Vísir - 07.08.1973, Qupperneq 16

Vísir - 07.08.1973, Qupperneq 16
Fjölskyldurn- ar fóru ó Laugarvatn Eins og búizt var við, fóru flest- ar fjölskyldurnar að Laugarvatni um helgina. Aö sögn lögreglunnar er gizkað á að þar hafi verið um fimm til sex þúsund manns. Er ( það mesti fjöldi sem þangað hefur komið yfir helgi i sumar. Mikið var um húsvagna á staðnum. Jón Guömundsson, yfirlög- regluþjónn á Selfossi, sagði i við- tali við Visi, að ágætis umgengni hefði verið á staðnum, og engin stórvandræði hefðu skotiö upp kollinum. Litið var um ölvaö fólk á Laugarvatni. Nokkrir voru þó settir til geymslu hjá lögreglunni. Fáir unglingar voru á staðnum. beir, sem voru staddir á Laugarvatni, fengu ágætis veður og meira aö segja sól á laugar- daginn. Ein bilvelta varö i nágrenni Laugarvatns, en enginn slasaðist i henni. —ÓH 2 menn brenndust í Eyjum Tveir menn brenndust á þjóö- hátiðinni I Vestmannaeyjum, sem haldin var á sunnudag. Fóru þeir einum of nálægt bálkcsti, sem tendraður var á sunnudagskvöld. Annar maðurinn féll á glæður, eftir aö slokknaö haf ði I kestinum, og brenndist nokkuð á handleggj- um og brjósti. Hann komst fljótt undir læknishendur, en bruninn reyndist ekki svo alvarlegur að það þyrfti aö flytja hann til Reykjavikur til frekari aðgerða. Hinn maöurinn fór einnig of nálægt glæðum, sem enn voru I öskunni, og brenndist nokkuð, en þó minna en sá fyrri. Hann komst einnig strax undir læknishendur og reyndist bruninn ekki alvar- legur. Onnur slys voru ekki I Eyjum um þjóðhátiðina, og má segja hana einstaklega rólega. — EA. Kviknaði í fbúð við Smáragötu Talsverðar skemmdir urðu af eldi að Smáragötu 9a I gærmorg- un, og einnig skemmdust nokkur herbergi vegna vatns og reyks. Kviknaði i einu herbergi á efri hæð á suöurhliö hússins og logaði út um gliiggann. Fylltist stiga- gangurinn af reyk, og barst mikili reykur um húsið. Slökkviliðið kom á vettvang um 11 leytiö og tókst fljótlega að slökkva eldinn. Var kona með barn i húsinu, er eldurinn kom upp, en þau sakaði ekki. Ekki er vitaö um eldsupp- tök. — bS. TVÖ HUNDRUÐ í CINNI — flýðu undan veðrinu inn í samkomuhúsið Dalabúð og svúfu í anddyri, búningsklefum, fundarherbergjum og ó dansgólfinu FLATSÆNG! ,,Það var ekkert um annað að gera en hleypa fólkinu inn. Veðrið var svo slæmt, og f jöldi manns varð að flýja tjöldin eða þau beinlinis fuku út i busk- ann. Hér voru þvi, þeg- ar flest var, um 200 manns i einni allsherj- ar flatsæng, á dansgólf- inu, i búningsklefum, fundarherbergjum og anddyri”, sagði hús- vörðurinn i Dalabúð i Dölum, Hafsteinn Snæ- land, þar sem fólk flýði unnvörpum inn i hús i fyrrinótt undan veður- ofsanum. „betta er i fyrsta sinn, sem hér er haldinn dansleikur um þessa helgi. Veörið hafði verið ágætt, og þetta fór allt mjög vel af stað. ölvun var sáralitil allan timann, og var ekki að sjá að menn þyrftu neina sérstaka hressingu, þótt þeir væru að drepast úr kulda og vosbúð. Engin slys urðu og varalögregl- an sem kom frá Reykjavik, átti hér náðuga daga”. „Hvenær fór fólk að leita inn I húsið?” „bað var i gærkvöldi þegar fór að rigna og fólkið ætlaði aft- ur út i tjöldin eftir dansleikinn, að ljóst var, að ekki yrði þar vært. Ein 10-15 tjöid beinlinis fuku ofan af fólkinu, en i flestum hinna var algerlega óvært fyrir kulda, roki og rigningu. Við urö- um að hleypa fólkinu inn, enda hagaði það sér alveg prýðilega. Flestir höfðu svefnpokann með sér og steinsofnuðu hér. Svo var fólk með nestisbita og fékk sér snæðing hér inni i hlýjunni”, sagði Hafsteinn að lokum. I gær var hætt að rigna þar vestra, en kalt og