega hnif með
sér, og annað i þeim dúr. Maður-
inn átti ekki auðvelt með að verja
sig, en náði þó að hringja bjöllu á
dyrasima i húsi þar rétt hjá og við
þaðhypjuðu piltarnir sig á brott.
Maðurinn meiddist ekki i
þessum stympingum, en var
ákaflega miður sin á eftir, og
var það aðallega tal piltanna sem
hræddi hann. Einnig týndi hann
hatti sinum i átökunum.
— 011.
,Stöðvið
Seðlo-
banko-
bygg-
inguna'
- Lesendur senda
Vísi peninga
Æ fleiriláta heyra i sér varðandi
Seölabankabygginguna og nú
höfuin viö hérna á ritstjórniimi
fengið bréf ásaint peningum i
söfnun, sem skal nefnast
„Stöðviö Seðlabankabygging-
una”.
Verkamaður við höfnina og
kona hans sendu okkur þetta
bréf, ,en þar segir m.a.:
„Við hjónin höfðum ákveðið
að fara austur á Þingvöll um
næstu helgi, en farið kostar
fram og til baka 660 krónur fyrir
okkur bæði. Við höfum nú
ákveðið að gefa þessa peninga i
söfnun sem heitir „Stöðvið
Seðlabankabygginguna” á
Arnarhóli. Vona ég að fleiri
komi á eftir, sem leggi í söfnun-
ina.
1 stað þess að fara austur á
Þingvöll ætlum við á sunnudag-
inn niðurá Arnarhól og njóta út-
sýnis þar.” Blaðið geymir þess-
ar 660krónur, ef einhver samtök
yrðu stofnuð i þessu skyni.
í morgun barst okkur annað
bréf vegna Seðlabankans, en
það er skrifstofumaður, sem
sendir okkur 1000,- krónur og
stingur upp á þvi að Reykvik-
ingafélagið gangist fyrir söfnun,
til að vinna gegn þvi að væntan
legt Seðlabankahús verði reist á
Arnarhóli. Við sameinum nú
þessa fjármuni og munum siðan
hafa samband við Reykvikinga-
félagið og afhenda þvi væntan-
lega peninga, eða öðrum þeim
sem áhuga hafa á söfnun eða
samtökum vegna bankabygg-
ingarinnar.
ÞS
Fiskurinn betri
Fiskur, sem kom á land
á síðustu vetrarvertíð,var
mun betri heldur en sá
sem landað var á sama
tíma í fyrra, samkvæmt
mati Fiskmats ríkisins á
netafiski.
I 1. gæðaflokk fóru rúm 56% á
siðustu vertið, en það er rúm-
lega 4% meira heldur en i fyrra.
I þessum tölum Fiskmatsins
er fiskur, sem landað var á
aðalnetasvæöinu eða frá Horna-
firði til Stykkishólms.
Samkvæmt töflum Fiskmats-
ins hefur fiskur, sem landaö er i
Stykkishólmi verið að stærstum
hluta i 1. gæðaflokki eða 65,2% i
1972, og 68,1% i ár. Athyglisvert
er, að afli, sem á land berst við
Breiðafjörð, viröist i betra ásig-
komulagi heldur en sá afli, sem
landað er annarsstaðar.
/ w
i ar
Gæöi fisksins hafa þó yfirleitt
batnað og mest i Vogum á
Vatnsleysuströnd, en þar fór að-
eins 45% aflans i 1. flokk á
vertiðinni 1972,en tæp 63% i ár.
—OG
A meöan ekkert liefur veriö ákveðið um framtiö Seölabankahússins, er unnið af kappi viö grunninn. Veröa þvi fyrirsjáanlega miklir peningar
að litlu, cf þcssar framkvæmdir veröa stöövaöar, en bankaráö hefur enn ekki þingaö um máiiö.
Bankaróð hefur ekki komið saman
— þingar með Framkvœmdastofnun seinna í vikunni
„íig get ekkert sagt um áfram-
hald byggingar Seðlabankans,
þar sem bankaráð hefur ekki
komiö saman nýlega. Fram-
kvæmdirnar munu þvi halda
áfram á ineöan ekkert annaö er
ákveöið”, sagöi Ragnar ólafs-
son, formaður bankaráös Seöla-
bankans i viðtali viö blaðiö I
morgun.
Ragnar sagði ennfremur að
gert væri ráð fyrir, að bankaráð
myndi ræða við stjórn Fram-
kvæmdastofnunarinnar siðar i
vikunni, en ekkert væri hægt að
segja um það að svo stöddu, hvað
út úr þeim viðræðum kæmi. Þá
spurðum við Ragnar, hvort gera
mætti ráð fyrir að bankaráð tæki
tillit til radda almennings um
þetta mál og vildi hann ekki full-
yrða neitt um það en sagði: „Það
er nú svo með raddir almennings
að það er svo erfitt að ná i þær”. 1
morgun var unnið af kappi við
framkvæmdir á Arnarhóli og er
nú byrjað að sprengja fyrir
grunni byggingarinnar.
