Vísir - 04.01.1974, Side 1

Vísir - 04.01.1974, Side 1
w 64. árg. — Föstudagur 4. janúar 1974. — 3. tbl. BERA SÁRAN FÉLAGA í SKJOL —Sjá bls. 5 BÓNDI SMIÐAÐI SINN EIGIN STJÖRNUKÍKI og bíður nú fœris á Kohoutek Kohoutek, hala- stjarnan, sem stjörnu- fræðingar og áhuga- menn um stjörnuvisindi biða eftirvæntingarfullir eftir,verður senn sýnileg hér á norðurhveli jarð- ar. Einn sá manna, sem væntan- lega fer aö munda kiki sinn meö hækkandi sól, er Garöar Val- geirsson, bóndi aö Hellisholtum i Hrunamannahreppi. Nokkur ár eru siöan Garöar smiðaði sér stjörnukiki, og sagöi hann Visi I morgun, aö hann ætti von á þvi aö sjá Kohoutek. ,,Ég hef nú eiginlega allt mitt vit úr borsteini Sæmundssyni, stjarnfræðingi. borsteinn telur aö stjarnan verði jafnvel eins björt og tungliö — kannski verður hún eins vel sýnileg og Venus. Maöur vonar bara aö skyggni veröi sæmilegt — þaö veröur vist litið um athuganir, ef hann fer að ganga i miklar rigningar Ennþá er ekkert hægt um "-pjSita að segja”. Ahugamenn um könnun himin- tungla munu ekki vera mjög margir hér á landi. borsteinn Sæmundsson tjáöi Visi, aö erlendis væri nú mikil hreyfing meðal fólks varðandi stjörnufræði. „betta kom til vegna geimferðanna og geim- skotanna”, sagöi borsteinn, ,,en áhugi hérlendis hefur ekki aukizt á þessum hlutum ennþá, hvað sem verður”. Sagði borsteinn, aö sér væri ekki kunnugt um að fleiri en Garðar i Hellisholtum hefðu smiðað sér eigin stjörnukiki. ,,En nokkrir hafa snúið sér til min varðandi ráð um efniskaup og annað”, sagði borsteinn, „ætli þaö séu ekki um tiu manns, sem rætt hafa við mig um þessa hluti — en þeir geta vel verið fleiri, sem vilja kanna himintunglin, þótt ég þekki ekki til þeirra”. Garðar i Hellisholtum smfðaði sér sinn kiki fyrir fjórum eða fimm árum. „betta var ekki sérlega vanda- samt. Ég hef aðeins eitt sjóngler og svo spegla. bað var eiginlega fótur kikisins, sem vandasamast var að smiða”. En ef Kohoutek verður sæmi- lega björt, jafnvel eins vel sýnileg og Venus, þá hljóta fróðleiksfúsir rannsakarar að spretta upp og munda sjónauka út i geiminn, jafnvel bara venjulega sjónauka. „bað hlýtur að aukast hér áhugi á stjörnufræði”, sagði bor- steinn Sæmundsson, „við erum ekki alltaf siðastir aö kippa við okkur miðað við erlendar þjóðir, þannig að áhugaleysi almennings hér er raúnar svolltið skrýtið. En Kohoutek verður væntanlega sýnileg eftir 10. janúar eða svo, og kannski stofna menn þá „hala- stjörnufélag”. —-GG „Mokið, mokið, mokiö meiri snjó”, syngur trló borsteins Guðmundssonar á einni plötu sinni. bessi hvatningarorð þarf vist varla aö syngja oftaren einu sinni við þennan unga mann, sem mokar tröppurnar heima hjá sér af mikilli elju. Margir mættu taka piltinn til fyrirmyndar og gera nú hreint fyrir sinum dyrum, i bókstaflegri merk- ingu. Ekki sizt verzlunar- og fyrirtækjaeigendur, sem hafa fjölfarnar gangstéttir fyrir framan stofnanir sinar. bað er alltaf svo leiðinlegt að sjá einhvern detta kylliflatan, bara af þvi aö gangstéttin er svo