Vísir - 16.08.1973, Page 16

Vísir - 16.08.1973, Page 16
Fimmtudagur 16. ágúst 1973. Kom heim með illa fengið reiðhjól: FORELDRAR SJÁ EKKERT ATHUGA- VERT Það var ánægður piltur sem kom hjólandi heim til sin i gær. Þá hafði hjólið hans veriö týnt i rúman hálfan mánuð, og vonin um aö fá þaö aftur farin að dofna. En i gærdag, þegar hann var inni á Kleppsvegi, sá hann ann- an dreng á hjólinu sinu, sem hvarf fyrir hálfum mánuöi, þeg- ar hann var i Laugarásbiói. Lögreglan kom á staðinn, og sá um að réttur eigandi fengi hjóliö sitt. Sökudólgurinn var fluttur heim til foreldra sinna. Þaö mun vera býsna algengt aö hjólum sé stolið. Aö mestu eru þaö börn og unglingar, sem þareru aö verki. Furöanlega oft láta foreldrar þaö viögangast aö börn þeirra séu allt i einu komin á ný hjól án skýringa. — ÓH. íslendingar 10. mesta bílaþjóð í heimi Um 60 þúsund bílar á landinu tslendingar eru 10. mesta hílaþjóö i heimi. Bflafjöldinn á tslandi er uin 00 þúsund, og eru þar af lciöandi 285 bilar á hverja þúsund ibúa. 1 árslok 1071 voru liins vegar 250 bflar á hverja þúsund ibúa. Þetta sýnir meðal annars skýrsla frá Bilgreinasam- bandinu, og þar sést enn- fremur, að Bandarikin eiga flesta bilana sem von er. Þá má geta þess að i Bretland er i 11. sæti, einu sæti neðar en Island! En það eru ekki allir, em búa við sömu kjör. 1 Nigeriu eru til dæmis nærri 7000 menn um hvern bil, i Burundi um þúsund i Afganistan um 1.200 og i Nepal 2.700. Þetta eru þau lönd, sem fæsta eiga bilana. Gera má ráð fyrir, að heildarframleiðsla bila árið 1972 hafi verið nær 36 mill- jónir. 31. desember 1971 var heildarbileignin i heiminum hvorki meira né minna en 260 milljónir. —EA ,/Etla að borða hann sjálfur‘ — segir matsveinn, sem veiddi 22ja punda lax í Grímsó í vikunni „Ég nældi mér í þennan núna í vikunni. Hann er úr Grímsá og er nálægt því að vera 22 pund,” sagði Eyþór Sigmundsson í Kópavogi, þegar hann kynnti okkur fyrir þeim* stóra, sem við sjáum í höndum hans á meðfylgj- andi mynd. „Nánar tiltekið var það i svo- nefndum Móhyl, sem ég náði þessum stóra, ,,hélt Eyþór áfram. „Viðureignin tók i kring- um hálftima, en auk þess stóra fékk ég fjóra minni laxa og einn sjóbirting.” Að sögn Eyþórs er mjög góð veiði i Grimsá núna. „Það var næstum óhjákvæmilegt aö ná i nokkra, þar sem það var krökkt i ánni,” sagði hann. „Ég man ekki eftir að hafa komið að ánni svona vænni fyrr, en það eru nú orðin 17 ára frá þvi ég byrjaði aö stunda laxveiði,” sagði Eyþór. Hann er annars matsveinnog ætti þvi að geta sagt sér, hvernig auöveld- ast er að fá i soöið. Hann ætlar þó ekki aö bera stórlaxinn á borð fyrir starfsfólK Útvegs- bankans, sem hann matreiðir ofani, heldur hyggst hann reykja laxinn og leggja sér hann sjálfur til munns i vetur. Um næstu helgi ætlar Eyþór að renna i Stóru-Laxá, en á þeirri á hefur hann sérstakt dálæti. „Fljótlega ætla ég svo aö reyna aftur við ósköpin i Grimsá, en ég tryggði mér veiðileyfi strax eftir kynni min af ánni um daginn,” sagði mat- sveinn að lokum. — ÞJM Eyþór með laxinn góða úr Grimsá. Aður hefur hann náð f þá viðlika stóra, og þrisvar hefur hann veitt 23ja punda laxa. Ljósm.: Bj.Bj. Skór frá 18. öld finnast í Aðal- strœti „Þessi skór er greinilega úr brunanum 1764 i Aðalstræti 14 og sylgjan sömuleiðis. Hvort skórinn er af karlmanni eða kvenmanni er ekki gott að segja, en lagið á honum er hreint ekki svo ólikt skóm, eins og þeir eru i dag, — þykkur sóli og breiður hæll, en skórinn hefur þó veriö heldur tá- mjórri” sagði Else Nordal sem stjórnar uppgreftrinum i aðalst. og Suðurg. Skórnir og beizlis 'sylgja úr bronsi fundust hýlega i Aðalstræti 14, en nú eru aðeins eftir innan við tvær