Tíminn - 08.01.1966, Side 1

Tíminn - 08.01.1966, Side 1
Gerizt askniendur að rímanum Hringið 1 sima 12323 5. tbl. — Laugardagur 8. janúar 1966 — 50. árg. Miklar rigningar hafa aíi undan fömn verið viða í Evrópu og Ameríku, og víða valdið flóðum og miklu eignatjóni, jafnframt því sem miklir þurrkar valda enn meira tjóni í Afríku og Asíu. Mynd in hér að neðan er frá Oregon í Bandarikjunum. Flóðin þar köst uðu bifreiðinni út af veginum, en konan komst út úr henni í tæka tið og var henni bjargað. Fiskverðhækkunin 17% - Reykjavíkurborgar afgreidd: GATNAGERÐARGJÚLDIN VORU HÆKKUD UM 72% AK-Reykjavík, föstudag. Borgarstjórnarfundinum í nótt sem leið, þar sem fjárhagsáætlun Reykjavikur fyrir árið 1966 var afgreidd, lauk klukkan 7 í morgun. Urðu umræður allmiklar og átti borgarstjórinn og meirihluti hans mjög í vök að verjast fyrir harðri og rökstuddri gagnrýni á stjórn borgarmálefna. Aðalræða Krist- jáns Benediktssonar, borgarfull- trúa Framsóknarflokksins, um áætlunina, var birt hér í blaðinu í dag, en aðalræða Einars Ágústs- sonar verður birt á sunnudaginn. íhaldsmeirihlutinn brá ekki venju sinni um að reka gereyðing- arstyrjöld gegn tillögum minnihlut ans, og voru allar tillögur hans felldar — hver ein og einasta — annað hvort beint eða með frávís- un. Með þessari fjárhagsáætlun hækka ekki aðeins útsvör um 20% heldur og margvisleg önnur gjöld. Gatnagerðargjöld hækka t. d. um 72%, gjöld af sundstöðum um 25—30%, vatnsskattur um 25% og hefur þá hækkað um 75% á tveim ur árum. Rafmagnsverð hækkar einnig mikið í krafti nýrra laga, þar sem ríkið varpar bagga sínum alveg yfir á herðar bæjarfélag- anna og rafmagnsnotenda. Framsóknarmenn lögðu fram milli 40 og fimmtíu breytingartil- lögur og miðuðu þær yfirleitt að því að draga úr rekstrareyðslu en auka framkvæmdir, einkum skóla- byggingar, byggingu barnaheim- ila og leikvalla og ibúðabyggingar á vegum borgarinnar, enda eru þessir þættir sérstakar hornrekur í áætluninni. Þessar tillögur voru einnig felldar. Þá báru Framsóknarmenn fram eftirfarandi mótmælatillögu gegn hækkun raforkuverðsins, en hún var að sjálfsögðu felld: „Borgarstjórn Reykjavíkur mót- mælir þeirri hækkun á raforku- verði í Reykjavík, sem ákveðin var með lögum frá 17. desember s. 1. um ráðstafanir til að bæta fjárhag Rafmagnsveitna ríkisins“. Einnig báru Framsóknarmenn fram eftirfarandi tillögu, sem íhaldið taldi „óþarfa" og vísaði frá: „Um leið og borgarstjórn Reykja víkur þakkar þann skilning á tekjuþörf sveitarfélaga, sem fram kom hjá löggjafanum, með því ákvæði í 16. gr. laga nr. 69/1962 að greiða 20% af innheimtum söluskatti, sbr. lög nr. 10/1960, í jöfnunarsjóð sveitarfélaga, skorar borgarstjórn á Alþingi og ríkis- stjórn að láta sömu reglu gilda um allan söluskattinn og treystir jafnframt borgarfulltrúum Reykja víkur, sem setu eiga á Alþingi, að vinna ötullega að framgangi þess“. DE GAULLE SETTUR í EMBÆTTI í DAG: ÞINGMEIRSHLUTI HANS í HÆTTU? NTB-París, föstudag. Charles de Gaulle, forseti Frakk lands, sem tekur á morgun form- lega við embætti forseta fyrir næstu sjö árin, á nú á hættu að missa meirihluta sinn í franska þinginu vegna deilna um ráðherra sætin. Georges Pompidou, forsæt- isráðherra, hefur undanfarið unn- ið að því að skipa nýja ríkisstjórn og Ijóst er, að fyri-verandi forsætis ráðherra í Fjórða lýðveldinu, lýð- veldissinninn Edgar Faure, hefur fallizt á að verða landbúnaðarráð- herra i hinni nýju