Vísir - 16.08.1973, Page 5

Vísir - 16.08.1973, Page 5
Visir. Fimmtudagur 16. ágúst 1973. AP/INITB ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson ,,/l/legum ekki setja allt á hakann fyrír Watergate" sagði Nixon forseti í útvarpsrœðu sinni. ítrekaði enn, að hann vissi ekkert um málið. ,,Ég lýsti því skýrt yfir 22. maí, og ég lýsi þvi enn yfirviöykkur, sem hlustið ikvöld,að ég vissi ekkert fyrirfram um Watergate- aðgerðirnar. Né heldur átti ég nokkurn þátt f til- raununum, sem á eftir komu, til að þagga málið niður. — Ég hef hvorki veitt leyfi né kvatt undir- menn mína til ólöglegra kosningabragöa." Þannig komst Nixon að orði i sjónvarps- og útvarpsávarpi til bandarisku þjóðarinnar i nótt, þar sem hann kallaði eftir ,,hjálp ykkar til að tryggja, að þeim sem vilja notfæra sér Watergatemálið til að hindra oss i að koma þvi i verk, sem vér vorum kosnir til að gera, verði ekki ágengt.” Nixon sagði, að eftir þvi sem vikurnar hefðu liðið hjá, væri það æ ljósara, að yfirheyrslurn- ar og ummæli manna i kjölfar þeirra bindust meira og meira i þá átt að reyna að bendla forset- ann persónulega við hinar ólög- legu aðgerðir, sem átt höfðu sér stað. Hann sagðist taka á sinar herðar ábyrgðina af lögbrotun- um, vegna þess að þau hefðu verið framin i stjórnartið hans, en itrekaði fyrri ummæli sin um, að hann hefði ekkert- vitað um málið fyrr en 22. mai. Siðar i ræðu sinni sagðist hann þó hafa fengið vitneskju um innbrotið hjá sálfræðingi Ellisbergs þ. 17. mai — Hann sagði, að fram til þess tima hefði hann fengið vill- andi upplýsingar og skýrslur uin málið.og gaf Nixon i skyn, að John Dean hefði ekki skýrt Watergatenefndinni rétt og skýrt frá viðræðum sinum við forsetann. Nixon sagðist mundu halda áfram að sporna við þvi, að segulbandsspólurnar, sem hefðu að geyma upptökur i sam- tölum i sima forsetans og. af fundum hans, yrðu afhentar Watergatenefndinni. Hann sagði, að það væri að bregðast trúnaðartrausti þeirra, sem talið höfðu sig vera að ræða i trúnaði við Bandarikjaforseta. ,,Ef við litum á Watergate frá stærri sjónarhóli, sjáum við, að brot manna þarleiddi af þvi, að þeir gengu út frá þvi, að tilgang- urinn hæfi þá yfir þær reglur, sem gilda um annað fólk og rikja i hverju frjálsu samfélagi. Slikt verður aldrei þolað i þessu landi. Hins vegar þróaðist þetta ekki á árinu 1972. Þetta komst i tizku á við byrjun sið- asta áratugs, þegar einstakling- ar og hópar gáfu sjálfum sér umboð til að taka lögin i sinar hendur — þvi að tilgangurinn væri svo helgur. .. — Við verð- um að skilja, að þarna hefur hvað leitt af öðru, og öfgarnar 1960 eiga sinn þátt i öfgunum i Watergatemálinu.” ,,Það er nauðsyn, að slik mis- tök endurtaki sig ekki. En það er einnig nauðsyn, að við i ofur- kappinu til að fyrirbyggja slik mistök bindum ekki svo hendur forsetans, að stofnaði i hættu öryggi okkar og þá um leið frelsisréttindum okkar.” sagði Nixon. „Við megum ekki gleyma okkur svo við Watergatemálið, að við sláum slöku við vanda- mál, sem hafa þýðingu fyrir Bandarikin og heiminn. — — Timi er til kominn að afhenda metin. En það er timi til kom- dómstólunum Watergate, þar innfyrir okkur hin að snúa okkur