Vísir - 07.08.1973, Side 1
63. árg. Þriðjudagur 7. ágúst 1973 — 178. tbl.
UFIÐ I „DRAUGA-
BORGINNI" REYKJAVÍK
Sjá grein Björns Bjarman á bls. 3
Þjóðareinin g
um 200 mílur!
Þjóðareining um 200 milna
fiskveiöilögsögu á nú að taka
við af þjóðareiningunni um 50
milna lögsöguna, vegna þess
að ástandiö i heiminum hefur
breytzt á þann veg, að mjög
góðar horfur eru á, að 200
milna fiskveiðilögsaga veröi
bráðlega að alþjóðalögum.
Rökrétt afleiðing af
breytingunum, sem hafa orðið
á alþjóðavettvangi er, aö við
eigum að bcina kröftum okkar
sem mest að framgangi 200
milna. Viö eigum nú þegar að
Iýsa því yfir, að við tökum
okkur 200 milur um leið og
hafréttarráðstefnan tekur
ákvörðun um slika fiskveiði-
lögsögu.
Svo segir i leiðara blaösins i
dag. Sjá bls. 6
* * *
Góð steypa
úr mold?
„Ætlar Sverrir að „búa til
góða steypu úr mýrum og
mold” ? Stuðningsmaður
Sverris Runólfssonar fjailar
um þessa spurningu í lesenda-
bréfi.
Sjábls.2
* ¥ *
„Gamla
Hollywood"
á götum
Reykjavíkur?
Fólk fer sennilega bráðum
að spranga um götur og torg
hér á iandi og annars staðar i
klæðnaði, sem viðhöfum varla
séð nema I gömlum Holly-
wood-kvikmyndum.
Ekki er langt siðan hlegið
var að siikum klæðnaöi.
„Gömlu dagarnir” hafa völdin
i hugmyndum tizkufrömuð-
anna.
Sjá Inn-siðu bls. 7
***
Regn, regn,
regn....
Þannig voru vist útimótin
viða, þessi er táknræn mynd
af Húsafellshátfðinni. Sjá
fréttir af útimótunum á bls. 4.
og baksíðu.
Ungt fólk í
hrakningum
í Skeiðaró:
„HÉLT ÞETTA VÆRI
SÍÐASTA ÁIN"
— sagði ökumaðurinn, œtlaði að Skaftafelli ásamt vinstúlku
„Við vorum að skoða okkur um
við Skeiöará og iangaði að fara
upp að Skaftafelli. Ég hélt að
þetta væri siðasta áin, sem
þyrfti að fara yfir til að komast
þangað”, sagði Leifur Ebeneser-
son, sem ienti I hrakningum á
jeppa I Skeiðará á sunnudaginn.
„Ég hafði verið á ferðalagi
ásamt vinkonu minni siðan á
föstudag. Þegar ég kom að
Skeiðará, fór ég út úr bilnum og
Sveinbjörn Beinteinsson, allsherjargoöi Asatrúarmanna drekk-
ur skál Þórs á biótinu á Draghálsi undir likneski af Þór, sem
reist var i tilefni atburðarins. (Ljósm. ÞS.)
REIDDUST GOÐIN?
Hverju reiddust goöin? Eða
voru þau bara að styrkja sina
menn? Allavega hætti ekki að
rigna á Draghálsi, þótt ákaft
væri heitiö á guöina. En blót
Ásatrúarmanna fór annars
fram með tilþrifum og atorku.
Sjá bls.2
athugaði vaðið, en fór þó ekki
nógu langt, þvi að þegar ég var
kominn á jeppanum út i miðja á
snardýpkaði allt I einu og billinn
fór á hliðina.
Við komumst út um gluggann,
og gekk það vel. Létum við fyrir-
berast þarna á hlið jeppans.
Þarna var fólk á bilum, sem gaf
merki upp að Skaftafelli um, hvað
hefði gerzt. Þá komst ég að þvi,
að þetta var vestasta kvislin I
Skeiðará og fólk frá Skaftafelli
komst ekki að okkur. Hins vegar
lét það vegavinnuflokk vita, sem
var vestan megin við ána, og
komu þeir til hjálpar.