ríkisstjórn. Aft- ur á móti hefur risið upp mikil deila milli Gaullistans Michel Debre, fyrrverandi forsætisráð- herra, og lýðveldissinnans Celry Giscard D’Estaing, fjármálaráð- herra, um hver eigi að stjórna efnahagsmálunum í hinni nýju stjórn. Án þingmanna lýðveldis- sinna hafa Gaullistar ekki meiri- hluta á þingi. Landbúnaðarráðherrann í frönsku ríkisstjórninni hefur þar lykilað- stöðu, ekki sízt vegna deilunnar innan Efnahagsbandalags Evrópu. Faure var sérlegur sendimaður de Gaulles í Peking árið 1963, áður en Frakkland tók upp stjórnmála- samband við Kína, og hann hefur síðar farið víða sem sendimaður de Gaulles. Michel Debre, sem var fyrsti for sætisráðherrann undir stjórn de Gaulles og sem er mjög harður Gaullisti, krefst þess að verða eins konar yfirráðherra, sem hafi Framhald á bls. 14. IGÞ—Reykjavík, föstudag. Tímanum barst í da-g fréft frá yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút- vegsi'ns, þar sem skýrt er frá þv|, að samþykkt hafi verið til. laga frá oddamanni nefindarinnar þess efnis, að meðalverð á fersk fiski á árinu 1966 skuli hækkaum 17%. Kemur einnig fram i til- kynningu yfirnefndar, að fyrir- hugað er að greiða útflutnings- gjald það, sem tekið hefur verið af þorskafurðum, af síldarlýsi og síldarmjöli. Má helzt ráða af þessu, að ríkisstjórnin ætli sér að hækka gjöld á síldarafurðum í því skyni að mæta hækkuðum útgjöldum er stafa af því hvemig óðaverðbólgan hefur hækkað framleiðslukostnað sjávarútvegs- ins. Sannar þessi fréttatilkynning það, sem Framsóknarflokkurinn hefuv haldið fram, að «iú væri svo komið. að meginhluti útflufnings framleiðslunnar þyrfti orðið upp bætur, cnda lcjðir verðbólgustefn an til slíks. Fréttatilkynningin frá yfirnefndinni fer hér á effir: „Samkomulag um verðákvörS- un á bolfiski á vetrarvertið 1966 náðist ekki í Verðlagsráði sjávar útvegsins og var verðákvörðun vísað til yfirnefndar þann 10. des ember Hefur nefndin leitazt við að fínna grundvöll fyrir verðá- kvörðun. er bætt gætj verulega rekstrarafkomu báta á þorskveið um og gæti jafnframt bætt kjör sjómanna á þessum bátum til samræmis við breytingar á kjör um annarra stétla. Af hálfu fisk kaupenda hefur komið fram, að vegna erlendra verðhækkana og umbóta í rekstri sjái vinnslu- stöðvar sér fært að hækka fisk verðið verulega Þrátt fyrir hækk un framleiðslukostnaðar innan- lands. Þessi hækkun er þó ekki það mikil. að nefndin telji, að með henni væri þessum útvegi tryggð eðlileg rekstrarskilyrði né sjómönnum á þessum bátum eðlileg lífskjör samanborið við aðra. Hefur nefndin þvj leitað að öðrum leiðum til að þetta tak mark geti náðst. Fékk nefndin leyfi sjávarútvegsmálaráðlierra til þess að fresta verðákvörðun um nokkra daga því skyni að gera frekari athuganir á þessum leiðum Hefur nefndin í þessu sambandi einkum kannað hugs anlega breytingu á útflutnings- gjaldi er gæti gert það kleift að hækka fiskverðið. Þá hefur oddamaður nefndarinnar átt við ræður við ríkisstjómina um aðr ar hugsaniegar aðgerðir af henn- ar hálfu er gætu haft áhrif í sömu átt. Niðurstaðan hefur nú orðið sú að á fundi yfimefndar þann 6. þ.m. var samþykkt tillaga firá oddamanni nefndarinnar, er felur það í sér, að meðalverð á fersk- fiski á árinu 1966 hækkar um 17% frá því, sem var á s.l. ári. Er þessi hækkur þó háð þvj skil yrði, að breyting verði á út- tflutningsgjaldi þiannig, að það Framhaid á bls. 14.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.