Tíminn - 08.01.1966, Blaðsíða 16

Tíminn - 08.01.1966, Blaðsíða 16
5. tbl. — Laugardagur 8. janúar 1966 — 50. árg. BÆKUR KiLJANS HAFA SELZT11 MILL. EINTAKA í SOVÉTRÍKJUNUM HZ—Reykjavík, föstudag. Stór hluti manna í Ráðstjórnar íslenzka sjónvarpið hóf að senda út stillimynd sína á ákveðnum timum í gær. Myndin verður send út á tímanum frá klukkan 13 til 21 og með henni er hljóðmerki. Myndin hér að ofan tók GE af útsend- ingunnl í gær, og má sjá stillimyndin hefur komið greinilega fram á þessu sjónvarpstæki. Ér Von- andi, að sem flestir sjónvarpseigendur nái því að fá skýrar stillimyndir áður en sjónvarpsdagskrá- in hefst fyrir fullt og allt, en það verður þó væntanlega ekki fyrr en í sumar. ríkjunum þekkir gerla til nútíma íslenzkra bókinennta, að því er segir j fréttatilkynningu frá MÍR er skýrir m.a. frá annarri ráð- stefnu vinafélagsins Ráðsfjórnar- ríkin-fsland, sem haldin var í Moskvu 17. desember s.l. Hafa fil dæmis bækur Halldórs Kiljans Laxness komiff út í nær einni milljón eintaka. Félagið á stóran þátt í að sjá um þýðingar á ísl. verkum. Mest- ar mætur hafa rússn. lesepdur bvímælalaust á Halldóri Kiljan Laxness. Samanlagður fjöldi bóka hans, sem út hafa verið gefnar í Ráðstjórnarríkjunum er um ein milljón eintaka. Á sjðast liðnum árum hafa tvær skáldsög ur hans, „Salka Valka” og „ís- landsklukkan” og smásagan „Ung frúin góða og húsið“ séð dagsins Ijós. Mörg af ritverkum Kiljans hafa verið þýdd á úkrainsku, eist nesku. lettnesku, litháesku og fleiri tumgunrál hinnar sovézku þjóðar í upphafi bauð formaður félags ins, Nikolaj Gontjarov, gesti vel komna, sem voru: Kristinn Guð- mundsson, sendiherra í Moskvu, Haraldur Kröyer. sendiráðsritari Þorvaldur Þórarinsson, hrl., Sig- urður Magnússon. og blaðakon- Untlirbúningur aS gerS kmkvæmdu áætlunar fyrir NorSurland uS hefjast FB—Reykjavík, föstudag Um þessar mundir eru starfs- menn Efnahagsstofnunarinar að hefja undirbúning að gerð fram kvæmdaáætlunar fyrir Norður Framsóknarfélögin á Akureyri Framsóknarfélögin á Akureyri halda fund á Hótel KEA mánudag inn 10. janúar klukkan 8.30 e. h. umræðuefni: Fjárhagsáætlun bæj arins fyrir árið 1966. Allt stuðn ingsfólk Framsóknarflokksins vel komið á fundinn. ÓVENJU MARGIR ÚTLENDINGAR Á TOGURUNUM SJ—Reykjavík. föstudag. Flestir togaranna eru að veið um á heimamiðum, en afli er treg ur. Aftur á móti gengur sala á erlendum markaði mjög vel og sigla því allir togararnir með afla sinn. Víkingur var við veiðar við V-Grænland og Maí við A-Græn- land og var afli þeirra sæmilegur. Sæmilega hefur gengið að manna togarana en um borð í þeim starfa nú óvenju margir út lendingar — Englendingar, Spán verjar. Fransmenn og Færeying- ar. Flestir útlendinganna eru van ir sjómenn, og fá þeir betri kjör og sennilega betra viðurværi á íslenzkum togurum en erlendum. landið, svipaðri þeirra áætlun, sem þegar hefur verið gerð fyrir Vest firðina. En eins og kunnugt er var eitt atriðið í samkomulaginu, sem gert var við verkalýðsfélög in á Norður- og Austurlandi í sumar það, að gerð yrði fram kvæmdaáætlun fyrir þessa lands hluta um atvinnuvegi þeirra, en mikið hörmungarástand hefur ver ið ríkjandi í sumum þorpunum aðallega norðanlands, þar sem lít ið sem ekkert hefur verið að gera vegna þess að útgerðin hef ur brugðizt síðustu árin. Blaðið sneri sér til Jónasar Har aldz forstöðumanns Efnahagsstofn unarinnar og spurðist fyrir um gang þessara mála. Sagði Jónas, að Efnahagsstofnuninnni hefði ver ið falið að gera framkvæmdaáætl un fyrir Norður og Austurlandið, á sama hátt og gerð hefði verið áætlun fyrir Vestfirðina. Þeirri áætlunargerð er nú lokið, og má búast við að ríkisstjórnin leggi hana fram mjög bráðlega. Meginhluti Vestfjarðaáætlunar- innar er um samgöngumál, og var þeim hluta hennar lokið fyrir hérumbíl ári og sérstaks lánsfjár aflað í því skyni að vinna eftir áætluninni. Framkvæmdir sam- kvæmt áætluninni hófust á síðasta sumri, og var til dæmis Patreks fjarðarflugvöllurinn liður í þessari áætlun, og sömuleiðis vegurinn cramsóknarmemi í Kóoavogi Aðalfundur fulltrúaráðs Fram sóknarfélaganna i Kópavogi verð ur haldinn í Framsóknarhúsinu að Neðstutröð 4, mánudaginn 10. jan úar, klukkan 9.30. milli Tálknafjarðar og Bíldudals yfir Hálfdán og hafnarframkvæmd irnar á Þingeyri. B.