Vísir - 04.01.1974, Síða 3
Visir. Föstudagur 4. janúar 1974
3
Ríkið léttir ó
Kópavogsbúum
— tekur að sér Hafnarfjarðarveg, og
allan kostnað við hann
„Rikiö tekur nú að sér allan
kostnað við viðhald og rekstur
Hafnarfjaðarvegar og alla vexti
og afborganir. Þetta er þvi mikið
hagsmunamál fyrir Kópavogs-
búa, og við erum ánægöir með, að
þessir samningar náðust”, sagði
Björn Einarsson, framkvæmda-
stjóri byggingarnefndar Hafnar-
fjarðarvegar i gegnum Kópavog i
viðtali við blaðið.
Kópavogsbær og rikið gerðu
með sér samninga rétt fyrir ára-
mótin, þar sem rikið tekur algjör-
lega að sér Hafnarfjarðarveginn,
þar sem hann liggur i gegnum
Kópavog.
Talsverður styr hefur staðið um
þennan veg i Kópavogi, þar sem
margir töldu að vegurinn væri til
litils gagns fyrir Kópavogsbúa, en
þess meira gagns fyrir aðra
Ibúa Reykjanessins. Þvi ættu
Kópavogsbúar sem minnst að
leggja af eigin fé i vegarlagning-
una, en fá veginn þess i stað við-
urkenndan sem þjóðveg. Það hef-
ur nú verið gert.
„Þetta er fyrst og fremst rétt-
lætismál að fá þessa samninga i
gegn. Það er ekkert réttlæti i þvi
að láta heilt byggðarlag setja allt
þéttbýlisvegafé sitt i byggingu
svona vegar, þótt auðvitað sé
óhjákvæmilegt að taka þátt i
byggingu hans”, sagði Björn enn-
fremur.
Að sögn Björns, þá hafa Kópa-
vogsbúar lagt af þéttbýlisvegafé
sinu i þennan veg um 30 milljónir
á tæpum tiu árum. Miðað við að
þetta væri allt lagt fram á einu
bretti núna, er núgildi framlags-
ins um 60 milljónir.
„Það munar svo miklu fyrir
okkur að fá þetta fé til uppbygg-
ingar vega innan bæjarins sjálfs.
Nú voru Digranesvegur og Borg-
arholtsbraut gerð að þjóðvegum i
þéttbýli, svo að enginn vandi
verður að verja fénu”, sagði
Bijörn.
Hann gat þess að lokum, að eft-
ir sem áður væri mikill kostnaður
við að aðlaga vegakerfi bæjarins
Hafnarfjarðarveginum, þar sem
hann liggur i gegnum miðjan bæ-
inn. —ÓH
Með lesefni í tugthúsið
Oftast ipun litið vera um
dægrastyttingu i fangagcýmslum
lögreglunnar. Skortur á slíku
mun lika vera ein helzta ástæða
þess, að menn fýsir litt að
dveljast þar langdvölum.
Þessu hefur hann munað eftir
kunningi lögreglunnar, sem kom
inn á miðborgarstöðina i fyrra
kvöldi og baðst gistingar i fanga-
geymslunum. Veittu lögreglu-
þjónar þá athygli.að glersalli var
i fötum hans, svo glampaði á.
Spurðu þeir manninn spjörunum
úr, og viðurkenndi hann þá að
hafa brotið rúðu i verzlun. Sú
verzlun var fornbókaverzlunin i
Lækjargötu 2. Ætlaði maðurinn
augsýnilega að fá sér þar lesefni
til að taka með i gistinguna.
—ÓH
Áfengi og tóbak
léttir enn pyng/-
una
Þá er hin langþráða áfengis-
verðhækkun rikisstjórnarinnar
komin til framkvæmda. Þegar
áfengisútsölurnar opnuðu i gær,
höfðu vin yfirleitt hækkað um
20 til 25% i útsöluverði.