Þeir hentu reipi yfir til min I
bilinn, og batt ég það fast, en bill-
inn var alltaf á hreyfingu I ánni.
Stúlkan fikraöi sig svo eftir reip-
inu, en sökk á bólakaf, en þá kom
einn úr vegavinnuflokknum og
náði henni upp úr.
Nú ætluðu þeir að ná I sverara
reipi I vegavinnuskúrana, en þá
tók jeppinn að hreyfast all-
iskyggilega niður eftir ánni og
færöist jafnframt austar. Ég beið
þvi ekki eftir ööru reipi, en tók aö
fikra mig áleiðis I land. Fór ég
strax á bólakaf, og var mér sagt
eftir á að ég hefði horfið I 2-3
minútur. Ég gerði mér ekki grein
fyrir hvernig ég komst I land, en
einhver náði I mig út I beljandi
fljótinu.
Farið var með okkur bæöi upp i
vegavinnuskúrana, þar sem við
fengum þurrt til að fara i og var
stúlkan miklu hressari en ég. Ég
fékk krampa og hélt, að mér
myndi aldrei hlýna, svo Iskalt var
mér. Þeir komu með sængur,
teppi og hitapoka handa mér
þarna i skúrunum.
Viö vorum svo flutt suður I
sjúkrabil og á slysavaröstofuna.
Stúlkan fékk að fara heim, en ég
var sendur hingað upp á Land-
spítala og er mér sagt, aö ég
þurfi að vera hérna i nokkra daga
til athugunar. Ég var með hita
fyrst, en er nú orðinn hitalaus og
liður bara alveg ágætlega eftir
allt saman. Jeppanum eru þeir
búnir að ná upp, en ég veit ekki,
hvort hann er skemmdur eða
hvaö. Hvað er það llka, fyrst
svona giftusamlega tókst til meö
björgunina”, sagöi Leifur aö lok-
um.
— EVI.
Leifur var á skjótum batavegi á
l.andspitalanum i gær. (Ljósm.
Vísis BG)
Mikið eignatjón
um helgina
— en vel sloppið frá slysunum
„Við getum ekki horft fram hjá
þeirri staöreynd, aö mjög mikið
eignatjón hefur orðiö um þessa
helgi. Slys hafa alls ekki veriö
mörg, en skemmdir á bilum
valda miklum útgjöldum”, sagði
Pétur Sveinbjarnarson, fram-
kvæmdastjóri Umferðarráðs I
viðtali viö VIsi í gær.
„En ég held við getum verið
ánægöir með, hve vel við höfum
sloppiö frá slysum. Nú er búið að
tilkynna okkur um 9 slys. Þar af
er aöeins eitt þeirra alvarlegt.
Alis konar óhöpp hafa aftur á
móti veriðmjög mörg. Menn hafa
ekið út af, velt bilum, ekið á
brúarhandrið o.s.frv. En viö
megum vera ánægðir meö, aö I
alls átta ár hefur aldrei orðið
dauðaslys i umferðinni um
Verzlunarmannahelgina.”
„Var umferðin núna eitthvað
öðruvlsi en I fyrra um þessa
helgi”?
„Já, hún var miklu dreiföari,
þ.e.a.s. menn óku mun jafnara
um landið. Einnig fóru menn á
dreiföari timum úr bænum.
„Hvernig stóöu vegirnir sig”?
„Vegakerfið var illa búið undir
þessa miklu umferð. Þurrkar
hafa verið vlðast hvar undanfarn-
ar vikur og vegir þvl óheflaöir.
Þetta gerði það að verkum, að
vegirnir voru alls ekki I ákjósan-
legu ástandi. Svo rigndi núna um
helgina, en það þoldu ekki allir
vegir. Þeir hafa spillzt mjög viða.
Lögreglan I Reykjavik haföi
búizt við tiltölulega rólegri helgi I
bænum I þetta sinn. En svo fór að
þessi helgi varö ekkert betri en
venjuleg helgi. Fylliraftar og
vandræðamenn stóöu sig vel I.að
sjá lögreglunni fyrir nægum
verkefnum. Mikiö var um ölvun,
og voru fangageymslur ekkert
tórnari en venjulega. Mörg smærri
umferðaróhöpp gerðu einnig sitt
til að halda lögreglunni við efnið.
—ÓH