sem sekt og sakleysi skulu að þjóðmálunum.” ÖRYGGISRÁÐIÐ VITTI ÍSRAEL — „En við höldum áfram," segir yfirmaður herráðs ísraels „ísrael mun halda áfram að elta uppi leið- toga Palestinuskæruliða i blóra við alþjóðalög, þrátt fyrir fordæmingu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna á siðustu til- raun þeirra,” sagði David Elazar, hers- höfðingi, yfirmaður her- ráðs ísraelsmanna. Elazar mælti þessi orð að visu nokkrum klukkustundum áður en vitur öryggisráðsins lágu fyrir, en allir höfðu séð fyrir, hverjar yrðu niðurstöður funda ráðsins i gær. Hershöfðinginn varaði við þvi,” að fleiri aðgerðir væru yfirvof- Oflug bilasprengja sprakk fyrir utan hafnarkrá eina i Belfast, án þess að nokkur boð hefðu verið gerð á undan, eins og þó oft er þar gert. -- Margt var um manninn i kránni, og beið einn maður bana, en niu særðust. Kráin stendur i borgarhluta, andi,” á borð við þá, þegar þeir neyddu libönsku farþegaþotuna til að lenda á herflugvelli i Israel. Vitur öryggisráðsins á hendur Israei voru samþykktar með 15 atkvæðum gegn 0. — þar sem fjölskyldur mótmælenda og kaþólskra búa hlið við hlið, og varð engum getum að þvi leitt, hverjir þarna hefðu verið að verki. Tala fallinna i óeirðunum á irlandi þessi siðustu fjögur árin er nú komin i 866. ÍRAR SPRENGJA ENN Kennsl borin á 9 líknnna Lögreglan í Houston vinnur enn aö rannsókn f jöldamoröanna, en hún hefur lýst því yfir, aö ekki séu fleiri grunaðir í málinu en piltarnir tveir, sem sitja i gæzlu, og svo kynvilling- <------------------------- l.ikin 27, scm grafin hafa verið upp, hafa iill vcrið illþekkjan- leg, enda sum búin a_ð liggja hátt á þriðja ár i jörðu. Miirg voru þó i plastpokum. urinn, sem annar þeirra varö aö bana. Lögreglunni tókst að bera kennsl á fjögur lik til viðbótar i gær og hefur þá tekizt að þekkja lik niu unglinga úr fjöldagröfun- um. Eins og l'ram hefur komið i tréttum hafa alls fundizt 27 lik. 'l'il sérstakrar rannsóknar hefur verið tekin 15 ára stúlka, sem lögreglan segir, að hafi sloppiö naumlega við nauögun og skapadægur sitt af hendi „stjórn- anda” morðhópsins, sem var hinn 33 ára gam|i Corll. Stúlka þessi strauk að heiman, en er nú • i vörzlu lögreglunnar. Tveir hafa ekki tapað einni skók á svœðamótinu Nú, þegar biðskákirnar hafa verið tefldar á svæðamótinu i Petropolis i Braziliu, eru linurnar farnar að skýrast og ljóst, að einungis sex stórmeistarar eiga, þegar 2umferðir eru eftir, mögu- leika á að ná 3 efstu sætunum. Þeir eru: 1. Portisch, 11 vinninga 2. Mecking og Geller, 10 1/2 vinn- ing. 4. Hort, Polugaievski og Smyslov með 9 1/2 vinning. En Liuboievic frá Júgóslaviu, sem leiddi mótið frá upphafi, hefur dregizt svo aftur úr (tapaði núna siðast biðskák fyrir Smys- lov), eftir að hann fór að mæta Rússunum, að hann á enga mögu- leika, jafn Reshevsky i 7. sæti með 8 1/2’ vinning. 1 næstsiðustu umferðinni munu þessireigastvið: Hort og Byasas. Kargan og Mecking, Liuboievic og Gheorghiu, Ivkov og Geller, Panno og Smyslov, Portisch og Keres, Tan og Polugaievski, og Reshevsky og Savon. Portisch og Mecking eru þeir einu, sem ekki hafa tapað skák.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.