Tóbak hækkaði sömuleiðis, en
mun minna, eða um 5%. Gildir þá
sama verð á tóbakinu og var áður
en það var lækkað i verði i desem-
ber ’72. T.d. hækkað sigarettu-
pakki, sem kostaði 83 krónur, upp
i 87 krónur.
Viskiflöskur, sem kostuðu áður
1240krónur, kosta nú 1550krónur.
Pólskt vodka hækkar úr 1100
krónum i 1420 kr. A Bacardi
rommi verður nákvæmlega 25%
hækkun, flaskan fer úr 1180 krón-
um I 1600 kr.
Léttu vinin hækka flest minna,
nema hvað freyðivin og kampa-
vin hækka mikið.
Starfsfólk Afengisverzlunar-
innar var i óða önn i gær að
reikna út verð á vinum i veitinga-
húsum, og var ljóst, að hækkun
verður allveruleg i krónutölu.
T.d. iiækkar verðið á algengri
rauðvinstegund per flösku úr 1065
krónum upp i 1272, eftir allar
álagningar sem á hana koma. Al-
geng tegund af hvitvini hækkar á
veitingahúsum úr 435 krónum upp
I 741 krónur. —ÓH
„Haninn háttprúði"
á Akureyri
„Haninn háttprúði” nefnist
leikrit, sem frumsýnt verður á
Akureyri á þrettándanum, þ.e.
á sunnudaginn kemur.
„Ilaninn háttprúði” er irskt
leikrit, eftir meistarann Sean
O’Casey, sem frægur er hér á
landi af ýmsum leikritum, t.d.
Júnó og páfuglinum.
O’Casey taldi sjálfur, að
„Haninn háttprúði” væri sitt
bezta verk — þótt vitanlega séu
skoðanir skiptar meöal aðdá-
enda skáldsins.
Skozkur maður, David Scott
að nafni, er leikstjóri þessarar
sýningar Leikféiags Akureyrar,
og kona hans, Jónina ólafsdótt-
ir, leikur gestaleik i þessari sýn-
ingu. —GG
DRUKKNUM ÖKUMANNISTUNGIÐ INN:
Fékk skaðabœtur úr
hendi lögreglunnar
— nœr 6 þúsund á hvern tíma, sem hann varð að dúsa inni
Það þykir tiðindum sæta, ef
menn eru settir i fangelsi á ólög-
mætan liátt af lögreglunni. Ekki
minnkar þaöjjegar viðkomandi
fær svo dænular sex þúsund
krónur i skaðabætur fyrir hvern
klukkutima, sein hann sat inni.
Þó var þetta niðurstaða dóms,
sem var kveðinn upp i Borgar-
dómi Reykjavikur fyrir nokkru.
Mál það, sem hér um ræðir, er
frá 1971, en langan tima hefur
tekið að komast að niðurstöðu
i þvi.
Ungur maður i Reykjavik var
handtekinn i Kópavogi i
nóvember 1971 vegna gruns um
ölvun við akstur. Hann var
látinn blása i blöðru, og sýndi
hún að talsvert áfengismagn
hafði maðurinn innbyrt. Sjálfur
játaði hann að vera undir
áhrifum áfengis. Farið var með
hann á lögreglustöðina i Kópa-
vogi og hann spurður nafns.
Hann sagði til sin, en hafði
hvorki ökuskirteini né nafnskir-
teini til að sanna það. Benti
hann þó á að einn viðstaddra
tögregluþjóna gæti staðfest,
hver hann væri. Gerði lögreglu-
þjónninn það.
Þrátt fyrir það var farið með
manninn heim til sin, en þar
fann hann ekkert ökuskirteini
og ekki heldur á vinnustað
sinum.
Var hanti þá settur i fanga-
geymsluna við Hverfisgötu, en
þetta var um miðja nótt. t
lögregluskýrsluna var svo
skrifað, að hann hefði verið
settur inn, „vegna þess að öku-
maður hafði ökuskirteini ekki
meðferðis, né nein persónu-
skilriki”.
