Vísir - 04.01.1974, Page 6

Vísir - 04.01.1974, Page 6
6 Visir. Föstudagur 4. janúar 1974 VÍSIR C?tgefandi:-Reykjapi;8nt hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétifrsson Auglýsingastjóri: Sktlli G. Jóhannesson y Auglýsingar: Hverfisgótu 32. Simar 11660 86611 Afgrei&sla: Hverfisgötu 32. Simi 86611. . Ritstjórn: Sihumúla 14. Simi 86611 (7jfnur) ASikriftargjald kr. 360 á mánufti innanlands I lausasölu kr> 22:00 eintakiö. Blaöaprent hf. Þegar embœtti er laust Dómsmálaráðherrar hafa oftast sætt gagnrýni fyrir embættaveitingar sinar. Þeir hafa stundum hneigzt til að taka flokksbræður sina fram yfir aðra umsækjendur, sem betur væru að embætt- inu komnir. Yfirleitt hefur þessi gagnrýni verið réttmæt. Meira máli skiptir þó, að hún hefur i ýmsum tilvikum leitt til heilbrigðari embætta- veitinga. Með tilkomu ólafs Jóhannessonar i embætti dómsmálaráðherra hefur þetta gamla vandamál magnazt á nýjan leik. Fara verður langt aftur i timann til að finna hliðstæða einstefnu i em- bættaveitingum. Með einni eða tveimur undan- tekningum hefur einlit hjörð framsóknarmanna verið skipuð i laus embætti dómara, fógeta og lögreglustjóra, siðan vinstri stjórnin tók við völd- um. Nú siðast var Björn Ingvarsson lögreglustjóri skipaður yfirborgardómari. Til þess er hann vissulega hæfur, auk þess sem hann er góðs maklegur eftir árangursrikt starf i erfiðu embætti. Það er þvi auðveldara að nota þetta tækifæri en annað til að ræða æsingalaust um hið alvarlega siðferðislega vanaamál, sem núverandi dómsmálaráðherra á almennt við að striða i embættaveitingum sinum. w Ólafur Jóhannesson. Dómsmálaráðherra hefur skipað lögreglu- stjóra i Hornafirði og Bolungarvik, fógeta á ís- afirði, dómara og tollstjóra i Reykjavik, auk hæstaréttardómara. í sumum þessara tilvika hefur hann gengið gróflega framhjá reyndum embættismönnum til að koma að framsóknar- mönnum, sem enga reynslu höfðu i s kyldum störfum. Þessi einstefna hefur ekki vakið mikið umtal. Ein af ástæðunum fyrir þvi er, að rikisstjórnin hefur gefið nægilega höggstaði á sér á öðrum sviðum. Embættaveitingar dómsmálaráðherra hafa fallið i skugga annarra vandamála, sem rikisstjórnin hefur átt við að striða. En ekki er hægt að lita framhjá annarri orsök, sem ekki er siður alvarleg. Menn virðast ekki gera sömu kröfur til þessarar rikisstjórnar, og annarra og þá ekki frekar i embættaveitingum en á öðrum sviðum. Það er þungur dómur yfir rikisstjórninni, ef menn telja embættaveitingar dómsmálaráðherra vera sjálfsagða skrautfjöður i trúðshatti rikisstjórnarinnar. Þess vegna væri það rikisstjórninni i hag, að Ólafur Jóhannesson sæi framvegis að sér, minnugur þess, að siðferðileg mistök stjórnvalda eru til þess fallin að grafa undan siðgæðishug- myndum þjóðarinnariheild. Sá skaði getur verið varanlegri en það tjón, sem unnið er á efnahag þjóðarinnar með vanhugsuðum aðgerðum i fjár- málum og efnahagsmálum. Atvinnuvandamál framsóknarmanna geta ekki verið svo alvarleg, að dómsmálaráðherra þurfi framvegis að gripa til jafn dapurlegra embættis- veitinga og hingað til. -JK. uT.; !