hráslagalegt. Voru siðustu gestirnir að yfir- gefa húsiö og halda heimleiðis um kaffileytið. — bS. Eldtungurnar teygöu sig út um gluggann á efri hæðinni á Smáragötu 9a, þegar slökkviliðið kom á vettvang. Mesta slys helgarinnar: ÞRÍR SIÖSUÐUST ER BÍLL VALT Á ÞINGVALLA VEGINUM Þrennt slasaðist tals- vert mikið, er fólksbill fór út af á Þingvalla- veginum á laugardags- nóttina. Karlmaður ók bilnum, en auk hans voru tvær konur farþegar. Billinn fór út af á talsvert háum vegarkanti. Valt hann siðan tvær veltur og hafnaði á hjólunum. Staðurinn, þar sem billinn fór út af, er skammt frá Leirvogs- vatni. Tal'ð er, að hann hafi runn- ið til i lausamölinni á vegar- kantinum. Billinn lagðist gjörsamlega saman, er hann valt. önnur kon- an kastaðist út úr bilnum, og er hún mest slösuö. Ekki er fullvit- að, hver meiðsli hennar eru, nema að hún er beinbrotin. öku- maðurinn og hin konan slösuðust einnig talsvert. Engin bilbelti voru i bilnum, enda af gamalli gerð. Ekki hefur enn verið hægt að yfirheyra ökumann eða farþega vegna slyss þessa. Engin vitni að þvi hafa heldur gefið sig fram. Óhapp þetta geröist klukkan eitt á laugardagsnóttina. Billinn var á leiö til bingvalla. —ÓH Vildi í heimsókn í fangelsið — en fékk óvart gistingu Maður nokkur, sem skrapp i heimsókn til kunningja sinna, fór heldur illa út úr þeim erinda- gjörðum. Hann lenti i fangelsi. Ekki er þar með sagt, aö lög- reglan sé svo vond, að hún hneppi menn I fangelsi fyrir að fara i heimsókn. Maðurinn kom nefnilega i heimsókn, þegar ekki var heimsóknartími. bar að auki fór hann ekki inn um aðaldyrnar. Kunningjar mannsins sitja um þessar mundir I Hegningarhúsinu við Skólavörðustig. Hann fór inn I garðinn við Hegningarhúsið um klukkan 2 I fyrrinótt, en þá er ein- mitt ekki heimsóknartimi. Hann var að leita að vistárverum kunningja sinna, þegar hann fannst. Lögreglan tók manninn I sina vörzlu. Er hann gamall kunningi hennar. Fékk maðurinn gistingu I fangelsi. En þvi miður fyrir hann, var það uppi á Hverfisgötu, langt frá kunningjum hans. — ÓH. Helgina rigndi niður fyrir norðan Helgina hreint og beint rigndi niður hjá Norblendingum. Menn þar nyrðra muna varia meiri rigningu á jafnstuttum tima, eins og núna um helgina. Ctisamkoma var haldin i Hrafnagili, sem er nokkra kiló- metra utan Akureyrar. Erlingur Pálmason, varð- stjóri á Akureyri, sagöi að þessi samkoma væri „þaö skásta, sem ég hef séð” af svona úti- samkomum. begar flest var á samkom- unni, voru þar 1000 manns, en um 150 tjöld voru á svæðinu. Mikið renniri af bilum var á milli Hrafnagils og Akureyrar. Var vegurinn þar á milli orðinn eitt drullusvað á mánudags- morguninn. Mest var af unglingum á sam- komunni. ölvun var stranglega bönnuð. Flutti lögreglan alla þá, sem vin sástá til bæjarins. Mest voru 30 manns fluttir á laugar- dagskvöldið. Fangageymslur lögreglunnar voru þéttsetnar alla helgina. Regnið gerði það að verkum, aö fólk hélt sig meira i bænum en aörar verzlunarmannahelg- ar. T.d. var ekki mikið minna um ölvun i bænum sjálfum um helgina en undanfarnar helgar. Eldra fólk hélt hins vegar á dansleiki i nágrenni Akureyrar. Hefur frétzt, að talsvert hafi verið um læti á þeim samkom- um. Sérstaklega mun hafa verið mikið um slikt i Miögarði. Umferðin um nágrenni Akur- eyrar gekk greiðlega. bó urðu tvö stærri umferðarslys. Bill valt i Eyjafjarðará á laugar- dagsmorguninn. Grunnt var i ánni, og slasaðist enginn. bá varð einnig árekstur á öxnadalsheiði á sunnudags- kvöldiö. bar rákust tveir bilar á, en enginn slasaðist. — ÓH

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.