áðizt hefur ver ið í allar Þessar framkvæmdir miklu fyrr en ella og í miklu stærri mæli heldur en möguleikar hefðu verið á. vegna tilkomu fram kvæmdaáætlunarinnar og ákvörð unarinnar um að hún yrði gerð. Um Norðurlandsáætlunina er það að segja, að undirbúningur er að hefjast, en ekki er búizt við að starfsmenn Efnahagsstofnunar innar geti haldið af stað norður í land til þess að kynna sér að- Framhald á 14. síðu. an Margrét Amórsdóttir. estirnir höfðu farið í kynnisför til Riga og Leningrad og stkoðað Moskvu í nokkra daga áður en ráðstefn- an hófst. Mikið var rætt um hið ágæta samstarf beggja landa. Starfsemi félagsins er margþætt, haldin eru vinakvöld sýndar eru kvikmyndir og haldin eru skemmfikvöld fyr ir þá, sem ferða^t hafa til Is- lands. Framhald á 14. síðu. ÓLÆTI VORU í HAFNARFIRÐI Á ÞRETTÁNDANUM HZ—Reykjavík, föstudag. Mikil ólæti voru í Hafnarfirði í gærkvöldi, þegar imglingar úr Hafnarfirði, Reykjavík og Kópa- vogi söfnuðust saman í miðbæn. um og voru með alls kyns sprell. Það er orðin föst venja unglinga í Hafnarfirði á þrettándakvöld að sleppa fram af sér beizlinu og skaprauna fólki, — affallega lög. reglunni. Strax upp úr átta fóru Þeir fyrstu að tína-st í bæinn og segja má, að lætin hafi staðið til 23:30. Megnið af þessum unglingum er á aldrinum 10—14 ára bæði strák ar og stelpur. Mest bar á kín- verjasprengingum og íkveikju á benzíni úti á Strandgötunni. Höfðu margir birgt sig upp af flöskum með benzjni og fleygðu þeim síðan á götuna og kveiktu í benzíninu. Talsverðir eldar urðu af þessu og kalla varð á slökkviliðið til að spauta á göt- una. Þessir krakkar virtust ekki gera sér grein fyrir því, hversu hættulegur leikur þetta er. Framhald á 14. síðu. Hólmvíkingar hyggjast stofna fé/ag til þess að vinna rœkju FB-Reykjavík, föstudag. Frá því um miðjan nóvember og þangað til í gær höfðu borizt á land á Hólmavík 19 Va lest af rækj um. Atvinnuhorfur voru til skamms tíma mjög slæmar þar á staðnum, en þegar Hólmavíkurbát- urinn Guðmundur frá Bæ fann ný rækjumið á Hrútafirði í nóvem- ber, breyttist þetta töluvert, og nú er svo komið, að rætt hefur verið um það á hreppsfundi á Hólmavík, að stofnað verði þar fé- lag, sem hefur það markmið að vinna rækju, og er gert ráð fyrir, að það verði stofnað einhvern tímann á næstunni, og taki til starfa á hausti komanda. Við ræddum í gær stuttlega við Jóhann Guðmundsson skipstjóra á Guðmundi frá Bæ, en 16. nóvem- ber s. 1. fann hann ný og áður ókunn rækjumið á Hrútafirði. Jó- hann sagði, að þeir hefðu byrjað að ieita að rækjunrii 12. nóvem- ber og þá fyrst inni á Steingríms firði. en lítið fundið þar Síðan fluttu þeir sig til og inn í Hrúta fjörð og 16. nóvember fengu þeir hvorki meira né minna en tæp tvö tonn af rækju á þessum nýju mið- um, eins og frá hefur verið skýrt áður. — Síðan þetta var, höfum við farið á rækjuveiðar, þegar veður hefur leyft, og erum nú búnir að fá tæp tuttugu tonn. í dag fórum við hér inn á Steingrímsfjörðinn, rétt innan við Hólmavík, og feng- um þar 700 kg., svo veiðin virðist vera að glæðast. — Hvað eru margir bátar með rækjuleyfi á Hólmavík? — Við erum fjórir, Guðmundur frá Bæ, Farsæll, Kópur og Hrefna, en hinir hafa enn ekki notfært sér leyfið. Það er heldur ekki mann- skapur hér til þess að vinna úr meiri afla heldur en þeim, sem Framhaid á bls. 14. r o» FRAMSOKNARVISTIN A SOGU Framsóknarvist Framsóknar- félaganna í Reykjavík verffur spiluff á Hótel Sögu sunnudag inn 9. janúar og hefst kl. 20.30 stundvíslega. Þetta er ann- aff spilakvöldið i fimm kvölda keppninni, sem hófst fyrir ára mótin. Veitt eru glæsileg heild arverðlau.n að keppninni lok- inni, auk þess sem verfflaun eru veitt eftir hvert kvöld. Ræðumaður á vistinni verffur Einar Ágústsson alþingismaffur. Stefán Þ. Jónsson söngkennari stiórnar almennum söng. A0 lokum mun hljómsveit Ragnars Bjarnasonar leika fyrir dansi til klukkan 1 eftir miðnætti. Stjórnandi vistarinnar verffur nú eins og áffur Markús Stefáns son. Miffar eru seldir á skrif stofu Framsóknarflokksins Tiarnargötu 26 í dag og frá 3—5 á sunnudagi símar 15564 og 16066. Nauffsynlegt er fyrir þá sem vilja halda áfram í 5 kvölda keppninni að tryggja sér miða í tíma, því aff affsókn er mjög mikii, og síffast urðu margir frá aff hverfa.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.