*r-» r ^TjflP ‘sj jflPp'^ v "~1il ^ Drœm sala a bílum í Evrópu Meðan bilaiðnaður Evrópu á við sina verstu erfiðleika að striða frá lokum siðari heims- styrjaldar, skýra bila- salar frá þvi, að mikið verðhrun hafi orðið á notuðum bilum, eða allt að tuttugu prósent. Einkum á það við um dýra lúxusbila eða kraftmikla. Fréttir frá ftaliu, Vestur- Þýzkalandi, Frakklandi og Bret- landseyjum greina frá miklum samdrætti í sölu nýrra bifreiða, og bilasalar skera niður söluverð- iö á notuðu bílunum, svo að átakanlegt er á að horfa — svona séð með augum bileigenda. r | Rómaborg er tveggja ára gamall Ferrari boðinn til sölu á aðeins sex milljónir lirur, en nýr kostaði hann tólf milljónir. Fyrir fjórum mánuðum var svona bill tuttugu prósent dýrari, svo að það er ekkert smáræði, sem klipið hefur verið af. 1 Bretlandi og Vestur-Þýzka- landi ber svipað fyrir augu. Þar hafa orðið verðlækkanir á rolls- um, benzum og BMW, sem nema fimmtán og tuttugu prósent frá þvi að orkukreppan skall á. D ^Jrezki bilaiðnaðurinn sér fram á fjörutiu og tvö prósent rýrnun i sölu nýrra bila á fyrsta fjórðungi þessa árs. Hagfræðing- ar spá þvi, að árssalan komi til með að nema 1,100.000 bilum, sem er hálfri milljón minna en spár gerðu ráð fyrir aðeins nokkrum mánuðum áður. Liklegast þykir, að þetta komi harðast niður á inn- fluttum bifreiðum, en þær voru þriðjungur seldra bila á Bret- landseyjum á siðastliðnu ári. A Italiu hafa Maserati og Ferr- ári fundið fyrir tuttugu og fimm til þrjátiu prósent samdrætti i sölu siðustu tveggja mánaða. Maserati hefur brugðist nú þegar við með þvi að stytta vinnuvikuna úr fjörútiu stundum i tuttugu og fjórar með sina sex hundruð starfsmenn i Modena-verk- smiðjunum. Ferrari og Lamborghini lokuðu verksmiðjum sinum 22. desem- ber, og ennþá er allt óráðið um, hvenær þær opna aftur. Þessir tveir framleiðendur lúxusbila skila af sér að meðaltali sex bif- reiðum á dag. R ■J ilasaiar i Frankfurt greina frá þvi, að sala bila með stærri vélar en samsvarar þriggja litra slagrúmtaki sé hreint engin. Þeir kunna frá þvi að segja, að verð- fallið nemi til jafnaðar um tiu prósent.og sumir bæta við: ,,Þótt við klipum enn meira áf, þá er óvist, að við gætum losnað við þá” Eftirspurn eftir meðalstórum eða litlum bilum er sögð hafa minnkað um tuttugu eða þrjátiu prósent. F ■ ranskir bilasalar bera sig illa undan sjötiu og fimm prósent samdrætti i bilasölu. Erik Orn- hjelm, forseti franska bilafram- leiðendasambandsins, sagði fréttamanni Associated Press, að ráðstafanir rikisstjórnarinnar til þess að draga úr oliueyðslu, nefnilega lækkun hámarkshraða á vegum, hafi eyðilagt sölu stærri bifreiða. Frakkar neita nú að kaupa af útlendingum stóra bila til innflutnings. A Bretlandseyjum ku sala not- aðra bila vera algerlega stöðnuð, eins og bilasali einn i Lundúnum komst að orði. Brezku Leyland- verksmiðjurnar hafa hvatt sölu- aðila sina til að slá af verði eldri árgerða til þess að örva viðskipt- in. Einn sagði, ,,að eldri bilar lækkuðu svo i verði, að það væri skelfilegt til að vita”. — ,,Þetta eru uppgripatimar fyrir mang- ara,” segja sumir. Enda er svo komið fyrirmörg- um bilasölum þar i landi, að þeir láta bilana nánast fyrir hvaða verð, sem býðst til þess að losa um kapitalið. framtiðin er þeim ekki bjartari. Ekki i það nánasta að minnsta kosti. Sjá þeir fram á erfiðan janúar og febrúar. — Og ef bilasalar i Bretlandi selja ekki notaða bila, þá losna þeir enn sið- ur við nýja. Þar er spáð fjörutiu til fimmtiu prósent samdrætti vegna orkuskortsins og efnahags- erfiðleika þjóðarinnar.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.