hál. ÓH/Ljósm.: Bragi „BÍÐUM EKKI ENDALAUST" — St. Dominic vœntanlega strikaður af listanum, enda nú þegar farinn heim „Stöndum uppi með illseljan- lega vöru" — segja þjónar eftir ófengishœkkunina. — ,,Nú eykst brugg og drykkja í heima- húsum", segir fram- kvœmdastjóri Skiphóls — Dregur til tíðinda í þjónadeilunni „Að visu hefur siðasta áfengishækkun, að viðbættuni átta prósentunum, sem feng- ust skömmu fyrir jól, breytt stöðunni í þjónadcilunni allnokkuð,” sagði örn Egils- son, blaðafulltrúi framreiðsiu- manna, i viðtali við Visi i morgun. „En þvier þó ekki að neita, að okkur þjónum þykir nú hafa keyrt um þverbak. Sjússaverðið hefur hækkað svo óheyrilega að okkur finnst núna mörgum, að við stöndum með iliseljanlega vöru.” „bað er klárt mál, að við svona mikla hækkun sem þessa dragi nokkuð úr sölunni á vinveitingahúsunum, að minnsta kosti fyrst i stað,” sagði svo Einar Rafn Stefáns- son, framkvæmdastjóri Skip- hóls, i viðtali við Visi. „En þá er ekki öll sagan sögð: þar á móti kemur, að brugg eykst og sömuleiðis smygl og vindrykkja i heimahúsum. bað vita jú allir, að menn draga ekki úr neyzlunni þrátt fyrir hækkanir. beir 'fara bara aðrar og kostnaðarminni leiðir til að verða sér úti um sopann”. Ekki hafði það verið reiknað út i morgun, hvað vin á veit- ingahúsum kemur til með að kosta eftir þessa siðustu hækkun. bað er þó ljóst, að tvöfaldur drykkur i gosi kemur til með að kosta liðlega þrjúhundruð krónur, en kost- aði áður 275 krónur. Svo virðist sem til tiðinda ætli að draga i viðræðum þjóna og veitingamanna alveg á næstunni. Siöasti samninga- fundur, sem hófst i eftirmið- daginn i gær, stóð fram til morguns og var annar fundur boðaöur siðar i dag. — bJM GEORGE BEST TÝNDUR Á NÝ! Sjá íþróttir í opnu Ekkert svar kom frá Brctum, varðandi heimild þeirra um að kanna mæiingu varðskipsins Óðins á stöðu brezka togarans St.Uominic , sem óöinn stóð að veiðum 12,9 sjómilur innan við 50 mílna mörkin i friðuöu hólfi út af Glettinganesi. Eins og Visir skýrði frá i gær, þá er togarinn kominn á leið heim, og væntanlega mun dómsmálaráðuneytið strika nafn hans út af listanum yfir þá brezku togara, sem veiði- heimild hafa hér við land, þ.e. þegar ráðuneytið hefur fengið skýrslu frá varðskipinu. „Við höfum ekkert heyrt frá Bretunum”, sagði blaðafulltrúi Landhelgisgæzlunnar i morgun, þegar Visir ræddi við hann, „enda erum við hættir að vænta nokkurs svars. Við biðum ekki endalaust”. Landhelgisgæzlan hefur i höndum lista yfir brezku togarana, sem veiðiheimild hafa. Enn sem komið er hefur aðeins einn togari, verið strikaður út af listanum, þ.e. Northern Sky. Sá togari mun ekki siðan hafa sézt hér við land. Nú mun ekki vera um að ræða neins konar lista með nöfnum skipstjóra togaranna, þótt það séu skipstjórarnir, sem dæmdir eru, ef eitthvað er sökótt við þá. bannig gæti t.d. skipstjóri af Northern Sky, sem nú er hvergi nærri — verið um borð i einhverjum togara hér við land og fiskað vel. —GG

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.