Vísir - 07.08.1973, Qupperneq 4
4
Vlsir. Þriöjudagur 7. ágúst 1973.
Bleytan einkum hið ytra
Afengiseitrun varö manni að falli
og fékk sá þyrlufar til Reykjavik-
ur.
mikið áfengi gert upptœkt við Húsafell
loks hagnaði
í fyrsta shin skilaði
hátiðin i Húsafelli af
sér hagnaði, að sögn
mótsstjórans, Iijartar
Þórarinssonar. Er það
að þakka breyttu
skipulagi mótsins,
færra starfsfólki og
þvi, að nú var eingöngu
um sjálfboðaliða að
ræða. Litið var um
auglýsingar og segja
má, að reynt hafi verið
að skera flest við nögl.
Rólegt virtist vera i Húsafelli
um helgina. Geysihörð leit var
gerð á öllum, sem fóru inn á
mótssvæðið, hvort sem þar var
um bila eða fólk að ræða, og |
gerði lögreglan mikið magn af
áfengi upptækt. ^
og hátíðin skilaði
Af því leiddi, að litlð var um
drykkju á staðnum miðað við oft
áður. Engir þjófnaðir áttu sér
stað, svo vitað væri um, og þó að
allfjölmennt hafi verið, var fólki
dreift á mörg svæði. Allmikið
var um fjölskyldur.
Mikil úrkoma var I Húsafelli
og hélt fólk sig mest við inni I
tjöldum slnum. Rigndi til dæmis
allan laugardaginn, en sól skein
I stutta stund á sunnudagsmorg-
un. Þá stundina sváfu þó flestir,
en fljótt fór að rigna aftur.
— EA
I
Galtalœkur
langvinsœlostur
An efa var bindindissamkom-
an i Galtalæk fjölmennasta úti-
samkoma Ver/.lunar manna-
helgarinnar.
Þangað komu samtals sjö
þúsund manns, bæði ljölskyldu-
fólk og unglingar. Olvun var
ákaflega litil, og þeir sem eitt-
hvað sást á, voru umsvifalaus't
fjarlægðir. Mótsgestir munu
hafa verið mjög ánægðir með
samkomuna.
Til samanburðar má geta
þess að I Húsafell komu um
fimm þúsund manns, 5 til sex
þúsund á Laugarvatn, og rúm-
lega þúsund manns söfnuðusl
saman i Þórsmörk. Þessi mann-
fjöldi er nokkurnveginn jafn-
mikill og um seinustu
Verzlunarmannahelgi. Þó er
það frekar að eitthvað hafi úti-
samkomugestum fækkað.
Sjá myndir
frá Galtalœk
á bls. 12
Fjölskylduskenuntun I þurru og góöu veðri I Eyjuin á sunnudag. (Ljósmynd Vísis Guöm. Sigf.)
MÁTTARVÖLDIN EYJA-
MÖNNUM HLIÐHOLL!
— þúsund manns í Eyjum og um 30 tjöld á Breiðbakka
Máttarvöldin voru Eyjamönn-
um öllu bllöari um hclgina en þau
voru fyrr á þessu ári. Veöurguö-
irnir voru þeim aö minnsta kosti
hliöhollari. A þjóðhátiðardaginn,
sunnudag, var næstum logn fram
eftir öllum degi, en nokkrir drop-
ar létu vita af sér, er kvölda tók.
Það er mál manna, að sjaldan
eða aldrei hafi þjóðhátið tekizt
betur. Þúsund manns mættu til
hátlðahaldanna, og var þar ein-
göngu um Vestmannaeyinga að
ræöa. Nokkrir utanaðkomandi
slæddust þó i hópinn.
Um 30 tjöld voru á Breiða-
bakka, en þar var hátiðin haldin
að þessu sinni, I stað Herjólfsdals
áður.
Breiðabakki er staöur, sem
liggur fast við Stórhöfða, en Stó.r-
höfði er sagður eitt mesta veðr'a-
víti landsins. Hvað um það,
veðurguöirnir voru hliðhollir
Eyjamönnum að þessu sinni.
Þó menn væru hikandi I fyrstu,
tjölduðu þeir samt sem áöur hvit-
um hústjöldum sinum og héldu
gömlum og ævafornum sið. Þeir
báru bekki, divana, borö og stóla
ásamt matföngum á Breiða-
bakka, þó að hátiðin stæði ekki
nema i einn dag. Annað fannst
þeim ekki hæfa.
Breiðabakki hafði veriö
skreyttur með ljósum og flagg-
stöngum og niðri við sjó, i urð og
grjóti, hafði veriö geröur hinn
skrautlegasti gosbrunnur. Dans-
pallur var á staðnum og fleira
þviumlikt.
Allar varúðarráöstafanir voru
gerðar, þvi að ekki þótti hæfa
þennan dag að lýsa þvi yfir, aö
Eyjar gætu ekki verið hættu-
svæði. A flugvellinum beið allan
timann flugvél tilbúin til sjúkra-
flugs frá BR á Reykjavikurflug-
velli og sjúkratjald tilbúið, ef meö
þyrfti, var á Breiðabakka.
Engin utanaðkom andi
skemmtiatriöi styttu mönnum
stundir, heldur sýndu Eyjamenn
sjálfir, hvað i þeim bjó. Komu
ýmis heimatilbúin trió fram á
sjónarsviðiö ásamt nokkrum leik-
urum Eyjamanna og fleirum.Og
ekki má gleyma „Stebba pól”,
eins og þeir kalla hann úti I Eyj-
um, en hann var kynnir á þjóöhá-
tiðinni eins og hann hefur verið,
svo langt sem flestir muna.
Dansinn dunaöi fram eftir allri
nóttu, og þó aö nokkrir dropar
féllu úr lofti, lét enginn það á sig
fá. Hins vegar hékk hann ekki
þurr nema fram á mánudags-
morgun.
— EA
Nei, gárungarnir skrifuðu ekki „lögreglan” utan á náöhús, heldur er
þetta lögregluskýliö.
Astin blómstrar þrátt fyrir vætuna!
Ljósmyndirnar tók Björgvin Pálsson.
Fóru hring um-
hverfis landið
— til að komast á ball hinum
megin við ána
Lögreglan á Ilornafirði þurfti
aö aka hringinn i kringum land-
iö — samtals 1232 kilómetra —
til þess aö vera viö gæzlu á
dansleikjum á Kirkjubæjar-
klaustri og nágrenni um
Verzlunarmannahelgina.
Þar sem svo mikið vatn er I
Skeiðará, sem er helzta torfær-
an á leiðinni vestur sanda var
ekki hægt aö ferja þá yfir ána og
höföu þeir ekki önnur ráö.
Þegar þeir verða komnir aft-
ur til sins heima á Höfn veröa
þeir búnir aö aka um þaö bil
2500 kilómetra.
Sama lögsagnarumdæmi er
beggja megin vatna og mun það
oft hafa valdið erfiðleikum.