vikur af upp- greftrinum i sumar. „Þetta er þriðja sumarið mitt hérna, og ég geri ráð fyrir að vera hér a.m.k. eitt sumar i viðbót. Fyrsta sumarið var ákaflega gott hvað veðrið snertir, en i fyrra var næstum alltaf rigning. I sumar hefur þetta verið svona sæmi- legt, en þó urðum við að hætta i gær vegna rigningar. Nú er bara að vona að við fáum sæmilegt veður þessa siðustu daga”, sagði Else. Varðandi hús- veggina, sem fundust i Aðal- strætinu, og sumir hafa viljað halda fram að væru frá þvi fyrir landnámsöld, sagði Else að hún teldi það ákaflega ósennilegt og ekkert benti til að þarna hefði verið byggö fyrir tið landnáms- „Skórinn er úr leöri, og mér finnst liklegt, að hann sé danskur”, segir. manna. —ÞS Else. Hún heldur á bronssylgjunni. og beizlis- sylgja Ásatrúarmenn mega gifta og skíra — en Mega þeir bara blóta ó laun? Þá hefur Sveinbjörn alls- herjargoöi á Draghálsi fengið leyfi geistlegra yfirvalda til þess að vigja saman hjón, skira og jarða eins og aörir „safnaðarformcnn” hér- lendir. Var i vor gefið út gréf af dóms- og kirkjumálaráðu- neytinu, þess efnis, að honum er veitt þessi viöurkenning. Ekkert segir i bréfinu um blót- in, en samkvæmt Gragás eru opinber blót bönnuð á tslandi. Segir i bréfinu ennfremur: „Er i þvi sambandi ennfremur vakin athygli á 63. grein stjórnarskrárinnar, þar sem segir, að heimilt sé mönnum að stofna félög til að þjóna guöi meö þeim hætti, sem bezt á við sannfæringu hvers og eins, en þó megi ekki kenna eöa fremja neitt, sem er gagn- stætt góðu siðferði og alls- herjarreglu.” Spurðumst við fyrir um það ennfremur hjá ráöuneytinu, hvort talið sé, að Asatrúarmenn séu að þjóna fyrrnefndum guöi og var þvi svarað til, að í grein þessari muni átt við guö hvers og eins og þvi eigi þetta við Asatrúar- menn sem aðra. -ÞS. STÚLKA TRÓÐST UNDIR — fékk snert af taugaáfalli, en komst þó á ballið á nýjan leik Eins og sagt hefur veriö frá i fréttum, þá var mikil fyllirissam- koma I Miögaröi I Skagafirði um verzlunarmannahelgina. Var meö einsdæmum, hversu margir komust inn í húsið, en lögreglan á Sauðárkróki taldi, að það hefðu verið um tvö þúsund manns. Hús- ið tckur aftur á móti 600 manns. Miklar sögur hafa nú breiðzt út um lætin, sem þar áttu að hafa veriö. M.a. hefur borizt til eyrna, að stúlka hafi verið troðin undir þar og hún látizt. Þar að auki er mannfjöldinn kominn upp i 3 þús- und, sem átti að hafa verið i hús- inu. Staðreyndin með dauðsfallið mun hins vegar vera sú, að á samkomunni féll stúlka á gólfið og fékk taugaáfall. Varð mikið uppistand meðal samkomugesta út af þessu. Læknir, sem var staddur á staðnum, kom til og taldi hann ráðlegt, að farið yrði með stúlkuna á sjúkrahús. Var það gert. En að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki var stúlkan orðin spræk aftur eftir hálftima, og hélt hún þá ótrauð aftur á ballið og. skemmti sér sem mest hún mátti. En af einhverjum ástæðum virðist þetta fall hennar hafa ýtt undir sögusagnir um að einhver hafi troðizt undir á umræddri samkomu. —OH Stúlku byrlað deyfilyf Ung stúlka kærði i nótt til lögreglunnar, að sér hefði verið gefið inn deyfilyf. Var hún þá stödd á sumblsam- komu i Skipholtinu. Er þar um sama stað að ræða og lyfseðlablokk- unum var stolið af lækninum fyrir nokkru. Þegar lögreglan kom á staðinn, var stúlkan utandyra. Var hún mjög ölvuð, og jafnvel einnig undir áhrifum fiknilyfja, þótt ekki sé hægt að sanna það án rannsóknar. Lögreglan tók stúlkuna með sér og ók henni heim. Um tuttugu manns voru samankomnir á samkomunni. Engin fíknílyf fundust þar. Það fólk, sem var þarna, er alþekkt svallfólk. —oh

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.