Hvað gert verður við grunninn,
ef framkvæmdirnar verða
stöðvaðar, verður framtiðin að
skera úr um. — ÞS.
EINN BEZTI DAGUR SUMARS
— og blíða ófram — Umferð mikil út úr bœnum um helgina
Einhverja náð og
miskunn hafa veður-
guðirnir veitt okkur að
undanförnu, og ekki er
útlit fyrir annað, en að
þeir muni gera það enn
um sinn.
Flestir hverjir gátu notið
veðurbliðunnar um helgina.
Sumir brugðu sér á bilnum eitt-
hvað út fyrir bæinn og lögðust i
hreint gras, sem ryk borgarinn-
ar nær ekki til. Aðrir höfðu það
eins gott heima hjá sér og sól-
uðu sig á svölunum eða i garðin-
um.
Nú svo var svo sem nóg um aö
vera fyrir utan bæinn, til dæmis
voru hestamannamót á Rangár-
völlum og útihátið að Svartengi
við Grindavik. Hjá umferðar-
lögreglunni fengum við þær
upplýsingar aö umferö heföi
verið geysimikil út úr bænum,
og sérlega fjölmennt var á
Þingvöllum og I Hverageröi. Og
svo var nóg af sveitadansleikj-
um um helgina.
Páll Bergþórsson veður-
fræðingur tjáði okkur að hlýjast
hefði verið á Hellu um helgina,
eða 23 stig. Viöast hvar annars
staðar var hitinn þó fyrir neöan
20 stig, og hér i Reykjavik var
hann 13,5 stig i gærdag.
Þetta var þvi ekki heitasti
dagur sumars, en hann var þó
einn sá fallegasti eins og Páll
komst að orði, og einn af þeim
beztu.
Stillt veður er um allt land og
við höldum þessu bliðviðri
áfram, að minnsta kosti hérna I
höfuðborginni. Skýin sem lögð-
ust yfir I nótt eru nú að eyðast og
viö hreppum liklegast sólskin og
bliðu I dag.
—EA
HREINDÝRIN
Leyft að veiða helming?
Nýlega var lokiö talningu á
hreindýrum I landinu, og kom i
Ijós samkvæmt henni, aö þau eru
um 3300. 1. ágúst n.k. hefst hinn
leyfilegi veiöitimi og haföi áöur
en talningin fór fram veriö gefiö
út leyfi fyrir veiðum á 1510
hreindýrum, sem er mun hærri
tala en veriö hefur leyfö undan-
farin ár. Er þvi Ijóst, aö sam-
kvæmt þessu leyfi má veiða nær
helming allra talinna hreindýra I
landinu.
Blaðið hafði I morgun samband
við Knút Hallsson.skrifstofustjóra
I menntamálaráðuneytinu, og
ságði hann, að bændur teldu að
dýrin væru milli 4 og 5 þúsund
þótt við talningu kæmu ekki fram
nema 3300 dýr. Sagði hann, að
væntanlega yrði ákveðið fyrir 1.
ágúst hvort halda ætti hinni
ákveðnu tölu um veiði dýranna,
eða hvort hún yrði lækkuð. Til
þessa hefur ekki verið veitt upp i
vera annað hvort betur gefnir eða
búa á annan hátt viö betri aöstööu
en unglingar úti á landsbyggö-
inni, ef marka má skýrslu, sem
Landsprófsnefnd sendi nýlega frá
sér.
I þessari skýrslu eru sett fram
meðaltal einkunna i hverri ein-
stakri grein landsprófs miðskóla
1973. Er þar annars vegar meðal-
leyfða tölu, en hreindýraveiðar
eru ekki leyfðar sem sportveiðar,
heldur eru sérstakir menn I
tal einkunna af Reykjavikur-
svæðinu og hins vegar meðaltalið
af skólum utan þessa svæðis. t
ekki einni einustu grein, sem
kennd er, fá börn úti á lands-
byggðinni jafnhátt meðaltal og á
Reykjavikursvæðinu.
í sumum greinum er ótrúlega
mikill munur á milli þessara
svæða t.d. i ensku. A Reykjavik-
ursvæðinu er meðaleinkunnin 6,3,
en úti á landi er hún ekki nema
5,8. Þarna munar 5 kommum,
hverjum hreppi við veiðarnar og
fá þeir leyfi frá ráöuneytinu.
— ÞS.
sem er ekki svo litið,ef tekið er til-
lit til, að þetta er meðaltal.
Munur er meira að segja tals-
vert mikill á aðaleinkunnum.
Reykjavikursvæðið hefur 6,2 i
aðaleinkunn, en landsbyggðin 5.9.
Landspróf er samræmt um allt
land og ein nefnd fer yfir prófin.
Skýringin gæti verið sú að þessi
mismunur liggi i miklum að-
stööumun, þessara tveggja hópa.
— ÓH.
Borgarbörnin gáfaðri?
Unglingar( sem eru búsettir i
Reykjavik og nágrenni hljóta aö