Hér taldi Reykvikingurinn, að
hann hefði verið settur inn, af
þvi að hann hafði ekki meðferðis
persónuskilriki. Fór hann þvi i
mál við fjármálaráðherra fyrir
hönd rikissjóðs og krafðist 150
þúsund króna i bætur. En hann
hafði þá þegar verið sviptur
ökuskirteininu fyrir að aka
ölvaður.
Lögfræðingur hans rökstuddi
kröfuna með tilvitnun i
lögregluskýrsluna og sagði, að
þar væri sagt, að maðurinn
hefði verið settur inn fyrir að
vera án persónuskilrikja. Væri
það ekki næg ástæða til frelsis-
sviptingar.
Lögfræðingur rikissjóðs sagði
á móti, að lteykvikingurinn
hefði gerzt brotlegur við ýmsar
greinar áfengislöggjafarinnar
og lög um notkun nafnskirteina.
Einnig hafi maðurinn verið svo
áberandi ölvaður, að lögreglu-
þjónum hafi verið skylt að
stinga honum inn.
Dómur féll svo á þann veg, að
rikissjóður varð að greiða
manninum 25 þúsund krónur i
skaðabætur fyrir fangelsunina,
með 7% vöxtum frá þvi hann
var handtekinn.
Einnig mátti rikissjóður
punga út með tiu þúsund krónur
I málskostnað. —{>11
Það getur orðið lögreglunni dýrt aö hneppa menn í þcssar sellur, — þ.e. ef ástæöa hefur ekki reynzt næg
til frelsissviptingarinnar.
Fýluferð til Njarðvíkur
MÆTTU OF SEINT -
REKNIR TIL BAKA
„t þcssum bransa dugar ekki
annaö en að vera stundvis.
Þegar piltarnir komu svona
seint, þá scndi ég þá einfaldlega
til baka og sagöi, að þeirra væri
ekki þörf”.
Þetta sagði Heiöar Astvalds-
son, danskennari, er við ræ*id-
um við hann i morgun.
Heiðar vill fá menn til að
mæta á réttum tima, ef um
dansskemmtanir eða annað er
að ræða. Hann hélt jólatrés-
skemmtun fyrir börn i Stapan-
um i Njarðvfkum I gær. Hann
hafði ráðið tvo unga menn til að
koma með diskótek þangað til
að sjá um músikina. Þeir áttu
að vera mættir klukkan tvö.
Klukkan hálf þrjú mætti annar
þeirra og hinn svo hálftima
siðar.
En þá hafði Heiðar sett af stað
sinn eigin grammófón og til-
kynnti ungu mönnunum, að þeir
mættu fara með sin áhöld aftur
til Reykjavfkur þar sem þeir
væru of seinir. Þeir gerðu það.
Börnin dönsuðu svo út allt ballið
við músikina úr grammófónin-
um og skemmtu sér hið bezta.
„Þetta hefur aðeins einu sinni
komið fyrir áður, að menn létu
sjá sig svona seint. En það virð-
ist vera regla, að eftir þvi sem
músfkantar eru eldri, þvi timan
legri eru þeir, og þvi yngri
sem þeir er, þvi verr mæta
þeir”, sagði Heiðar.
Heiðar er heldur ekki
ánægður með þá músik, sem
hljómsveitir ungu mannanna
spila.
„Þessar hljómsveitir taka
hátt verð fyrir að leika á dans-
leikjum. Fyrir það finnst mér
vera hægt að krefjast þess, að
þær spili alhliða dansmúsik, en
þaö gera þær bara ekki. Piltarn-
ir spila svo og svo góðar eftirlik-
ingar af vinsælum lögum, og
það eina, sem flestir geta spilað
fyrir utan það, er Óli skans, allt
of hratt, og einn Vinarvals.
Meira er það nú ekki, sem boðið
er uppá”, sagði Heiðar að
lokum. —óH/emm