Vísir


Vísir - 16.08.1973, Qupperneq 1

Vísir - 16.08.1973, Qupperneq 1
. 7 fili. árg. Fimmtudagur 16. ágúst 1973 — 186. tbl. Mega blóta þeir bara á laun? — sjá baksíðuna HREINT ENGIN ÓHAPPA- FLUGVÉL Þaö var ekki laust viö aö hrollur færi um blaöamann Vísis, er hann sté upp i eina Loftleiöaþotuna á dögunum, er hann brá sér til Evröpu. Reyndar hafði nákominn ættingi hans slasazt, þegar sama flugvél lenti harðri lendingu". á Kennedyflug- velli nokkrum vikum áöur. En ötti var ástæöulaus. Sjá viötal viö tvo flugmenn vélarinnar. —BIs. 2og 3 Nóg af dýru bílastœðunum Er bilastæðaskorturinn i miöborginni eins geigvæn- legur og af er látiö? Ekki varö þaö séö, þegar blaða- maöur Visis kannaöi málið. Hallærisplanið svonefnda, bilastæðiö á Hótel tslands- lóöinni, var ekki nema hálf- skipaö, svo dæmi séu nefnd. Hækkunin á leigu þar hefur fælt menn frá þvi, aö þvi er virðist. Sjá bls. 3 Deilt enn um eitt gatamark „Mér sýndist sjálfum, aö knötturinn heföi farið i markiö”, sagði Magnús Pétursson knattspyrnu- dómari, er við ræddum viö hann I gærkvöldi eftir leik KR og Vestmannaeyja i Bikarkeppninni i gær. Menn deildu hart um þaö, hvort knötturinn hefði farið framhjá markinu eöa i markið i gegnum netiö. Fyrir 20 árum risu einmitt landsfrægar deilur um gata- mark, sem varö i úrslitaleik á islandsmóti milli Vals og Akraness. —Sjá tþróttir i opnu Með einn stóran á önglinum Senn liöur að þvi, aö lax- veiðiánum okkar veröi lokaö að sinni. Þaö hefur verið mikiö um að vera i ánum i sumar. Margar þeirra hafa skilaö afbragðs afrakstri, sem eflaust er aö þakka ára- löngu starfi manna við aö rækta fisk i ánnum. Við hittum i gærmatsvein einn, sem krækti i laglegan fisk 22, punda lax, sem kostaði heldur en ekki viðureign. — Baksiöa Stúlku byrlað deyfilyf — Sjá baksíðu //Allir dagar góðir, ai veija úr sumir bara betri Hún er 21 árs og frá Akureyri. Kannski sunnlenzk sól sé ekki eins hlý og norðlenzk, en Berta var alla vega búin aö ná fallega brúnu hörundi, þar sem hún lá i sólbaði viö húsgafl suöur i Kópavogi á dögunum [R AÐ LÆRA ÞROSKAÞJÁLFUN Stúlkan, sem viö kynnum sem „Sumarstúlku Visis” númer 13, heitir Berta Jónsdóttir og er frá Akureyrii Hún var reyndar að baða sig i sunnlenzkri sól, þegar hún varð á vegi okkar suöur i Kópavogi, hún stundar nefni- lega nám sitt þar. „Ég er að læra þroskaþjálfun við Kópavogshælið”, upplýsti Berta. Hún eftir eitt ár i námi, en ekki kvaf st hún hafa afráðið, hvort hún heldi siðar til fram- haldsnáms érlendis. Þar sem Berta er komin að norðan til að stunda nám sitt, býr hún i Starfsmannaheimili Kópavogshælis. „Þar er bara nokkuð þokkalegt að búa”, sagði hún. „Stelpurnar eru alltaf i stuði”. Það sakar kannski ekki að rifja það hér upp, að þegar við höfum kynnt siðustu sumar- stúlkuna, sem verður i lok þessa mánaðar, munum við birta myndir af öllum stúlkunum, sem eru með i keppninni. Lesendum verður siðan gefinn kostur á að veljá „Sumarstúlku Visis 1973”, en hin útvalda verður siðan verðlaunuð með Sunnuferð til Mallorca. Á Mallorca býr sumarstúlkan okkar i hálfan mánuð á nýju og stóru hóteli, sem heitir Grand Hotel E1 Cid. Það hótel stendur við Arenal, sem er 6 km samfelld sandströnd og eftir- sóttasta strönd Mallorca. Auk þess fær sumarstúlkan 60 pund, eða sem svarar 14 þúsund krónum i vasapeninga. —ÞJM Sumarstúlka Vísis 13 — Ljósmynd Bragi — segir vega- gerðarmaðurinn Sverrir Runólfsson, sem heldur nú af stað með vél sína upp ó Kjalarnes ,,Eins og ég hef alltaf sagt, allir dagar eru góðir, en bara sumir betri”, sagði Sverrir Runólfsson, þegar við höfðum samband við hann i morgun. Sverrir hafði þá nýlega fengið upplýsingar um það frá vegamálastjóra, að honum væri heimilt að velja á milli þriggja kilómetra langra kafla á Kjalarnesi, til þess að reyna hina nýju vél sina. Að sögn vegamálastjóra eru tveir kaflarnir sitt hvorum megin við Sjávarhóla og einn á milli Ar- túnsár og Tiðarskarðs. Sverrir sagði, að nú myndu að- stæður kannaðar eins fljótt og mögulegt væri, þar sem engan tima mætti missa, og siðan yrðu aðgerðir hafnar. „En samvinnan verður að vera góö, og ég veit vel, aö við eigum eftir að gera þetta”. — Hvað um kostnað? „Ég mun koma verðinu niður og hætti ekki fyrr, en ég get ekki sleeið fram neinni tölu að svo komnu” Að lokum sagði Sverrir „Skiptar skoðanir eru nauðsyn- legar.” — EA Góða veðrið að minnsta kosti til morguns Þvi ágæta veöri, sem heilsaöi i morgun, höldum viö liklega i nótt og fram á morgun. Finnst vist mörgum timi til kominn eftir súldina aö undanförnu. 1 dag er rikjandi i Reykjavik norðan gola eða kaldi og létt- skýjað verður með köflum. 1 morgun, þegar við röbbuðum við veöurfræðinga, var hitinn hér kominn upp i 12 stig, en liklegt er að hann verði 12-14 stig eitthvað fram eftir. Þó mun norðan golan kæla fljótt. 1 nótt má svo gera ráð fyrir 4-6 stiga hita. Norð-austan gola virðist rikjandi á landinu. A Vesturlandi er viðast hvar þurrt, en á Austuriandi er súld og sums staðar rigning. Fyrir norðan er þoka. —EA

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.