Vísir - 14.01.1974, Side 4

Vísir - 14.01.1974, Side 4
4 Visir. Mánudagur 14. janúar 1974 Gegndarlaus bílainnflutningur — Kaupum engu minna af jeppum og áýta strokka bílum þrátt fyrir benzínskort og verðhœkkanir á benzíni Samkvæmt upplýsingum, sem við öfluðum okkur hjá helztu bif- reiðainnfly tjendum landsins, seldust á siðasta ári 820 Volkswagenbilar, 314 af Volvo og 247 Skodar. Ekki reyndust vera tiltækar tölur yfir innflutning Moskwitch-bifreiða, en þær bif- reiðar eru orðnar æði margar hér á landi. Tvær nýjar tegundir bifreiða slógu i gegn á siðasta sumri og eru liklegar til að komast hátt á blað yfir söluhæstu bifreiðarnar á næstu árum. Það eru bilar, sem likjast Fiat hvað stærð og spar- neytni áhrærir. Þetta eru Austin Mini og Morris Marina. Innfluttar voru samtals 142 bif- reiðar af fyrrnefndu tegundinni og 169 af hinni siðarnefndu. Erfitt var að fá hingað þessa bila, þar sem eftirspurnin erlendis er engu minni en hérlendis. Liðlega 300 eru hér á biðlista eftir Austin Mini og að minnsta kosti 70, sem biða eftir Morris. -ÞJM. íslendingar eru alltaf samir við sig. Þeir láta ekki benzínskort og benzín- hækkanir aftra sér frá því að kaupa þá bíla, sem þeir hafa augastað á. „Bíla- innflutningurinn er gegnd- arlaus," sagöi forstjóri Bifreiðaeftirlitsins i viðtali við Visi. „Stóru bílunum fækkar ekkert." Að visu er mest seldi billinn á árinu litill og sparneytinn, nefni- lega Fiat, en af honum komu hvorki meira né minna en 1001 bill á siðasta ári. En hinsvegar hefur ekkert dregið úr innflutningi stóru bilanna, stórir jeppar og átta strokka bilar koma hingað i stórum stil. Og nú ætti llklega að vera auðveldara en áður, að komast yfir stóra bila, þvi þeir seljast ekki lengur eins glatt erlendis núna i benzin- skömmtuninni. Þó að eitthvaö hafi dregiö úr innflutningi á notuðum ameriskum bifreiöum, er langt frá þvi, aö siikum innflutningi sé meööllu lokið. Nú um helgina var von á Mánafossi til landsins meö samtals 300 notuö ökutæki aö vestan. Þeir þessir eru notaöir og ameriskir og stóöu á þaki vöru- geymslu Eimskips I siöustu viku A siðasta ári komu hingað 161 Land Rover og 92 Range Rover og Willys Jeep og Bronco fjölgar einnig stööugt. Stóru jepparnir eru orðnir það stöðutákn, sem kemur næst þvi að eiga einbýlis- hús. Aö sögn innflytjenda eru langir biðlistar eftir slikum farartækjum og verð þeirra fellur minnst við endur- sölu sé miðað við aðrar fólksbif- reiðir. Að sögn Bifreiðaeftirlitsins virðist sem heldur hafi dregið úr innflutningi notaðra ameriskra bifreiöa. Menn hafi almennt efni á að kaupa sér heldur nýja bila beint úr kassanum. Fiat mun hafa veriö bill sföasta árs, en af þeirri tegund seldist eitt þúsund og einn Verkstjóri óskast til að veita forstöðu nýju og full- komnu bifreiðaverkstæði (aðallega rétt- ingar og málning), sem áformað er að setja á stofn. Viðkomandi þarf að hafa kunnáttu i ensku og einu norðurlanda- máli, þar sem gert er ráð fyrir, að hann þurfti að kynna sér rekstur sliks verk- stæðis erlendis. Þeir sem hafa áhuga fyrir þessu starfi sendi umsókn, er tilgreini menntun og fyrri störf til afgreiðslu blaðsins fyrir 29. þ.m. merkt ,,Verkstjóri-1000”. Nauðungaruppboð scm auglýst var I 71., 73. og 75. tölublaöi Lögbirtinga- biaösins 1973 m.b. Stigandi SH-69 talin eign Unnars Olsen fer fram eftir kröfu Brynjólfs Kjartanssonar, hdl., viö eöa i bátnum, þar sem hann stendur viö Óseyrarbraut, Hafnarfiröi fimmtudaginn 17. janúar 1974 kl. 4.00 e.h. Bæjarfógetinn I Hafnarfiröi. LÆNAGREIÐENDUR virrsamlega veitið eftiríaiandi erindi athygli: Frestur til að skila launamiðum rennur út þann 19. janúar. Það eru til- mæli embættisins til yðar, að þér ritið allar uþplýsingar rétt og greini- lega á_ miðana og vandið frágang þeirra. Með því stuðlið þér að hag- kvæmni í opinberum rekstri og firrið yður óþarfa tímaeyðslu. RIKISSKATTSTJÚRI LAUNAGREIÐENDUR! Munið að tilgreina nafnnúmer launþega á launamiðanum. Með því sparið þér yður og skattyfirvöldum dýrmætan tíma og tryggið, að launa- greiðslurnar verði frádráttar- bærar til skatts.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.