Vísir - 07.08.1973, Page 7

Vísir - 07.08.1973, Page 7
Vlsir. Þriöjudagur 7. ágúst 1973. 7 Klapparstig simi 19800 Akureyri simi 21680 Horni Skipholts og Nóatúns Simi 23800 Umsjón: Edda Andrésdóttir Gömlu peysurnar að koma aftur! Áður eu við vituni af vcrða nienn allt i einu farnir aö spranga um götur og torg i klæðnaði sem við sjáum aðeins i- gömlu kvik- myndunum og kannski öðru hverju i einljverjum tizkusölum stórborganna. Stúlkurnar og kvensurnar i gömlu „glamour" Hollywood- kvikmyndunum þykja reyndar ekkert svo óskaplega illa til fara i dag, en þaðeru ekki nema nokkur ár siðan að það var hlegið reglu- . lega að þeim klæðnaði. N A meðfylgjandi myndum sjáum við bezt hvert stefnir. Sifellt koma fleiri föt fram á markaðinn sem hefðu sómt sér vel i gamla daga, og hugmyndirnar eru lika oftast komnar þaðan. Það eru peysur, ja ef það er þá hægt að kalla þetta peysur, sem við sýnum á Innsiðu i dag. Það mætti kannski frekar kalla þetta boli eða eitthvað slikt, en það er þó ágætt að halda sig við peysur. Peysurnar eru allar mjög flegnar. Allra vinsælast virðist vera að hafa þær þannig sniðnar, að þær ná 'ekki lengra en upp að öxlum, og þá kemur aðeins eitt stykki yfir axlirnar. Peysan er þvi prjónuð eins og einn strokkur ermalaus, en með aðeins breið- ara stykki efst. Það er það stykki sem kemur fyrir axlirnar. Peysurnar eru allar ermalaus- ar. Margar hverjar eru með hlir- um, sumar örmjóum, og koma þeir annaðhvort saman i bakinu eða þá aðeins iihring umhálsinn. Margar hverjar peysanna eru eins og brjóstahaldarar i sniðinu að framan. A einni myndinni sjá- um við peysu með stuttum erm- um og ekkert óskaplega flegna. En okkur er alveg óhætt að segja, að það er litið um svo ,,miklar" peysur i þessari nýju tizku. Þessi peysa eða bolur er reynd^ ar úr jersey-efni og er gul að lit. Hún er með púffermum og heldur venjulegu hálsmáli að framan. A annarri mynd sjáum við tvær stúlkur. Onnur peysan á mynd- inni er græn að lit og með hlirum sem er fest við afturstykkið. 011 peysan er prjónuð með sléttu prjóni. ; Hin er eins og þær virðast vin- sælar i dag. Hún er rauð að lit en með grænu stykki sem kemur yfir axlirnar. Þessi peysa er einnig prjónuð með sléttu prjóni. A siðustu myndinni er svo stúlka i skærgrænni peysu. Peys- an er með hlirum sem er smeygt yíir höfuðið. Á brjóstunum eru rauðar, hvitar, gular og svartar rendur. Þessi peysa er einnig prjónuð með sléttu prjóni. Margar hverjar peysanna likj- ast mest sundbolum. Það tekur vist ekki langan tima að prjóna eina slika, og það má geta þess að peysur sem þessar eru langvin- sælastar með gallabuxum. — EA.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.